Innlent

Lady Gaga: Ég elska borgarstjóra Íslands

Lady Gaga og Jón Gnarr saman í Hörpu.
Lady Gaga og Jón Gnarr saman í Hörpu. Mynd/365
Þegar Lady Gaga kom hingað til lands fyrr í mánuðinum sagði hún að ræða Jóns Gnarr borgarstjóra, á friðarverðlaunum Lennon/Ono, hefði hreyft við sér og sagðist vonast til að fleiri borgarstjórar væru eins og hann. Það er ljóst að aðdáun hennar á borgarstjóranum hefur ekki dvínað því á Twitter-síðu sinni í dag segist hún dýrka Jón Gnarr.

Aðdáandi hennar, sem ber nafnið Kim Kartrashian, spurði hana hver væri uppáhalds forsetinn hennar í mannkynssögunni. Hún svaraði því um hæl, með stuttri setningu: „Ég elska borgarstjóra Íslands." Söngkonan hefur „tístað" um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum síðustu daga og kom spurningin frá aðdáandanum í kjölfar þeirrar umræðu.

Jón Gnarr sagði á beinni línu á dv.is fyrr í dag að hann gæti vel hugsað sér að vera borgarstjóri áfram.

Lady Gaga er vinsælasti notandi á samskiptasíðunni Twitter með yfir þrjátíu milljónir fylgjendur og í frítíma sínum nýtir hún yfirleitt tækifærið og svarar spurningum aðdáanda sinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×