Fleiri fréttir

Lundapysja í eldi í Vestmannaeyjum

Lundapysja, eða ungi, er nú í eldi í Náttúrugripasafni Vestmannaeyja og verður sleppt eftir að hún hefur þyngst aðeins.

Thorning-Schmidt komin til landsins

Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, lenti á Reykjavíkurflugvelli um klukkan tólf á hádegi í dag. Hún kom í einkaþotu danska hersins.

Assange óhultur enn um sinn

Rafael Correa, forseti Ekvadors, segir bresk stjórnvöld hafa dregið til baka hótun sína um að ráðast inn ekvadorska sendiráðið til þess að handtaka Julian Assange.

Flugfélög koma sér undan skattgreiðslum

Erlend flugfélög vilja ekki greiða skatta og gjöld fyrir starfsmenn sína í Svíþjóð. Á fréttavef Dagens Nyheter er greint frá því að bæði Ryanair og Norwegian fari í kringum reglurnar með því að ráða fólk í gegnum erlendar starfsmannaleigur á láglaunasvæðum.

Vilja hækka þak Moggahallar

Þak Morgunblaðshússins við Aðalstræti 6 verður hækkað um einn til tvo metra ef vilji eigenda þess verður að veruleika. Fasteignafélagið Reitir, sem á húsið, hefur sent skipulagsstjóra Reykjavíkurborgar fyrirspurn vegna málsins.

Sushi-æðið hækkar verð á laxi

Framleiðsla eldislax í Noregi er að nálgast leyfilegt hámark og má búast við verðhækkun, að því er framkvæmdastjóri Grieg Seafood, Morten Vike, segir í viðtali á fréttavef Bergens Tidende.

Hærri fasteignagjöld af Hörpu en 12 öðrum húsum

Fasteignagjöld af Hörpu eru hærri en af tíu öðrum menningarhúsum og tveimur íþróttahöllum samanlagt. Fulltrúar borgar og Portusar ósammála um hvort borgin hafi gert athugasemdir við upphæð gjaldanna.

Gumað af góðum árangri flokkanna

Fundir stjórnarflokkanna um helgina einkenndust af því að kosningar eru í nánd. Áhersla var lögð á góðan árangur í efnahagsmálum og línurnar lagðar fyrir kosningarnar. Oddný G. Harðardóttir yfirgefur ríkisstjórnina 1. október.

Grænlendingar halda til síldveiða

„Þegar makrílveiðum er lokið munum við halda til síldveiða af fullum krafti,“ segir Jens Bisgaard, útgerðarstjóri Royal Greenland. Hann er vongóður um góðan afla. „Fyrir tveimur árum ákváðum við að reyna þetta og þá veiddum við 1.200 tonn á sex dögum svo ef þetta verður eitthvað í líkingu við það ættum við að bera nóg úr býtum.“

Búrhvalshræ í Bakkafjöru

Um 15 metra langt búrhvalshræ fannst í Bakkafjöru, skammt vestan við Landeyjahöfn, síðasta miðvikudag. Mikinn óþef leggur frá hræinu sem hefur líklega velkst lengi í sjónum áður en það rak á land.

Auknar kvaðir á smálánafyrirtækin í nýju frumvarpi

Efnahags- og viðskiptaráðherra hyggst leggja frumvarp til laga um ný neytendalán fyrir Alþingi nú í haust. Frumvarpið mun lítt breytt frá frumvarpi sem lagt var fyrir síðasta þing en ekki náðist að afgreiða vegna tímaskorts.

Mál Svedda eru enn í rannsókn

Mál Sverris Þórs Gunnarssonar, Svedda tannar, er enn til rannsóknar hjá lögreglunni í Rio de Janeiro í Brasilíu. Hann situr enn í varðhaldi vegna málsins og óvíst er hvort og þá hvenær hann verður framseldur til Spánar vegna eldri dóms, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins.

Lestur sem hentar öllum nemendum

Ný aðferð í lestrarþjálfun er að ryðja sér til rúms í nítján skólum hér á landi. Hún byggist á því að nemendur lesi saman í pörum og hjálpist að. Kennari segir aðferðina henta jafnt sterkum nemendum sem þeim sem eiga í erfiðleikum.

Ungur hælisleitandi vill ekki yfirgefa Ísland

Fimmtán ára hælisleitandi, sem í vor var dæmdur í fangelsi fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum, segist aldrei vilja yfirgefa Ísland aftur. Hann stefnir á nám og langar að keppa í fótbolta með ÍR.

Fleiri raftæki í Sorpu

Um þriðjungi fleiri raftæki hafa komið á endurvinnslustöðvar Sorpu á þessu ári miðað við það síðasta. Framkvæmdastjóri Sorpu segir þetta merki um að einkaneysla sé að aukast. Þá virðast fleiri standa í framkvæmdum en áður ef marka má það magn timburs sem komið er með á Sorpu.

Pétur Blöndal uppgötvar afl Youtube

Pétur Blöndal þingmaður vinnur nú að því að koma tillögum sínum sem eiga að koma í veg fyrir peningahringekjur á myndabandasíðuna Youtube. Myndböndin verða á þremur tungumálum og eru Bandaríkjamenn þegar byrjaðir að vinna að þeim.

Þrír arftakar helst nefndir

Jóhanna Sigurðardóttir segist enn ekki hafa gert það upp við sig hvort hún ætli að sækjast eftir endurkjöri sem formaður Samfylkingarinnar. Fari svo að hún hætti í pólitík eru þrír arftakar helst nefndir.

Tóm hús valda hættu

Hætta stafar af tómum húsum þar sem hústökufólk hefur hreiðrað um sig. Slökkviliðsstjóri segir að slíkum húsum gæti hafa fjölgað í úthverfunum höfuðborgarinnar og hvetur almenning til að vera vakandi fyrir hættu sem af þeim getur stafað.

Hin árlega busavígsla - til hvers?

Tæplega 4.300 nýnemar settust á skólabekk í framhaldsskólum landsins í vikunni. Busavígslur með mismunandi yfirbragði hafa verið órjúfanlegur hluti inngöngu nema í framhaldsskóla.

Eldsvoði í potti

Litlu munaði að illa færi þegar eldur kviknaði í potti sem stóð á eldavél á gistiheimili á Veghúsastíg í kvöld. Slökkviliðið var kallað til vegna reykjar. Einn dælubíll var sendur á staðinn og þegar þangað kom var mikill hiti og reykur í umræddu herbergi. Slökkviliðinu tókst að slökkva eldinn áður en hann barst úr pottinum.

Armstrong var foringinn í Öskju

Íslenskur fréttamaður, sem fyrir 45 árum fylgdist með Neil Armstrong æfa sig í Öskju fyrir tunglferðina, segir að þótt hann hafi verið hógvær og lítillátur hafi hann verið foringinn í hópnum. Bandarísku geimfararnir skelltu sér meðal annars á sveitaball í Mývatnssveit. Landslagið í Öskju þótti nægilega framandi og ógnvekjandi til að þjálfa geimfarana andlega undir tunglgöngu og kannski hjálpaði það Neil Armstrong að hafa setið á brún Vítis tveimur árum fyrr þegar honum tókst með snarræði á síðustu stundu að afstýra tunglferjunni frá því að lenda oní álíka gíg á tunglinu.

Pilturinn fundinn

15 ára piltur sem lögregla lýsti eftir fyrr í dag er kominn í leitirnar. Hann hafði ekki sést síðan 21. ágúst en fannst í dag eftir að lögregla lýsti eftir honum. Hann var að sögn heill á húfi.

Áfram mikil makrílgegnd við landið

Endanlegar niðurstöður úr rannsóknarleiðangri Íslands, Noregs og Færeyja staðfesta að makríll er áfram í miklu magni við strendur landsins. 29% af heildarmagni makríls í Norðaustur Atlantshafi fannst innan íslenskrar efnahagslögsögu.

Katrín réðist á þá sem vörðu grunnstefnuna

Jón Bjarnason fyrrverandi ráðherra Vinstri grænna sakar Katrínu Jakobsdóttur varaformann flokksins um að ráðast ómaklega að andstæðingum ESB aðildar. Hann segir forystuna ekki geta hælt sér af því að ganga gegn grunnstefnu flokksins.

Ísak veldur manntjóni

Ríkisstjórinn í Flórída hefur lýst yfir neyðarástandi vegna hitabeltisstormsins Ísaks sem stefnir nú á ríkið. Ísak virðist vera að breytast í fellibyl og gæti valdið miklu tjóni þegar hann nær Flórída.

Lesari sumarsins las yfir fimm þúsund síður

Lesari sumarsins var krýndur á Ísafirði en 42 börn tóku þátt í sumarlestri Bókasafnsins á Ísafirði þetta árið. Lesari ársins var Rán Kjartansdóttir sem las 5.314 blaðsíður í sumar. Krakkarnir lásu samtals 380 bækur.

Ef Alþingi ákveður annan kjördag verður að hlíta því

Innanríkisráðuneytið lítur svo á að þjóðaratkvæðagreiðslan sem auglýst var í vikunni um frumvarp stjórnlagaráðs til stjórnarskrár sé ekki ólögleg þó hún sé haldin 20. október. Ef hins vegar Alþingi ákveður annan kjördag þegar það kemur saman verður ráðuneytið að hlíta því.

Framkvæmdir við Stúdentakjallarann skotganga

Framkvæmdir við Stúdentakjallarann skotganga. Frá því í júní hafa verktakar unnið á svæðinu og nú á föstudaginn var staðan á framkvæmdunum svona. Stefnt er að því að Stúdentakjallarinn opni 1. desember með pompi og prakt. Sara Sigurðardóttir, formaður Stúdentaráðs HÍ, segir að þó það sé smá klikkun að opna bar fyrir háskólanemendur nokkrum dögum fyrir lokapróf verði staðurinn líklega kærkomið afdrep fyrir prófþreytta háskólanema.

Fimleikamenn þurfa meira pláss

Alls staðar vantar meira húsnæði til fimleika en sprening hefur verið meðal ungmenna á íþróttinni undanfarinn ár. Formaður Fimleikasambands Íslands segir sveitarfélögin ekki hafa brugðist við þessum vaxandi áhuga.

Synda boðsund yfir Faxaflóann

Fjórar sjósundskonur þreyta þessa stundina hið svokallaða Faxaflóasund, en það er vegalengdin milli Reykjavíkur og Akraness. Konurnar eru allar þaulvanar sjósundskonur og skiptast á að synda í eina klukkustund í senn. Á meðan bíða hinar í bát sem fylgir þeim á leiðinni.

Vilja efla tengsl Alaska og Íslands

Á Norðurslóðaþingi sem nú er haldið í Alaska kom fram mikill áhugi á að efla samvinnu Alaska og Íslands. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, átti fundi með ráðamönnum á þinginu.

Engin sundlaug í Fossvoginn í bili

Ólíklegt má telja að sundlaug í Fossvoginum verði að veruleika á allra næstu árum en borgarstjóri og bæjarstjórinn í Kópavogi ræddu málið á fundi fyrir helgina.

Tvær stúlkur úr Pussy Riot flýja Rússland

Tveir stúlkur úr pönksveitinni Pussy Riot hafa flúið Rússland til að sleppa undan saksókn. Stúlkurnar tvær tóku þátt í pönk-bæna gjörningnum í dómkirkju í febrúar.

Ólýsanlega gott að geta hlaupið

Í dag leggur Helgi Sveinsson af stað til London, þar sem hann keppir í þremur greinum á Ólympíumóti fatlaðra og stefnir á gullið í tveimur þeirra. Helgi hefur náð undraverðum árangri á stuttum tíma, en hann byrjaði aftur að hlaupa fyrir einu og hálfu ári, eftir að hafa misst annan fótinn í kjölfar krabbameins þegar hann var 19 ára.

Lýst eftir Marínó

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Marínó Birni Kristinssyni 15 ára. Marínó, sem er grannvaxinn og 165 sm á hæð, er með blá augu og stutt, brúnt hár. Síðast er vitað um ferðir hans í Búðardal þann 21. ágúst. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Marínós eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.

Norðurljósin verða tíð í vetur

Norðurljósin eru nú þegar byrjuð að dansa á himninum yfir landinu á kvöldin þó enn sé sumar. Myndin hér til hliðar var tekin á föstudaginn síðasta af ljósmyndaranum Olgeiri Anderssyni. Að hans sögn verður sólvirknin í hámarki í vetur með tíðum sólgosum og sólstormum. Það mun skila sér í óvenjumiklum norðurljósum, „og fleiri ferðamönnum," segir Olgeir sposkur. Íslendingar mega því eiga von á að himinninn logi óvenju oft í vetur.

Nyrsta hlaup landsins

Fyrsta almenningshlaupið sem efnt hefur verið til í Grímsey verður 8. september næstkomandi. Það verður því nyrsta hlaup sem nokkurn tíma hefur verið hlaupið á Íslandi.

Skipulagðar aftökur í Sýrlandi

Uppreisnarmenn í Sýrlandi segja að hundruð líka hafi fundist í bæ í nágrenni höfuðborgarinnar Damaskus. Saka þeir stjórnarhermenn um fjöldamorð og segja greinilegt að margir hinna látnu hafi verið teknir af lífi með skipulögðum hætti.

Fimmtíu manns leituðu að konunni sem aldrei týndist

Mannleg mistök urðu til þess að umfangsmikil leit að erlendri konu stóð yfir í meira en hálfan sólarhring í gær. Leitinni var hætt þegar í ljós kom að konan var ekki týnd heldur hafði verið oftalið rútuna sem hún hafði ferðast með.

Ölvaður ökumaður í árekstri

Í gærkvöldi varð harður árekstur á milli tveggja fólksbifreiða á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar. Ekki urðu slys á fólki. Báðar bifreiðarnar eru mikið skemmdar og voru fluttar með dráttarbílum af vettvangi. Hreinsa þurfti olíu af gatnamótunum. Ökumaður annarar bifreiðarinnar, kona á fimmtugsaldri, var ölvuð og gistir fangageymslu. Hún verður yfirheyrð þegar hún verður í ástandi til þess.

Ótímabært að Jóhanna hætti sem formaður

Katrín Júlíusdóttir, samfylkingarkona og verðandi fjármálaráðherra, fann fyrir miklum stuðningi við Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar í gær. Henni finnst algerlega ótímabært að Jóhanna hætti sem formaður flokksins núna.

Miklar hræringar innan stjórnmálaflokka í vetur

Það verður mikil barátta innan stjórnarflokka næsta vetur þegar raðað verður á framboðslista. "Það verða miklar hræringar. Það er alveg ljóst," segir Guðmundur Hálfdanarson, sagnfræðingur, í viðtali í útvarpsþættinum Á Sprengisandi í dag.

Evrópumálin munu koma Samfylkingunni til góða

Umræðan á næstu mánuðum innan Samfylkingarinnar og Vinstri Grænna mun að mestu leyti snúast um að sýna fram á ágæti ríkisstjórnarsamstarfsins og hve mikill árangur hefur náðst. Þetta segir Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur, sem er gestur Sigurjóns M. Egilssonar í útvarpsþættinum Á Sprengisandi þennan morguninn.

Sjá næstu 50 fréttir