„Hann er mjög hræddur“ Erla Hlynsdóttir skrifar 14. mars 2013 20:25
Davíð Örn Bjarnason, sem hefur verið í varðhaldi í Tyrklandi síðan á föstudag, hefur verið látinn laus. Unnusta hans segir hann mjög óttasleginn eftir fangelsisvistina. Davíð er í farbanni og óvíst er hvenær mál hans verður tekið fyrir. Davíð var handtekinn á flugvellinum í Antalya og honum gefið að sök að hafa ætlað að smygla fornminjum úr landi. Davíð sagðist við yfirheyrslu ekki hafa vitað að hann væri að gera nokkuð ólöglegt. Fulltrúi utanríkisráðuneytisins fór út í gærkvöldi og tilkynnt var í morgun um lausn Davíðs. Utanríkisráðherra segist litlar upplýsingar hafa fengið um heilsufar Davíðs eða meðferðina á honum í fangelsinu. „Ekki get ég nú sagt það annað en að við vildum að hann færi í læknisskoðun þegar hann kom í hendur okkar manns, en þetta er víkingur og vaskleikamenni og hann taldi ekki þörf á því sjálfur og er svona miðað við aðstæður, að sögn okkar manns og hans sjálfs, í þokkalegri stöðu. En þetta var honum auðvitað erfitt." Þóra Björg Birgisdóttir, unnusta Davíðs og barnsmóðir, fékk símtal frá honum í dag. Hún er að vonum ánægð með að hann er laus.Hvernig er hljóðið í honum? „Það er bara ekki nógu gott," segir hún.Hvernig talar hann um vistina þarna? „Ekki vel. Það er mikil spilling í gangi og margt í gangi sem, eins og staðan er í dag, má ekki tala um. Þegar hann kemur heim er hægt að upplýsa fólk um hvað var virkilega í gangi.Af hverju má ekki tala um það núna? „Bara til að koma honum ekki í meiri vandræði."Þannig að hann er hræddur? „Hann er mjög hræddur. Mjög hræddur," segir Þóra. Sem stendur dvelur hann á hóteli ásamt fulltrúa utanríkisráðuneytisins. Íslendingar í Tyrklandi hafa boðið honum húsaskjól og á næstu dögum verður honum fundinn dvalarstaður til 25. apríl, þegar farbanni verður aflétt. En Þóra hefur áhyggjur af Davíð. „Hann er auðvitað feginn að vera laus úr þessu helvíti. En það er mikið eftir. Þetta er ekkert búið."
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira