Erlent

Eiginmaður flúraði nafn sitt á andlit konu sinnar

Meistaraverk Rouslans.
Meistaraverk Rouslans. mynd/facebook
Rússnesk kona komst í heimsfréttirnar á dögunum eftir að hún lét húðflúra nafn eiginmanns síns á andlit sitt.

Þau Lesya og Rouslan kynntust á veraldarvefnum og hittust fyrst fyrr í vikunni. Slík var ástin að þau ákváðu að ganga í það heilaga hið snarasta. Því næst héldu á þau húðflúrstofu Rouslans og nýbakaður eiginmaðurinn skellti nafni sínu þvert yfir andlit konu sinnar.

Lesya hefur ákveðið að læra húðlist og nýtur við það leiðsögn Ruslans. Sjálfur komst hann í fréttirnar um árið þegar hann húðflúraði 56 stjörnur á andlit 18 ára stúlku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×