Innlent

Vilja hækka þak Moggahallar

Efsta hæð hússins hefur ekki fulla lofthæð og eigendur þess vilja fá leyfi til að hækka þakið af þessum sökum. fréttablaðið/valli
Efsta hæð hússins hefur ekki fulla lofthæð og eigendur þess vilja fá leyfi til að hækka þakið af þessum sökum. fréttablaðið/valli
Þak Morgunblaðshússins við Aðalstræti 6 verður hækkað um einn til tvo metra ef vilji eigenda þess verður að veruleika. Fasteignafélagið Reitir, sem á húsið, hefur sent skipulagsstjóra Reykjavíkurborgar fyrirspurn vegna málsins.

„Breytingin felur í sér að hækka þak þannig að það sélögleg lofthæð á efstu hæð,“ segir í gögnum sem Reitir hafa skilað inn til skipulagsstjóra. Þakið er einhalla og mismunur er í hækkunum. Til þess að ná markmiðum um löglega lofthæð þyrfti að hækka húsið um einn til tvo metra, að því er fram kemur í gögnum frá arkitektastofunni Arkís. Gluggar yrðu samkvæmt teikningum.

Á fundi skipulagsstjóra síðastliðinn föstudag var málið tekið fyrir og ákveðið að það skyldi kynnt formanni skipulagsráðs, Páli Hjalta Hjaltasyni.

Meðal þeirra sem hafa aðstöðu í húsinu eru sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi og Vinstrihreyfingin – grænt framboð. Þá eru þar skrifstofur fyrirtækja, verslun, lögmannsstofur og hótelrekstur. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×