Lítill ábati af kauphækkunum 10. janúar 2013 08:00 Þórarinn G. Pétursson
Miklar hækkanir launa við endurskoðun gildandi kjarasamninga munu ekki bæta kaupmátt launafólks heldur einungis kynda undir verðbólgu. Þetta segir Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, í grein í Fréttablaðinu í dag. Þórarinn segir launahækkanirnar sem samið var um vorið 2011 ekki hafa skilað því sem að var stefnt, heldur leitt til aukinnar verðbólgu af því að fyrirtæki veltu kostnaðarhækkunum sem voru þeim um megn út í verðlagið. „Þótt erfiðara sé að sýna fram á það, er hugsanlegt að þessar miklu launahækkanir hafi einnig hægt á nýráðningum og jafnvel leitt til uppsagna. Ábati launafólks af þessum ríflegu nafnlaunahækkunum hefur því verið takmarkaður,“ skrifar hann. Þórarinn segir komið hafa á daginn að það sé rangt sem aðilar vinnumarkaðarins héldu fram í kjölfar samninganna vorið 2011 að launahækkanir myndu styrkja gengi krónunnar. „Þvert á móti var ljóst að þær myndu hvorttveggja í senn, setja aukinn þrýsting á krónuna og kynda undir verðbólgu, og grafa með því undan forsendum samningsins um hækkandi gengi krónunnar og litla verðbólgu.“ Seðlabanki Íslands hefur áður gagnrýnt gildandi kjarasamninga fyrir of miklar launahækkanir. Þá hefur peningastefnunefnd bankans, sem Þórarinn situr í, gefið í skyn að hækki laun mikið við endurskoðun samninga verði stýrivextir hækkaðir. Þórarinn segir í greininni að hættan á að samið verði um óhóflegar launahækkanir ætti að vera minni ef aðilar vinnumarkaðarins búist við að þeim verði mætt með hækkun vaxta og auknu peningalegu aðhaldi til að vinna gegn verðbólgu. „Í þessu ljósi ber að skoða nýleg viðvörunarorð peningastefnunefndar,“ segir hann.- mþl / sjá síðu 24
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Sjá meira