Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Risasmokkur náðist á mynd Vísindamenn og sjónvarpsfólk segjast í fyrsta sinn hafa náð upptökum af risasmokkfiski í sínu náttúrulega umhverfi. 10.1.2013 23:45
Stórtækasta mál sem Guðrún hjá Stígamótum hefur séð "Ég vildi að ég gæti sagt nei,“ segir Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, aðspurð um hvort að símalínur samtakanna væru enn rauðglóandi eftir umfjöllun Kastljóss um barnaníðinginn Karl Vigni Þorsteinsson. 10.1.2013 22:56
Útilokað að smástirnið Apófis skelli á jörðinni árið 2029 Smástirnið Apófis átti sögulegt en þó örstutt ástarævintýri við Jörðina í gær. Þá skaust þessi 320 metra breiði hnullungur framhjá Jörðinni á hátt í 30 þúsund kílómetra hraða. 10.1.2013 22:10
Hildur Lilliendahl í nærmynd "Hún er engin öfgamanneskja, er alltaf tilbúin að hlusta á hina hliðina en er hörð á sínu." Svona lýsa nákomnir Hildi Lilliendahl sem heldur baráttu sinni áfram þrátt fyrir að hafa verið hótað barsmíðum og jafnvel lífláti á netinu. 10.1.2013 21:28
Óskarsverðlaunadraumurinn enn á lífi Kvikmyndin Djúpið í leikstjórn Baltasars Kormáks hlaut ekki tilnefningu til Óskarsverðlaunanna í ár. Baltasar segir það vissulega vonbrigði að hljóta ekki tilnefningu en myndin hafi fengið mikla athygli fyrir að komast svona langt. 10.1.2013 20:51
Tilnefningar til Óskarsverðlauna Þær kvikmyndir sem hlotið hafa tilnefningu til Óskarsverðlauna voru kynntar í Bandaríkjunum í dag. Stórmynd Steven Spielbergs, Lincoln, fékk tólf tilnefningar. 10.1.2013 20:41
Stefnir í inflúensufarald hér á landi Fjöldi greindra tilfella inflúensu hefur tvöfaldast á fyrstu dögum þessa árs og segir sóttvarnarlæknir að nokkuð skæður inflúensufaraldur sé framundan. Hann hvetur fólk til að vera heima ef það finnur fyrir einkennum til að koma í veg fyrir smit. 10.1.2013 19:45
Fórnarlamb Karls Vignis óttaðist að vera barnaníðingur - þriðja kæran barst í dag Þrír hafa lagt fram kæru á hendur Karli Vigni Þorsteinssyni vegna kynferðisbrota. Þriðja kæran var lögð fram í dag. Maður sem Karl áreitti kynferðislega á níunda áratugnum kallar eftir málefnalegri umræðu um barnaníðinga til að þolendur þori að segja frá og þjóðfélagið sé í stakk búið til að takast á við frásagnir þeirra. 10.1.2013 19:11
Dagur hættir sem varaformaður Samfylkingarinnar Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar, ætlar ekki að sækjast áfram eftir embættinu á næsta landsfundi. 10.1.2013 18:44
Skotárás í menntaskóla í Kaliforníu Tveir eru sárir eftir skotárás í menntaskóla í Bakersfield í Kaliforníu á fimmta tímanum í dag. Breska ríkisútvarpið hefur eftir lögregluyfirvöldum á svæðinu að áverkar fórnarlambanna séu alvarlegir. Aldur þeirra liggur þó ekki fyrir. Fjölmiðlar í Bandaríkjunum hafa greint frá því að árásarmaðurinn sé nú í haldi lögreglu. 10.1.2013 18:38
Biskup segir Áskirkju ekki hafa fylgt siðareglum "Það er þyngra en tárum taki að slíkt skuli hafa viðgengist og það um áratugaskeið," segir Agnes M. Sigurðardóttir, biskup, um mál Karls Vignis Þorsteinssonar, barnaníðings. 10.1.2013 18:15
Sportbíll ársins hjá Auto Bild Á hverju ári velja lesendur bílatímaritsins Auto Bild bíl ársins í hverjum flokki. Í flokki fjöldaframleiddra sportbíla fyrir árið 2012 völdu þeir Porsche Panamera GTS . Það merkilegasta við kosninguna er að um er að ræða fjögurra sæta fjölskyldubíl, eða forstjórabíl, sem telst óvenjulegt í sportbílaflokki. Það voru 72.500 lesendur sem nýttu rétt sinn til að kjósa og var þetta í ellefta sinn sem lesendaverðlaun Auto Bild Sportscars eru veitt. Porsche Panamera GTS er semsagt fernra dyra sportbíll. Í tungutaki Porsche stendur GTS fyrir Gran Turismo Sport og þessi merking hefur staðið fyrir ofuraflmiklum Porsche bílum allt frá hinum goðsagnakennda 904 Carrera GTS árið 1963. Panamera GTS er með aflmikilli 4,8 lítra, V8 vél sem er án forþjöppu en skilar 430 hestöflum. Hámarkstogið er 520 Nm. Veghæð bílsins er 10 mm lægri en hefðbundinn Panamera og sérhannaður sportundirvagninn er með stillanlegri loftpúðafjöðrun og Porsche Active Suspension Management (PASM). Þessi búnaðurinn gerir hann að hæfum keppnisbíl á keppnisbrautum án þess að nokkru þurfi að fórna í þægindum í daglegri notkun innan og utan borga og bæja. 10.1.2013 17:45
Ísland eina landið þar sem kynferðisbrot gegn börnum eru ófyrnanleg "Þetta mál sem nú tröllríður samfélaginu undirstrikar það hversu mikilvægt það var að ná lagabreytingum í gegn um afnám fyrningar í kynferðisbrotum gegn börnum,“ segir Ágúst Ólafur Ágústsson, fyrrverandi þingmaður og formaður allsherjarnefndar. 10.1.2013 17:37
Skrambi veit allt um málið Leiðréttingarforritið Skrambi er afrakstur nokkurra rannsóknarverkefna, meðal annars meistaraverkefnis Jóns Friðriks Daðasonar tölvunarfræðings. Skrambi hlaut Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands 2012. 10.1.2013 17:00
Semja um stuðning við afganskar flóttafjölskyldur Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Jón Gnarr borgarstjóri undirrituðu í dag samning sem kveður á um aðstoð og stuðning sem Reykjavíkurborg mun veita þremur afgönskum flóttafjölskyldum frá Íran sem komu til landsins í lok nýliðins árs. Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu frá ráðuneytinu og borginni. 10.1.2013 16:42
Telja að álagið við vinnu hafi aukist Tveir þriðju hlutar félagsmanna BSRB telja að álag þeirra við vinnu hafi aukist síðasta árið. Þetta kemur fram í kjarakönnun bandalagsins. Í pistli um málið á vef BSRB segir að tölurnar sýni glöggt fram á að heilt yfir hafi álag á starfsfólk aukist til muna. Þetta útskýri efalítið hvers vegna greiðslur úr sjúkrasjóðum verkalýðsfélaganna hafi aukist svo mikið á allra síðustu árum. 10.1.2013 16:30
Með 1200 kannabisplöntur í tveimur iðnaðarhúsnæðum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði á tveimur stöðum í Hafnarfirði í gær. Við húsleitir fundust samanlagt um 1200 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. 10.1.2013 16:30
Mazda6 frumsýndur Nýr Mazda6 verður kynntur á laugardaginn, kl. 12-16 hjá Brimborg í Reykjavík og hjá Brimborg á Akureyri. Fjölmargar nýjungar í spartækni og öryggi eru kynntar með nýjum Mazda6. Má þar nefna snjallhemlunarkerfi, blindspunktsaðvörunarkerfi og nýja og þýða sjálfskiptingu. Mazda notar um 20% meira af hástyrktarstáli í nýjan Mazda6 en í forvera hans og þrátt fyrir að vera stærri en fyrirrennarinn þá er nýi bíllinn léttari og öruggari. Nýr sjálfskiptur Mazda6 með nýjustu SkyActiv bensínvélinni er ríflega 20% sparneytnari en fyrri kynslóð. Það teljast góðar fréttir fyrir Íslendinga að bíllinn er hærri á vegi en fyrri Mazda6 þrátt fyrir að þyngdarpunkturinn hafa færst neðar. Bíllinn hefur hlotið góða dóma og erlendir bílablaðamenn hafa lofað aksturseiginleika og fádæma sparneytni nýja bílsins. Mazda6 er einnig í boði með nýjustu SkyActiv dísilvélinni frá Mazda. 10.1.2013 16:00
Stór vörubíll valt á Lækjargötu Bílvelta varð við N1 við Lækjargötu i Hafnarfirði um klukkan hálffjögur í dag. Þar fór stór vörubíll á hliðina með þeim afleiðingum að salt rann úr honum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni urðu sem betur fer engin slys á fólki en eins og sjá má á þessari mynd sem Verónika Sif Sigurðardóttir sendi Vísi fór töluvert magn af salti á götuna. Því var slökkviliðið fengið á staðinn til að hreinsa það upp og til að grípa til viðbragða ef olía læki. 10.1.2013 15:55
Töluverðar hækkanir á gjaldskrám leikskóla milli ára Verðlagseftirlit ASÍ kannaði breytingar á gjaldskrám leikskóla og fæði hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins frá 1. febrúar 2012 til 1. janúar 2013. 10.1.2013 15:48
Fíkniefni í jólapakkanum Tollgæslan í Reykjavík stöðvaði í nóvember og desember á nýliðnu ári, fimmtán sendingar, sem reyndust innihalda fíkniefni. 10.1.2013 15:09
Mynd Spielbergs með flestar tilnefningar Kvikmynd Stevens Spielberg, Lincoln, hlaut flestar tilnefningarnar til Óskarsverðlaunanna að þessu sinni. Alls voru það tólf tilnefningar. Life of Pi, mynd Angs Lee hlaut 11 tilnefningar og Silver Lining Playbook hlaut tilnefningar í sex helstu flokkum. 10.1.2013 15:05
Flensutilfellum fjölgar Inflúensutilfellum fer nú fjölgandi, segir á vef Landlæknis. Meðalaldur þeirra sem greinast er um fertugt og hefur flensan verið staðfest í öllum landshlutum nema í Vestmannaeyjum og á Vestfjörðum. 10.1.2013 14:56
Hobbitinn náði sjöunda sætinu á einni viku Kvikmyndin Hobbitinn er í sjöunda sæti yfir þær kvikmyndir sem fengu mesta aðsókn hér á landi samkvæmt tilkynningu frá Smáís. Athygli vekur að 35 þúsund manns sáu myndina á einni viku. Myndin þénaði þannig tæplega 45 milljónir á viku. 10.1.2013 14:28
Ásatrúarfélagið fagnar söfnun þjóðkirkjunnar Ásatrúarfélagið fangar fyrirhugaðri landsöfnun þjóðkirkjunnar og hvetur hana til góðra verka í ályktun sem samþykkt var á fundi lögréttu á þriðjudaginn í tilefni af umræðum um fyrirhugaða fjársöfnun þjóðkirkjunnar til tækjakaupa fyrir Landspítalann. 10.1.2013 13:58
Finnur auð bílastæði Einn notadrýgsti búnaður sem hugsast getur í bíl er vafalaust upplýsingar um hvar má finna laus bílastæði í fjölmennum borgum. Líklega er ekki langt að bíða slíks búnaðar í nýjum bílum því fyrirtækið Inrix hefur þegar þróað hann fyrir 18.000 bílastæði í Bandaríkjunum og 42.000 í 36 Evrópulöndum. Öll eru þessi stæði í bílastæðahúsum. Ekki er nóg með að búnaðurinn láti vita af hvar auð bílastæði er að finna heldur fylgja með upplýsingar um hve mörg þau eru, hvað það kostar að leggja í þau og hver opnunartími húsanna eru. Lausnin byggir á WiFi tengingu bílsins við gagnabanka Inrix sem fær rauntímaupplýsingar frá bílastæðahúsunum. Það fylgir ekki sögunni hvort einhver bílaframleiðandi hafi keypt þennan búnað nú þegar en vonandi verður það sem fyrst. 10.1.2013 13:55
Djúpið hlaut ekki tilnefningu til Óskarsins Íslenska myndin Djúpið er ekki á meðal þeirra fimm mynda sem tilnefndar eru til Óskarsverðlauna í flokknum besta erlenda myndin. Djúpið komst í hóp níu mynda sem komu til greina í tilnefningunum. Fimm myndir voru tilnefndar. 10.1.2013 13:47
Myndefnið óljóst og krafðist ítarlegrar skoðunar Myndefni, sem lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst rétt fyrir jól, þar sem Karl Vignir Þorsteinsson viðurkennir kynferðisbrot var óljóst og krafðist ítarlegrar skoðunar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem lögreglan sendi frá sér í hádeginu. Með yfirlýsingunni bregst lögreglan við gagnrýni sem kom fram í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gær. Í yfirlýsingunni kemur fram að lögreglan sótti gögnin til RÚV fimmtudaginn 20. desember. Efnið hafi verið óklippt og tekið nokkurn tíma að yfirfara það allt, en það var að mestu gert á milli jóla og nýárs. 10.1.2013 12:26
Vonast eftir yfirvegaðri umræðu um kynferðisbrotamál "Það sem ég vona bara innilega er að þessi umræða sem hefur komið upp á þessum þremur dögum skili því að við sem samfélag getum farið að takast á við þetta," segir Gunnar Hansson leikari. Hann er einn þeirra sem hefur, í samtali við Kastljósið á RÚV, lýst brotum Karls Vignis Þorsteinssonar gegn sér. Um fátt hefur verið meira rætt í þessari viku en þá umfjöllun og kynferðisbrot Karls Vignis. "Viðbrögðin hafa verið 10.1.2013 12:17
Bein útsending - Fær Baltasar Óskarstilnefningu? Hægt er að fylgjast með í beinni útsendingu hér á Vísi þegar tilnefningar til Óskarsverðlaunanna verða kynntar í dag klukkan 13.30. 10.1.2013 11:15
Kostnaður vegna geðrofslyfja fer lækkandi Útgjöld Sjúkratrygginga Íslands vegna geðrofslyfja fara lækkandi. Í fyrra lækkuðu útgjöldin um 83 milljónir kr. á sex mánaða tímabili. 10.1.2013 10:44
Brynvarin lúxuskerra Toyota Sequoia jeppi er ekki líklegast bíllinn til að vera brynvarinn og þola handsprengjur, jarðsprengjur og öflugustu rifla. Líklegra er að slíkir bílar séu þýskir eða bandarískir eðalvagnar. Eigandi þessa bíls vill einmitt ekki að það standi stórum stöfum utan á honum að þar fari einhver sem efni hefur á því að gæta fyllsta öryggis með eigið líf og annarra farþega. Ekki var þó meiningin að láta sér líð illa um borð í Toyotunni og því var bíllinn innréttaður á þennan boðlega hátt. Þar má finna vínkæla, stóran LCD flatskjá og inní bílnum má fylgjast með öllu umhverfinu kringum bílinn gegnum mýmargar faldar myndavélar. Sætin eru úr hágæða leðri og innréttingin alsett fallegum viði. Það læðist að sú tilfinning að eigandi bílsins sé með vott af ofsóknarbrjálæði. Það er fyrirtækið Lexani Motorcars sem fengið var til verksins og sérhæfir sig í svona breytingum. Herlegheitin má betur virða fyrir sér í meðfylgjandi myndbandi. 10.1.2013 10:37
Tillaga um að gera hlé á aðildarviðræðum lögð fram Formleg tillaga um að gera hlé á aðildarviðræðum við Evrópusambandið var lögð fram formlega á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í morgun. Eins og fram kom í fréttum fyrir jól mynduðu Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur meirihluta í nefndinni með Jóni Bjarnasyni, þingmanni VG, um að leggja tillöguna fram. 10.1.2013 10:27
Fær 112 daga styttingu á fangavist Möguleg refsing sem bandaríski hermaðurinn Bradley Manning kann að verða dæmdur til hefur verið milduð samkvæmt úrskurði dómara við herdómstólinn í Fort Meade í Maryland í Bandaríkjunum. 10.1.2013 10:00
Láta af mestu ritskoðuninni Ritstjórn blaðsins Suðrið vikulega í Guangzhou í Kína verður ekki refsað fyrir mótmæli sín og niðurlagningu starfa, samkvæmt samkomulagi sem náðist við yfirstjórn blaðsins í gær. 10.1.2013 10:00
Skógareldarnir í Ástralíu að ná inn á virkt sprengjusvæði Stórhættulegar aðstæður eru að skapast við einn af þeim yfir 100 skógareldum sem geysa í Nýju Suður Wales í Ástralíu. 10.1.2013 09:07
Plástra vanda vegna myglusvepps Mögulega þarf að seinka ákveðnum breytingum sem fyrirhugaðar voru á húsnæði Landspítalans til að bregðast við myglusvepp sem upp er kominn við leka glugga í elsta hluta spítalans. 10.1.2013 09:00
80 mótmælendur handteknir Sérsveitum grísku lögreglunnar var beitt til þess að koma á braut mótmælendum sem um tíma höfðu uppi setuverkfall á skrifstofum eins stjórnmálaflokksins í grísku fjölflokkastjórninni í miðbæ Aþenu. Þá var niðurnítt hús í miðbæ Aþenu rýmt af hústökufólki. 10.1.2013 09:00
Sigurður Rósant kominn í leitirnar Pilturinn sem lýst var eftir í gær Sigurður Rósant Júlíusson hefur gefið sig fram. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 10.1.2013 08:27
Allt að helmingur matvæla í heiminum endar á ruslahaugum Allt að helmingur þeirra matvæla sem framleidd eru í heiminum eru ekki borðuð og enda á ruslahaugum. 10.1.2013 08:22
Lítill ábati af kauphækkunum Miklar hækkanir launa við endurskoðun gildandi kjarasamninga munu ekki bæta kaupmátt launafólks heldur einungis kynda undir verðbólgu. Þetta segir Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, í grein í Fréttablaðinu í dag. 10.1.2013 08:00
Lífeyrissjóður opnar snjallvef Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur opnað nýja útgáfu af vefsíðu sinni www.live.is. Vefsíðan er þar með orðin sú fyrsta sinnar tegundar sem er sniðin fyrir snjallsíma og spjaldtölvur auk hefðbundinna tölva. 10.1.2013 08:00
Tveir teknir með tæpt kíló af kókaíni Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar nú tvö fíkniefnamál, þar sem tveir karlmenn reyndu að smygla til landsins tæpu kílói af kókaíni. 10.1.2013 07:22
Gullgrafaraæði á gistimarkaði Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir mikla fjölgun ferðamanna undanfarin ár hafa valdið gríðarlegri aukningu á ósamþykktu gistirými, sérstaklega í miðborg Reykjavíkur. „Það er gullgrafaraæði í gangi. Það hefur komið mikil viðbót á gistirými til að taka við þessari fjölgun sem hefur orðið. Miðbærinn er orðinn fullur af íbúðum sem eru leigðar út til ferðamanna. Þetta er algjörlega eftirlitslaust og virðist að miklu leyti vera leyfislaust. Menn geta þá ímyndað sér hvernig skattskil eru.“ 10.1.2013 07:00
Hafnar ásökunum fórnarlamba Róbert R. Spanó, fyrrum formaður vistheimilanefndar forsætisráðuneytisins, hafnar ásökunum Ernu Agnarsdóttur og Maríu Haraldsdóttur um að orð þeirra um að Karl Vignir Þorsteinsson hafi beitt þær og fleiri börn á vistheimilinu Kumbaravogi kynferðisofbeldi hafi ekki verið tekin trúanleg. 10.1.2013 07:00