Fleiri fréttir

Passað upp á skjaldbökurnar

Á ráðstefnu CITES í Bangkok í Tælandi í dag var ákveðið að auka eftirlit með skjaldbökum í útrýmingarhættu.

Bolatíst á sjö sekúndna fresti

Á áttunda tímanum voru Íslendingar búnir að senda 10 þúsund tíst með merkingunni #boladagur á Twitter. Alls voru send 9.000 tíst með þessari merkingu á Boladeginum á síðasta ári.

Guðlaugur Þór hrósaði Jóhönnu

Sá fáheyrði atburður varð á Alþingi í dag að Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins hrósaði Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Hún tók hólinu vel þótt hún segðist honum annars ósammála í hundrað prósent tilvika.

"Það er oft erfitt að láta ekki deigan síga"

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fulltrúi Sameinuðu þjóðanna hjá UN Women í Kabúl segir réttindamálum þar í landi miða alltof hægt og glæpir gegn konum ekki kalla á refsingar. Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er minnsta víða um heim í dag.

"Tökum til fullra varna“

Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra segir að það komi ekki til greina að heimila innflutning á hráu kjöti hingað til lands. Nýverið komst ESA að því að bann Íslands við innflutningi á hráu kjöti standist ekki EES-samninginn og gæti málið endað fyrir dómstólum. Steingrímur segir að hann taki til fullra varna ef til þess kemur.

Þrír milljarðar í stóriðju á Bakka

Ríkið mun leggja fram, yfir þrjá milljarða króna vegna stóriðju á Bakka og meiri skattaívilnanir en áður, samkvæmt frumvarpi sem Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra mælti fyrir á Alþingi í gærkvöldi. Ráðherrann segir að ríkið verði búið að fá peningana til baka áður en framkvæmdum lýkur.

Flest brotin samræði í endaþarm eða leggöng

Flest þeirra barna sem leita til Barnahúss hafa orðið fyrir alvarlegustu gerð kynferðisofbeldis. Eftir því sem börnin eldast verða brotin alvarlegri en því yngri sem þau eru er líklegra að ofbeldismaðurinn sé tengdur brotaþola í gegnum fjölskyldu.

Mátti ekki kyssa Justin Bieber

"Mig langaði að fara að gráta en ég vildi ekki vera grátandi á myndinni því það myndi eyðileggja líf mitt," segir Auður Eva 14 ára aðdáandi Justin Bieber.

Kominn um borð í sjúkrabíl

Maðurinn sem fótbrotnaði í Botnssúlum fyrr í dag er kominn um borð í sjúkrabíl. Sjúkraflutningamenn, björgunarsveitamenn og sérsveitarmenn fluttu manninn á sjúkrabörum um 300 metra vegalengd í Hvalfirði síðdegis.

Hreindýrin nefnd Tindur og Heiður

Nýkomin hreindýr í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn hafa fengið nöfn. Vinir garðsins á Facebook lögðu Garðinum lið í nafnaleitinni.

Þingkonur ræða jafnréttismál í Jónshúsi

"Hrun og heimsmet í kynjajafnrétti? Femínisminn - fimm árum síðar" er yfirskrift erindis sem dr. Þorgerður Einarsdóttir flytur á baráttusamkomu í Jónshúsi í Kaupmannahöfn 8. mars. Á eftir ræða fjórar þingkonur stöðu kynjajafnréttis á Íslandi.

Þurfa að bera manninn 300 metra

Um 40 björgunarsveitamenn ásamt sjúkraflutningsmönnum og lögreglumönnum úr sérsveitinni sem voru á æfingu í Hvalfirðinum eru komnir á slysstað þar sem maður fótbrotnaði í Botnssúlum fyrr í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið að flytja björgunarmenn á staðinn, en hún gat ekki athafnað sig á slysstaðnum þar sem maðurinn var í miklum bratta.

Fótbrotnum manni komið til bjargar

Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu eiga í þó nokkrum erfiðleikum með að nálgast karlmann sem fótbrotnaði við Botnsúlur í Hvalfirði laust fyrir klukkan tvö í dag.

Sjö þúsund tíst send inn á Boladegi

Klukkan 14 höfðu ríflega þúsund manns sent tæplega sjö þúsund tíst inn á samskiptasíðuna Twitter með merkingunni #boladagur. Eins og fram kom á Vísi í morgun snýst dagurinn að mestu leyti um það að Íslendingar senda erlendum stórstjörnum skilaboð á Twitter og biðja þá um að svara.

Ófremdarástand ríkir í Barnahúsi

Börn sem hafa orðið fyrir mjög grófu kynferðisofbeldi eru á bið í meðferð í Barnahúsi vegna ófremdarástands sem þar ríkir. Forstöðumaður Barnahúss segir að það sem af sé þessu ári hafi þeim borist yfir hundrað mál þar sem grunur er um kynferðisofbeldi gegn börnum. Ekki sé nægur mannskapur eða húsrými til að sinna þessum málum sem skyldi og fjármagn til málaflokksins hafi ekki verið aukið í sex ár.

Sverðnykra bættist við flóru landsins

Ný háplöntutegund, sverðnykra, bættist við flóru landsins síðastliðið sumar þegar starfsmenn Náttúrufræðistofu Kópavogs voru við rannsóknir í Berufjarðarvatni nærri Bjarkalundi í Reykhólahreppi. Staðfesting á tegundagreiningunni fékkst nú á dögunum, segir í frétt frá Náttúrufræðistofnun.

Segir Sjálfstæðisflokknum stjórnað með baktjaldamakki

Helgi Magnússon, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, deilir hart á forystu Sjálfstæðisflokksins í grein sem birtist í Fréttablaðinu í dag. Þar gerir hann umræðu um Evrópusambandið og aðildarviðræður við sambandið að umfjöllunarefni.

Norðmenn freista þess að fyrirbyggja skotárásir í skólum

Nýjar leiðbeiningar til að fyrirbyggja alvarlega atburði á borð við skotárásir verða sendar öllum skólum og barnaheimilum í Noregi. Í frétt um málið á vef Ríkislögreglustjóra kemur fram að leiðbeiningarnar um viðbrögð við slíkum voðaverkum verði tilbúnar næsta vetur.

Tíu karlmenn leituðu til Neyðarmótttöku vegna nauðgana

Tíu karlmenn leituðu til Neyðarmóttöku vegna nauðgana í fyrra en einn áður. Aftur á móti komu 129 konur á mótttökuna í fyrra en 117 árið áður. 241 kona leitaði til Stígamóta í fyrra og 23 karlmenn. Þessar upplýsingar koma fram í bæklingnum Kynlegar tölur sem mannréttindaskrifstofa og mannréttindaráð Reykjavíkurborgar hafa gefið út í tilefni þess að í dag er alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti.

Orðagjálfur Norður-Kóreumanna nær nýjum hæðum

Norður-Kóreumenn eru ævareiðir eftir að Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna samþykkti einróma hertari refsiaðgerðir gegn landinu. Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa slitið öllum friðarsamningum við frændur sína í suðri og hóta kjarnorkuárás á höfuðborg Bandaríkjanna.

Margir bolir komnir á kreik

Fjölmargir þeirra sem nýta sér Twitter hafa brugðist við Boladeginum sem hófst í dag. Dagurinn gengur, í sem stystu máli, út á það að Íslendingar eru hvattir til þess að setja sig í samband við fræga fólkið á Twitter með margvíslegum skilaboðum og reyna að fá fram viðbrögð við þeim.

Útboði á strandsiglingum frestað

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu innanríkisráðherra um að fresta útboði á strandsiglingum við Ísland.

Göngudeild geðdeildar á Akureyri annar ekki eftirspurn

Eftirspurn eftir göngudeildarþjónustu geðdeildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri hefur stóraukist og er nú umfram það sem göngudeildin ræður við. Þetta segir í greinargerð frá sjúkrahúsinu vegna fréttaflutnings af geðheilbrigðisþjónustu undanfarna daga. Fréttablaðið hefur meðal annars fjallað um sjálfsvíg á spítalanum.

Herjólfur siglir frá Eyjum í dag

Herjólfur mun sigla frá Vestmannaeyjum í dag. Í tilkynningu segir að fyrri ferð Herjólfs sé staðfest og brottför frá Vestmannaeyjum kl 08:00.

Upprætti kannabisræktun í austurborginni

Lögreglan upprætti kannabisræktun í austurborginni í gærkvöldi og lagði hald á 19 kannabisplöntur. Ekki kemur fram í skeyti lögreglunnar hvort einhver var handtekinn, eða hvort þetta var í heimahúsi.

Óttast að loðnukvótinn náist ekki

Sjómenn og útvegsmenn eru farnir að óttast að ekki náist að veiða loðnukvótann á þessari vertíð, en um það bil 119 þúsund tonn eru enn óveidd, sem er fjórðungur heildarkvótans.

Berklasjúklingum fjölgar í Danmörku

Hinn hættulegi sjúkdómur berklar er að breiðast út að nýju í Danmörku. Þetta veldur dönskum heilbrigðisyfirvöldum miklum áhyggjum því Danir standa almennt í þeirri trú að berklum hefði verið útrýmt í landinu.

Sjá næstu 50 fréttir