Fleiri
Start hnappurinn horfinn í Windows 8 28.10.2012 20:44 Vinstri grænir að gera þjóðina fráhverfa umhverfismálum Einn af stofnendum Vinstri grænna, Indriði Aðalsteinsson, bóndi á Skjaldfönn, segist vera búinn að fá nóg af ríkisstjórninni og ekki geta stutt flokkinn vegna svika í Evrópusambandsmálum. Þá hafi Vinstri grænir haldið þannig á umhverfisráðuneytinu að stór hluti þjóðarinnar sé að verða fráhverfur umhverfismálum. Þetta kom fram í þættinum Um land allt, sem er á dagskrá Stöðvar 2 að loknum fréttum á sunnudagskvöldum. 28.10.2012 19:30 „Ef ég sæi lausn í málinu værum við sestir að borðinu“ Það kemur ekki til greina að breyta hlutaskiptakerfi útvegsmanna og sjómanna að svo stöddu, segir formaður sjómannasambandsins. Hann segir ágætis afkomu vera hjá útgerðunum til að standa straum af auknum kostnaði vegna veiðileyfagjaldsins. 28.10.2012 19:01 Di Matteo: Dómarinn var skelfilegur og kostaði okkur þennan leik Roberto di Matteo, knattspyrnustjóri Chelsea, var virkilega harðorður í garð dómara leiksins, Mark Clattenburg, eftir að lið hans hafði tapað fyrir Manchester United 3-2. 28.10.2012 19:00 Eins og að leggja veg í gegnum Dimmuborgir Jarð- og náttúrufræðingur líkir lagningu Álftanesvegar í gegnum Garðahraun við það að Mývetningar legðu veg í gegnum Dimmuborgir. Svæðið sé það síðasta sinnar tegundar við höfuborgarsvæðið. Hæstaréttarlögmaður segir lagarök bæjarstjórnarinnar í Garðbæ brjóstumkennanleg. 28.10.2012 18:37 New York nánast lokuð Í kvöld verður svo öllum almenningssamgöngum lokað, þar á meðal neðanjarðarlestakerfi borgarinnar og strætisvagnar. Á morgun verður svo öllum skólum í borginni lokað. 28.10.2012 17:52 Vildi 50 prósent hlut í Facebook - sagðist hafa fundið á upp á síðunni með Zuckerberg Paul Ceglia, kaupsýslumaður og frumkvöðull frá New York, hefur verið ákærður fyrir að reyna svíkja fé út úr Facebook en maðurinn fullyrti að hann ætti 50 prósent hlut í samskiptamiðlinum. 28.10.2012 15:54 Álfheiður vill 2. sætið í Reykjavík "Erfitt að taka til eftir hrunið,“ segir hún. 28.10.2012 15:41 26 börn fengu styrk úr Vildarbörnum Icelandair Tuttugu og sex börnum og fjölskyldum þeirra, samtals rúmlega 150 manns, var afhentur ferðastyrkur úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair í gær, fyrsta vetrardag. 28.10.2012 15:07 Bítlarnir hættu ekki vegna Yoko Ono Bítlarnir hættu ekki vegna Yoko Ono, líkt og lengi hefur verið haldið fram. Þetta segir Bítillinn Sir Paul McCartney í viðtali við sjónvarpsmanninn David Frost, sem sýnt verður á Al Jazeera-sjónvarpsstöðinni í næsta mánuði. 28.10.2012 15:01 Ásta Ragnheiður býður sig ekki fram Spurð hvort að með þessari ákvörðun sé hún að hætta í stjórnmálum segir hún: „Ég hef ákveðið þetta núna og svo sjáum við bara til hvað setur," segir hún. 28.10.2012 14:27 Flóðbylgjuviðvaranir dregnar til baka Áttatíu þúsund manns þurftu að rýma heimili sín á Hawai í nótt af ótta við fljóðbylgju eftir að mjög öflugur skjálfti varð við vesturströnd Kanada. Fljóðbylgjurnur reyndust þó minni en svartsýnustu spár gerðu ráð fyrir og hafa fljóðbylgjuviðvaranir verið dregnar tilbaka 28.10.2012 13:16 Haltu áfram að borga af láninu þínu Lántakendur eiga í mörgum tilvikum kröfu á fjármögnunarfyrirtæki eins og Lýsingu vegna ofgreiðslna af gengistryggðum lánum segir hæstaréttarlögmaður. Fólk eigi samt sem áður að halda áfram að greiða af lánunum þar sem vanskil setji skuldara í verri stöðu. 28.10.2012 12:42 Misskilningur að höfuðborgarbúar greiði fyrir landsbyggðina Allt að 278% munur var á hæsta og lægsta kostnaði við að hita upp meðalstórt íbúðarhúsnæði á ári á landinu í fyrra. 28.10.2012 12:31 Sandy hefur áhrif á kosningabaráttuna Fellibylurinn Sandy hefur sett kosningabaráttu forstaframbjóðendanna í Bandaríkjunum úr skorðum. Talið er að fellibylurinn komi að landi á morgun og geti haft víðtæk áhrif um alla austurströnd Bandaríkjanna en íbúum er sagt að búa sig undir jafnvel margra daga rafmagnsleysi. 28.10.2012 12:26 Fóru í sund í Árbæjarlaug - foreldrarnir sóttu þá á lögreglustöðina Um klukkan hálf sex í morgun var tilkynnt um pilta sem höfðu laumast í sund í Árbæjarlaug. Þeir voru handsamaðir frekar klæðalitlir og vegna aldurs var haft samband við foreldra þeirra. Auk þess verður barnaverndarnefnd gert viðvart um hegðan piltanna. Að sögn lögreglu voru piltarnir sóttir af foreldrum sínum. 28.10.2012 11:04 Sjá næstu 50 fréttir
Segir WOW air nota villandi tungutak Flugmálastjórn Íslands hefur fundið sig knúið til þess að setja tilkynningu á heimasíðu sína þar sem það er áréttað að WOW air sé ekki flugrekstrarfélag í þeim skilningi að félagið eigi og haldi úti loftfari. Ástæðan er sú að í tilkynningu WOW air þegar félagið yfirtók hluta af rekstri Iceland Express í síðustu viku, kom fram að félagið hefði teki yfir flugrekstur IE. 29.10.2012 10:18
Svandís vill leiða Reykjavíkurkjördæmi Svandís Svavarsdóttir gefur kost á sér í 1. sæti í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæmanna fyrir Vinstrihreyfinguna - grænt framboð í komandi Alþingiskosningum. Svandís leiddi lista Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmi suður í kosningum vorið 2009 og hefur setið á þingi síðan. Hún hefur gegnt embætti umhverfisráðherra frá sama tíma og embætti umhverfis- og auðlindaráðherra frá haustinu 2012. 29.10.2012 09:54
Leiguverð stúdentaíbúða hærra en reiknað var með Talsmenn Félaqgsstofnunar stúdenta hafa tjáð Stúdentaráði Háksóla Íslands að leiguverð í stúdentagörðunum, sem verið er að byggja, verði umtalsvert hærra en reiknað var með í upphafi, vegna kostnaðarauka sem hlýst af nýrri byggingarreglugerð. Eins og fram er komið telja samtök iðnaðarins að reglugerðin hækki byggingarkostnað um tíu til 20 prósent og hafa mótmælt ýmsum atriðum í henni. 29.10.2012 09:21
Saddam Hussein blandast inn í morðin á bresku fjölskyldunni Rannsókin á morði bresku fjölskyldunnar í frönsku Ölpunum í sumar hefur tekið enn einn snúninginn. Saddam Hussein fyrrum einræðisherra Írak kemur nú við sögu í rannsókninni. 29.10.2012 09:12
Stór skjálfti norðaustur af Siglufirði Jarðskjálfti upp á 3,4 varð norðaustur af Siglufirði á áttunda tímanum í morgun en þá höfðu engir skjálftar mælst yfir þremur stigum út af Norðurlandi síðan að þrír skjálftar urðu þar upp á um og yfir þrjú stig í fyrrakvöld. 29.10.2012 08:19
Deilur og átök um 800 milljarða fjárfestingu á Grænlandi Mikil átök og deilur eru nú uppi á Landsþinginu á Grænlandi vegna frumvarps sem heimilar fleiri þúsund kínverskir og austurevrópskir verkamenn verði fluttir til landsins til að vinna við námurekstur á vegum Kínverja og byggingu nýs álvers á vegum Alcoa. 29.10.2012 08:11
Glysrokkarinn Gary Glitter handtekinn Hneykslið í kringum fyrrverandi sjónvarpsmann BBC, Jimmy Savile, vatt upp á sig í gær þegar lögreglan handtók glysrokkarann og dæmda barnaníðinginn Gary Glitter. 29.10.2012 07:00
Milljónir eru í hættu Tugum þúsunda íbúa norðausturstrandar Bandaríkjanna var gert að yfirgefa heimili sín í gær vegna fellibyljarins Sandy sem á að ganga yfir Bandaríkin í dag. 29.10.2012 07:00
Koma á böndum á beit og græða land Samstarfsnefnd um beitarstjórnun og sjálfbæra landnýtingu á að skila ráðherrum ráðleggingum sínum eftir rúman mánuð. Þetta kom fram í svörum Svandísar Svavarsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra, í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi fyrir helgi. 29.10.2012 07:00
Iceland Airwaves í viðbragðsstöðu Skipuleggjendur tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves eru í viðbragðsstöðu vegna fellibyljarins Sandy. 29.10.2012 07:00
Wen Jiabao segir frétt New York Times vera ranga Lögfræðingar fjölskyldu kínverska forsætisráðherrans Wen Jiabao hafa vísað til föðurhúsanna frétt New York Times um að hún hafi rakað til sín hundruð milljarða króna á bak við tjöldin. 29.10.2012 07:00
Tvöfalt kjördæmisþing niðurstaðan Framsóknarmenn í Norðausturkjördæmi hyggjast velja á framboðslista flokksins fyrir Alþingiskosningarnar í vor á tvöföldu kjördæmisþingi. Kosið var um aðferð við val á listann á kjördæmisþingi í Mývatnssveit í gær. 29.10.2012 07:00
Skipulagið er í ólestri Skipulag strandsvæða og starfsemi á þeim heyrir sem stendur undir fjögur ráðuneyti og ellefu stofnanir, að því er fram kom í svari Svandísar Svavarsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra, í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi fyrir helgi. 29.10.2012 07:00
Rólegt á skjálftasvæðinu fyrir norðan Engir skjálftar hafa mælst yfir þrjú stig út af Norðurlandi síðan að þrír skjálftar urðu þar upp á um og yfir þrjú stig í fyrrakvöld, norður af Siglufirði og út af Gjögurtá. 29.10.2012 06:51
Þrjú útköll vegna rjúpnaskyttna um helgina Björgunarsveitir voru þrívegis kallað út um helgina, eftir að farið var að óttast um rjúpnaskyttur, en nýliðin helgi var sú fyrsta af fjórum, sem veiðar eru heimilaðar í haust. 29.10.2012 06:49
Stjórnarskipti framundan í Litháen Stjórnarskipti eru framundan í Litháen en hægri stjórn landsins féll í síðari umferð þingkosninganna sem haldnar voru í landinu um helgina. 29.10.2012 06:45
Kristnir koptar í Egyptalandi velja páfa í dag Hinir kristnu koptar í Egyptalandi munu velja sér nýjan páfa í dag. 29.10.2012 06:41
Icelandair fellir niður allt flug til New York vegna Sandy Icelandair hefur, eins og önnur flugfélög, fellt niður flug til og frá New York í dag og óvissa er um flug á morgun. 29.10.2012 06:38
Stjórnarflokkurinn lýsir yfir sigri í Úkraínu Stjórnarflokkur forseta Úkraínu hefur lýst yfir sigri sínum í þingkosningunum sem fór fram í landinu um helgina. 29.10.2012 06:36
Hassframleiðsla olli sprengingu í íbúð á Lollandi Íbúð í Maribo á Lollandi í Danmörku sprakk í loft upp þegar 18 ára gamall drengur var þar að búa til hass úr kannabistoppum og laufum. 29.10.2012 06:30
Rannsaka þjófnað á skjölum úr bandaríska Þjóðskjalasafninu Bandaríska Þjóðskjalasafnið hefur komið á fót rannsóknarnefnd til að kanna það sem virðist vera skipulagður þjófnaður á skjölum úr safninu í gegnum árin. 29.10.2012 06:27
Fellibylurinn Sandy lamar New York borg Gífurlegur viðbúnaður er á austurströnd Bandaríkjanna vegna komu fellibylsins Sandy. Nú er reiknað með að Sandy nái landi í New Jersey síðdegis í dag. 29.10.2012 06:21
Velferðarráðherra vill nýta fasteignasjóð fyrir geðsjúka Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir að til greina komi að nýta fjármagn úr Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs til að bæta úrræði fyrir geðfatlaða innan sveitarfélaganna. Ekkert hafi þó enn verið ákveðið varðandi ráðstöfun fjármagnsins og engar formlegar viðræður hafi farið fram. 29.10.2012 06:00
Norðmenn horfa til Íslendinga Ítarleg umfjöllun er um lýðræðið á Íslandi á vef norska blaðsins Aftenposten nú um helgina. Tilefnið er að Norðmenn eru farnir að undirbúa sig undir þingkosningar á næsta ári, líkt og við sjálf. Í greininni er vakin athygli á því að Íslendingar hafi kosið um tillögur að nýrri stjórnarskrá í síðustu viku. Það eitt og sér sé ekki merkilegt, heldur hvernig leið var farin að því að móta þessar tillögur. 28.10.2012 23:17
Offitusjúklingur reyndist vera með risaæxli Magaæxli, sem var 28 kíló að þyngd, var tekið úr sextugri konu í Þýskalandi á dögunum. Læknar segja að æxlið sé það stórt að það fylli upp í meðalstórar hjólbörur. 28.10.2012 22:47
Hrikalega stór lömb í Djúpinu Tveir lambhrútar, sem ær frá Skjaldfönn átti, reyndust hvor um sig vera 72 kíló að þyngd þegar þeir fóru í sláturhús í haust. Um 40% af heildarþyngd skepnunnar flokkast jafnan sem kjöt. "Þetta hangir í að vera nærri 60 kíló af kjöti eftir tvílembu, sem mun vera að ég held örugglega Íslandsmet. Svona afurðir eftir tvílembu munu óþekktar," segir Indriði Aðalsteinsson bóndi, en um þetta var fjallað í þættinum Um land allt. Skjaldfönn í Ísafjarðardjúpi hefur undanfarin 30 ár verið eitt eitt afurðamesta bú landsins, það er kjöt eftir hverja kind, ef ekki í efsta sæti á þá með fimm efstu á hverju ári. 28.10.2012 22:30
Flugi til New York aflýst vegna fellibyls Icelandair hefur ákveðið að fella niður flug milli Keflavíkur og New York á morgun vegna fellibylsins Sandy. Fram kemur í tilkynningu frá flugfélaginu að fjórar flugferðir eru felldar niður. Ekki er gert ráð fyrir að þessi breyting valdi röskun á öðru flugi Icelandair. 28.10.2012 21:41
"Við verðum að vera viðbúin því versta“ Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á austurströnd Bandaríkjanna vegna fellibylsins Sandy. 28.10.2012 21:08
Lögreglumenn áhyggjufullir Lögreglumenn á Vestfjörðum hafa þungar áhyggjur af fjárheimildum til lögreglunnar á svæðinu. Niðurskurður síðustu ára, auk þeirrar staðreyndar að lögreglan hafi ekki fengið að fullu bættar verðlagshækkanir og tilfærslur á kostnaði, sem færður hefur verið bótalaust yfir á rekstur lögreglunnar, hefur orðið til þess að rekstur lögreglunnar er kominn undir það sem hægt væri að kalla þolmörk. 28.10.2012 20:56
Vinstri grænir að gera þjóðina fráhverfa umhverfismálum Einn af stofnendum Vinstri grænna, Indriði Aðalsteinsson, bóndi á Skjaldfönn, segist vera búinn að fá nóg af ríkisstjórninni og ekki geta stutt flokkinn vegna svika í Evrópusambandsmálum. Þá hafi Vinstri grænir haldið þannig á umhverfisráðuneytinu að stór hluti þjóðarinnar sé að verða fráhverfur umhverfismálum. Þetta kom fram í þættinum Um land allt, sem er á dagskrá Stöðvar 2 að loknum fréttum á sunnudagskvöldum. 28.10.2012 19:30
„Ef ég sæi lausn í málinu værum við sestir að borðinu“ Það kemur ekki til greina að breyta hlutaskiptakerfi útvegsmanna og sjómanna að svo stöddu, segir formaður sjómannasambandsins. Hann segir ágætis afkomu vera hjá útgerðunum til að standa straum af auknum kostnaði vegna veiðileyfagjaldsins. 28.10.2012 19:01
Di Matteo: Dómarinn var skelfilegur og kostaði okkur þennan leik Roberto di Matteo, knattspyrnustjóri Chelsea, var virkilega harðorður í garð dómara leiksins, Mark Clattenburg, eftir að lið hans hafði tapað fyrir Manchester United 3-2. 28.10.2012 19:00
Eins og að leggja veg í gegnum Dimmuborgir Jarð- og náttúrufræðingur líkir lagningu Álftanesvegar í gegnum Garðahraun við það að Mývetningar legðu veg í gegnum Dimmuborgir. Svæðið sé það síðasta sinnar tegundar við höfuborgarsvæðið. Hæstaréttarlögmaður segir lagarök bæjarstjórnarinnar í Garðbæ brjóstumkennanleg. 28.10.2012 18:37
New York nánast lokuð Í kvöld verður svo öllum almenningssamgöngum lokað, þar á meðal neðanjarðarlestakerfi borgarinnar og strætisvagnar. Á morgun verður svo öllum skólum í borginni lokað. 28.10.2012 17:52
Vildi 50 prósent hlut í Facebook - sagðist hafa fundið á upp á síðunni með Zuckerberg Paul Ceglia, kaupsýslumaður og frumkvöðull frá New York, hefur verið ákærður fyrir að reyna svíkja fé út úr Facebook en maðurinn fullyrti að hann ætti 50 prósent hlut í samskiptamiðlinum. 28.10.2012 15:54
26 börn fengu styrk úr Vildarbörnum Icelandair Tuttugu og sex börnum og fjölskyldum þeirra, samtals rúmlega 150 manns, var afhentur ferðastyrkur úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair í gær, fyrsta vetrardag. 28.10.2012 15:07
Bítlarnir hættu ekki vegna Yoko Ono Bítlarnir hættu ekki vegna Yoko Ono, líkt og lengi hefur verið haldið fram. Þetta segir Bítillinn Sir Paul McCartney í viðtali við sjónvarpsmanninn David Frost, sem sýnt verður á Al Jazeera-sjónvarpsstöðinni í næsta mánuði. 28.10.2012 15:01
Ásta Ragnheiður býður sig ekki fram Spurð hvort að með þessari ákvörðun sé hún að hætta í stjórnmálum segir hún: „Ég hef ákveðið þetta núna og svo sjáum við bara til hvað setur," segir hún. 28.10.2012 14:27
Flóðbylgjuviðvaranir dregnar til baka Áttatíu þúsund manns þurftu að rýma heimili sín á Hawai í nótt af ótta við fljóðbylgju eftir að mjög öflugur skjálfti varð við vesturströnd Kanada. Fljóðbylgjurnur reyndust þó minni en svartsýnustu spár gerðu ráð fyrir og hafa fljóðbylgjuviðvaranir verið dregnar tilbaka 28.10.2012 13:16
Haltu áfram að borga af láninu þínu Lántakendur eiga í mörgum tilvikum kröfu á fjármögnunarfyrirtæki eins og Lýsingu vegna ofgreiðslna af gengistryggðum lánum segir hæstaréttarlögmaður. Fólk eigi samt sem áður að halda áfram að greiða af lánunum þar sem vanskil setji skuldara í verri stöðu. 28.10.2012 12:42
Misskilningur að höfuðborgarbúar greiði fyrir landsbyggðina Allt að 278% munur var á hæsta og lægsta kostnaði við að hita upp meðalstórt íbúðarhúsnæði á ári á landinu í fyrra. 28.10.2012 12:31
Sandy hefur áhrif á kosningabaráttuna Fellibylurinn Sandy hefur sett kosningabaráttu forstaframbjóðendanna í Bandaríkjunum úr skorðum. Talið er að fellibylurinn komi að landi á morgun og geti haft víðtæk áhrif um alla austurströnd Bandaríkjanna en íbúum er sagt að búa sig undir jafnvel margra daga rafmagnsleysi. 28.10.2012 12:26
Fóru í sund í Árbæjarlaug - foreldrarnir sóttu þá á lögreglustöðina Um klukkan hálf sex í morgun var tilkynnt um pilta sem höfðu laumast í sund í Árbæjarlaug. Þeir voru handsamaðir frekar klæðalitlir og vegna aldurs var haft samband við foreldra þeirra. Auk þess verður barnaverndarnefnd gert viðvart um hegðan piltanna. Að sögn lögreglu voru piltarnir sóttir af foreldrum sínum. 28.10.2012 11:04