Fleiri fréttir

Meðlimir skipulagðra glæpasamtaka ekki í almenn fangelsi

Fangelsismálayfirvöld ætla að taka hart á föngum sem tilheyra skipulögðum glæpasamtökum. Verið er að taka í gagnið nýjar verklagsreglur sem fela meðal annars í sér að fangar sem tilheyra slíkum samtökum fá ekki að afplána í opnum fangelsum og stífari skilyrði eru fyrir reynslulausn.

Þrír sautján ára með kannabis

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði um helgina þrjá unga menn í umferðinni sem reyndust vera í bíltúr undir áhrifum kannabisefna. Í bílnum voru bæði kannabisefni og áhöld til neyslu þeirra. Piltarnir voru handteknir og færðir á lögreglustöð. Við yfirheyrslu kom fram að þeir höfðu skotið saman til að kaupa fíkniefnin og reykt hluta þeirra í sameiningu. Þar sem þeir voru ekki nema sautján ára var barnaverndarnefnd gert viðvart um atvikið.

Ógildir samruna í heilbrigðisgeiranum

Samkeppniseftirlitið ógilti í dag kaup Veritas Capital hf. á Fastusi ehf. Þar með er komið í veg fyrir samruna fyrirtækja sem starfa á sviði heilbrigðisþjónustu.

Mikil ánægja með sumargöturnar

Bæði verslunareigendur og almennir vegfarendur eru upp til hópa ánægðir með hinar svonefndu sumargötur samkvæmt viðhorfskönnun sem Reykjavíkurborg segir frá á vefsvæði sínu. Eftir lokunina í sumar mældust 94% almennra vegfarenda ánægðir með fyrirkomulagið en 75,6% verslunareigenda voru jákvæðir.

Svarbréf Sveins kynnt forsætisnefnd Alþingis

Sveinn Arason ríkisendurskoðandi hefur svarað bréfi Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur sem hún sendi honum á dögunum. Svarbréfið var kynnt á fundi forsætisnefndar Alþingis í morgun. Efni þess hefur ekki verið birt opinberlega.

Fimmtán ára í skilríkjasvindli

Lögreglunni á Suðurnesjum var tilkynnt um að ungur piltur væri að reyna að komast inn á skemmtistað í umdæminu á ökuskírteini annars manns. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu þá er pilturinn, sem um ræðir, fimmtán ára gamall. Hann kvaðst hafa fengið ökuskírteinið lánað hjá manni sem hann þekkti.

Ætlar að passa barnabarnið og sjá Djúpið

"Ég er að fara að passa barnabarnið mitt á morgun,“ svarar Sigrún Stefánsdóttir, sem sagði upp störfum sem dagskrástjóri hjá RÚV í dag og hætti samstundis, þegar hún er spurð hvað taki nú við. Hún bætir við að hún ætli sér að fara í bíó. "Ég er að fara á Djúpið, en ég hef ekki haft tíma til þess að sjá hana,“ bætir hún við.

Tæplega 50 ökumenn óku of hratt nálægt leikskóla

Brot 49 ökumanna voru mynduð á Nauthólsvegi í Reykjavík á föstudaginn. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nauthólsveg í norðurátt, við leikskólann Öskju. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 296 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í fimmtungur ökumanna, eða 17 prósent, of hratt eða yfir afskiptahraða.

Sigrún Stefánsdóttir hætt á RÚV

Sigrún Stefánsdóttir hefur sagt upp starfi sínu sem dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins frá og með deginum í dag. Páll Magnússon útvarpsstjóri segir að mikill missir sé af Sigrúnu enda hafi hún staðið sig vel í starfi sínu síðustu tvö ár. Staðan verður auglýst síðar í vikunni.

Tókst ekki að brjóta öryggisgler

Brotist var inn í fyrirtæki í Keflavík um helgina og þaðan stolið tölvu. Þjófarnir komust inn um glugga með því að rífa upp stormjárn.

Óviðræðuhæfur eftir sveppaát

Karlmaður á þrítugsaldri reyndist vera algjörlega út úr heiminum af völdum sveppaáts þegar lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af honum í gær.

Ekki kjósa! - bandaríska útgáfan

Það er óhætt að segja að auglýsing sem Stjórnarskrárfélagið hefur gefið út, hafi vakið athygli á netinu. Í myndskeiðinu er minnt á mikilvægi þess að menn taki afstöðu þann 20. október næstkomandi þegar atkvæði verða greidd um tillögur Stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá.

Eldgos í Indónesíu

Kvika og aska fellur nú til jarðar í nágranni við eldfjallið Mount Lokon í norðaustur-hluta Indónesíu sem byrjaði að gjósa í nótt. Yfirvöld hafa varað íbúa, sem búa í grennd við fjallið, við að fara út úr húsum sínum enda er mikið mistur á svæðinu. Samkvæmt fréttum ríkissjónvarpsins í landinu heyrast miklar drunur í um sex kílómetra radíus við fjallið. Eldfjallið er mjög virkt og hefur mikil virkni verið í því síðustu ár.

Fyrsta mark Grétars Rafns tryggði Kayserispor þrjú stig

Grétar Rafn Steinsson opnaði markareikning sinn hjá tyrkneska félaginu Kayserispor í gær þegar hann skoraði sigurmark liðsins á móti Mersin. Kayserispor vann leikinn 2-1 en hann var spilaður á heimavelli Kayserispor.

Forsprakki Outlaws ennþá laus en þrír sæta gæsluvarðhaldi

Víðir Þorgeirsson, forsprakki Outlaws-samtakanna, mun ekki sæta gæsluvarðhaldi, en Hæstiréttur Íslands staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þess efnis. Aðrir þrír félaga í Outlaws sem Héraðsdómur Reykjaness hafði úrskurðað í gæsluvarðhald til 11. október munu hins vegar sæta gæsluvarðhaldi.

Þreytulegur og með grátstafinn í kverkunum

Breti á fimmtugsaldri, sem grunaður er um morðið á hinni fimm ára gömlu April Jones, var leiddur fyrir dómara í morgun. Leitin að stúlkunni hefur enn ekki borið árangur.

Yfir 20 milljónir söfnuðust í Göngum til góðs

Rauði krossinn áætlar að um 20 til 25 milljónir hafi safnast í átakinu Göngum til góðs, sem fór fram um helgina. Rúmlega tvö þúsund og fjögur hundruð sjálfboðaliðar tóku þátt í söfnuninni.

Ekki kjósa!

Stjórnarskrárfélagið hefur gefið út nýtt myndskeið þar sem minnt er á mikilvægi þess að menn taki afstöðu þann 20. október næstkomandi þegar atkvæði verða greidd um tillögur Stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Í myndskeiðinu koma fram allir helstu listamenn sem vakð hafa athygli að undanförnu, svo sem Páll Óskar Hjálmtýsson, Benedikt Erlingsson og fleiri.

Með skotfæri í farangrinum

Öryggisgæslan í Flugstöð Leifs Eiríkssonar óskaði í gær eftir aðstoð lögreglunnar á Suðurnesjum vegna skotfæra sem fram höfðu komið við skimun á farangri.

Með 29 ketti, tvo hunda og þrjá páfagauka á heimilinu

Lögreglan á Suðurnesjum heimsótti nýverið heimili í umdæminu í kjölfar þess að kvartanir höfðu borist vegna hunda- og kattahalds þar og óþrifnaðar sem af dýrahaldinu hlytist. Í tilkynningu frá lögreglu segir að þegar inn var komið reyndist þar fyrir fjöldi katta, tveir hundar og þrír páfagaukar í búri.

Sérsveitin aðstoðaði við húsleit

Húsleit var framkvæmd í íbúðarhúsi á Selfossi síðastliðinn föstudag hjá einstaklingum sem grunaðir voru um að hafa í fórum sínum fíkniefni.

Bæjarstjórnin kannar hvort viðskipti við bankann verði færð

Bæjarstjórnin í Garði á Reykjanesi hefur falið bæjarstjóra að kanna nú þegar hvaða möguleikar eru í boði varðandi bankaviðskipti bæjarfélagsins til framtíðar, en bærinn hefur verið í viðskiptum við Landsbankann um árabil. Ástæðan er sú að bankinn dró verulega úr þjónustu við íbúa bæjarins nýverið með því að fækka afgreiðsludögum í útibúinu þar niður í tvo daga í viku og tvær klukkustundir hvorn dag. Bæjarstjóra var líka falið að kanna nýjar leiðir til að hámarka ávöxtun Framtíðarsjóðs bæjarins, sem Landsbankinn hefur annast til þessa. Báðar tillögurnar voru samþykktar samhljóða.-

Milljarðahagnaður bankanna á verðbólgunni

Íslensku bankarnir hafa síðustu tólf mánuði hagnast um 8,9 milljarða af verðtryggingunni, án þess að gera neitt. Ólafur Margeirsson, doktorsnemi í hagfræði við háskólann í Exeter í Bretlandi, bendir á þetta á facebooksíðu sinni. Hann vísar í nýja skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika þar sem fram kemur að verðtryggingarmisvægi viðskiptabankanna er jákvætt um 208 milljarða króna.

Fleiri konur kusu í síðustu forsetakosningum

Töluvert fleiri konur greiddu atkvæði í síðustu forsetakosningum en karlar. Þetta kemur fram í tölum sem birtust á Hagstofunni í morgun. Kosningaþátttaka karla var 65,8% en kosningaþátttaka kvenna var 72,7%. Alls greiddu 69,3% landsmanna atkvæði. Eins og fram hefur komið í sumar var hlutfall utankjörfundaratkvæða af greiddum atkvæðum var óvenjuhátt eða 23,4%, en það skýrist meðal annars af því að kosningarnar fóru fram fyrstu helgina í júlí. Það er ein mesta ferðahelgi ársins.

Nóbelsvikan hefst í dag

Nóbelsvikan hefst í Stokkhólmi í dag með því að veitt verða Nóbelsverðlaunin í læknisfræði.

Ungir Vinstri grænir vilja píkusafn

Landsfundur Ungra vinstri grænna, sem haldinn var um helgina, tekur undir hugmyndir íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ um að opna píkusafn í sveitarfélaginu, í stað villidýrasafns.

Tvær bílveltur í Vatnsskarði

Engin slasaðist alvarlega í tveimur bílveltum á Vatnsskarði á Norðurlandsvegi í gærkvöldi, í mikilli ísingu, sem myndaðist í slydduéljum þar á veginum.

Forsætisráðherra Líbýu vikið úr starfi

Mustafa Abu Shagur forsætisráðherra Líbýu hefur verið vikið úr starfi. Þetta gerðist í framhaldi af því að Shagur mistókst í annað sinn að fá meirihlutastuðing á þingi landsins fyrir ríkisstjórn sína.

Hafrannsóknarskip landaði ónýtum afla

Henda varð megninu af afla Hafrannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar, sem hann landaði á Austfjörðum í síðustu viku, þar sem fiskurinn var stór skemmdur vegna slæmrar meðferðar um borð.

Færð á heiðum spilltist í gær

Krapasnjór var á Holtavörðuheiði í gær og hálkublettir og éljagangur á Öxnadalsheiði. Hálkublettir voru á Bröttubrekku, Fróðárheiði, Vatnsskarði og Þverárfalli. Snjóþekja var einnig á flestum fjallvegum á Vestfjörðum.

Samherji og FISK Seafood eiga 75 prósenta hlut í Olís

Viðskipti Samherji og FISK Seafood, dótturfélag Kaupfélags Skagfirðinga (KS), eiga 37,5 prósenta hlut hvor í Olís. Kaupum félaganna á hlutnum eru sett ýmis skilyrði, meðal annars að stjórnarmenn, starfsmenn og eigendur að meira en eins prósents hlut í þeim mega ekki sitja samtímis í stjórn Olís svo að ekki verði til vettvangur fyrir samskipti keppinauta. Þetta kemur fram í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um málið sem birt var á fimmtudag. Fyrrum aðaleigendur Olís, þeir Einar Benediktsson forstjóri þess og Gísli Baldur Garðarsson, eiga nú 25 prósenta hlut

Lætur sig falla úr 36 kílómetra hæð

Fallhlífarstökkvarinn Felix Baumgartner hefur árum saman unnið að undirbúningi þess að slá öll met í þeirri grein. Á morgun verður svo komið að stóra stökkinu. Hann ætlar að fara með loftbelg upp í að minnsta kosti 36 kílómetra hæð og láta sig falla niður til jarðar. Hann reiknar með að fallið taki rúmlega fimm og hálfa mínútu áður en fallhlíf opnast þegar hann verður kominn niður í eins og hálfs kílómetra hæð.

Vilja ekki sitja saklaus uppi með málskostnað

Tveir starfsmenn Kópavogsbæjar sem sátu í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs í hruninu og sýknaðir voru af ákæru um ólöglega lánveitingu úr sjóðnum til bæjarins sitja uppi með hundruð þúsunda króna málskostnað umfram dæmdar málsvarnarbætur. Þeir vilja að lífeyrissjóðurinn greiði mismuninn.

Bólusetning kom í veg fyrir 20.000 svínaflensusýkingar

Sóttvarnalæknir áætlar að á Íslandi hafi bólusetning gegn svínainflúensu veturinn 2009/2010 komið í veg fyrir 20 þúsund sýkingar hið minnsta, 70 sjúkrahúsinnlagnir, sjö innlagnir á gjörgæsludeild og eitt dauðsfall.

Nýtt hervæðingarkapphlaup

Yfir sjötíu þjóðir hafa nú komið sér upp mannlausum herflugvélum. Enn er þó aðeins lítill hluti þeirra búinn vopnum. Þessi þróun mun án efa breyta stríðsrekstri til muna og hætta er á að með henni hefjist nýtt hervæðingarkapphlaup.

Sjúklingar deyja úr hungri og þorsta á breskum sjúkrahúsum

Fjörutíu og þrír sjúklingar á breskum sjúkrahúsum dóu úr hungri í fyrra og hundrað og ellefu dóu úr þorsta. Að auki kemur fram í læknaskýrslum að 588 sjúklingar hafi þjáðst af alvarlegum vökvaskorti og 287 hafi verið alvarlega vannærðir þegar þeir dóu. Breska blaðið The Telegraph greindi frá þessu á laugardag og hefur eftir Katherine Murphy, framkvæmdastjóra samtaka sjúklinga í Bretlandi, að þessar tölur séu nöturlegur og skammarlegur vitnisburður um ástandið í Bretlandi á 21. öldinni.

Flúði til skrifta undan málþófi

Undanfarið ár hef ég nýtt lausan tíma, samhliða öðrum störfum, til að skrifa – til dæmis undir málþófi,? segir Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, sem í dag gefur út bókina Við stöndum á tímamótum. ?Maður má reyndar ekki vera með tölvu inni í þingsal en það var ágætt að fara stundum inn í hliðarherbergin og skrifa.?

Frásögnum um ofbeldi verður fylgt eftir

Könnun sem gerð var um afdrif, velferð og líðan barna sem dvöldu á níu meðferðarheimilum Barnaverndarstofu og Stuðlum á árunum 2000 – 2007 sýnir að hátt hlutfall barnanna segist hafa orðið fyrir ofbeldi á meðal dvöl þeirra stóð. Barnaverndarstofa tekur niðurstöðurnar alvarlega og hyggst fylgja þeim eftir með framhaldsrannsókn. Alls sögðust 14% barnanna hafa orðið fyrir ofbeldi af hendi starfsmanns og um 20% af hendi annarra barna í meðferðinni.

Landvernd vill stöðva framkvæmdir

Stjórn Landverndar fer fram á að Landsvirkjun stöðvi strax framkvæmdir fyrirtækisins við Bjarnarflag þar sem fyrirhugað er að reisa 45 megavatta jarðvarmavirkjun. Nauðsynlegt sé að bíða þess að Rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða hafi verið samþykkt á Alþingi. Einnig fer Landvernd fram á að nýtt umhverfismat vegna virkjunarinnar verði unnið enda sé það sem liggur fyrir að verða tíu ára gamalt.

Árekstrarhætta úti í geimnum

Alþjóðlega geimstöðin var í gær flutt yfir á aðra braut umhverfis jörðu vegna hættu á árekstri við geimrusl. Sex geimfarar eru nú um borð í geimstöðinni. Talið er að meira en 21 þúsund brot úr ýmiss konar geimrusli, hvert þeirra stærra en 10 sentímetrar í þvermál, séu á braut umhverfis jörðu úti í geimnum. Öryggisreglur geimstöðvarinnar segja til um að þegar hætta á árekstri verður meiri en einn á móti tíu þúsund þurfi að breyta um braut hennar. - gb

Freyja býður sig fram til þings

Freyja Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri NPA miðstöðvarinnar, hefur ákveðið að bjóða sig fram á lista Bjartrar framtíðar fyrir alþingiskosningarnar í vor. Freyja stefnir á að bjóða starfskrafta sína í Kraganum, eða SV-kjördæmi, en ákvörðun um skipun á lista liggur ekki fyrir frá hendi stjórnar flokksins.

Lognið á eftir storminum

Hrunið hleypti öllu upp í íslenskri pólitík. Fólk þurfti að tapa peningum til að það léti í sér heyra, en þá gerði það líka svo um munaði. Það flykktist út á götur og mótmælti og lögreglan beitti táragasi til að dreifa mannfjölda í fyrsta skipti síðan við inngöngu Íslands í NATO árið 1949.

Sjá næstu 50 fréttir