Auknar kvaðir á smálánafyrirtækin í nýju frumvarpi 27. ágúst 2012 02:30
Hvernig hyggjast stjórnvöld á Íslandi skapa lagaumhverfi um smálán? Efnahags- og viðskiptaráðherra hyggst leggja frumvarp til laga um ný neytendalán fyrir Alþingi nú í haust. Frumvarpið mun lítt breytt frá frumvarpi sem lagt var fyrir síðasta þing en ekki náðist að afgreiða vegna tímaskorts. Frumvarpið miðar að því að auka neytendavernd vegna lánastarfsemi í takt við Evróputilskipanir þess efnis. Frumvarpið sem lagt verður fyrir þingið nú tekur þó til fleiri lána, þar á meðal annars smálána. Í núgildandi lögum um neytendalán er undanþága sem segir að lánasamningar sem gilda skemur en þrjá mánuði séu undanskildir gildissviði laganna. Innan þess ramma hafa smálánafyrirtækin hérlendis starfað. Ekkert fyrirtækjanna fimm veitir lán til lengri tíma en 90 daga. Nýja frumvarpið mun skapa lagaumhverfi fyrir smálán, einkum með tvennum hætti. Lögð verður upplýsingaskylda á fyrirtækin. Gerð verður krafa um að þar sem auglýstir eru lánasamningar og einstök kjör verði að birtast staðlaðar upplýsingar. Með stöðluðum upplýsingum er til dæmis átt við útlánsvexti, árlega hlutfallsstöðu kostnaðar, lánsfjárhæð og lengd samnings. Þá verður lánveitandinn, í þessu tilviki smálánafyrirtækin, að meta lánshæfi lántaka áður en lánasamningur er gerður. Þá mun neytandi hafa rétt til að falla frá samningi innan tveggja vikna. Neytendastofa hefur farið með eftirlit með neytendalánum og smálánum. Það mun stofnunin gera áfram en mun hafa ríkari heimildir til að grípa inn í sé ekki farið að lögum og ákvörðunum stjórnvalda. Haukur Örn Birgisson, lögmaður Útlána, segir að verði frumvarpið að lögum í óbreyttri mynd muni það hafa óveruleg áhrif á starfsemi smálánafyrirtækja. ?Það er verið að sníða þeim aðeins þrengri stakk og það verður bara að bregðast við því og það er allt í góðu,? segir Haukur Örn. ?Þessari löggjöf er bara vel tekið meðal annars út af þessu slæma umtali sem hefur verið undanfarin misseri, að um þessi lán gildi engin lög og að með þeim sé ekkert eftirlit. Það er auðvitað rangt,? segir Haukur Örn. birgirh@frettabladid.is
Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira