Vilja ekki sitja saklaus uppi með málskostnað 8. október 2012 00:00 Tveir bæjarstarfsmenn sem sátu í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs sitja uppi með lögfræðikostnað þrátt fyrir sýknu í dómsmáli gegn þeim. Fréttablaðið/Gva
Tveir starfsmenn Kópavogsbæjar sem sátu í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs í hruninu og sýknaðir voru af ákæru um ólöglega lánveitingu úr sjóðnum til bæjarins sitja uppi með hundruð þúsunda króna málskostnað umfram dæmdar málsvarnarbætur. Þeir vilja að lífeyrissjóðurinn greiði mismuninn. Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga hefur yfirtekið Lífeyrissjóð starfsmanna Kópavogs og fékk mál starfsmannanna tveggja inn á borð til sín. Sjóðurinn óskar nú umsagnar frá bæjaryfirvöldum í Kópavogi. Bæjarráð fjallaði um málið á fimmtudag en frestaði afgreiðslu þess. Starfsmennirnir tveir höfðu sameiginlegan lögmann. Honum voru dæmdar 1.732 þúsund krónur úr ríkissjóði í málsvarnarlaun en sú upphæð dugar ekki til. Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, var einn sex einstaklinga sem ákærðir voru í málinu. Ómar var stjórnarmaður í Lífeyrissjóði starfsmanna Kópavogs á þeim tíma sem málið rekur upphaf sitt til. Hann var sýknaður og það sama gildir um Flosa Eiríksson, þáverandi bæjarfulltrúa Samfylkingar og stjórnarmann í sjóðnum. Hvorugur þeirra Ómars og Flosa hefur óskað eftir sambærilegri fyrirgreiðslu og starfsmennirnir tveir. Ómar segir málinu hins vegar fjarri því lokið af sinni hálfu. "Fjármálaeftirlitið og fjármálaráðherrann þáverandi sviptu mig ærunni með því að kæra mig og dæma mig fyrir fram með því að taka mig úr stjórn sjóðsins. Síðan kom í ljós að ég var saklaus – eins og var vitað frá fyrstu mínútu," segir Ómar sem kveðst vera að athuga sína réttarstöðu, meðal annars með tilliti til skaðabóta. "Það er algjörlega óásættanlegt að vera sviptur ærunni skömmu fyrir prófkjör. Það var hamrað á málinu bæði þar og í kosningunum. Þessir aðilar eiga hreinlega að skammast sín að hafa kært enda var þetta fólk niðurlægt í réttarsalnum," segir Ómar. Í málinu var Gunnar I. Birgisson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og þáverandi bæjarstjóri, sakfelldur í maí síðastliðnum ásamt þáverandi framkvæmdastjóra lífeyrissjóðsins fyrir 330 milljóna króna lánveitingu úr sjóðnum til Kópavogsbæjar án lagaheimildar í janúar 2009. Þeir voru hvor fyrir sig dæmdir til að greiða 150 þúsund króna sekt. "Við ákvörðun refsingar verður að líta til þess að ekkert tjón hlaust af broti ákærðu og allar lánveitingar voru greiddar til baka, með góðri ávöxtun," tók dómurinn fram. gar@frettabladid.is
Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Sjá meira