Fleiri
Bannað að henda pappír með almennu sorpi 26.6.2012 19:15 Vinna við Vaðlaheiðargöng gæti hafist síðsumars Fyrsti fundur um gerð verksamnings vegna Vaðlaheiðarganga verður á morgun milli Vegagerðarinnar og lægstbjóðanda. Verktakinn segist geta hafist handa eftir tvo mánuði. Tveimur vikum eftir að Alþingi samþykkti með 29 atkvæðum gegn 13 að ríkissjóður lánaði allt að 8,7 milljarða króna til Vaðlaheiðarganga er komið að því að stíga næsta skref. 26.6.2012 19:15 Gott veður og þurrt óvenju lengi Veðrið hefur leikið við Íslendinga það sem af er sumri. Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir að góðviðriskaflinn hafi haldist óvenjulega lengi og úrkoman hafi verið langt undir meðallagi. "Það er búið að vera mjög einsleitt veður í júní. Það er kannski það sem er óvenjulegt í þessu," segir hann. 26.6.2012 17:44 Tvíburaturnarnir rísa aftur Í dag var síðasta stálbita komið fyrir í "Turni 4" sem markar áfanga í uppbyggingu tvíburaturnanna á Manhattan í New York 26.6.2012 17:00 Lögreglan hafði afskipti af nöktum rössum Lögreglunni á Suðurnesjum barst um nýliðna helgi tilkynning um að hópur unglingspilta væri uppi á þaki skólabyggingar í umdæminu og væru þeir að "múna," þ.e. reka nakinn afturendann framan í vegfarendur. Þegar lögregla kom á staðinn höfðu piltarnir, allir nema einn, hlaupið í burtu. Sá sem eftir var viðurkenndi að hafa verið uppi á þakinu en kannaðist ekki við að hafa verið að "múna" á fólk á förnum vegi. Lögreglumenn gerðu honum grein fyrir því að umrædd hegðun væri ekki í lagi og lofaði hann bót og betrun. 26.6.2012 14:18 Lottómilljónamæringurinn gaf sig fram Hinn lukkulegi vinningshafi sem keypti vinningsmiðann sinn í Lottóinu þann 9. júní síðastliðinn í Leirunesti á Akureyri og vann rúmlega 73 milljónir króna er búinn að gefa sig fram. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hver hinn heppni er, en Íslensk getspá ætlar að gefa nánari upplýsingar um málið þegar búið er að greiða út vinninginn. 26.6.2012 13:52 Viðurkennir að hafa orðið maka sínum að bana Peter Foster, fyrrum rannsóknarlögreglumaður, játaði í síðustu viku að hafa orðið maka sínum, Heather Cooper, að bana. Hann hafði áður neitað sök. 26.6.2012 13:39 Bjargaði kind á hvolfi Lögreglan á Selfossi barst sérkennilegt útkall í síðustu viku. Þá var tilkynnt var um "kind á hvolfi“ í mólendi skammt austan Þjórsárbrúar. 26.6.2012 10:38 Eineltið mótaði Guðgeir - hataði líka lækna Það var einelti ásamt öðrum áföllum sem mótuðu persónuleika Guðgeirs Guðmundssonar, sem var dæmdur í fjórtán ára fangelsi í morgun fyrir tilraun til manndráps og hættulega líkamsárás. Guðgeir stakk framkvæmdastjóra Lagastoða, Skúla Sigurz, fimm sinnum í mars síðastliðnum og stakk svo Guðna Bergsson, samstarfsmann og lögfræðing, tvívegis í lærið þegar hann kom vinnufélaga sínum til bjargar. 26.6.2012 09:55 Fornleifafundur vekur furðu á Bretlandseyjum og víðar Fornleifafundur í Cambridge héraði í Englandi hefur vakið mikla furðu á Bretlandseyjum og víðar í Evrópu. 26.6.2012 06:35 Fundu lítinn yrðling og tóku hann í fóstur "Mamma var að keyra Ströndina og sá eitthvað hreyfast á veginum. Hún ákvað að kíkja á þetta og sá að þetta var yrðlingur. 26.6.2012 06:00 Ferðamenn stórskemmdu Land Cruiser Landcruiser bílaleigubíll, sem leigður var erlendu pari reyndist vera stórskemmdur þar sem hann fannst við hótel í Reykjanesbæ um miðnætti í gærkvöld, fimm dögum eftir að leigutíminn hafði runnið út. 26.6.2012 14:49 Fær ekki aðgang að upplýsingum um Kaupþingsmenn Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur hafnað ósk lögmanns um að fá afhent frá Þjóðskjalasafni upplýsingar um skýrslutökur yfir fimm fyrrverandi starfsmönnum og stjórnendum Kaupþings hjá rannsóknarnefnd Alþingis. 26.6.2012 13:35 Enn beðið eftir niðurstöðum lækna vegna andláts á Litla-Hrauni Enn er beðið eftir niðurstöðum krufningar á andláti fanga sem lést á Litla-Hrauni í maí. Maðurinn, sem var 49 ára gamall, er talinn hafa látist af völdum innvortis blæðinga. 26.6.2012 13:30 Verklok áætluð í febrúar 2013 FramkvæmdirFramkvæmdir við stækkun Háskólatorgs HÍ eru nú að hefjast. Ráðgert var að hefja framkvæmdir í apríl síðastliðnum en það dróst þar til nú. Áætlað er að Stúdentakjallarinn opni samkvæmt upphaflegri áætlun þann 1. desember. 26.6.2012 13:30 Vantar sárlega sérhæfðan lækni „Við viljum vekja athygli á því að hér er enginn barnagigtarlæknir. Jón Kristinsson hefur séð um börn með gigt síðustu tuttugu til þrjátíu árin. Hann er krabbameinslæknir og er alveg frábær. Hann mun hætta eftir eitt ár. Það er búið að finna einn í staðinn en hann er ekki barnagigtarlæknir“, segir Birna Kristrún Halldórsdóttir, foreldri barns með gigt. 26.6.2012 12:30 Sjá næstu 50 fréttir
Stjórnsýslan verður gerð aðgengilegri Stýrihópur um rafræna stjórnsýslu og rafrænt lýðræði kom til fyrsta fundar á mánudag en verkefni hópsins er að vinna úr tillögum nefndar um eflingu sveitarstjórnarstigsins varðandi rafræna stjórnsýslu og lýðræði. Hópnum er ætlað að skila áfangaskýrslu til innanríkisráðherra í október. 27.6.2012 06:30
Lifandi pöddur hjá Yggdrasil Yggdrasill heildverslun hefur innkallað hýðishrísgrjón og döðlur eftir að aðskotahlutir fundust í vörupakkningum frá fyrirtækinu. Um var að ræða lítil lifandi skordýr. 27.6.2012 06:15
Vilja veðbanka á kappreiðarnar "Við erum ekki alveg úrkula vonar um að leyfið fáist endurnýjað, svo menn geti starfrækt veðbanka á kappreiðunum. Það væri gaman ef menn mættu veðja aðeins á þann hest sem þeir telja líklegastan,“ segir Haraldur Þórarinsson, formaður Landssamtaka hestamannafélaga. 27.6.2012 06:00
Hafa vart undan að tína rusl í hrauninu Árvakur lesandi sendi Fréttablaðinu ábendingu um mikið rusl við Krýsuvíkurveg í Hafnarfirði. 27.6.2012 05:45
Lögreglumaður káfaði á stúlku Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur dæmt fyrrverandi lögregluvarðstjóra í hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fimmtán ára dóttur vinahjóna sinna. Honum er jafnframt gert að greiða stúlkunni 300 þúsund krónur í miskabætur. 27.6.2012 05:15
Þrjú ár ætluð í þriðja bindið Bæjarráð Akraness hefur samþykkt samning við Hjálmar Gunnlaug Haraldsson um áframhaldandi ritun Sögu Akraness. Tvö bindi, sem ná út átjándu öld, eru þegar komin út en áætlað er að ritun þriðja bindis fari fram á árunum 2012 til 2014. Einn bæjarfulltrúinn sagði að vegna fjárhagsstöðu Akraneskaupstaðar teldi hann ekki forsvaranlegt að ganga til samninga um ritun þriðja bindis Sögu Akraness. Verkið hefur verið gagnrýnt vegna mikils kostnaðar sem þegar er kominn yfir eitt hundrað milljónir króna. Þá hafa verið skiptar skoðanir meðal gagnrýnenda um vinnubrögð höfundarins.- gar 27.6.2012 05:00
Húsbíll tókst á loft og endaði í skurði Hjónin Vilhelm Guðbjartsson og Guðrún Ragnarsdóttir lentu í kröppum dansi á dögunum þegar þau óku milli Hofsóss og Siglufjarðar. Húsbíll þeirra tók á sig vindhviðu og valt að minnsta kosti tvær veltur út af veginum áður en hann staðnæmdist í skurði undir vegbrúninni. 27.6.2012 04:45
Söngkonur sækja í sixtís-kjólana Fjöldi litskrúðugra kjóla er nú meðal þess sem hægt er að kaupa á nytjamarkaði Fjölskylduhjálpar Íslands, sem er opinn í höfuðstöðvum samtakanna í Eskihlíð alla virka daga frá tólf til hálffimm. 27.6.2012 04:30
Breyting á stiga skoðuð nánar Skipulags- og mannvirkjanefnd Fljótsdalshéraðs hefur frestað afgreiðslu erindis um breytingar á áður samþykktum laxastiga við svokallaðan Steinboga í Jökulsá á Dal. Stiginn á að opna laxfiskum tugkílómetra leið á efri hluta Jöklu. Veiðifélagið vill nú lengja stigann um 20 metra og gera breytingar til að minnka notkun steypu. Skipulags- og mannvirkjanefnd hyggst fá umsagnir frá Umhverfisstofnun, Skipulagsstofnun, Fiskistofu og umhverfis- og héraðsnefnd auk þess að kynna almenningi framkvæmdina áður en breytingarbeiðnin er afgreidd.- gar 27.6.2012 04:15
Ólafur Ragnar með mest fylgi Þjóðarpúls Capacent Gallup, sem birtur var í gær, mælir Ólaf Ragnar Grímsson með rétt tæplega 45% fylgi, Þóru Arnórsdóttur með 37%, Ara Trausta Guðmundsson með tæplega 11% fylgi, Herdísi Þorgeirsdóttur með 5,3%, Andreu J. Ólafsdóttur með 1,6% og Hannes Bjarnason með 0,8% fylgi. 27.6.2012 04:15
Fá bónus fyrir nýja starfsmenn Starfsmenn einnar deildar hjá norska olíurisanum Statoil fá 20 þúsund norskar krónur, jafngildi rúmlega 400 þúsunda íslenskra króna, í bónus takist þeim að fá verkfræðing eða annan fagmann til starfa hjá fyrirtækinu, að því er segir á fréttavefnum e24.no. Þar kemur fram að Statoil þurfi að ráða 1.500 nýja starfsmenn í ár. 27.6.2012 04:00
Bæta netsamband á nesinu Vinna stendur nú yfir á símamastri í Ólafsvík til að bæta 3G samband á Snæfellsnesinu. Verið er að koma nýjum búnaði fyrir í mastrinu og lækka það, úr 40 metrum í 30. Við það mun minna hvína í mastrinu í vindi. Skessuhorn greinir frá þessu. 27.6.2012 03:15
Sagðist sjálfur hafa stungið sig Lögregla handtók í gærmorgun þrjá menn vegna hnífsstungu í bakhúsi við Njálsgötu. Maðurinn sem var stunginn var í mjög annarlegu ástandi og fullyrti við lögreglumenn að hann hefði veitt sér áverkann sjálfur. 27.6.2012 03:15
Lesa sig út úr fangelsunum Föngum í brasilískum fangelsum mun standa nýstárleg leið til boða til að stytta fangelsisvist sína; að lesa bækur. Hver bók styttir vistina um fjóra daga. Guardian greinir frá þessu. 27.6.2012 03:00
Íslendingar fylgja ákvörðunum annarra Lene Espersen fer fyrir Evrópunefnd danska þingsins sem er í heimsókn hér á landi. Hún er bjartsýn á að viðunandi lausnir finnist á landbúnaðar- og sjávarútvegsmálum Íslendinga í aðildarviðræðum við ESB. Hún segir aðild hafa gefið Dönum ótalmörg tækifæri og telur skynsamlegt fyrir Ísland að ganga í ESB til að taka þátt í ákvörðunum. Nú þurfi Ísland að fylgja ákvörðunum annarra ríkja í gegnum EES. 27.6.2012 02:45
Kópavogsbær fær gæðavottun Kópavogsbær hefur fyrst íslenskra sveitarfélaga hlotið alþjóðlega vottun (ISO 9001) fyrir gæðakerfi stjórnsýslusviðs. Unnið hefur verið að innleiðingu gæðakerfisins síðustu misseri. Markmiðið er að tryggja góða og skilvirka þjónustu, gagnsæja stjórnsýslu, aukið öryggi og bætt eftirlit með kostnaði. 27.6.2012 02:45
Verður kynnt á Ríó-ráðstefnu Sameinaði leikskólinn Drafnarborg og Dvergasteinn fékk fyrstu verðlaun fyrir verkefni sitt í samkeppni sem helguð var degi umhverfisins í Belgíu. 27.6.2012 02:30
Eldi á flúru getur hafist Umhverfisstofnun hefur gefið út starfsleyfi fyrir fiskeldisstöð Stolt Sea Farm Holdings Iceland hf. við Reykjanesvirkjun. 27.6.2012 02:15
Rúmenskir vasaþjófar verði fangelsaðir Norski Framfaraflokkurinn vill að vasaþjófar verði settir á bak við lás og slá en aðeins ef um Rúmena er að ræða. Það er skoðun flokksins að Rúmenar sem stela misnoti EES-samninginn. Þess vegna eigi að breyta norskum lögum. Almennt er vasaþjófum í Noregi gert að greiða sekt. 27.6.2012 02:00
Vel gekk að slökkva eldinn Eldur kom upp í viðbyggingu við Nytjamarkaðinn á Eyravegi 3 á Selfossi um klukkan átta í kvöld. Allt tiltækt slökkvilið var sent á vettvang og vel gekk að slökkva eldinn. 26.6.2012 23:26
Fyrsta kartöfluuppskeran hálfum mánuði fyrr en vant er Fyrsta kartöfluuppskeran er komin í hús á Auðsholti í Hrunamannahreppi.Uppskeran fer beint á bændamarkað á Flúðum. 26.6.2012 22:18
Löggan gerir status um hraðamælingar Lögreglan hefur tekið upp á því að láta vita fyrirfram á Facebook hvar hún er við hraðamælingar. 26.6.2012 22:02
Hannes trúir á Guð Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi, er kristinn og trúir á Guð. Þó hann sé ekki alltaf sammála því sem prestar segja í prédikunum sínum segir hann barnatrúna hafa hjálpað sér á erfiðum stundum. 26.6.2012 21:38
Varð stjörf þegar hún frétti af stórvinningnum Lottóvinningshafinn sem vann 73 milljónir 9. júní og leitað hefur verið síðustu vikurnar varð stjörf þegar hún heyrði af tíðindunum. Hún keypti miðann um leið og hún setti bensín á bílinn sinn og hafði ekki hugmynd um að hún hefði hlotið stórvinning þegar hún bað um að farið væri yfir miðann hennar í gær. 26.6.2012 21:32
Andrea styður þjóðaratkvæðagreiðslu um samband ríkis og kirkju Andrea Ólafsdóttir fær ekki skilið hvers vegna ekki hefur verið haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um samband ríkis og kirkju. "Samband ríkis og kirkju er ekki órjúfanlegt og það á að vera í höndum þjóðarinnar að ákveða það,“ segir hún. 26.6.2012 21:20
Eldur á Selfossi Eldur kom upp í gámi við Nytjamarkaðinn á Eyravegi 3 á Selfossi rétt í þessu. Eldurinn barst frá gámnum og yfir í húsnæði þar við hliðina á. Allur tiltækur mannskapur slökviliðsins á Selfossi var kallaður út. Þegar hefur tekist að ráða niðurlögum eldsins. Að sögn er uppi grunur um íkveikju. Fréttastofa mun greina nánar af framvindu mála þegar upplýsingar berast. 26.6.2012 20:52
NATO stendur með Tyrklandi Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO, fordæmdi í dag árás Sýrlendinga á tyrkneska orrustuþotu sem var skotinn niður í síðustu viku. Árásin var rædd á fundi Atlantshafsbandalagsins í Brussel í morgun. 26.6.2012 20:32
Eldur fyrir ofan Gallerí 17 Eldur kom upp á þriðju hæð við Laugarveg 91 í kvöld. Mikill reykjarmökkur stóð upp af húsnæðinu. Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var sent á staðinn. Fljótlega kom þó á daginn að eldsvoðinn var minniháttar og öllu liðinu var snúið við nema einum dælubíl. Slökkvilið réði fljótt niðurlögum eldsins með handslökkvitækjum. 26.6.2012 20:04
Alþjóðleg handtökuskipun á hendur Íslendingi Alþjóðleg handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur Íslendingi sem grunaður er um aðild að umfangsmiklu kókaínsmygli hingað til lands. Tveir aðrir hafa setið í gæsluvarðhaldi í mánuð vegna málsins. 26.6.2012 19:28
Vinna við Vaðlaheiðargöng gæti hafist síðsumars Fyrsti fundur um gerð verksamnings vegna Vaðlaheiðarganga verður á morgun milli Vegagerðarinnar og lægstbjóðanda. Verktakinn segist geta hafist handa eftir tvo mánuði. Tveimur vikum eftir að Alþingi samþykkti með 29 atkvæðum gegn 13 að ríkissjóður lánaði allt að 8,7 milljarða króna til Vaðlaheiðarganga er komið að því að stíga næsta skref. 26.6.2012 19:15
Gott veður og þurrt óvenju lengi Veðrið hefur leikið við Íslendinga það sem af er sumri. Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir að góðviðriskaflinn hafi haldist óvenjulega lengi og úrkoman hafi verið langt undir meðallagi. "Það er búið að vera mjög einsleitt veður í júní. Það er kannski það sem er óvenjulegt í þessu," segir hann. 26.6.2012 17:44
Tvíburaturnarnir rísa aftur Í dag var síðasta stálbita komið fyrir í "Turni 4" sem markar áfanga í uppbyggingu tvíburaturnanna á Manhattan í New York 26.6.2012 17:00
Lögreglan hafði afskipti af nöktum rössum Lögreglunni á Suðurnesjum barst um nýliðna helgi tilkynning um að hópur unglingspilta væri uppi á þaki skólabyggingar í umdæminu og væru þeir að "múna," þ.e. reka nakinn afturendann framan í vegfarendur. Þegar lögregla kom á staðinn höfðu piltarnir, allir nema einn, hlaupið í burtu. Sá sem eftir var viðurkenndi að hafa verið uppi á þakinu en kannaðist ekki við að hafa verið að "múna" á fólk á förnum vegi. Lögreglumenn gerðu honum grein fyrir því að umrædd hegðun væri ekki í lagi og lofaði hann bót og betrun. 26.6.2012 14:18
Lottómilljónamæringurinn gaf sig fram Hinn lukkulegi vinningshafi sem keypti vinningsmiðann sinn í Lottóinu þann 9. júní síðastliðinn í Leirunesti á Akureyri og vann rúmlega 73 milljónir króna er búinn að gefa sig fram. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hver hinn heppni er, en Íslensk getspá ætlar að gefa nánari upplýsingar um málið þegar búið er að greiða út vinninginn. 26.6.2012 13:52
Viðurkennir að hafa orðið maka sínum að bana Peter Foster, fyrrum rannsóknarlögreglumaður, játaði í síðustu viku að hafa orðið maka sínum, Heather Cooper, að bana. Hann hafði áður neitað sök. 26.6.2012 13:39
Bjargaði kind á hvolfi Lögreglan á Selfossi barst sérkennilegt útkall í síðustu viku. Þá var tilkynnt var um "kind á hvolfi“ í mólendi skammt austan Þjórsárbrúar. 26.6.2012 10:38
Eineltið mótaði Guðgeir - hataði líka lækna Það var einelti ásamt öðrum áföllum sem mótuðu persónuleika Guðgeirs Guðmundssonar, sem var dæmdur í fjórtán ára fangelsi í morgun fyrir tilraun til manndráps og hættulega líkamsárás. Guðgeir stakk framkvæmdastjóra Lagastoða, Skúla Sigurz, fimm sinnum í mars síðastliðnum og stakk svo Guðna Bergsson, samstarfsmann og lögfræðing, tvívegis í lærið þegar hann kom vinnufélaga sínum til bjargar. 26.6.2012 09:55
Fornleifafundur vekur furðu á Bretlandseyjum og víðar Fornleifafundur í Cambridge héraði í Englandi hefur vakið mikla furðu á Bretlandseyjum og víðar í Evrópu. 26.6.2012 06:35
Fundu lítinn yrðling og tóku hann í fóstur "Mamma var að keyra Ströndina og sá eitthvað hreyfast á veginum. Hún ákvað að kíkja á þetta og sá að þetta var yrðlingur. 26.6.2012 06:00
Ferðamenn stórskemmdu Land Cruiser Landcruiser bílaleigubíll, sem leigður var erlendu pari reyndist vera stórskemmdur þar sem hann fannst við hótel í Reykjanesbæ um miðnætti í gærkvöld, fimm dögum eftir að leigutíminn hafði runnið út. 26.6.2012 14:49
Fær ekki aðgang að upplýsingum um Kaupþingsmenn Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur hafnað ósk lögmanns um að fá afhent frá Þjóðskjalasafni upplýsingar um skýrslutökur yfir fimm fyrrverandi starfsmönnum og stjórnendum Kaupþings hjá rannsóknarnefnd Alþingis. 26.6.2012 13:35
Enn beðið eftir niðurstöðum lækna vegna andláts á Litla-Hrauni Enn er beðið eftir niðurstöðum krufningar á andláti fanga sem lést á Litla-Hrauni í maí. Maðurinn, sem var 49 ára gamall, er talinn hafa látist af völdum innvortis blæðinga. 26.6.2012 13:30
Verklok áætluð í febrúar 2013 FramkvæmdirFramkvæmdir við stækkun Háskólatorgs HÍ eru nú að hefjast. Ráðgert var að hefja framkvæmdir í apríl síðastliðnum en það dróst þar til nú. Áætlað er að Stúdentakjallarinn opni samkvæmt upphaflegri áætlun þann 1. desember. 26.6.2012 13:30
Vantar sárlega sérhæfðan lækni „Við viljum vekja athygli á því að hér er enginn barnagigtarlæknir. Jón Kristinsson hefur séð um börn með gigt síðustu tuttugu til þrjátíu árin. Hann er krabbameinslæknir og er alveg frábær. Hann mun hætta eftir eitt ár. Það er búið að finna einn í staðinn en hann er ekki barnagigtarlæknir“, segir Birna Kristrún Halldórsdóttir, foreldri barns með gigt. 26.6.2012 12:30