Innlent

Afurðatap hjá bændum vegna veiruskitu

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Þorsteinn Ólafsson er dýralæknir á Suðurlandi.
Þorsteinn Ólafsson er dýralæknir á Suðurlandi. Mynd/ MHH
Veiruskita í kúm hefur stungið sér niður á nokkrum kúabúum á Suðurlandi, sem veldur því að kýrnar missa nyt og því verður um mikið afurðartap hjá bændum á ræða. Dýralæknir hjá Matvælastofnun biður bændur að vera ekki að þvælast að óþörfu á milli bæja með tæki og tól. Veikin gengur yfir á viku til tíu dögum.

Ekki er vitað um hvaða veiru er að ræða en kýr á nokkrum bæjum á Suðurlandi hafa orðið mjög veikar vegna skitunnar. Þorsteinn Ólafsson er dýralæknir nautgripa og sauðfjársjúkdóma hjá Matvælastofnun á Selfossi. Hann segir að þeir sem verða varir við veikina á sínu búum þurfi að koma sýnum á Tilraunastöð Háskóla Íslands á keldum þar sem reynt verður að varpa ljósi á faraldsfræði veikinnar og hvaða veira veldur henni. Hafa á samband við Eggert Gunnarson eða Vilhjálm Svansson á Keldum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×