Innlent

Stór skjálfti norðaustur af Siglufirði

Jarðskjálfti upp á 3,4 varð norðaustur af Siglufirði á áttunda tímanum í morgun en þá höfðu engir skjálftar mælst yfir þremur stigum út af Norðurlandi síðan að þrír skjálftar urðu þar upp á um og yfir þrjú stig í fyrrakvöld.

Þeir urðu norður af Siglufirði og út af Gjögurtá. Þó nokkrir vægari skjálftar hafa orðið á báðum svæðunum, en allir mun vægari þar til í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×