Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dugar fyrir einni mjólkurúthlutun Fjölskylduhjálp Íslands safnaði um 280 þúsund krónum með sölu á fatnaði í Kolaportinu um síðustu helgi. Þessi upphæð dugir þó einungis fyrir einni mjólkurúthlutun í Reykjavík og Reykjanesbæ, að sögn Ásgerðar Jónu Flosadóttur, formanns Fjölskylduhjálparinnar. 10.3.2012 14:00
Hart barist um formannsembættið í Dýraverndarsambandinu Átakafundur stendur yfir í Dýraverndarsambandi Íslands þar sem tveir frambjóðendur berjast um formannsstólinn. Fjöldi félagsmanna hefur nánast tvöfaldast á einni viku. 10.3.2012 12:45
Segir að það komi ekki til greina að búa áfram við krónuna Jóhanna Sigurðardóttir sagði á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar í morgun að ekki komi til greina að búa við krónuna áfram. Þá sagði hún jafnframt að rammaáætlun verði afgreidd úr ríkisstjórninni á allra næstu dögum. Til stóð að lokaútgáfa hennar yrði lögð fyrir ríkisstjórnina í gær, en hætt var við á síðustu stundu. 10.3.2012 12:09
Framkvæmdastjóri Lagastoðar enn í lífshættu Líðan framkvæmdastjóra Lagastoðar, sem slasaðist lífshættulega í hnífaárás á mánudaginn, er enn óbreytt. Samkvæmt vakthafandi lækni á gjörgæsludeild er honum haldið sofandi í öndunarvél. 10.3.2012 11:30
Aðstoða Norðmenn vegna hættuástands Norskir sveitarstjórnarmenn horfa til reynslu Íslendinga af viðbúnaðar- og rýmingaráætlunum. Í kjölfar nýrrar skýrslu norskra jarðfræðinga hefur vaknað á ný umræða í landinu um hættuástand sem skapast getur vegna bergskriðs. Bæði er horft til hættunnar af skriðum yfir byggð og flóðbylgjum sem myndast geta þegar gríðarmagn af bergstáli hrynur ofan í þröngan fjörð. 10.3.2012 11:00
Jóhanna Sigurðardóttir: Rammaáætlun vonandi afgreidd á næstu dögum Flokkstjórnarfundur samfylkingarinnar hófst klukkan níu í morgun í Rúgbrauðsgerðinni í Reykjavík. Fundurinn hófst á ávarpi Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. 10.3.2012 10:46
Flugfreyja fríkaði út: Sagði flugvélina vera að hrapa Það varð uppi mikið fjaðrafok á alþjóðaflugvellinum í Dallas í gær þegar flugfreyja á vegum flugfélagsins American Airline tilkynnti farþegum sínum rétt fyrir flugtak að flugvélin myndi hrapa og nefndi í sömu andrá hryðjuverkaárásir. 10.3.2012 10:24
Hvítlaukssvikari dæmdur í sex ára fangelsi Írinn Paul Begley, sem var einn umsvifamesti ávaxtasali Írlands, var dæmdur í sex ára fangelsi á dögunum fyrir stórfellt skattasvindl. Hann flutti inn hvítlauk frá Kína yfir fjögurra ára tímabil en merkti vöruna sem epli. 10.3.2012 09:57
Erlendur ferðamaður stal bíl fyrir utan Leifsstöð og ók í næsta skafl Erlendur ferðamaður um tvítugt tók bíl sem var í gangi hjá flugstöð Leifs Eiríkssonar ófrjálsri hendi um þrjúleytið í nótt og keyrði hann í nokkurn tíma undir áhrifum áfengis. 10.3.2012 09:50
Tónleikum í Draugasetrinu frestað Tónleikar sem áttu að fara fram á Draugasetrinu á Stokkseyri í dag er frestað vegna slæmrar veðurspár. Þess má þó geta að Draugasetrið verður engu að síður opið þrátt fyrir blikur á lofti. 10.3.2012 14:13
Forseti Sýrlands útilokar pólitískar viðræður Forseti Sýrlands, Bashar al-Assad, sagði á fundi með Kofi Annan, fyrrverandi aðalritara Sameinuðu þjóðanna, að það væri ekki hægt að eiga í pólitískum samskiptum í Sýrlandi á meðan vopnaðir hryðjuverkahópar væri virkir. Þarna vísar hann til vopnaðra andspyrnu í Sýrlandi sem hefur reynt að koma al-Assad frá völdum. 10.3.2012 13:49
Samfylkingin samþykkir siðareglur Flokksstjórn Samfylkingarinnar samþykkti siðareglur flokksins á flokkstjórnarfundi flokksins sem stendur nú yfir í Brauðgerðinni í Reykjavík. 10.3.2012 12:51
Hvetja til flokkun sorps í Mosfellsbæ Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hvetur íbúa bæjarins til að auka flokkun sorps. Í byrjun júní verður endurvinnslutunnum fyrir pappírsúrgang dreift til allra íbúa bæjarins. 10.3.2012 12:30
Venizelos fagnar nýju tækifæri „Í fyrsta sinn í sögu landsins höfum við tækifæri á að draga verulega úr skuldum ríkisins,“ sagði Evangelos Venizelos, fjármálaráðherra Grikklands, þegar hann kynnti niðurstöður viðræðna við helstu lánardrottna ríkisins úr einkageiranum í gærmorgun. 10.3.2012 12:00
Kofi Annan reynir að miðla málum í Sýrlandi Kofi Annan, sérlegur sendimaður Sameinuðu Þjóðanna og Arababandalagsins, mun funda með Bashar al Assad Sýrlandsforseta í Damaskus í dag, degi eftir að sýrlenski stjórnarherinn felldi sextíu og átta manns hið minnsta í borginni Homs. 10.3.2012 10:30
Stefnt að því að styrkja réttarstöðu fólks í kynáttunarvanda Réttarstaða fólks með kynáttunarvanda, eða transfólks, styrkist til muna ef drög að frumvarpi sem velferðarráðherra hefur móttekið verða að lögum. 10.3.2012 10:28
Páfinn varar við hjónaböndum samkynhneigðra Benedikt páfi varaði við giftingum samkynhneigðra í ræðu sinni sem hann hélt í tilefni þess að bandarískir biskupar eru í heimsókn í Vatíkaninu. 10.3.2012 10:16
Meiri undirliggjandi áhætta hér á landi Viðbragðshópur Seðlabankans taldi mun meiri undirliggjandi kerfislega áhættu í bankakerfinu vegna samþjöppunar á eignarhaldi hér á landi en í Svíþjóð. Þetta kom fram í vitnisburði Sylvíu Kristínar Ólafsdóttur, fyrrverandi forstöðumanni viðbúnaðardeildar hjá Seðlabankanum, í Landsdómi í gær. 10.3.2012 08:00
Forseti Landsdóms krafði Össur um nöfn Báðir bankastjórar Landsbankans fullyrtu við seðlabankastjóra að yfirtaka ríkisins á Glitni hefði engin áhrif á hina bankana. Þetta kom fram í vitnisburði Össurar Skarphéðinssonar fyrir Landsdómi. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra telur forvera sinn hafa gert allt sem hann gat til að afstýra bankahruni árið 2008. 10.3.2012 08:00
Hefði tekið 2-3 ár að flytja Kaupþing Verjandi Geirs H. Haarde, Andri Árnason, kallaði fjölmarga fyrrverandi starfsmenn íslensku bankanna og menn sem sátu í skilanefndum þeirra í vitnastúku í gær til að lýsa hvers konar ástand var fyrir eignasölu á árinu 2008. Einn ákæruliðurinn á hendur Geir snýr að því að hann hafi ekki beitt sér nægjanlega gagnvart því að minnka íslenska bankakerfið í aðdraganda hrunsins. 10.3.2012 07:00
Steingrímur hitti sjávarútvegsráðherra Færeyja Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra átti í dag fund í Þórshöfn í Færeyjum með Jacob Vestergaard sjávarútvegsráðherra Færeyja. 9.3.2012 22:32
Enn í lífshættu Líðan framkvæmdastjóra Lagastoðar, sem slasaðist lífshættulega í hnífaárás á mánudaginn, er enn óbreytt. Samkvæmt vakthafandi lækni á gjörgæsludeild er honum haldið sofandi í öndunarvél. 9.3.2012 21:44
Titanic í nýju ljósi Vísindamenn hafa birt sónarmyndir af áætlunarskipinu Titanic sem sökk fyrir tæpum 100 árum. Myndirnar sína slysstaðinn af mikilli nákvæmni og varpa nýju ljósi á skipsbrotið. 9.3.2012 21:30
Haldið sofandi í öndunarvél eftir bílslys Kona liggur alvarlega slösuð á gjörgæsludeild eftir umferðarslys á Álftanesvegi í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæslu er konunni haldið sofandi í öndunarvél en hún gekkst undir aðgerðir í dag. Þrír voru fluttir á sysadeild eftir slysið sem varð um klukkan hálf níu í morgun. Fimm sjúkrabílar voru sendir á staðinn ásamt tækjabíl frá slökkviliðinu en beita þurfti klippum til þess að ná einum farþeganna úr bílnum. Óljóst er um tildrög slyssins. 9.3.2012 21:09
Góð þátttaka í Mottumars "Það hafa sautján hundruð einstaklingar skráð sig til keppni og tvö hundruð lið. Þetta er alvöru meistaradeild,“ segir Ragnheiður Haraldsdóttir, forseti Krabbameinsfélags Íslands. Góð þátttaka er hjá karlmönnum í landinu í átakinu Mottumars. 9.3.2012 20:34
Setrið úr Home Alone slegið á 1.5 milljón dollara Húsið úr kvikmyndinni Home Alone frá 1990 hefur loks verið selt. Eigendur hússin fengu rúmlega 1.5 milljón dollara fyrir glæsihýsið en það er margfalt minna en það sem upphaflega var farið fram á. 9.3.2012 20:30
Tveir fangar komnir með ökklabönd - kostnaðurinn mun minni Tveir íslenskir fangar hafa nú fengið ökklabönd sem gera þeim kleift að ljúka afplánun heima undir rafrænu eftirliti. Fangelsismálastofnun áætlar að hafa slíkt eftirlit með níu föngum að tveimur mánuðum liðnum. 9.3.2012 19:35
Project Einar hefði tekið nokkur ár Jóhannes Rúnar Jóhannsson, hrl. í slitastjórn Kaupþings, segir að áform Kaupþings um að flytja alþjóðlega starfsemi bankans undir Singer & Friedlander bankann í Lundúnum sumarið 2008 hefðu tekið nokkur ár í framkvæmd. Þá segir hann að fram að því hafi enginn erlendur banki sent beiðni þess efnis til FSA, breska fjármálaeftirlitsins. 9.3.2012 19:31
Réttlætanlegt að borga ekki Icesave Íslensk stjórnvöld vísa kröfum ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, vegna Icesave málsins á bug og krefjast þess að þeim verði hafnað. Þetta kemur fram í greinargerð sem íslensk stjórnvöld sendu EFTA dómstólnum í gær. 9.3.2012 19:23
Forsetaframboð kostar um 30 milljónir Kostnaður við að bjóða sig fram til forseta Íslands hleypur á tugum milljóna króna. Almannatengill segir suma af þeim sem renna hýru auga til embættisins líklega ekki gera sér grein fyrir þessum kostnaði. Þá eru stafsetningavillur á Facebook ekki í boði fyrir frambjóðendur. 9.3.2012 18:38
Vilhjálmur Egils: Öryggi starfsmanna hefur stóraukist "Þessi atburður verður örugglega til þess að menn fara að hugsa mjög stíft um þessi mál,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, aðspurður hvort að hnífstunguárásin á lögmannsstofu í Lágmúla á mánudaginn hafi orðið til þess að öryggismál fyrirtækja hafi aukist. 9.3.2012 17:48
Gunnar Þórðarson verður á Reykjavík Folk Festival Gunnar Þórðarson er meðal flytjenda á Reykjavík Folk Festival á Rósenberg í kvöld, en tónleikarnir hefjast klukkan 21. 9.3.2012 17:40
Íslendingar hlupu 112 kílómetra yfir Sahara-eyðimörkina Arnaldur Birgir Konráðsson, framkvæmdastjóri og annar eigenda Boot Camp, og Ágúst Guðmundsson, slökkviliðsmaður á höfuðborgarsvæðinu, luku í dag eyðimerkurhlaupi yfir Sahara-eyðimörkina fyrstir Íslendinga. Það má segja að þetta hafi ekki verið neitt skemmtiskokk hjá félögunum en hlaupið er 112 kílómetrar. 9.3.2012 17:36
Forseti þjóðþings Möltu heimsækir Ísland Michael Frendo, forseti þjóðþings Möltu, er væntalegur til landsins. Fredo verður í opinberri heimsókn á Íslandi dagana 11 til 13 mars. Fredo kemur til landsins í boði Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, forseta Alþingis. 9.3.2012 16:19
Davíð vildi að lögreglan kæmi böndum á forsvarsmenn tveggja banka Davíð Oddsson sagði við Össur Skarphéðinsson í aðdraganda bankahrunsins að stórefla þyrfti efnahagsbrotadeildina og koma lögum yfir forsvarsmenn tveggja af stóru bönkunum þremur. Össur greindi frá þessu þegar hann gaf vitnisburð í Landsdómi í dag. Hann greindi ekki frá því um hvaða banka væri að ræða. 9.3.2012 16:15
Jóhanna: Geir gerði allt sem hann gat Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að Geir Haarde hafi gert allt það sem hann gat til þess að leysa þann vanda sem var uppi í efnahagslífinu árið 2008. Þetta sagði Jóhanna þegar hún bar vitni fyrir Landsdómi í dag. Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari, spurði Jóhönnu hvernig vandinn í efnahagslífinu hefði blasað við henni. 9.3.2012 16:09
Össur var í ræktinni þegar hann frétti að Glitnir væri fallinn "Ég var á leiðinni milli ræktarinnar og gufubaðs þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hringdi í mig frá New York,“ sagði Össur. Hún hafi fullyrt að Glitnir væri fallinn og Össur þyrfti að vera viðstaddur fund í Seðlabankanum vegna þess. 9.3.2012 15:53
Markús: Hver fullyrti að yfirtakan á Glitni hefði engin áhrif ? Fullyrt var við Össur Skarphéðinsson í september 2008 að yfirtaka ríkisins á 75% hlut í Glitni hefði engin áhrif á hina bankana. Össur fullyrti þetta í vitnastúku í Landsdómi í dag. 9.3.2012 15:35
Alvarlega slösuð eftir umferðarslys á Álftanesvegi Konan sem slasaðist í umferðarslysi á Álftanesvegi í morgun gekkst undir skurðaðgerð skömmu eftir hádegi í dag. 9.3.2012 15:28
Tryggvi Þór: Ekki mitt hlutverk að fara út í sjoppu fyrir ráðherra Tryggvi Þór Herbertsson gaf skýrslu fyrir Landsdómi í morgun. Að lokinni skýrslu veitti hann fréttamönnum viðtal. Aðspurður hvers vegna Geir H. Haarde hafi ekki beitt sér beint sjálfur gegn eigendum bankanna fremur en að Tryggvi Þór hafi alltaf verið að erindast í hans nafni, segir Tryggvi að menn verði að átta sig á að það hafi ekki verið hans hlutverk að skjótast út í sjoppu fyrir ráðherrann. Geir hafi tekið sameiningu bankanna mjög alvarlega og verið virkur í þeim aðgerðum síðsumars 2008. 9.3.2012 14:30
Vitnaleiðslum lokið í dag Vitnaleiðslum í Landsdómsmálinu er lokið í dag. Það var sjálf Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sem gaf skýrslu síðust. Réttarhöldunum hefur verið frestað þangað til klukkan níu á mánudaginn. 9.3.2012 16:43
Sylvía: Seðlabankinn "mjög vel undirbúinn" Sylvía Kristín Ólafsdóttir, fyrrverandi forstöðumaður viðbúnaðardeildar á fjármálasviði Seðlabanka Íslands, sagði Seðlabanka Íslands hafa verið "mjög vel undirbúinn" undir það að þurfa að sjá um greiðslumiðlun ef til fjármálaáfalls kæmi. Það hefði sýnt sig í hruninu, þegar starfsfólks seðlabankans hefði lyft grettistaki við erfiðar aðstæður. 9.3.2012 15:20
Málsvörn Íslendinga send til EFTA-dómstólsins - kröfum ESA hafnað Íslensk stjórnvöld sendu í gær greinargerð sína í Icesave-málinu til EFTA-dómstólsins. Greinargerðin felur í sér viðbrögð stjórnvalda við stefnu Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) og leggur grunninn að málsvörn Íslands. 9.3.2012 14:49
Kofi Annan væntanlegur til Sýrlands Andspyrnuhópar í Sýrlandi eru afar óánægðir með hugmyndir Kofi Annans, sendiherra Arababandalagsins í Sýrlandi, varðandi pólitíska lausn á átökunum í landinu. 9.3.2012 14:47
Ólafur og Dorrit heimsækja Holmenkollen Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú hafa þekkst boð Haraldar Noregskonungs og Sonju drottningar um að vera nú um helgina gestir konungshjónanna á Holmenkollen skíðahátíðinni. Í tilkynningu frá embættinu segir að Holmenkollen hátíðin ssé einn helsti skíðaviðburður Noregs og fjölsóttur af almenningi enda fara þar fram Heimsleikar í norrænum greinum, svo sem í göngu og stökki. Holmenkollen hefur löngum verið miðstöð skíðaíþróttarinnar í Noregi. 9.3.2012 14:36