Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Týnda konan leitaði að sjálfri sér Leit að erlendri konu sem hafði verið saknað síðan um hádegi í gær var hætt um klukkan þrjú í nótt þegar í ljós kom að hún var alls ekki týnd. Hún hafði þvert á móti hjálpað samviskusamlega til við að leita að sjálfri sér. 26.8.2012 10:07
Ekkert bólar á Skaftárhlaupinu Ekkert hefur gerst í nótt sem bendir til þess að Skaftárhlaup sé hafið eða að hefjast. Flugmaður tilkynnti um það í gær að íshellan yfir vestari katlinum hefði sigið, sem er merki um hlaup. Snorri Zophoníasarson hjá Veðurstofunni segir hinsvegar að enn bendi ekkert til þess að eitthvað sé að gerast en þó mælist ketilvatn í ánni. Hafi hlaupið úr katlinum í gær tekur það vatnið um tuttugu til tuttugu og fjóra tíma að renna út í Skaftá en sextíu kílómetra leið er úr katlinum og að ánni. Í gærmorgun varð vart við jarðhræringar á svæðinu en nóttin var hinsvegar róleg. 26.8.2012 09:58
Neil veiddi í Mývatnssveit og fór á sveitaball "Hann var frekar hlédrægur maður og lét lítið yfir sér, kurteis og elskulegur mjög," sagði Sverrir Pálsson, ljósmyndari á Akureyri, um Neil Armstrong, en Sverrir hitti geimfarann á Íslandi sumarið 1967. Sverrir tók þá fjölda ljósmynda sem nú eru orðnar ómetanlegar heimildir um æfingar geimfara NASA í Öskju og Dyngjufjöllum fyrir tunglferðirnar heimssögulegu. NASA stóð fyrir tveimur leiðöngrum til Íslands, sá fyrri var árið 1965 og sá seinni 1967. Armstrong var í síðari 26.8.2012 01:15
Íslensk vindmylla fyrir sumarbústaði Ungur uppfinningamaður hefur hannað vindmyllu sem hentar vel fyrir sumarbústaði. Myllan kemur á markað snemma á næsta ári. 25.8.2012 21:15
Magnað sjónarspil yfir Jökulsárlóni - bein útsending Í kvöld verður árviss flugeldasýning yfir Jökulsárlóni auk þess sem ísjakar verða lýstir upp með kertaljósi. Míla verður með beina útsendingu frá dýrðinni af vefmyndavél á þessari slóð. Því geta þeir sem ætla að hafa huggulegt kvöld heima við fylgst með sjónarspilinu úr sófanum. Sýningin hefst um ellefu og varir í um hálftíma. 25.8.2012 20:35
Tígur slapp úr búri og drap dýragarðsvörð Tígrísdýr réðist á dýragarðsvörð í borginni Köln í Þýskalandi og drap hann í dag. Vörðurinn var 43 ára kona. 25.8.2012 16:32
Allt appelsínugult í Nostalgíu fyrir konurnar Appelsínuguli dagurinn er í dag en hann er uppátæki samtakanna UN Women, hugsaður til að minna á réttindabaráttu kvenna. Í tilefni dagsins gera verslanir við Laugaveginn miðbæinn appelsínugulari en gengur og gerist. Verslunin Nostalgía er fremst meðal jafningja í átakinu. 25.8.2012 15:09
Færa op frárennslisins lengra frá ströndinni Í gærkvöldi var heljarinnar plastleiðsla sjósett í Vestmannaeyjahöfn. Ætlunin er að tengja leiðsluna á næstu dögum við frárennslisrör bæjarins. Við þá breytingu færist op frárennslisrörsins 250 út frá ströndinni. 25.8.2012 17:12
Ísak gengur yfir Haiti Hitabeltisstormurinn Ísak gengur nú yfir Haiti. Þar er búið að spá miklum aurskriðum og flóðum. Óttast er um fjölda fólks, sérstaklega þá 400 þúsund íbúa sem enn búa í brágðabirgðatjöldum eftir jarðskjálftann mikla árið 2010. 25.8.2012 17:08
Ræða Jóhönnu í heild sinni Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hélt ræðu á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar í morgun. Þar talaði hún um afstöðu flokksins til Evrópusambandsaðildar, góðan árangur í að verja velferðarkerfið og stóru málin í kosningabaráttu komandi vetrar svo fátt eitt sé nefnt. 25.8.2012 16:46
Íslandsmeistaramót í fjallahjólreiðum Íslandsmeistaramótið í fjallahjólreiðum fer fram við Hvaleyrarvatn á morgun. 30 hjólreiðagarpar eru skráðir til leiks. 25.8.2012 16:21
Ríkisstjórnarsamstarfið hefur skilað ótvíræðum árangri Flokksráðsfundi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs er lokið. Á fundinum voru samþykktar nokkrar ályktanir, meðal annars um að ríkisstjórnarsamstarf VG og Samfylkingarinnar hafi skilað miklum og ótvíræðum árangri, að brotið hafi verið á stúlkunum þremur í pönksveitinni Pussy Riot, að varasamt sé að leggja rafmagnsstreng milli Íslands og Skotlands, að rétt sé að auglýsa opinberar stöður og að minnka eigi takmörkun á tjáningafrelsi. 25.8.2012 16:14
Hundur í óskilum í Hafnarfirði Hundur fannst í Hafnarfirði í gær en eigandi hans hefur enn ekki fundist þrátt fyrir góða dreifingu á þessari mynd á fésbókinni og víðar. Ef einhver saknar hundsins má ná í manneskjuna sem fann hann í síma 8672253. 25.8.2012 15:53
Þynnkumáltíð fyrir meistara Þeir sem sváfu yfir sig í morgun hafa enn möguleika á að næla sér í þynnkumáltíð sem þeir munu aldrei gleyma því Beikonhátíðin á Skólavörðustígnum í dag stendur til fimm. 25.8.2012 15:16
Sameinumst um að sýna lit "Appelsínuguli liturinn er einkennislitur UN Women og á að minna okkur á réttindabaráttuna fyrir betra lífi kvenna," segir Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi. Samtökin halda appelsínugulan dag 25. hvers mánaðar í fimm mánuði sem á að vekja almenning til vitundar um ofbeldi gegn konum í heiminum og þörfina á að berjast gegn því. "Verslanir við Laugaveginn ætla að gera miðbæinn svolítið appelsínugulan í dag með því að vera með þann lit í gluggunum. Svo hvetjum við líka alla til að klæðast appelsínugulu og sýna þannig stuðning sinn í verki á táknrænan hátt," segir Inga Dóra og biður fólk að senda sér myndir. 25.8.2012 14:41
Hvetur strandveiðimenn til samstöðu Margir strandveiðimenn eru ósáttir við uppskiptingu strandveiðisvæða, en landinu er skipt í fjögur svæði og skiptingin hefur verið óbreytt síðan veiðarnar voru aftur leyfðar. Formaður smábátafélags á norðanverðum Vestfjörðum hvetur strandveiðimenn til að sýna samstöðu, fjölmenna á aðalfund Landsambands smábátaeigenda til að láta í sér heyra. 25.8.2012 14:05
Aldrei verið jafnfljótir að sjá hlaupið "Við höfum aldrei verið svona fljótir að sjá þetta," segir Snorri Zóphóníasson, jarðfræðingur hjá Veðurstofunni, um Skaftárhlaup sem hófst í nótt. Hlaupið er enn ekki komið undan jöklinum, er í um 20 km fjarlægð frá jökulsporðinum og mun ekki ná í Skaftá fyrr en seint í kvöld eða á morgun. 25.8.2012 13:20
Hlaup að hefjast í Skaftá Hlaup hófst í Skaftá í gærkveldi eða nótta. Þetta var staðfest fyrir hádegi í dag þegar flugmaður flaug yfir svæðið. Hlaupið kemur úr vestri katlinum og staðsetning ísskjálfta bendir til að hlaupvatnið sí nú í um 20 km fjarlægð frá jökulsporðinum. Því mun hlaupið ekki ná í Skaftá fyrr en seint í kvöld eða snemma á morgun. 25.8.2012 12:50
Oddný mun mæla fyrir fjárlagafrumvarpinu Katrín Júlíusdóttir tekur við embætti fjármála- og efnahagsráðherra 1. október næstkomandi af Oddnýju Harðardóttur. 25.8.2012 12:46
Katrín: Stærstu vonbrigðin eru átök innan flokksins Hópur innan vinstri grænna virðist vilja að flokkurinn gerist einsmálshreyfing sem byggi afstöðu sína til allra mála á andstöðu sinni við Evrópusambandið. Þetta kom meðal annars fram í opnunarræðu varaformanns á flokkráðfundi í gærkvöld. Segist hún ánægð með árangurinn í ríkisstjórn, stæstu vonbrigðin séu átök innan eigin flokks. 25.8.2012 12:34
Norðmenn ánægðir með dóminn yfir Breivik Norðmenn virðast almennt sáttir við dóminn yfir Anders Breivik sem í gær var dæmdur í tuttugu og eins árs fangelsi fyrir fjöldamorðin í Útey og sprengjuárásina í Osló í fyrra. 25.8.2012 12:28
Ölvaðir, réttindalausir og reiðir í umferðinni Nokkuð hefur verið um ölvaða ökumenn í umferðinni í morgun og hefur lögregla stöðvað fjóra ökumenn vegna ölvunar síðan klukkan 5 í nótt. 25.8.2012 12:24
Flugbjörgunarsveit sækir mótorhjólamann Flugbjörgunarsveitin Hellu var kölluð út nú á ellefta tímanum þegar tilkynning barst um slasaðan mótorhjólamann á veginum milli Landmannalauga og Eldgjár. Maðurinn, sem var á ferð með hópi hjólamanna, féll af hjóli sínu og er talið að hann sé bæði handleggs- og fótbrotinn. Sjúkrabíll frá Hvolsvelli var einnig sendur á staðinn og er talið að björgunarlið verði komið að hinum slasaða um klukkan 13:00 í dag. 25.8.2012 11:53
Öflugasta hraðskákmót ársins í Kringlu Skáksamband Íslands sendir tvö lið á Ólympíuskákmótið sem fram fer í Istanbul í Tyrklandi dagana 27. ágúst - 10. september. Bæði er um að ræða lið í opnum flokki og svo í kvennaflokki. Fjórir stórmeistarar eru í sveit Íslands í opnum flokki. Kvennaliðið er einnig þrautreynt þrátt fyrir ungan aldur en fyrir því fer Lenka Ptácníková, stórmeistari kvenna. 25.8.2012 11:00
Sprenging í olíuhreinsistöð Að minnsta kosti sjö eru látnir og tugir eru slasaðir eftir að sprenging varð í olíuhreinsistöð í Venúsúela í nótt. Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá því að enn logi miklir eldar á svæðinu en ekki sé óttast um að ferkari sprengingar verði. Olíuhreinsistöðin nefnist Amuay og er í norðurhluta landsins. Rafael Ramirez, orkumálaráðherra landsins, segir gasleka hafa valdið sprengingunni. Í Venesúela er framleitt mest af olíu í Suður-Ameríku en fjöldi slysa og dauðsfalla tengist framleiðslunni. 25.8.2012 10:08
Hollusta í Grasagarðinum en subbufæði í miðbænum Hinn árlegi beikondagur er haldinn í annað sinn í dag á Skólavörðustíg frá kl. 14 - 17 og á KEX Hostel í kvöld frá kl. 19-23. Í orðsendingu frá aðstandendum hátíðarinnar segir að boðið verði upp á beikon-innblásna rétti frá Snaps, Sjávargrillinu og Þremur frökkum. Þá er fólk hvatt til þess að dansa og gleðjast saman undir beikon-innblásnum tónum frá hljómsveitinni Klaufum, en einnig verður boðið upp á Beikon-kappát og aðrar beikonuppákomur. 25.8.2012 10:03
Katrín verður fjármálaráðherra Katrín Júlíusdóttir tekur við embætti fjármálaráðherra þann 1. október næstkomandi. Þetta er tillaga Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra sem hún kynnti þingmönnum flokksins á fundi sem hófst klukkan hálfníu í morgun. 25.8.2012 09:50
Sagður plataður til Moskvu Iraida Spasskaja, systir rússneska stórmeistarans Boris Spasskí, segist sannfærð um að hann hafi ekki flúið til Moskvu í síðustu viku heldur hafi honum verið rænt þegar eiginkona hans brá sér af heimili þeirra. 25.8.2012 00:15
Bærinn íhugar skaðabótamál Bæjaryfirvöld í bænum Borja á Spáni er nokkur vandi á höndum eftir að áttatíu og eins árs kona, Cecilia Giménez að nafni, ætlaði að endurbæta aldargamalt málverk af Jesú Kristi á vegg kirkju einnar í bænum með misheppnuðum árangri. 25.8.2012 08:00
Biður Merkel um lengri frest Angela Merkel Þýskalandskanslari ítrekaði í gær að hún teldi að Grikkland ætti ekki að yfirgefa evrusvæðið, þrátt fyrir alvarlegan skuldavanda sem hefur valdið evrusvæðinu öllu verulegu tjóni. 25.8.2012 07:00
Til ákæruvalds með haustinu Til stendur að senda mál Annþórs Kristjáns Karlssonar og Barkar Birgissonar, sem grunaðir eru um manndráp á Litla-Hrauni, til ákærumeðferðar hjá Ríkissaksóknara "með haustinu“, eins og það er orðað hjá lögreglunni á Selfossi sem annast rannsókn málsins. 25.8.2012 06:30
Strætó býður ferðir til fjörutíu kaupstaða Um áramótin hefst reglubundinn akstur Strætó um allt norðaustanvert landið. Hægt verður að taka strætó frá Reykjavík til Egilsstaða. Akstur til Leifsstöðvar í skoðun. Aust- og Vestfirðir einu byggðu landshlutarnir sem eru undanskildir. 25.8.2012 06:00
Fossvogsbrú yrði tákn aukinnar samvinnu Jón Gnarr borgarstjóri og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri hittust í Kópavogi í gær og ræddu um möguleikann á nýrri brú yfir Fossvog. 25.8.2012 05:30
Deilur um lóð sem Eiður Smári skilaði Eiður Smári Guðjohnsen skilaði einbýlishúsalóð á besta stað við Elliðavatn sem Kópavogsbær úthlutaði. Eina tilboðið sem bænum hefur borist er sagt of lágt. Það er frá tengdasyni formanns framkvæmdaráðs sem vék er málið var afgreitt. 25.8.2012 05:00
Eitur í aðeins tveimur sýnum Niðurstöður liggja nú fyrir úr efnagreiningum á þrávirka efninu hexaklórbenseni (HCB) í flugeldum. Eftir að ljóst var að efnið hefði fundist í flugeldum í nágrannalöndum okkar og að efnið mældist í andrúmslofti á nýársnótt 2011, var ákveðið að taka sýnishorn hjá öllum innflytjendum flugelda og láta greina efnið. 25.8.2012 05:00
Flóðhesturinn Solly drapst Flóðhesturinn Solly, sem hafði setið fastur í sundlaug í Limpopo í Suður-Afríku í þrjá daga, drapst í gær áður en björgunarsveitir gátu náð honum upp úr. 25.8.2012 02:00
Breivik reyndi að ávarpa öfgamenn Norðmenn virðast almennt sáttir við dóminn yfir Anders Behring Breivik. Hann sjálfur ítrekar að hann viðurkenni ekki dómstólinn og neitar að áfrýja. Dómararnir telja litlar líkur á að hann verði hættuminni með árunum. 25.8.2012 00:15
Cecília tjáir sig um misheppnaðar endurbætur Gamlan konan í spænska smábænum Zaragoza, Cecilia Giménez að nafni, vakti heimsathygli á dögunum eftir að hún afskræmdi aldagamla fresku. Myndin er á kalkvegg í kirkju bæjarins. Cecilia, sem á níræðisaldri, ákvað að lífga upp á myndina enda var hún illa farin eftir rakaskemmdir. 24.8.2012 23:15
Leyndardómar Curiosity opinberaðir Verkfræðingar NASA hafa svipt hulunni af leyndardómum vitjeppans Curiosity sem nú dólar sér í auðninni á Mars. Nú hefur komið í ljós að Curiosty fékk vasapening með í för. 24.8.2012 22:30
Ráðherrakapallinn lagður á morgun Jóhanna Sigurðardóttir kynnir í fyrramálið tillögur sínar að nýrri ráðherraskipan í ríkisstjórn. Líklegast þykir að Katrín Júlíusdóttir snúi aftur í ráðherrastól. 24.8.2012 21:15
Beikonhátíð gengur í garð Alþjóðlega beikonhátíðin verður haldin á Skólavörðustíg í Reykjavík á morgun. Beikonís er á meðal þess sem verður í boði í miðbænum. Skipuleggjendur hátíðarinnar segja að beikonið sé sannarlega ekkert án fólksins og að fleskið sé í raun lífstíll. 24.8.2012 22:00
Sífellt fleiri börn í meðferð vegna offitu Hundrað og fimmtíu börn hafa tekið þátt í meðferð vegna offitu á Barnaspítalanum á síðustu sex árum. Nokkur þeirra hafa verið byrjuð að þróa með sér sykursýki og því þurft lyfjagjöf. 24.8.2012 20:30
Fjórtán hundruð börn skráð í fimleikadeild Gerplu Fjórtán hundruð börn eru skráð fyrir haustið í fimleikadeild Gerplu. Hætt var að taka börn inn á biðlista eftir Verslunarmannahelgi. Þá var þegar búið að skrá meira en eitt þúsund börn sem dreymir um að æfa fimleika sum þeirra hafa beðið í þrjú ár. 24.8.2012 19:45
Lýst eftir sextán ára pilt Lögreglan lýsir nú eftir Guðmundi Árnasyni. Hann er fæddur 29. júní árið 1996. Hann er um 170 til 175 sentímetrar á hæð, með blágrá augu, skolhærður og með hanakamb. Guðmundur er með tvo lokka í augabrún. 24.8.2012 19:31
Kornrækt verði margfölduð á Íslandi Fjórfalda mætti kornrækt á Íslandi, að mati tilraunastjóra Landbúnaðarháskóla Íslands. Hann segir að ræktun korns hafi sjaldan verið jafn arðbær sem nú og telur að þarna liggi einhver bestu sóknarfæri íslenskra bænda. Kynbætur á byggi sem miða að því að fá sem sterkust afbrigði fyrir Ísland hafa verið lykillinn að stóraukinni kornrækt íslenskra bænda. 24.8.2012 19:00