Fleiri fréttir

Vegagerðin: Ófært á Steingrímsfjarðarheiði og Holtavörðuheiði

Óveður er á sunnanverðu Snæfellsnesi og snjóþekja er á Vatnaleið en hálka á Fróðárheiði samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Einnig er ófært á Holtavörðuheiði og beðið mokstur vegna veðurs. Þæfingsfærð er á Bröttubrekku og skafrenningur.

Líkamsárás við þýska barinn

Lögreglan fékk tilkynningu um líkamsárás við Þýska barinn í nótt. Þar var dyravörður sleginn í andlitið en atvikið er flokkað sem minniháttar atvik af hálfu lögreglu. Árásarmaðurinn var látinn laus eftir að lögreglan hafði rætt við hann.

Víða 15-23 metrar á sekúndu í dag

Klukkan sex í morgun var norðanátt, víða hvassviðri eða stormur, en hægari vindur á Suðaustur- og Austurlandi samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu.

Fréttaskýring: Fiskimið falin undir ísnum

Með hlýnun á norðurhveli hopar ísþekja Íshafsins hratt. Þar opnast aðgengi að hafsvæði sem gæti fóstrað stóra fiskstofna enda landgrunnið undir ísnum víðáttumikið. Ísland gæti í framtíðinni átt þar sóknarfæri.

Þingnefndarformaður telur brögð í tafli á Eir

Rekstur hjúkrunarheimilisins Eirar kann að kalla á lögreglurannsókn, að mati Björns Vals Gíslasonar, formanns fjárlaganefndar Alþingis. Hann hefur verið skipaður í samráðshóp sem mun fylgjast náið með samningaviðræðum Eirar við kröfuhafa sína.

Skattar lækki til að örva efnahagslífið

Samtök atvinnulífsins kynntu í gær nýja skýrslu um skattamál. Telja samtökin að skattahækkanir síðustu ára hafi valdið efnahagslífinu skaða og leggja til að skattar verði á næstu árum lækkaðir um sem nemur 2,5% af landsframleiðslu.

Android í skotlínunni

„Android er í sömu stöðu og Windows var í hér áður fyrr,“ segir Rik Ferguson, yfirmaður þróunar, rannsókna og samskipta hjá tölvuöryggisfyrirtækinu TrendMicro í Evrópu. Þessi staða geri stýrikerfið, sem er það vinsælasta í heimi fyrir snjallsíma, spjaldtölvur og margvísleg önnur tæki, að helsta skotmarki tölvuglæpamanna.

Ábyrg fyrirtæki njóta ávinnings

Landsvirkjun hefur ráðið Rögnu Söru Jónsdóttur í starf forstöðumanns samfélagsábyrgðar. Um er að ræða nýja stöðu hjá fyrirtækinu en Landsvirkjun er í hópi fyrstu fyrirtækjanna hér á landi til að búa til stefnu um samfélagslega ábyrgð.

Margir vildu afbrigðilegt kynlíf

Leikkonan María Birta Bjarnadóttir hefur höfðað skaðabótamál á hendur 25 ára gamalli konu sem setti auglýsingu í nafni Maríu inn á vefinn Einkamál. Hún krefst hálfrar milljónar króna í bætur auk málskostnaðar.

Brjálað veður - festið trampolínin niður

Brjálað veður gengur nú yfir vesturlandið og hefur lögreglan á Suðurnesjum fengið eina tilkynningu um þakplötur séu að losna af húsum. Björgunarsveitn var send á staðinn til að kíkja á aðstæður. Á Ísafirði er einnig mjög slæmt veður og mikið rok en engar tilkynningar hafa borist til lögreglunnar vegna þess. Lögreglan vill hvetja íbúa til festa allt lauslegt niður, svo sem útigrill og trampólín.

Skírði synina Barack Obama og Mitt Romney

Móðir frá Kenía í Afríku eignaðist tvíbura morguninn eftir að úrslit forsetakosninganna í Bandaríkjunum lágu fyrir. Þegar komið var að því að finna nöfn á litlu krílin var fátt annað sem kom upp í hugann á móðurinni en Barack Obama og Mitt Romney.

Ræktaði kannabis í tjaldi

Lögreglan á Suðurnesjum handtók í vikunni fíkniefnasala, sem var með kannabisefni í níu sölupakkningum á sér. Við leit, sem hann hafði heimilað í húsnæði sínu, fannst kannabis út um alla íbúð ásamt kannabisfræjum. Þetta er í annað skipti á skömmum tíma sem maðurinn er handtekinn vegna fíkniefnasölu. Í fyrra skiptið runnu lögreglumenn á kannabislykt sem reyndist koma frá heimili hans. Við leit þá fundust um 100 grömm af kannabisefnum, ýmist í söluumbúðum eða stærri pokum, auk lítillar vogar.

Ástþór slær í gegn með ljósmyndabók

"Þetta er náttúrulega allt saman sölumennska - það er alltaf verið að selja hugmyndir og fegurð. Í þessu er það náttúrufegurð en í hinu er það persónufegurð,“ segir Ástþór Magnússon, fyrrum forsetaframbjóðandi, sem hefur nú alfarið snúið sér að ljósmyndun. Svo vel gengur hjá honum að vefur breska blaðið Daily Mail birtir umfjöllun um nýja ljósmyndabók sem hann gaf út á dögunum.

Jólagjöf stolið úr íbúð

Brotist var inn í íbúðarhúsnæði í Vogum í vikunni. Þegar lögreglan á Suðurnesjum mætti á vettvang kom í ljós að gluggi á suðurhlið hússins hafði verið spenntur upp og hinir óboðnu gestir komist inn um hann.

Fengu sér smók á klósettinu

Tilkynningar til lögreglu geta verið af ýmsum toga, eins og dæmin sanna. Nýverið tilkynnti öryggisvörður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar lögreglunni á Suðurnesjum um að tveir karlmenn væru reykjandi inni á salerni í flugstöðinni. Þegar lögregla mætti þangað voru reykingamennirnir komnir fram í töskusal. Lögreglumenn ræddu við þá og kváðust þeir vera að koma frá Kaupmannahöfn. Lögreglan las mönnunum, sem báðir eru á þrítugsaldri, pistilinn og sögðust þeir aldrei myndu reykja inni á salerni oftar.

Spennan í Kraganum

Á morgun kemur í ljós hverjir mun skipa efstu sæti lista Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Hart verður barist í báðum flokkum, í Samfylkingunni takast Árni Páll Árnason og Katrín Júlíusdóttir á um fyrsta sætið, og í Sjálfstæðisflokknum eru mörg ný andlit í pólitík að stíga fram á sjónarsviðið.

Ragnheiður Elín til fundar á NATO-þingi

NATO-þingið kemur saman til ársfundar í Prag núna um helgina. Þar verða tekin til umræðu málefni sem eru ofarlega á baugi innan Atlantshafsbandalagsins, t.d. aðgerðir NATO í Afganistan, ástandið í Norður-Afríku og Miðausturlöndum auk sjóræningja og viðbrögð NATO og alþjóðasamfélagsins við þeirri ógn.

Harðskeytt átök í boltanum á Suðurnesjum

Myndskeið frá Suðurnesjum, þar sem nokkrir piltar virðast hafa blandað saman bardaglist og knattspyrnu, fer víða þessa dagana. Myndbandið var meðal annars sent á hinn vinsæla knattspyrnuvef 101 Goals. Ritstjórn vefjarins segist hafa fengið myndbandið sent. Á því megi sjá mörg slagsmál sem virðist vera hluti af knattspyrnunni og leikmenn geri sér grein fyrir því fyrirfram. Sjón er sögu ríkari þannig að þú getur skoðað myndskeiðið hér.

Sonur forsætisráðherrans heima þegar lífvörður svipti sig lífi

Sonur Frederiks Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, var staddur í íbúð forsætisráðherrans þegar lífvörður þar svipti sig lífi um hádegisbil að íslenskum tíma í dag. Samkvæmt sænska Aftonbladet var Rinfeldt sjálfur fjarverandi en sonurinn er nú í skýrslutöku hjá lögreglu þar sem hann er spurður út í atvikið.

Íslendingar taka þátt í risaverkefni

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra kynnti í dag stærsta þróunarsamvinnuverkefni sem Íslendingar hafa tekið þátt í, 65 milljarða króna sjóð sem Alþjóðabankinn hyggst koma upp til jarðhitanýtingar í Afríku. Sjóðurinn verður nýttur til að gera hagkvæmniathuganir og tilraunaboranir. Samstarf Íslands og Alþjóðabankans er mesta átak til jarðhitanýtingar í þróunarríkjum frá upphafi og Ísland verður aðalráðgjafi bankans á því sviði.

Skaut sig á heimili sænska forsætisráðherrans

Karlmaður fannst látinn með alvarleg sár á heimili Fredriks Reinfeldts, forsætisráðherra Svíþjóðar, í dag. Eftir að maðurinn fannst var fjöldi lækna og lögregluþjóna kallaður á staðinn. Í blaðinu Expressen kemur fram að maðurinn sé öryggisvörður og Aftonbladet fullyrðir að maðurinn hafi skotið sjálfan sig. Fredrik Reinfeldt forsætisráðherra var ekki heima þegar atvikið varð, segir Marcus Friberg, upplýsingaráðherra forsætisráðherrans, í samtali við sænska ríkissjónvarpið.

Láku gögnum frá hernum til að hægt væri að búa til tölvuleik

Sjö menn úr sjóher Bandaríkjanna hafa verið fundnir sekir um að hafa lekið gögnum frá hernum þegar þeir unnu sem ráðgjafar við hönnun tölvuleikjar. Leikurinn sem þeir veittu ráðgjöf við heitir Warfighter. Einn mannanna vann í því teymi sem myrti Osama bin Laden í fyrra. Leikurinn snýst þó ekkert um endalok ævi bin Ladens, heldur er tilgangurinn með því að fá ráðgjöf frá hermönnunum að gera hann sem allra raunverulegastan.

Skildi kettlinga eftir í pappakassa á Reykjanesbraut

Ábyrgur borgari kom á lögreglustöðina í Keflavík nú í morgun með pappakassa sem í voru þessi systkini, en pappakassinn hafði verið skilinn eftir á Reykjanesbraut við Stapann. Þessir fallegu kettlingar, sem sjá má á meðfylgjandi mynd, hafa báðir fengið hlý heimili.

Sérstakur starfshópur til að meta stöðu Eirar

Skipaður verður sérstakur starfshópur til að leggja mat á fjárhagsstöðu Eirar og tryggja áframhaldandi þjónustu og búseturétt íbúa. Þetta var niðurstaða fundar fjárlaganefndar Alþingis með framkvæmdastjóra félagsins í morgun. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sagði af sér sem stjórnarformaður Eirar í gær.

Harmar niðurstöðu Hæstaréttar

Framkvæmdastjóri Sólheima harmar niðurstöðu Hæstaréttar í gær um að ríkinu hafi verið heimilt að skerða framlög til Sólheima í fjárlögum ársins 2009. Hann segir Sólheima hafa uppfyllt þjónustusamning sinn við ríkið þó hann hafi runnið út og talið að stjórnvöldum væri skylt að gera slíkt hið sama.

Ný útlán aukist verulega

Ný útlán til einstaklinga og fyrirtækja hafa aukist verulega síðast árið, segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, í samtali við Frjálsa verslun. Viðtal við hana birtist í blaðinu 300 stærstu sem kom út í vikunni.

Óveður á Vestfjörðum

Óveður er nú orðið á Vestfjörðum með hvössum vindi og snjókomu og vara Vegagerðin og Veðurstofan fólk við að vera þar á ferð. Sumstaðar er þegar orðið ófært. Vindhraðinn er víða kominn uppundir 20 metra á sekúndu og sumsaðar þar yfir.

Þjófar stálu jólagjöf í Vogunum

Brotist var inn í íbúðarhúsnæði í Vogum á Vatnsleysuströnd í vikunni. Þegar lögreglan á Suðurnesjum mætti á vettvang kom í ljós að gluggi á suðurhlið hússins hafði verið spenntur upp og hinir óboðnu gestir komist inn um hann. Þeir höfðu á brott með sér fartölvu, leikjatölvur, videóvél og mörg fleiri tæki. Þar á meðal var glænýr Ipod, sem ætlaður var til jólagjafar. Þá var lögreglu tilkynnt um innbrot í skrifstofuhúsnæði í umdæminu. Þaðan var stolið fartölvu, farsíma, gagnasnúru og eftirlitsmyndavél. Málin eru í rannsókn.

Búsáhaldabylting hafin í Argentínu

Búsáhaldabylting er hafin í Argentínu á svipuðum nótum og gerðist hér á Íslandi í kjölfar fjármálahrunsins fyrir fjórum árum síðan.

Vonskuveðri spáð í dag

Veðurstofan spáir stormi á vestan- og norðanverðu landinu þegar líður á daginn. Það verður vaxandi norðaustanátt , fyrst á Vestfjörðum og á annesjum Norðanlands, eða 18 til 25 metrum á sekúndu um hádegisbil.

Kannabisræktun blómstrar sem aldrei fyrr

Kannabisræktun virðist grassera sem aldrei fyrr. Þannig upprætti lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fullkomna kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í Garðabæ í fyrradag og lagði hald á 40 kannabisplöntur og ræktunarbúnað. Þá fannst rúmlega kíló af kannabisefnum við húsleit í Hafnarfirð.

Sakhæfur en samt of veikur fyrir fangavist á Litla-Hrauni

Maður sem veitti föður sínum alvarlega áverka sem drógu hann til dauða er nú nauðungarvistaður á öryggisdeildinni á Kleppi. Hann var metinn sakhæfur af geðlæknum fyrr á árinu og dæmdur til fjórtán ára fangelsisvistar.

Kom heim frá Úganda með tumbu-lirfu í handleggnum

Karlmaður leitaði til læknis á Landspítalanum vegna sýkingar. Flugulirfa reyndist vera djúpt í handlegg hans. Læknar þurfa að vera meðvitaðir um hættu á sýkingum sem þessum vegna tíðra ferðalaga landans.

Hu hvetur til atlögu gegn spillingunni

Leiðtogar kínverska Kommúnistaflokksins leggja áherslu á að vinna gegn spillingu ráðamanna, sem virðist hafa grafið eitthvað undan tiltrú landsmanna til flokksins undanfarið.

Fólk leitaði skjóls á sjúkrahúsi

Tugir manna fórust þegar jarðskjálfti reið yfir í Gvatemala í fyrrinótt. Skjálftinn mældist 7,4 stig og olli miklu tjóni, einkum í borginni San Marcos en einnig í mismiklum mæli um allt landið.

Stjórnvöld bjóða markaðsátak

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sagði í ræðu á Sjávarútvegsráðstefnunni í gær að aldrei hefði verið jafnbrýn þörf á sérstöku markaðsátaki fyrir sjávarafurðir frá Íslandi á mörkuðum erlendis. Hann lýsti yfir vilja sínum og atvinnuvegaráðherra til að standa að sameiginlegu átaki stjórnvalda og sjávarútvegsins og benti á samstarf ríkisstjórnar og ferðaþjónustu gegnum Inspired by Iceland sem fordæmi.

30 milljónir vegna PIP-púða

HeilbrigðismálMeirihluti fjárlaganefndar leggur til að Landspítalinn fái 30 milljónir króna aukalega á fjáraukalögum til þess að mæta kostnaði við að fjarlægja PIP-brjóstapúða.

Kanna ástand á jólaljósaseríum

Árlegt markaðseftirlitsátak Neytendastofu í samstarfi við Aðalskoðun á jólaljósaseríum stendur næstu daga og vikur.

Bensín skammtað í New York

Bensín verður skammtað í New York frá og með deginum í dag. Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, tilkynnti þetta í gærkvöldi.

Sjá næstu 50 fréttir