Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vissara að standa ekki fyrir aftan kýr með veiruskitu "Þetta er ekkert ósvipað og inflúensa hjá mönnunum, fyrir utan að þetta kemur í fljótandi formi og þá er vissara að vera ekki fyrir aftan,“ útskýrði Daníel Magnússon, bóndi á Akbraut norðan Hellu sem ræddi við Reykjavík síðdegis um veiruskitu sem kom upp í kúm á býlinu hans fyrir um tveimur vikum síðan. 23.10.2012 17:36
Á leið í Alþjóðlegu geimstöðina Rússneskt geimfar braut sér leið í gegnum lofthjúp jarðar fyrr í dag. Um borð voru þrír geimfarar, einn bandaríkjamaður á vegum NASA og tveir Rússar. 23.10.2012 16:48
Bensínþjófnaður og bílabruni upplýstur - þjófurinn brenndist á fótum Lögreglan á Suðurnesjum hefur upplýst bensínþjófnað og bílabruna á bílaleigu á Suðurnesjum um helgina. Átta bílar skemmdust í brunanum, þar af eru fimm gjörónýtir. Tveir menn um tvítugt voru handteknir í gær og játuðu þeir verknaðinn. Þeim var sleppt að yfirheyrslum loknum í gærkvöldi. Annar mannanna brenndist nokkuð á fótum en hafði ekki leitað til læknis vegna meiðsla sinna þegar hann var handtekinn. 23.10.2012 16:43
Flokkadrættir og klækir þurfa að víkja "Nú þurfa flokkadrættir og klækir stjórnmálanna að víkja fyrir almannahag og fumlausum vinnubrögðum allt til enda.“ 23.10.2012 16:12
WOW air kaupir Iceland Express Flugfélagið WOW air hefur keypt rekstur Iceland Express. Frá þessu var greint á starfsmannafundi sem hófst klukkan fjögur. Þær flugleiðir sem Iceland Express flýgur nú verða þá farnar undir merkjum WOW air. Það er Skúli Mogensen sem á og rekur WOW air. Flugfélagið hóf störf í vor. 23.10.2012 16:07
Mögulegt að skjálfti upp á 6,8 geti orðið Nægjanleg spenna er til staðar í jarðskorpunni, þar sem jarðskjálftarnir við Siglufjörð hafa verið, til þess að skjálfti að stærðinni 6,8 geti orðið. Þetta kemur fram í frétt á vef Veðurstofunnar í dag, en þar er vísað í jarðskorpumælingar sem hafa veirð gerðar á síðustu árum. 23.10.2012 15:12
Rændi mann sem féll á lestarteina Dómstóll í Svíþjóð dæmdi í dag 28 ára gamlan Túnisbúa, Nadar Khiarui, í eins og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa rænt mann sem féll á lestarteina í Stokkhólmi. 23.10.2012 14:49
Lady Gaga: Ég elska borgarstjóra Íslands Þegar Lady Gaga kom hingað til lands fyrr í mánuðinum sagði hún að ræða Jóns Gnarr borgarstjóra, á friðarverðlaunum Lennon/Ono, hefði hreyft við sér og sagðist vonast til að fleiri borgarstjórar væru eins og hann. Það er ljóst að aðdáun hennar á borgarstjóranum hefur ekki dvínað því á Twitter-síðu sinni í dag segist hún dýrka Jón Gnarr. 23.10.2012 14:21
„Standi dómurinn kallar hann á breytt vinnubrögð“ "Ef þessi dómur stendur, þá mun hann hafa áhrif á vísindasamfélagið. Þetta mun hafa áhrif utan Ítalíu og við hér heima þurfum að hafa okkar mál á hreinu." 23.10.2012 14:16
Sögðu leigubílstjórann rukka of mikið fyrir farið Til svo djúpstæðs ágreinings um fargjald kom milli leigubílstjóra og tveggja farþega í Reykjanesbæ að lögreglan var kölluð til. Fram kom, að leigubílstjórinn hafði sagst mundu taka 7.000 krónur fyrir tiltekinn túr. 23.10.2012 13:43
Jarðskjálftahrina í Vatnajökli Töluverð skjálftavirkni hefur verið í Vatnajökli í gær og í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Benedikt Gunnari Ófeigssyni, jarðeðlisfræðingi á Veðurstofu Íslands, mældist stærsti skjálfinn 3,3 stig í gærkvöldi. 23.10.2012 13:31
Lögreglan tekst á við borgarana á Facebook Eins og kunnugt er heldur lögreglan úti síðu á Facebook líkt og margar aðrar stofnanir sem vinna í þjónustu við almenning. Borgara nokkrum, sem var heldur ósáttur við hraðamælingar lögreglunnar, sendi skeyti í bundnu máli og var kveðjan á þessa leið: 23.10.2012 12:40
Hvíthvalir tala eins og menn Vísindamenn í Bandaríkjunum urðu furðu lostnir þegar þeir áttuðu sig á því að hvíthvalir, sem eru af ætt tannhvala, gefa frá sér hljóð sem eru merkilega lík tali manna. Á fréttavef BBC segir að tekist hafi að kenna höfrungum að herma eftir tali manna. Engin dýr hafi, að eigin frumkvæði, náð að herma eftir slíku tali. Á dögunum hafi hins vegar hin níu ára gamli hvíthvalur NOC gefið frá sér hljóð sem séu lík tali manna og séu þarf af leiðandi mjög merkileg. 23.10.2012 12:26
Afurðatap hjá bændum vegna veiruskitu Veiruskita í kúm hefur stungið sér niður á nokkrum kúabúum á Suðurlandi, sem veldur því að kýrnar missa nyt og því verður um mikið afurðartap hjá bændum á ræða. Dýralæknir hjá Matvælastofnun biður bændur að vera ekki að þvælast að óþörfu á milli bæja með tæki og tól. Veikin gengur yfir á viku til tíu dögum. 23.10.2012 12:15
Vilji fyrir breytingum á meðferð kynferðisbrotamála Þverpólitískur vilji er í allsherjar- og menntamálanefnd um breytingar á meðferð kynferðisbrotamála. Nefndin fundaði í þriðja sinn um málefnið í dag. Vonast er til að nefndin skili vinnu á þessum þingvetri. 23.10.2012 11:55
Stal greiðslukortum frá gesti í Bláa lóninu Tilkynnt var um þjófnað úr baðskáp í Bláa lóninu í gær en úr honum hafði tveimur greiðslukortum í eigu erlends baðgests verið stolið. Í ljós kom að maðurinn átti í einhverju basli með að læsa skápnum en taldi að sé hafi þó tekist það áður en hann fór og baðaði sig í lóninu. Svo reyndist þó ekki vera. Hann hafði því samband við banka í heimalandi sínu og lét loka kortunum, þannig að sá sem tók kortin hafði ekki erindi sem erfiði. 23.10.2012 11:12
Túnfiskur veiðist við Ísland Stafnesið, sem er í eigu Odds Sæmundssonar útgerðarmanns, er nú við túnfiskveiðar um 180-200 sjómílur af landinu. Á föstudag hafði báturinn fengið fjóra fallega fiska í tveimur lögnum og að sögn Útvegsblaðsins voru þeir búnir að leggja línuna í þriðja sinn. 23.10.2012 10:35
Mannlegur hundur slær í gegn á netinu Það er ekki bara mannfólkið sem á erfitt með að vakna á morgnanna og ganga í gegnum hina hefðbundu rútínu á morgnanna. Því myndskeið af mannlegum Labrador Retriever hundi gengur nú manna á milli á internetinu. Hundurinn vaknar upp við vekjaraklukkuna á símanum sínum, klæðir sig í skyrtu, burstar í sér tennurnar, borðar morgunmat og horfir aðeins á sjónvarpið áður en hann stekkur út í bíl til að fara í vinnuna. Yfir 700 þúsund manns hafa horft á myndbandið á Youtube á aðeins níu dögum. 23.10.2012 10:26
Yfir 200 ökumenn stöðvaðir í umferðarátaki Rúmlega tvö hundruð ökumenn voru stöðvaðir í Reykjavík um helgina í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Fimm þeirra reyndust undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna og eiga hinir sömu ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Einum til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að viðkomandi hafði neytt áfengis en var þó undir refsimörkum. Eftirlitið fór fram í miðborginni og við eina af verslunum ÁTVR í austurborginni. 23.10.2012 09:48
Beið sólarupprásar á þaki nýbyggingar Lögreglan á Suðurnesjum var kölluð út á sunnudagsmorguninn þar sem karlmaður var að spóka sig uppi á þaki á hálfbyggðu iðnaðarhúsnæði. Fylgdi sögunni, að óttast væri að hann væri ölvaður eða í annarlegu ástandi. 23.10.2012 09:44
Ungir æfðu sig á skautum Það var frídagur hjá grunnskólabörnum í gær. Af því tilefni var blásið til ýmisskonar skemmtunar fyrir börn. Í Miðbergi var hrekkjavökuskemmtun fyrir alla fjölskylduna. Þar var fjölbreytt skemmtun, s.s. andlitsmálningu, draugahús og draugasögur. Þá gátu nemendur skellt sér á skauta í Laugardal eða í sund. Pjetur Sigurðsson ljósmyndari var á ferðinni og tók myndir af öllu því sem fram fór. 23.10.2012 09:39
Eldsvoði í sjúkrahúsi kostaði 12 lífið Að minnsta kosti tólf sjúklingar fórust þegar eldur kom upp í sjúkrahúsi í Suður-Taívan snemma í morgun. 23.10.2012 09:38
Dánarorsök Tony Scott opinberuð Krufning og rannsókn dánardómstjóra í Los Angeles hefur sýnt fram á að breski kvikmyndagerðarmaðurinn Tony Scott tók sitt eigið líf. 23.10.2012 09:26
Byggingin frekar sögufölsun en tilgátuhús Nikulás Úlfar Másson, forstöðumaður húsafriðunarnefndar, gagnrýnir allan málatilbúnað við byggingu Þorláksbúðar við hlið Skálholtskirkju í ársskýrslu nefndarinnar fyrir árið 2011. 23.10.2012 08:00
Lögreglan með mansalsmál á nuddstofu til rannsóknar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar mál er varðar grun um mansal á kínverskum nuddstofum í borginni. Útlendingastofnun hefur einnig fengið málið inn á sitt borð. 23.10.2012 08:00
Ráðhúsið óhentugt til að telja atkvæði „Ég mundi segja að þessar kosningar hafi gengið mjög vel fyrir sig,“ segir Katrín Theodórsdóttir, formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi norður. Talning gekk hægt í kjördæminu og var ekki lokið fyrr en undir miðnætti á sunnudag. Í öðrum kjördæmum lauk talningu aðfaranótt sunnudagsins. 23.10.2012 07:45
Flúor ekki yfir hámörkum Upplýsingar frá Alcoa Fjarðaáli til Matvælastofnunar sýna að magn flúors í heyi í Reyðarfirði var í öllum tilfellum undir hámarksgildum. Í tveimur mælingum af sautján reyndist magn flúors yfir mörkum fyrir mjólkandi kýr. 23.10.2012 07:30
Verulega dregur úr starfsemi sómalskra sjóræningja Verulega hefur dregið úr starfsemi sjóræningja undan ströndum Sómalíu það sem af er þessu ári miðað við sama tímabil í fyrra. 23.10.2012 07:15
Átján ára í átján mánaða fangelsi Átján ára unglingspiltur hefur verið dæmdur til 18 mánaða fangelsisvistar fyrir líkamsárás, frelsissviptingu og íkveikju. Tveir aðrir, 25 og 24 ára, sem einnig voru ákærðir, voru dæmdir til fjögurra og sex mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir frelsissviptingu og umferðarlagabrot. Þeir voru hins vegar sýknaðir af ákæru um líkamsárás. 23.10.2012 07:00
Innbrot í verslun við Langholtsveg Tilkynnt var um innbrot í verslun við Langholtsveg í Reykjavík í nótt og sást til tveggja manna hlaupa af vettvangi. Þeir komust undan og er verið að kanna hvort, eða hverju var stolið. 23.10.2012 06:59
Sá sem braust inn á lögreglustöð er laus úr haldi Manni, sem braust inn í lögreglustöðina á Ísafirði í fyrrinótt, stal þaðan lögreglubíl og ruddist inn í íbúðarhús, var látinn laus að yfirheyrslum loknum í gærkvöldi. 23.10.2012 06:57
Bráðsmitandi veiruskita í kúm á Suðurlandi Veiruskita í kúm geysar nú á Suðurlandi, enda bráðsmitandi, samkvæmt vef Matvælastofnunar. 23.10.2012 06:55
Handtóku dópaðan ökumann á stolnum bíl Lögregla tók ökumann úr umferð á höfuðborgarsvæðinu í nótt, grunaðan um fíkniefnaakstur og reyndist hann auk þess hafa stolið bílnum. 23.10.2012 06:53
Stór jarðskjálfti norðaustur af Gjögurtá Jarðskjálfti upp á 4,5 stig varð 25 kílómetra norðaustur af Gjögurtá, við austanvert mynni Eyjafjarðar um klukkan hálf sex í morgun eftir að tveir skjálftar upp á tæp þrjú stig, höfðu mælst þar skömmu áður. 23.10.2012 06:50
Rannsaka stuld á stórri gröfu á Ísafirði Lögreglan á Ísafirði rannsakar nú hver var að verki þegar stórri gröfu var stolið af byggingasvæði nýs öldrunarheimilis að Torfnesi og ekið að verslunarkjarnanum Neista aðfararnótt sunnudags. 23.10.2012 06:48
Trúverðugleiki og orðspor BBC er í tætlum Trúverðugleiki og orðspor hinnar virtu bresku sjónvarpsstöðvar BBC er í tætlum. 23.10.2012 06:45
Niðurstöðu um loftrýmisgæslu ekki að vænta í bráð Ekki er að vænta niðurstöðu um hvort Svíþjóð og Finnland taki þátt í loftrýmisgæslu yfir Íslandi fyrr en eftir nokkrar vikur. 23.10.2012 06:40
Obama sigraði í síðustu kappræðunum Barack Obama Bandaríkjaforseti stóð uppi sem sigurvegari í síðustu kappræðum hans og Mitt Romney í gærkvöldi. 23.10.2012 06:30
Stundvísasta félag Evrópu Icelandair var stundvísast allra evrópskra flugfélaga sem eru í AEA, Evrópusambandi flugfélaga, í alþjóðaflugi í september. 23.10.2012 06:15
Alls 179 utangarðs í Reykjavík Kortlagning velferðarsviðs Reykjavíkurborgar á fjölda og högum utangarðsfólks sýnir að í Reykjavík teljast 112 karlar og 64 konur heimilislaus eða utangarðs. Alls fylla þennan hóp 179 manns, en í rannsókninni kemur ekki fram kyn þriggja einstaklinga. 23.10.2012 06:00
Aðalmeðferðinni á að ljúka í dag Síðdegis í dag á að ljúka aðalmeðferð sem hófst í gærmorgun fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í máli sérstaks saksóknara gegn Aroni Pétri Karlssyni kaupsýslumanni. 23.10.2012 06:00
Ræða sundlaug og hjólabrú Borgarráð Reykjavíkur og bæjarráð Kópavogs hafa skipað fulltrúa í tvo starfshópa sem fjalla eiga um sundlaug í Fossvogsdal og gerð hjóla- og göngubrúar yfir Fossvog. 23.10.2012 06:00
Ætlar aftur út að hlaupa í dag Tékkneska blaðamanninum René Kujan var ákaft fagnað í Elliðaárdalnum í gær þegar hann lauk tæplega 1.300 kílómetra hlaupi sínu umhverfis landið á þrjátíu dögum. Kujan hljóp rúmlega maraþon á hverjum degi og er fyrsti maðurinn til að hlaupa hringinn í kringum Ísland. 23.10.2012 05:30
Umdeildar nafnabirtingar í nasistabók Ný bók um Norðmenn og seinni heimsstyrjöldina hefur vakið mikið umtal. Í bókinni, sem ber heitið Miskunnarlausu Norðmennirnir, nafngreinir höfundurinn Eirik Veum hundruð manna sem tengdust ríkislögreglunni, sem vann með herliði nasista á hernámsárunum 1940 til 1945. 23.10.2012 02:00
Olíurisi verður enn þá stærri Rússneski olíurisinn Rosneft hefur samið um kaup á helmingshlut breska olíurisans BP í olíufyrirtækinu TNK-BP, sem er eitt af stærstu olíufyrirtækjum Rússlands. Rosneft kaupir jafnframt hinn helminginn í TNK-BP af rússneskum auðkýfingum. 23.10.2012 01:00