Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aðgreining á nef- og munntóbaki liggur fyrir í haust Aðgreining á nef- og munntóbaki mun ekki liggja fyrir fyrr en í haust. Þá er áætlað að leggja fram frumvarp til laga um breytingar á lögum um tóbaksvarnir. Meðal þeirra atriða sem tekið verður á í frumvarpinu er skilgreining á nef- og munntóbaki, að því er Margrét Erlendsdóttir, upplýsingafulltrúi velferðarráðuneytisins, greinir frá. 26.3.2012 07:00
Öflugur jarðskjálfti skók miðhluta Chile Öflugur jarðskjálfti sem mældist 7,1 á Richter skók miðhluta Chile í gærdag. 26.3.2012 06:57
Tveir bílar eyðilögðust í eldi Tveir mannlausir bílar eyðilögðust í eldi þar sem þeir stóðu fyrir utan iðnaðarhús við Bygggarða á Seltjarnarnesi. 26.3.2012 06:54
Sumarbústaður brann til kaldra kola í nótt Gamall sumarbústaður við Rauðavatn í Reykjavík brann til kaldra kola í nótt. Hann var mannlaus. 26.3.2012 06:51
James Cameron komst niður á 11 kílómetra dýpi Kanadíski kvikmyndaleikstjórinn James Cameron komst í gærkvöldi niður á botn í Maríana-gilinu í Kyrrahafi eða niður á 11 kílómetra dýpi en í gilinu er mesta hafdýpi heimsins. 26.3.2012 06:44
Obama vill verulega fækkun kjarnorkuvopna í Bandaríkjunum Barack Obama Bandaríkjaforseti vill draga verulega úr fjölda kjarnorkuvopna í Bandaríkjunum. Hann þarf þó að sannfæra Rússa um að gera slíkt einnig. 26.3.2012 06:36
Vilja völl til að byggja upp rugby-íþróttina „Við erum ekki að biðja um peninga heldur einungis svæði til að vinna með. Það er algjört lykilatriði að fá slíku svæði úthlutað, því þá skapast möguleiki til að sækja um styrki til Alþjóða rugbysambandsins, Rugbysambands Evrópu og víðar. Við fáum ekki styrki til að byggja upp aðstöðu ef við höfum ekki svæði til að byggja aðstöðu á,“ segir Kristinn Þór Sigurjónsson, formaður Rugby Ísland, félagasamtaka sem hafa það að markmiði að byggja upp rugby-íþróttina á Íslandi með ýmsum hætti. 26.3.2012 03:00
Kallað á gjaldtöku vegna skipakomu Hugmyndir eru uppi um að leggja sérstakt gjald á farþega skemmtiferðaskipa sem rynni til umbóta í umhverfismálum. 26.3.2012 02:00
Falbauð fundi með ráðherrum Peter Cruddas, einn af gjaldkerum breska íhaldsflokksins, hefur sagt af sér eftir að blaðamenn Sunday Times komu upp um tilraunir hans til að selja auðmönnum aðgengi að David Cameron og George Osbourne, forsætis- og fjármálaráðherrum landsins. 26.3.2012 01:30
300 þúsund leituðu hælis í ESB-ríkjum Hælisleitendum fjölgaði í Evrópusambandsríkjum í fyrra miðað við árið áður. 301 þúsund manns leituðu hælis í fyrra en 259 þúsund árið 2010. Þetta kemur fram í tölum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. 26.3.2012 01:00
Gæti bætt gæði stórra útsendinga á netinu Lektor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík vinnur nú að lausn sem talin er geta dregið úr álagi á netþjóna og þar með bætt gæði stórra útsendinga á veraldarvefnum. Alþjóðlegu tæknirisarnir Intel og Netflix hafa þegar sýnt verkefninu áhuga. 25.3.2012 19:45
Allt að átta milljóna munur á verðmati Ásett verð íbúðar getur haft afgerandi áhrif á endanlegt söluverð hennar. Í nýrri íslenskri rannsókn voru fasteignasalar beðnir um að meta sömu íbúðina og var allt að átta milljóna munur á mati þeirra. 25.3.2012 19:00
Kynna nýtt kvótafrumvarp á morgun Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ætla að kynna nýtt frumvarp um stjórn fiskveiða og veiðigjöld. Fundurinn verður haldinn í Víkinni - Sjóminjasafni klukkan 16 á morgun. Jóhanna og Steingrímur munu fara yfir efni frumvarpanna. 25.3.2012 18:02
Ökumaður rútunnar handtekinn Sextíu og fimm ára gamall ökumaður flutningabíls sem ók aftan á rútu á hraðbraut í miðhéruðum Englands í gærmorgun er látinn. Þar með eru fórnarlömb slyssins orðin tvö en þrjátíu og fimm ára gamall farþegi rútunnar var úrskurðaður látinn á slysstað. Fjölmargir slösuðust og þar af liggur einn þungt haldinn á sjúkrahúsi. Ökumaður rútunnar var handtekinn í gær grunaður um að hafa valdið slysinu með glæfralegrum akstri en honum hefur verið sleppt gegn tryggingu. Mikil þoka var á svæðinu þegar umferðarslysið varð en það er sagt eitt það versta í sögu Bretlands í um áratug. 25.3.2012 16:20
Fjölskyldurnar fá skaðabætur Fjölskyldur þeirra sem misstu ættingja í blóðbaðinu í Kandahar í Afganistan fyrr í þessum mánuði, þegar bandaríski hermaðurinn Robert Bales myrti sautján óbreytta borgara, hafa fengið greiddar skaðabætur frá Bandaríkjaher. 25.3.2012 15:00
Búið að dæla olíunni úr Costa Concordia Búið er að dæla allri olíu upp úr tönkum skemmtiferðaskipsins Costa Concordia sem strandaði undan ströndum Toskana á Ítalíu í byrjun árs. 25.3.2012 14:30
Björn styður ekki Ólaf Ragnar í forsetakosningunum Björn Bjarnason, fyrrum dómsmálaráðherra, vill að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, láti af embætti. Þetta segir Björn á Facebook-síðu sinni. Hann segir að það sé mikill misskilningur að hann styðji Ólaf Ragnar í komandi forsetakosningum. Hann telji þvert á móti að hann eigi að hverfa til annarra verkefna líkt og hann sagði í nýársávarpi sínu. Forsetakosningarnar fara fram í júní á þessu ári, en þrír hafa lýst yfir framboði. Þeir Ástþór Magnússon, Jón Lárusson, lögreglumaður og Ólafur Ragnar. 25.3.2012 14:15
Hallgrímur í 8. sæti á Amazon Bók Hallgríms Helgason, The Hitman's Guide to Housecleaning, eða 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp, er í áttunda sæti á vinsældalista Amazon yfir bækur í Kindle-rafbókarformi. Bókin er gefin út af Amazon bæði í Kindle- og kiljuformi og kom inn á sölusíðuna á í lok janúar á þessu ári. 25.3.2012 13:47
Tvær skærustu reikistjörnurnar sjást mjög vel í kvöld Næstu tvö kvöld gefst landsmönnum tækifæri á að sjá tvær skærustu reikistjörnurnar og mánann dansa saman á himnum. Síðustu forvöð til að sjá þríeykið saman í langan tíma segir stjörnuáhugamaður. 25.3.2012 13:45
Jón Bjarnason segir Dani ekki ráða við makríldeiluna Nánast engar líkur eru taldar á því að Danir ráði við að opna á aðildarviðræður ESB við Íslendinga um sjávarútvegsmál. Þetta segir Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Til stóð að opna umræðurnar í haust en þeim hefur ítrekað verið frestað og nú síðast vegna deilna um rétt Íslendinga til markrílveiða. 25.3.2012 13:17
Tólf látist af völdum svínaflensu á Indlandi Að minnsta kosti tólf hafa látist af völdum svínaflensu á Indlandi það sem af er þessum mánuði og yfir hundrað eru sýktir. 25.3.2012 12:45
Þóra Arnórs íhugar forsetaframboð Sjónvarpskonan Þóra Arnórsdóttir íhugar að bjóða sig fram gegn sitjandi forseta. Ný könnun sýnir að flestir þeirra sem vilja sjá nýjan forseta á Bessastöðum styðja Þóru. 25.3.2012 12:00
Þvottavél brann yfir Tilkynnt var um eld í húsi í Mosfellsbæ klukkan hálf ellefu í morgun. Í ljós kom að þvottavél hafði brunnið yfir og var mikill reykur í þvottahúsinu. Slökkviliðið sá um að reykræsta húsið. Engin slys urðu á fólki. 25.3.2012 11:35
Neyddu stúlkur í vændi - strikamerki húðflúrað á úlnliðinn Rannsókn spænsku lögreglunnar á umfangsmiklum vændisglæpahring leiddi meðal annars til þess að nítján ára stúlku var bjargað. Stúlkan var með strikamerki húðflúrað á úlnliðinn á sér, en lögreglan segir að höfuðpaurarnir hafi gert það eftir að hún reyndi að flýja fyrir nokkrum mánuðum. 25.3.2012 11:29
Bróðir Merah líklega ákærður Bróðir skotárásarmannsins í Toulouse í Frakklandi verður hugsanlega ákærður fyrir þátttöku í morðunum og að skipuleggja hryðjuverkaárásir. Breska fréttastofan Sky greinir frá þessu. Mohammed Merah var skotinn til bana af frönskum leyniskyttum fyrr vikunni eftir umsátursástand við heimili hans. Hann er talinn hafa myrt sjö manns. Bróðir hans var í framhaldinu handtekinn og yfirheyrður. Lögreglan telur nú að hann hafi tekið þátt í að skipuleggja árásirnar. 25.3.2012 10:36
Obama í Kóreu Obama bandaríkjaforseti heimsótti landamæri Norður- og Suður Kóreu í gær, þrátt fyrir aukna spennu á milli ríkjana vegna fyrirhugaðra eldflaugaskota Norður Kóreu. Bandarísk stjórnvöld óttast að um einhvers konar vopnaprófun sé að ræða en Norður Kóresk stjórnvöld segjast vilja koma gervihnetti á sporbaug um jörðu. 25.3.2012 09:58
Leituðu að manni í Reykjavíkurhöfn Kafarar lögreglunnar og slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu leituðu í nótt að manni sem talið var að hefði hent sér í sjóinn. Björgunarbátar frá Landsbjörgu leituðu sömuleiðis meðfram ströndinni. Félagi mannsins hafði samband við lögreglu og taldi manninn hafa steypt sér í sjóinn. Leitaraðgerðirnar stóðu í tæpa þrjá klukkutíma en þegar farsími mannsins var miðaður út kom í ljós að maðurinn var heima hjá sér, bæði þurr og heill á húfi. 25.3.2012 09:32
Lést í umferðarslysi Maðurinn sem lést í umferðarlysi í Hrútafirði á föstudag hét Knútur Trausti Hjálmarsson. Hann var fæddur 19. febrúar 1988 og var búsettur í Reykjavík. Knútur var ókvæntur og barnlaus. Bíll sem Knútur ók valt síðdegis á föstudaginn í Hrútafjarðarhálsi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi kastaðist hann út úr bílnum. Akstursskilyrði voru góð þegar slysið varð. Þetta er fyrsta banaslysið í umferðinni á árinu. 25.3.2012 09:29
Manni hótað með exi Ráðist var að ungum manni í Kópavogi um áttaleytið í gærkvöld, honum hótað með exi og rændur. Árásarmannanna er nú leitað, eftir því sem fram kemur í samantekt lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 25.3.2012 08:30
Nítján fórust í rútuslysi Að minnsta kosti nítján fórust og yfir þrjátíu eru slasaðist eftir að rúta féll ofan í gljúfur í vesturhluta Alsír í morgun. Samkvæmt fréttastofunni APS missti bílstjórinn stjórn á rútunni í beygju með þeim afleiðingum að hún steyptist ofan í glúfrið. Slysið átti sér stað í grennd við bæinn Tiaret, um 250 kílómetrum frá höfuðborginni. Yfirvöld hafa undanfarið verið í sérstöku umferðarátaki en um fjögur þúsund manns látast árlega í umferðarslysum í landinu. 25.3.2012 10:34
Tvöfaldur næst Enginn var með allar fimm tölurnar réttar og verður 1. vinningur því tvöfaldur í næstu viku. Bónusvinningur gekk ekki heldur út og verður hann líka tvöfaldur í næstu viku. 24.3.2012 19:51
Flugfreyjufélagi Íslands stefnt fyrir Félagsdóm Samtök atvinnulífsins hafa fyrir hönd Iceland Express stefnt Flugfreyjufélagi Íslands fyrir Félagsdóm vegna ólögmætrar verkfallsboðunar af hálfu félagsins. Er gert ráð fyrir að niðurstaða Félagsdóms liggi fyrir eftir helgi og því verði engin röskun á starfsemi félagsins. 24.3.2012 19:15
Vélsleðamaður fór niður um ís Vélsleðamaður fór niður um ís á Svínavatni á Húnavöllum á fjórða tímanum í dag. Björgunarsveitirnar Blanda á Blönduósi og Strönd á Skagaströnd voru kallaðar út, þar sem óttast var um að maðurinn myndi kólna hratt niður í vatninu. Þó fór betur en á horfiðst og náði maðurinn í land og voru björgunarsveitirnar afturkallaðar um 15 mínútum síðar. Þær fóru þó á staðinn til að reyna að ná sleðanum upp úr vatninu. 24.3.2012 18:06
Lenti með veikan farþega Boeing 747 farþegaþota frá flugfélaginu Lufthansa lenti á Keflavíkurflugvelli upp úr klukkan hálf fjögur í dag með veikan farþega um borð. Vélin lagði af stað frá Frankfurt fyrr í dag en hún var á leið til Bandaríkjanna. Farþeganum var komið undir læknishendur í Reykjanesbæ en sjúkrabíll beið eftir honum á flugvellinum. Hann er ekki alvarlega veikur. Flugvélin er farin aftur í loftið og lendi í Bandaríkjunum í kvöld. 24.3.2012 17:25
Veikindi ekki vegna mengunar Veikindi hrossa á bænum Kúludalsá í Hvalfirði eru ekki af völdum mengunar iðjuveranna á Grundartanga, er niðurstaða rannsóknar Matvælastofnunar og Tilraunastöðvarinnar á Keldum. Veikindi hrossanna má rekja til efnaskiptaröskunar. 24.3.2012 17:00
Undirbúa uppsetningu Svanavatnsins Nemendur Listdansskóla Íslands leggja nú nótt við dag við undirbúning stórsýningarinnar Svanavatnið í Svartaskógi sem flutt verður í Borgarleikhúsinu á mánudag klukkan fimm og átta. 24.3.2012 16:30
Stefnir í þriðja stjórnsýslustigið Aukið hlutverk landshlutasamtaka sveitarfélaga í tengslum við yfirtöku verkefna frá ríkinu stefnir í að upp byggist þriðja stjórnsýslustigið á Íslandi, sagði Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, á landsþingi sambandsins á föstudag. 24.3.2012 16:00
Tveir af hverjum þremur vilja nýjan forseta Tveir af hverjum þremur vilja nýjan forseta á Bessastaði, eða rúm 66 prósent landsmanna. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar Capacent Gallup. Tæplega 34 prósent þeirra sem tóku afstöðu í könnunni vildu helst sjá Ólaf Ragnar Grímsson gegna embætti forseta Íslands áfram. 24.3.2012 15:54
Perlan verði Náttúruperlan Hópur fjárfesta sem bauð hæst í Perluna í útboði Orkuveitunnar hefur óskað eftir afstöðu skipulagsráðs til tillögu sem felur í sér tvær viðbyggingar við húsið sem bera muni nafnið Náttúruperlan. 24.3.2012 15:00
Þrettán ára piltur skotinn til bana í mótmælum Þrettán ára gamall piltur var skotinn til bana í óeirðum í borginni Port Said í Egyptalandi í gærkvöldi og fjölmargir eru slasaðir. Ástæða óeirðanna er sú að nýlega var knattspyrnulið borgarinnar sett í keppnisbann til ársloka 2013 eftir að uppþot varð á heimaleik liðsins í febrúar síðastliðnum þar sem að minnsta kosti 74 létu lífið. 24.3.2012 14:57
Vélsleðamaðurinn kominn í sjúkrabíl Vélsleðamaðurinn sem slasaðist sunnan við Hrauneyjalón í Hrauneyjum er kominn í sjúkrabíl. Fimm björgunarsveitarmenn sóttu manninn rétt fyrir hádegi í dag. Hann kvartaði yfir eymslum í baki og samkvæmt upplýsingum frá flugbjörgunarsveitinni verður hann fluttur í bæinn til frekari skoðunar. Maðurinn var í hópi manna þegar snjór hrundi skyndilega undan sleðanum með þeim afleiðingum að hann féll af sleðanum. 24.3.2012 14:29
Óljóst með makrílinn Sátt er að nást um nýtt frumvarp um stjórn fiskveiða en frumvarp Steingríms J. Sigfússonar, sjávarútvegsráðherra, var rætt og samþykkt í ríkisstjórn í gær. Enn er togast á um einstök atriði milli stjórnarflokkanna; hlutfall afla í leigupotti og hvernig farið verður með aflaheimildir í nýjum tegundum eins og makríl. 24.3.2012 14:00
Opinn fundur um ímynd bifhjólafólks Opinn fundur um ímyndarmál bifhjólafólks verður haldinn á Grand hóteli í Reykjavík á þriðjudaginn næstkomandi. Á vefsíðu bifhjólasamtakanna Sniglanna, segir að tilurð fundarins sé sú umræða sem skapast hefur í samfélaginu að undanförnu og tengir bifhjól og bifhjólamenningu við skipulagða glæpastarfsemi. 24.3.2012 13:45
Áður óþekkt tónverk eftir Mozart fundið Áður óþekkt tónverk sem talið er vera eftir Mozart fannst í Austurríki fyrir skömmu. Fræðimenn við Mozart-stofnunina í Salzburg telja verkið hafa verið samið árið 1767 eða 1768, þegar Mozart var einungis tíu ára gamall. 24.3.2012 13:18
Jóhanna um olíusamráðsdóminn: Þetta kom okkur á óvart Forsætisráðherra segir ákvörðun Héraðsdóms um að fella úr gildi sektargreiðslur vegna olíusamráðsins koma sér á óvart. Íslenska ríkið þarf að greiða olíufélögunum einn og hálfan milljarð króna. 24.3.2012 12:30