Innlent

Óttast að loðnukvótinn náist ekki

Sjómenn og útvegsmenn eru farnir að óttast að ekki náist að veiða loðnukvótann á þessari vertíð, en um það bil 119 þúsund tonn eru enn óveidd, sem er fjórðungur heildarkvótans.

Annarsvegar hefur loðnan verið óvenju dreifð á vertíðinni og aldrei orðið mokveiði, og svo hefur óveðrið undanfarna daga komið í veg fyrir veiðar.

Það ástand kemur líka niður á landvinnslunni, þar sem hrognafrysting var byrjuð áður en óveðrið skall á, en hrognafrystingin skilar langmestu útflutningsverðmæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×