Fleiri fréttir Teljum eðlilegt að fá að skrá niður verð „Það er eðlilegt að það komi upp afmarkaðir þættir við verðkannanir sem menn eru ekki sammála um. Við fáum ábendingar öðru hverju frá verslunum en langoftast ekki. Við metum þær á gagnrýninn hátt en eðlilega hafa þeir kannski aðra sýn á þetta en við.“ 8.2.2013 06:00 Annar fékk hæli en hinn ekki Tveir menn sem segjast vera fyrsta samkynhneigða parið frá Úganda til að ganga í hjónaband eiga nú á hættu að verða aðskildir á nýjan leik. Annar hefur fengið hæli í Svíþjóð en hinum var neitað. Mennirnir giftu sig í Svíþjóð fyrir nokkrum vikum. 8.2.2013 06:00 Brot gegn piltunum í rannsókn Lögreglan á Akureyri hefur hafið rannsókn á meintum kynferðisbrotum manns á áttræðisaldri gegn tveimur piltum, átján og nítján ára, sem réðust á hann á Skagaströnd um liðna helgi. Annar piltanna er barnabarn mannsins. 8.2.2013 06:00 Greina heilabilunarsjúkdóma Mentis Cura opnaði í gær greiningarmiðstöð í Álftamýri þar sem fyrirtækið mun greina heilabilunarsjúkdóma. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, opnaði miðstöðina formlega. 8.2.2013 06:00 Yfirburðarsigur Vöku Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, vann yfirburðarsigur í kosningum til Stúdentaráðs við Háskóla Íslands í kvöld. Vaka fékk 21 sæti af þeim 27 sem kosið var um en Röskva hin sætin sex. 7.2.2013 23:34 Moody's breytir horfum á lánshæfiseinkunn Íslands í stöðugar Matsfyrirtækið Moody's breytti í dag horfunum á Baa3 lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands úr neikvæðum í stöðugar. Þetta kemur fram í frétt á vef Seðlabanka Íslands. 7.2.2013 23:14 Vetrarhátíð sett á Austurvelli í kvöld Múgur og margmenni kom saman á Austurvelli í miðbæ Reykjavíkur í kvöld þegar Vetrarhátíð 2013 var sett. 7.2.2013 22:52 Fyrrverandi lögga á flótta Lögreglumenn í Los Angeles leita fyrrum kollega síns sem grunaður er um að hafa drepið þrjá og sært tvo í skotárásum vestanhafs undanfarna daga. 7.2.2013 22:33 Brot af því besta frá Íslandi Stiklur úr Batman Begins og Die Another Day eru meðal þess sem sést í nýlegu myndbandi sem framleiðslufyrirtækið Truenorth hefur tekið saman. 7.2.2013 22:04 "Gat ekki ímyndað mér að það væri viðurkennt nafn" Emil Örn Kristjánsson, formaður Félags sjálfstæðismanna í Grafarvogi, segist hafa haldið að Gnarr væri einhvers konar gælunafn. Emil Örn gagnrýndi Jón Gnarr, borgarstjóra Reykjavíkur, nokkuð harðlega í innsendri grein í Fréttablaðinu í morgun. 7.2.2013 21:24 Hagsmunum fatlaðra betur borgið innan ESB Ný skýrsla sem Öryrkjubandalag Íslands lét vinna kemst að þeirri niðurstöðu að hagsmunum fatlaðs fólks á Íslands sé betur borgið með aðild Íslands að Evrópusambandinu. 7.2.2013 20:58 "Sá blóðbununa standa út" "Ég lít svona niður og þá stendur bara blóðbunan hérna út. Mér náttúrulega brá alveg rosalega. Ég áttaði mig strax á því að ég hefði verið stunginn en ég fann ekki fyrir því," segir Skúli Eggert Sigurz sem varð fyrir lífshættulegri líkamsárás í mars á síðasta ári. 7.2.2013 20:04 Norðurslóðanet stofnað á Akureyri Norðurslóðanet Íslands var stofnað formlega með undirritun samnings milli utanríkisráðuneytisins og Norðurslóðanetsins í rannsóknarhúsi Háskólans á Akureyri Borgum í dag. 7.2.2013 19:24 Vera FBI-manna sögð grafalvarlegt mál Svo virðist sem að bandarískir alríkislögreglumenn hafi verið hér að störfum í fimm daga vegna Wikileaks án eftirlits íslenskra stjórnvalda. Lektor við lagadeild Háskóla Íslands segir það blasa við að málið þarfnist frekari skoðunar. 7.2.2013 18:49 Endurgreiðslur vegna erlendra kvikmynda fjórtánfölduðust Endurgreiðslur íslenska ríkisins vegna erlendrar kvikmyndagerðar fjórtánfölduðust á síðasta ári. Ástæðan fyrir þessu er aukinn fjöldi erlendra stórmynda sem gerðar eru hér á landi. 7.2.2013 18:45 Nýtt húsbréfakerfi að danskri fyrirmynd ASÍ vill innleiða nýtt húsbréfakerfi á Íslandi að danskri fyrirmynd. Kerfið er talið tryggja betur hag neytenda og á þeim rúmlega 200 árum sem það hefur verið við lýði í Danmörku hefur það staðið af sér gjaldþrot danska ríkisins, heimsstyrjöld og tvær alþjóðlegar fjármálakreppur. 7.2.2013 18:39 Fimmta hvert fyrirtæki í alvarlegum vanskilum Fimmta hvert fyrirtæki á Íslandi er í alvarlegum vanskilum. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Creditinfo á stöðu íslenskra fyrirtækja. Þau fyrirtæki sem eru best rekin á Íslandi eru rótgróin fyrirtæki, en meðalaldur þeirra best reknu er 31 ár. 7.2.2013 18:21 Lágmarksfjárhæðir í gjaldeyrisútboðum lækkaðar Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að lækka lágmarksfjárhæð til þátttöku í útboðum í fjárfestingar- og ríkisverðbréfaleiðinni. 7.2.2013 17:48 Má bjóða þér að setjast í bankastjórn? Bankasýsla ríkisins leitar að einstaklingum til stjórnarsetu í fjármálafyrirtækjum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni í dag. 7.2.2013 17:41 Fimmtíu þúsund tonn af dauðri síld í Kolgrafafirði Líklegt þykir að um fimmtíu þúsund tonn af síld hafi drepist í Kolgrafafirði frá því um miðjan desember á síðasta ári. Hafrannsóknarstofa hefur nú lokið rannsóknum sínum í firðinum. 7.2.2013 16:55 Lögreglumaður sýknaður af kynferðisbroti - strauk brjóst í góðri trú Hæstiréttur Íslands staðfesti sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir lögreglumanni sem var ákærður fyrir kynferðislega áreitni og sært blygðunarkennd konu, en áreitnin átti að hafa átt sér stað í júlí árið 2011. 7.2.2013 16:50 Enn eitt bílamerki Volkswagen Stofnar nýtt ódýrt bílamerki eða kaupir Alfa Romeo. 7.2.2013 16:45 Flokksþing Framsóknarflokksins hefst á morgun Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins flytur setningarræðu sína á flokksþingi flokksins klukkan 14 á morgun en flokksþingið hefst í Gullhömrum í Grafarvogi og stendur til sunnudags. 7.2.2013 16:16 Framlag til Kvikmyndasjóðs aukið í ríflega milljarð Í fjárlögum fyrir árið 2013 hækkar framlag til Kvikmyndasjóðs Íslands í ríflega einn milljarð. 7.2.2013 16:15 Gunnar Nelson og CCP taka höndum saman Íslenska tölvuleikjafyrirtækið CCP er nýr stuðningsaðili baradagamannsins Gunnars Nelson. Eins og sjá má á meðfylgjandi ljósmynd reyndust samningaviðræður CCP og Gunnars erfiðar. 7.2.2013 15:50 Óheimilt að nota Kolgrafafjarðasíldina í fóður fyrir dýr Vegna umræðu um nýtingu síldar sem drepist hefur í Kolgrafarfirði vill Matvælastofnun benda á að allt fóður skal vera heilnæmt og síld sem rekur á fjöru, rotnuð og vargfugl hefur komist í, er ekki heimilt að nota sem fóður fyrir dýr sem gefa af sér afurðir til manneldis. Þetta kemur fram á vef Matvælastofnunar. 7.2.2013 15:41 Eiginmaður flúraði nafn sitt á andlit konu sinnar Rússnesk kona komst í heimsfréttirnar á dögunum eftir að hún lét húðflúra nafn eiginmanns síns á andlit sitt. 7.2.2013 15:36 Skagastrandarmenn lausir úr varðhaldi Tveir piltar sem höfðu verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald, grunaðir um árás á roskinn mann á Skagaströnd um helgina, voru látnir lausir úr gæsluvarðhaldi seinni partinn í gær. 7.2.2013 15:23 Fórnarlömb kynferðisofbeldis niðurlægð af lögreglu Indversk börn sem verða fyrir kynferðisofbeldi sæta oft á tíðum illri meðferð og niðurlægingu af hálfu lögreglumanna. Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu Mannréttindavaktarinnar. 7.2.2013 14:43 Fundu veski og síma Grétars í fjörunni Björgunarsveitar- og lögreglumenn fundu í morgun úlpu, húfu, veski og síma Grétars Guðfinnssonar í fjörunni norðan við Siglufjörð í morgun. Grétars hefur verið saknað frá því í gærmorgun og hefur leit staðið yfir síðan þá. 7.2.2013 14:43 Sextán flugfélög fljúga til landsins í sumar Áætlanir flugrekenda á komandi sumri benda til þess að áfram verði veruleg aukning á umsvifum á Keflavíkurflugvelli eins og undanfarin ár. Gert er ráð fyrir um 10% auknum umsvifum miðað við fyrra ár en alls munu 16 flugfélög halda uppi ferðum til landsins í sumar. 7.2.2013 14:30 Fuglalíf í Kolgrafafirði í mikilli hættu Hættan sem steðjar að fuglalífi hefur margfaldast eftir að síldardauðan í Kolgrafafirði um síðustu helgi. Þetta var í annað sinn sem tugþúsundir tonna af síld drepast. Afleiðingin er sú að grútarlag er yfir allri fjörunni og efst í henni hrúgur af síldarfitu. 7.2.2013 13:39 Lýst eftir Gerthu Germain Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Gerthu Germain sem fór að heiman frá sér í Breiðholti um miðjan dag í gær, 6. febrúar, og hefur ekkert til hennar spurst síðan. 7.2.2013 13:38 Sagnfræðingar harma úrskurð Persónuverndar um kommúnistaflokkinn Sagnfræðingafélag Íslands sendi ályktun á fjölmiðla þar sem nýlegum úrskurði Persónuverndar, um að fræðimenn mættu ekki nýta sér félagatal kommúnistaflokksins á Landsbókasafninu, er mótmælt. 7.2.2013 13:32 „Mál þögguð niður og dómum hagrætt“ Birgir Guðjónsson, læknir og fyrrverandi formaður Lyfjaeftirlitsnefndar ÍSÍ, segir tímabært að grandskoða starf nefndarinnar. 7.2.2013 13:08 Mannréttindadómstóll Evrópu fjallar um mál Pussy Riot Þrír meðlimir rússnesku pönkhljómsveitarinnar Pussy Riot reka nú mál sitt fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu. 7.2.2013 12:38 Fyrsti dísilknúni fólksbíll GM í 27 ár vestanhafs GM framleiddi þó 500.000 dísilfólksbíla fyrir aðra markaði. 7.2.2013 12:30 Ekkert verður úr viðræðum Íran og BNA Æðstiklerkur Íran, Ali Khamenei, afþakkaði í dag boð Joe Bidens, varaforseta Bandaríkjanna, um að hefja viðræður um kjarnorkuáætun landins. Í ávarpi sínu sakaði klerkurinn Bandaríkjastjórn um yfirgang og ítrekaði að það væri óraunhæf óskhyggja Bandaríkjamanna að gera ráð fyrir að Íran gangi til viðræðna á meðan viðskiptaþvinganir eru við lýði. 7.2.2013 12:13 Þessir eru tilnefndir sem sjónvarpsmaður ársins Síðustu tvær vikur hefur staðið yfir kosning hér á Vísi þar sem lesendum gafst kostur á að velja Sjónvarpsmann árins í forvali fyrir Edduverðlaunin. Kosningunni er nú lokið og var þátttakan glæsileg. 7.2.2013 11:40 Hefja leit á ný á Siglufirði Björgunarsveitarmenn á Siglufirði eru eru aftur byrjaðir að leita að Grétari Guðfinnssyni, eftir stutt hlé í nótt. Grétars hefur verið saknað síðan í gærmorgun samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Um 90 manns leituðu hans í gærkvöldi og í nótt. 7.2.2013 11:09 Íslenski milljónamæringurinn þarf ekki að borga skatt af vinningnum "Nei, hann er ekki búinn að gefa sig fram en ég býst við að hann láti vita af sér í dag eða á morgun,“ segir Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar getspár. 7.2.2013 10:49 Sjúkraþjálfarar vilja líka viðbótarfjármagn Félag sjúkraþjálfara fagnar þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að ráðast í jafnlaunaátak með aðgerðum til að rétta hlut starfsstétta þar sem konur eru í miklum meirihluta. 7.2.2013 10:46 Dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir stórfelldan fjárdrátt Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag karlmann í átta mánaða fangelsi, þar af eru sex mánuðir skilorðsbundnir, fyrir fjárdrátt, en brot hans var stórfellt. 7.2.2013 10:10 Tíu verstu fyrir bílinn Að fara með bílinn í smurningu er leiðinlegt og tímafrekt. Í raun eru öll lítil og stór viðvik varðandi viðhald á bílnum þreytandi og í þau fer tími sem nota mætti til annarra skemmtilegri hluta. En það eru einmitt þessi smáu atriði sem gætu kostað þig ógnarmikið seinna meir ef þú sinnir þeim ekki. Nýleg könnun sem gerð var meðal sérfræðinga á bílaverkstæðum sýnir 10 algengustu atriði sem orðið gætu að miklum fjárútlátum seinna meir. Þau sjást hér í engri sérstakri röð. Ekki sinna tímasettum viðhaldsskoðunum Leiða hjá sér vélarviðvörunarljós í mælaborði Sinna ekki olíuskiptum á ráðlögðum fresti Skoða aldrei þrýsting í dekkjum Skipta ekki um olíu á skiptingu, bremsuvökva og kælivökva Halda áfram akstri við yfirhitnun vélar Skipta ekki um loftsíur og olíusíur Láta ófaglærða sjá um viðhald bílsins Nota ekki “original” varahluti Að reyna að sinna viðhaldi sjálfur ef þekking er ekki til staðar 7.2.2013 09:59 Brennuvargur í tveggja vikna gæsluvarðhald Hælisleitandinn, sem kveikti í gistiheimilinu Fit-Hostel í Njarðvík á mánudag, hefur verið úrskurðaður i tveggja vikna gæsluvarðhald. Við yfirheyrslur hefur maðurinn, sem er Afgani, viðurkennt að hafa kveikt í, inni í sínu eigin herbergi. Hann vill hinsvegar ekki tjá sig nánar um málið. Lögregla hefur óskað eftir að hann verði látinn sæta geðrannsókn, en dómari hefur ekki tekið afstöðu til þess. 7.2.2013 09:46 Sjá næstu 50 fréttir
Teljum eðlilegt að fá að skrá niður verð „Það er eðlilegt að það komi upp afmarkaðir þættir við verðkannanir sem menn eru ekki sammála um. Við fáum ábendingar öðru hverju frá verslunum en langoftast ekki. Við metum þær á gagnrýninn hátt en eðlilega hafa þeir kannski aðra sýn á þetta en við.“ 8.2.2013 06:00
Annar fékk hæli en hinn ekki Tveir menn sem segjast vera fyrsta samkynhneigða parið frá Úganda til að ganga í hjónaband eiga nú á hættu að verða aðskildir á nýjan leik. Annar hefur fengið hæli í Svíþjóð en hinum var neitað. Mennirnir giftu sig í Svíþjóð fyrir nokkrum vikum. 8.2.2013 06:00
Brot gegn piltunum í rannsókn Lögreglan á Akureyri hefur hafið rannsókn á meintum kynferðisbrotum manns á áttræðisaldri gegn tveimur piltum, átján og nítján ára, sem réðust á hann á Skagaströnd um liðna helgi. Annar piltanna er barnabarn mannsins. 8.2.2013 06:00
Greina heilabilunarsjúkdóma Mentis Cura opnaði í gær greiningarmiðstöð í Álftamýri þar sem fyrirtækið mun greina heilabilunarsjúkdóma. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, opnaði miðstöðina formlega. 8.2.2013 06:00
Yfirburðarsigur Vöku Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, vann yfirburðarsigur í kosningum til Stúdentaráðs við Háskóla Íslands í kvöld. Vaka fékk 21 sæti af þeim 27 sem kosið var um en Röskva hin sætin sex. 7.2.2013 23:34
Moody's breytir horfum á lánshæfiseinkunn Íslands í stöðugar Matsfyrirtækið Moody's breytti í dag horfunum á Baa3 lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands úr neikvæðum í stöðugar. Þetta kemur fram í frétt á vef Seðlabanka Íslands. 7.2.2013 23:14
Vetrarhátíð sett á Austurvelli í kvöld Múgur og margmenni kom saman á Austurvelli í miðbæ Reykjavíkur í kvöld þegar Vetrarhátíð 2013 var sett. 7.2.2013 22:52
Fyrrverandi lögga á flótta Lögreglumenn í Los Angeles leita fyrrum kollega síns sem grunaður er um að hafa drepið þrjá og sært tvo í skotárásum vestanhafs undanfarna daga. 7.2.2013 22:33
Brot af því besta frá Íslandi Stiklur úr Batman Begins og Die Another Day eru meðal þess sem sést í nýlegu myndbandi sem framleiðslufyrirtækið Truenorth hefur tekið saman. 7.2.2013 22:04
"Gat ekki ímyndað mér að það væri viðurkennt nafn" Emil Örn Kristjánsson, formaður Félags sjálfstæðismanna í Grafarvogi, segist hafa haldið að Gnarr væri einhvers konar gælunafn. Emil Örn gagnrýndi Jón Gnarr, borgarstjóra Reykjavíkur, nokkuð harðlega í innsendri grein í Fréttablaðinu í morgun. 7.2.2013 21:24
Hagsmunum fatlaðra betur borgið innan ESB Ný skýrsla sem Öryrkjubandalag Íslands lét vinna kemst að þeirri niðurstöðu að hagsmunum fatlaðs fólks á Íslands sé betur borgið með aðild Íslands að Evrópusambandinu. 7.2.2013 20:58
"Sá blóðbununa standa út" "Ég lít svona niður og þá stendur bara blóðbunan hérna út. Mér náttúrulega brá alveg rosalega. Ég áttaði mig strax á því að ég hefði verið stunginn en ég fann ekki fyrir því," segir Skúli Eggert Sigurz sem varð fyrir lífshættulegri líkamsárás í mars á síðasta ári. 7.2.2013 20:04
Norðurslóðanet stofnað á Akureyri Norðurslóðanet Íslands var stofnað formlega með undirritun samnings milli utanríkisráðuneytisins og Norðurslóðanetsins í rannsóknarhúsi Háskólans á Akureyri Borgum í dag. 7.2.2013 19:24
Vera FBI-manna sögð grafalvarlegt mál Svo virðist sem að bandarískir alríkislögreglumenn hafi verið hér að störfum í fimm daga vegna Wikileaks án eftirlits íslenskra stjórnvalda. Lektor við lagadeild Háskóla Íslands segir það blasa við að málið þarfnist frekari skoðunar. 7.2.2013 18:49
Endurgreiðslur vegna erlendra kvikmynda fjórtánfölduðust Endurgreiðslur íslenska ríkisins vegna erlendrar kvikmyndagerðar fjórtánfölduðust á síðasta ári. Ástæðan fyrir þessu er aukinn fjöldi erlendra stórmynda sem gerðar eru hér á landi. 7.2.2013 18:45
Nýtt húsbréfakerfi að danskri fyrirmynd ASÍ vill innleiða nýtt húsbréfakerfi á Íslandi að danskri fyrirmynd. Kerfið er talið tryggja betur hag neytenda og á þeim rúmlega 200 árum sem það hefur verið við lýði í Danmörku hefur það staðið af sér gjaldþrot danska ríkisins, heimsstyrjöld og tvær alþjóðlegar fjármálakreppur. 7.2.2013 18:39
Fimmta hvert fyrirtæki í alvarlegum vanskilum Fimmta hvert fyrirtæki á Íslandi er í alvarlegum vanskilum. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Creditinfo á stöðu íslenskra fyrirtækja. Þau fyrirtæki sem eru best rekin á Íslandi eru rótgróin fyrirtæki, en meðalaldur þeirra best reknu er 31 ár. 7.2.2013 18:21
Lágmarksfjárhæðir í gjaldeyrisútboðum lækkaðar Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að lækka lágmarksfjárhæð til þátttöku í útboðum í fjárfestingar- og ríkisverðbréfaleiðinni. 7.2.2013 17:48
Má bjóða þér að setjast í bankastjórn? Bankasýsla ríkisins leitar að einstaklingum til stjórnarsetu í fjármálafyrirtækjum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni í dag. 7.2.2013 17:41
Fimmtíu þúsund tonn af dauðri síld í Kolgrafafirði Líklegt þykir að um fimmtíu þúsund tonn af síld hafi drepist í Kolgrafafirði frá því um miðjan desember á síðasta ári. Hafrannsóknarstofa hefur nú lokið rannsóknum sínum í firðinum. 7.2.2013 16:55
Lögreglumaður sýknaður af kynferðisbroti - strauk brjóst í góðri trú Hæstiréttur Íslands staðfesti sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir lögreglumanni sem var ákærður fyrir kynferðislega áreitni og sært blygðunarkennd konu, en áreitnin átti að hafa átt sér stað í júlí árið 2011. 7.2.2013 16:50
Flokksþing Framsóknarflokksins hefst á morgun Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins flytur setningarræðu sína á flokksþingi flokksins klukkan 14 á morgun en flokksþingið hefst í Gullhömrum í Grafarvogi og stendur til sunnudags. 7.2.2013 16:16
Framlag til Kvikmyndasjóðs aukið í ríflega milljarð Í fjárlögum fyrir árið 2013 hækkar framlag til Kvikmyndasjóðs Íslands í ríflega einn milljarð. 7.2.2013 16:15
Gunnar Nelson og CCP taka höndum saman Íslenska tölvuleikjafyrirtækið CCP er nýr stuðningsaðili baradagamannsins Gunnars Nelson. Eins og sjá má á meðfylgjandi ljósmynd reyndust samningaviðræður CCP og Gunnars erfiðar. 7.2.2013 15:50
Óheimilt að nota Kolgrafafjarðasíldina í fóður fyrir dýr Vegna umræðu um nýtingu síldar sem drepist hefur í Kolgrafarfirði vill Matvælastofnun benda á að allt fóður skal vera heilnæmt og síld sem rekur á fjöru, rotnuð og vargfugl hefur komist í, er ekki heimilt að nota sem fóður fyrir dýr sem gefa af sér afurðir til manneldis. Þetta kemur fram á vef Matvælastofnunar. 7.2.2013 15:41
Eiginmaður flúraði nafn sitt á andlit konu sinnar Rússnesk kona komst í heimsfréttirnar á dögunum eftir að hún lét húðflúra nafn eiginmanns síns á andlit sitt. 7.2.2013 15:36
Skagastrandarmenn lausir úr varðhaldi Tveir piltar sem höfðu verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald, grunaðir um árás á roskinn mann á Skagaströnd um helgina, voru látnir lausir úr gæsluvarðhaldi seinni partinn í gær. 7.2.2013 15:23
Fórnarlömb kynferðisofbeldis niðurlægð af lögreglu Indversk börn sem verða fyrir kynferðisofbeldi sæta oft á tíðum illri meðferð og niðurlægingu af hálfu lögreglumanna. Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu Mannréttindavaktarinnar. 7.2.2013 14:43
Fundu veski og síma Grétars í fjörunni Björgunarsveitar- og lögreglumenn fundu í morgun úlpu, húfu, veski og síma Grétars Guðfinnssonar í fjörunni norðan við Siglufjörð í morgun. Grétars hefur verið saknað frá því í gærmorgun og hefur leit staðið yfir síðan þá. 7.2.2013 14:43
Sextán flugfélög fljúga til landsins í sumar Áætlanir flugrekenda á komandi sumri benda til þess að áfram verði veruleg aukning á umsvifum á Keflavíkurflugvelli eins og undanfarin ár. Gert er ráð fyrir um 10% auknum umsvifum miðað við fyrra ár en alls munu 16 flugfélög halda uppi ferðum til landsins í sumar. 7.2.2013 14:30
Fuglalíf í Kolgrafafirði í mikilli hættu Hættan sem steðjar að fuglalífi hefur margfaldast eftir að síldardauðan í Kolgrafafirði um síðustu helgi. Þetta var í annað sinn sem tugþúsundir tonna af síld drepast. Afleiðingin er sú að grútarlag er yfir allri fjörunni og efst í henni hrúgur af síldarfitu. 7.2.2013 13:39
Lýst eftir Gerthu Germain Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Gerthu Germain sem fór að heiman frá sér í Breiðholti um miðjan dag í gær, 6. febrúar, og hefur ekkert til hennar spurst síðan. 7.2.2013 13:38
Sagnfræðingar harma úrskurð Persónuverndar um kommúnistaflokkinn Sagnfræðingafélag Íslands sendi ályktun á fjölmiðla þar sem nýlegum úrskurði Persónuverndar, um að fræðimenn mættu ekki nýta sér félagatal kommúnistaflokksins á Landsbókasafninu, er mótmælt. 7.2.2013 13:32
„Mál þögguð niður og dómum hagrætt“ Birgir Guðjónsson, læknir og fyrrverandi formaður Lyfjaeftirlitsnefndar ÍSÍ, segir tímabært að grandskoða starf nefndarinnar. 7.2.2013 13:08
Mannréttindadómstóll Evrópu fjallar um mál Pussy Riot Þrír meðlimir rússnesku pönkhljómsveitarinnar Pussy Riot reka nú mál sitt fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu. 7.2.2013 12:38
Fyrsti dísilknúni fólksbíll GM í 27 ár vestanhafs GM framleiddi þó 500.000 dísilfólksbíla fyrir aðra markaði. 7.2.2013 12:30
Ekkert verður úr viðræðum Íran og BNA Æðstiklerkur Íran, Ali Khamenei, afþakkaði í dag boð Joe Bidens, varaforseta Bandaríkjanna, um að hefja viðræður um kjarnorkuáætun landins. Í ávarpi sínu sakaði klerkurinn Bandaríkjastjórn um yfirgang og ítrekaði að það væri óraunhæf óskhyggja Bandaríkjamanna að gera ráð fyrir að Íran gangi til viðræðna á meðan viðskiptaþvinganir eru við lýði. 7.2.2013 12:13
Þessir eru tilnefndir sem sjónvarpsmaður ársins Síðustu tvær vikur hefur staðið yfir kosning hér á Vísi þar sem lesendum gafst kostur á að velja Sjónvarpsmann árins í forvali fyrir Edduverðlaunin. Kosningunni er nú lokið og var þátttakan glæsileg. 7.2.2013 11:40
Hefja leit á ný á Siglufirði Björgunarsveitarmenn á Siglufirði eru eru aftur byrjaðir að leita að Grétari Guðfinnssyni, eftir stutt hlé í nótt. Grétars hefur verið saknað síðan í gærmorgun samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Um 90 manns leituðu hans í gærkvöldi og í nótt. 7.2.2013 11:09
Íslenski milljónamæringurinn þarf ekki að borga skatt af vinningnum "Nei, hann er ekki búinn að gefa sig fram en ég býst við að hann láti vita af sér í dag eða á morgun,“ segir Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar getspár. 7.2.2013 10:49
Sjúkraþjálfarar vilja líka viðbótarfjármagn Félag sjúkraþjálfara fagnar þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að ráðast í jafnlaunaátak með aðgerðum til að rétta hlut starfsstétta þar sem konur eru í miklum meirihluta. 7.2.2013 10:46
Dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir stórfelldan fjárdrátt Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag karlmann í átta mánaða fangelsi, þar af eru sex mánuðir skilorðsbundnir, fyrir fjárdrátt, en brot hans var stórfellt. 7.2.2013 10:10
Tíu verstu fyrir bílinn Að fara með bílinn í smurningu er leiðinlegt og tímafrekt. Í raun eru öll lítil og stór viðvik varðandi viðhald á bílnum þreytandi og í þau fer tími sem nota mætti til annarra skemmtilegri hluta. En það eru einmitt þessi smáu atriði sem gætu kostað þig ógnarmikið seinna meir ef þú sinnir þeim ekki. Nýleg könnun sem gerð var meðal sérfræðinga á bílaverkstæðum sýnir 10 algengustu atriði sem orðið gætu að miklum fjárútlátum seinna meir. Þau sjást hér í engri sérstakri röð. Ekki sinna tímasettum viðhaldsskoðunum Leiða hjá sér vélarviðvörunarljós í mælaborði Sinna ekki olíuskiptum á ráðlögðum fresti Skoða aldrei þrýsting í dekkjum Skipta ekki um olíu á skiptingu, bremsuvökva og kælivökva Halda áfram akstri við yfirhitnun vélar Skipta ekki um loftsíur og olíusíur Láta ófaglærða sjá um viðhald bílsins Nota ekki “original” varahluti Að reyna að sinna viðhaldi sjálfur ef þekking er ekki til staðar 7.2.2013 09:59
Brennuvargur í tveggja vikna gæsluvarðhald Hælisleitandinn, sem kveikti í gistiheimilinu Fit-Hostel í Njarðvík á mánudag, hefur verið úrskurðaður i tveggja vikna gæsluvarðhald. Við yfirheyrslur hefur maðurinn, sem er Afgani, viðurkennt að hafa kveikt í, inni í sínu eigin herbergi. Hann vill hinsvegar ekki tjá sig nánar um málið. Lögregla hefur óskað eftir að hann verði látinn sæta geðrannsókn, en dómari hefur ekki tekið afstöðu til þess. 7.2.2013 09:46