Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lögreglan krefst gæsluvarðhalds yfir fjórum mönnum Lögreglan ætlar að krefjast gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir fjórum karlmönnum, sem hún handtók í gærmorgun vegna rannsóknar, sem snýr að skipulagðri glæpastarfssemi, líkamsmeiðingum, hótunum, innbortum, peningaþvætti og þjófnuðum. 15.3.2012 06:46
Átak vegna sumarstarfa ungra Ráðist verður í sérstakt átak vegna sumarstarfa ungmenna í ár. Álíka verkefni var í gangi í fyrra þar sem velferðarráðuneytið og Vinnumálastofnun auglýstu 900 sumarstörf um allt land. Átakið á að fjölga störfum á vegum ríkisins og sveitarfélaga ætluðum námsmönnum og atvinnuleitendum. Vinnumálastofnun hefur nú þegar lagt inn umsókn til velferðarráðuneytisins vegna verkefnisins. 15.3.2012 06:00
Fæðingum fækkar milli ára Í fyrra fæddust 4.496 börn með lögheimili á Íslandi, að því er segir í frétt á vef Hagstofunnar. 15.3.2012 06:00
Algjör eyðilegging á Selfossi 800 Bar á Selfossi brann til kaldra kola í gær. Tjónið hleypur á hundruðum milljóna króna. Eldurinn kom upp í röraverksmiðjunni Seti og barst í nærliggjandi byggingar. Talið er að kviknað hafi í út frá rafmagni. 15.3.2012 05:30
Atvinnulausum fjölgaði lítillega Alls 11.621 einstaklingur var atvinnulaus í febrúar að meðtali. Jafngildir það 7,3% fólks á vinnumarkaði. Þetta kemur fram í tölum Vinnumálastofnunar um ástand á vinnumarkaði í febrúar. 15.3.2012 05:30
698 eignir Íbúðalánasjóðs auðar Íbúðalánasjóður átti þann 20. febrúar síðastliðinn alls 1.751 íbúð. Af þeim voru 804 íbúðir áður í eigu einstaklinga en 947 áður í eigu lögaðila. Alls eru 707 af íbúðunum í útleigu en 698 standa auðar. Þá eru 255 eignir óíbúðarhæfar og 91 eign nýkomin í eigu sjóðsins og því enn flokkuð sem í vinnslu. 15.3.2012 05:00
Úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald Fjórir karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 21. mars næstkomandi vegna rannsóknar, sem snýr að skipulagðri glæpastarfssemi, líkamsmeiðingum, hótunum, innbrotum, peningaþvætti og þjófnuðum. 15.3.2012 09:28
Undarlegt fyrirbæri sást við yfirborð Sólarinnar Geimsjónauki NASA náði myndum af undarlegu fyrirbæri á yfirborði Sólarinnar. Fyrirbærið er hnöttótt og er margfalt stærri en Jörðin. Einhvers konar leiðsla virðist liggja frá fyrirbærinu að yfirborði stjörnunnar. 14.3.2012 23:44
Móðir lamdi fíkniefnasala með hafnaboltakylfu Móðir í Missouri í Bandaríkjunum tók málin í sínar hendur þegar dópsali reyndi að selja syni hennar heróin. Hún lamdi sölumanninn með hafnaboltakylfu. 14.3.2012 22:48
Ber súrefnisgeymi eiganda síns hvert sem er Herra Gibbs og hin þriggja ára gamla Alida Knobloch frá Louisville í Bandaríkjunum eru mun meira en bestu vinir. Hundurinn ber súrefnisgeymi hennar hvert sem þau fara 14.3.2012 22:21
Gæti hlotið dauðadóm fyrir fjöldamorð í Afganistan Bandaríski hermaðurinn sem myrti 16 manns í suðurhluta Afganistan fyrr í vikunni var fluttur úr landinu í dag. Mikil reiði er í Afganistan vegna atviksins og krefjast margir þess að réttað verði yfir manninum þar í landi. 14.3.2012 22:02
Saksóknari flytur mál sitt á morgun Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, mun flytja mál sitt gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, klukkan eitt eftir hádegi á morgun. Ráðgert er að málflutningurinn taki um þrjár klukkustundir. 14.3.2012 21:51
Hundsa úrskurð ráðuneytisins Meirihluti bæjarstjórnar Seltjarnarness ákvað í dag að aðhafast ekkert vegna úrskurðar innanríkisráðuneytisins varðandi uppsögn Ólafs Melsted, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Seltjarnarnesbæ, úr starfi. 14.3.2012 21:32
Slökkviliðsstjóri Selfoss: "Við höfðum gríðarlegar áhyggjur" Grunur leikur á að eldurinn sem kom upp í húsnæði SET á Selfossi í dag hafi verið af völdum rafmagns. Slökkviliðsstjóri á Selfossi segir að gríðarlega hætta hafi myndast þegar eldurinn kom upp. 14.3.2012 21:10
Bresk börn eyða 353 klukkustundum á hverju ári í tölvunotkun Bresk rannsókn hefur leitt í ljós að börn á tíunda aldursári eyða 353 klukkustundum á hverju ári í einhvers konar tölvunotkun. Að meðaltali nota börnin tölvur eða tækni í tæpa klukkustund á degi hverjum. 14.3.2012 21:00
Er hægt að sigrast á flughræðslu? Þrátt fyrir að flug sé einn öruggasti ferðamáti sem völ er á er fjöldi fólks logandi flughræddur. En er hægt að yfirvinna þennan ótta og fljúga sæll og glaður í fríið? Ísland í dag fór á stúfana og kynnti sér flughræðslu. 14.3.2012 21:00
Sæstrengur verði metinn næstu 2-3 ár Forstjóri Landsvirkjunar hvetur til þess að þjóðin noti næstu tvö til þrjú ár til að meta kosti og galla sæstrengs áður en ákvörðun verður tekin. Hann telur að raforkusala til útlanda um streng myndi að mjög takmörkuðu leyti skerða möguleika til iðnaðaruppbyggingar hérlendis. 14.3.2012 19:45
Allt að gerast í Latabæ - fleiri þættir og kvikmynd "Það er svo mikið framundan að ég kemst ekki úr búningnum,“ sagði Magnús Scheving en hann gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. 14.3.2012 19:45
Leikstjóri Svartur á leik snýr sér að Ég man þig Óskar Axelsson, leikstjóri Svartur á leik, hefur verið ráðinn til að leikstýra hrollvekju sem byggð verður á metsölubók Yrsu Sigurðardóttur "Ég man þig". Sjálfur var hann skíthræddur við lestur bókarinnar og missti svefn. 14.3.2012 19:15
Dani og Eisti með allar tölur réttar í Víkingalottóinu Dani og Eisti voru með allar tölur réttar í Víkingalottóinu í kvöld. Vinningstölurnar voru 3, 22, 25, 32, 43 og 46. Bónustölurnar voru 35 og 41 og ofurtalan var 33. 14.3.2012 19:12
Baldur fær enga sérmeðferð Fangelsismálastjóri segir Baldur Guðlaugsson ekki fá neina sérmeðferð. Að jafnaði óska um tíu prósent þeirra sem fá óskilorðsbundna dóma, eftir að fá að afplána dóm sinn sem allra fyrst. 14.3.2012 18:35
Ekkert bólar á endurútreikningu gengislána Talið er að enn þurfi að koma fjórtán gengislánamálum í gegnum dómstóla áður en hægt verður að reka smiðshöggið á endurútreikninga gengislána. Ekkert bólar á endurútreikningi láns hjóna sem Hæstiréttur dæmdi fyrir mánuði að mætti ekki setja á afturvirka vexti. 14.3.2012 18:30
Annþór Karlsson handtekinn í aðgerðum lögreglunnar í dag Fimm voru handteknir í umfangsmiklum aðgerðum lögreglunnar í dag vegna rannsóknar á skipulagðri glæpastarfsemi. Einn þeirra er Annþór Karlsson þekktur handrukkari. 14.3.2012 18:30
Kraumur úthlutað í dag Tónlistarsjóðurinn Kraumur hefur kynnt úthlutun sína fyrir árið 2012. Alls styður sjóðurinn 15 verkefni í ár, þar af tíu verkefni listamanna af margvíslegum toga á erlendum og innlendum vettvangi. 14.3.2012 18:09
Dyngja hlaut samfélagsverðlaun Fréttablaðsins Áfangaheimilið Dyngjan hefur hlotið samfélagsverðlaun Fréttablaðsins. Markmið verðlaunanna, sem nú eru veitt í sjöunda sinn, er að beina sjónum að þeim góðu verkum sem unnin eru í samfélaginu. 14.3.2012 17:58
"Hamborgarinn okkar er gæðavara" "Þetta er ekkert slor þessir hamborgarar," sagði Ásgerður Guðmundsdóttir, framkvæmdarstjóri Metró. Hún var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag. 14.3.2012 17:33
Hundruð milljóna króna tjón Tjónið vegna eldsins á Selfossi nemur hundruðum milljóna króna, segir Árni Steinarsson í samtali við Vísi. Árni rekur 800 bar ásamt félaga sínum Eiði Birgissyni. Eldurinn kom upp í plaströraverksmiðjunni Set og breiddist svo út í húsnæði 800 bars. Árni segir að hann og Eiður eigi húsnæði veitingastaðarins sjáflir en auk þess hafi verið þarna inni dýrir munir sem fylgi rekstri sem slíkum. "Þetta eru hljóðkerfi og sjónvörp og bara það sem fylgir þessu," segir Árni. 14.3.2012 16:52
Mikill viðbúnaður vegna Vítisengla Lögreglan var með mikinn viðbúnað í Héraðsdómi Reykjaness í dag þegar fólk sem tengist Vítisenglum var fært fyrir dómara og krafist var framlengingar á gæsluvarðhaldi yfir þeim. Fólkið var handtekið snemma í janúar síðastliðnum, grunað um að hafa gengið í skrokk á konu skömmu fyrir jól. Rannsókn lögreglunnar á árásinni stendur enn yfir. 14.3.2012 16:03
Telja að búið sé að ná tökum á eldinum Kristján Einarsson slökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu segist telja að búið sé að ná tökum á eldinum sem logað hefur í dag. Geymsluhúsnæði hjá SET röraverksmiðjunni brann, sem og skemmtistaðurinn 800 bar. Bæði húsin eru brunninn til kaldra kola en Kristján segir að komið hafi verið í veg fyrir að eldurinn næði að læsa sig í sjálfa röraverksmiðjuna, eins og leit út fyrir um tíma. 14.3.2012 15:59
Verksmiðjan alelda þegar starfsmenn komu úr hádegismat Bergsteinn Einarsson, framkvæmdastjóri Set röraverksmiðju, segir að eldurinn hafi blossað upp á mjög stuttum tíma. Starfsfólkið hafi verið í hádegismat í mötuneytinu sem er í öðru húsi og um hálftíma síðar hafi verksmiðjan verið alelda. 14.3.2012 15:53
800 bar brunninn til kaldra kola 800 bar á Selfossi er brunninn til grunna. Slökkviliðsmenn reyna að verjast því að eldurinn breiðist enn frekar út og segir slökkviliðsstjórinn á Selfossi að útlitið sé betra en það var fyrir tíu mínútum síðan. Nú sé ítil hætta sé nú á að eldurinn breiðist út í húsnæði TRS. 14.3.2012 15:09
Öflugir jarðskjálftar í Tókíó Nokkrir öflugir jarðskjálftar riðu yfir borgina Tókíó og nærliggjandi héruð í dag, en rétt rúmt ár er nú liðið frá því skjálfti á sama svæði olli flóðbylgjunni sem banaði um nítján þúsund manns. Stærsti skjálftinn í dag var 6,8 að stærð en til samanburðar mældist skjálftinn fyrir ári 9 stig. Tjón af völdum skjálftanna í dag virðist hafa verið lítið sem ekkert. 14.3.2012 14:50
Segir að neyðarlán frá Seðlabanka hafi enn verið í Kaupþingi við fall Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings banka, fullyrðir að 500 milljóna evra neyðarlán sem Seðlabanki Íslands veitti Kaupþingi 6. október 2008, sama dag og neyðarlögin voru sett, hafi verið í bankanum við fall hans tveimur dögum síðar. Hann vill ekki tjá sig um 170 milljóna evra lán til félagsins Lindsor Holdings sem veitt var á sama tíma, en það er til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara. 14.3.2012 14:50
Skýrslutökur yfir ofbeldismönnum í dag Skýrslutökur fara fram núna eftir hádegi vegna aðgerða lögreglunnar í morgun. Þá voru fimm menn handteknir og húsleitir gerðar á átta stöðum á landinu. Auk þess lagði lögreglan hald á meint þýfi og fíkniefni. Fram kom í fréttatilkynningu frá lögreglunni í morgun að hluti af rannsókninni snerist að hótunum og líkamsmeiðingum. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar hafa mennirnir sem handeknir hafa verið komið við sögu lögreglu áður og verið dæmdir fyrir alvarleg brot. 14.3.2012 14:30
Eldurinn breiðist út - 800 bar logar líka Eldurinn sem kom upp í Set röraverksmiðju rétt eftir klukkan eitt í dag er nú farinn að breiðast út og hefur nú fest sig í þakinu á skemmtistaðnum 800 bar, sem er í samtengdu húsi við röraverksmiðjuna. Að sögn Kristjáns Einarssonar slökkviliðsstjóra sem er á staðnum er nú verið að rjúfa þakið á barnum og freista menn þess að koma í veg fyrir að eldurinn nái að læsa sig í næsta hús. Þar er TRS rafeindaþjónustan til húsa. Nærliggjandi fyrirtæki hafa verið rýmd vegna mikils reyks sem gengur yfir svæðið. Að sögn Kristjáns er vindátt þó tiltölulega hagstæð með tilliti til íbúabyggðar. Slökkvilið frá höfuðborgarsvæðinu hefur sent tvö slökkviliðsbíla til Selfoss til að aðstoða slökkviliðsmenn. Allt tiltækt slökkvilið af nærliggjandi svæðum hefur verið kallað til, frá Selfossi, Hveragerði og Þorlákshöfn. Björgunarsveitin á Selfossi er að stjórna umferð þar sem fjöldi ökumanna er að reyna að sjá eldinn. 14.3.2012 14:32
Sendiherra Íslands í Belgíu: Hér er mikil sorg Þórir Ibsen, sendiherra Íslands í Belgíu, segir að þjóðarsorg ríki í landinu og að fjallað sé um lítið annað í fjölmiðlum en hörmulegt rútuslys í Sviss í gærkvöldi þar sem tuttugu og tvö belgísk börn fórust. Krakkarnir sem voru 12 ára gamlir voru á heimleið úr skíðafríi þegar rútan sem þau voru í keyrði á vegg í undirgöngum hraðbrautar í suðurhluta Sviss. Þórir segir að margir spyrji sig hvað hafi valdið því að rútan klessti á en nefnt hefur verið að rútan hafi verið á of miklum hraða. Lögreglan ætlar að halda blaðamannafund núna klukkan tvö á íslenskum tíma þar sem farið verður yfir rannsóknina. Fimmtíu og tveir voru í rútunni og fórust tuttugu og átta, þar af tuttugu og tvö börn, eins og áður segir, en þau koma öll frá tveimur litlum sveitarfélögum. Aðkoman á slysstað í gærkvöldi var hrikaleg og er rútan ónýt. "Konungur Albert annar er búinn að lýsa yfir mikilli sorg og forsætisráðherrann er á leið til Sviss núna síðdegis. Hér er mikil sorg, þetta er skelfilegt slys,“ segir Þórir en það ætlar hann að gera til að sýna fjölskyldum og vinum þeirra látnu stuðning. 14.3.2012 13:38
Röraverksmiðja á Selfossi alelda Eldur er laus í Set röraverksmiðju á Selfossi. Samkvæmt sjónarvotti sem hafði samband við fréttastofu er húsið alelda og mikill reykur kemur frá húsinu. Lögreglan á Selfossi hefur ekki frekar upplýsingar um eldsvoðann. Reykurinn frá húsinu sést langar leiðir. 14.3.2012 13:00
Fimm handteknir í átta húsleitum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í morgun í átta húsleitir á heimilum og í fyrirtækjum vegna rannsóknar á skipulagðri brotastarfsemi. Fimm hafa verið handteknir og lagt hefur verið hald á meint þýfi og fíkniefni. Hluti rannsóknarinnar snýr að hótunum og líkamsmeiðingum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni, en þar er jafnframt tekið fram að ekki verði veittar frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. 14.3.2012 12:56
Viðamiklar aðgerðir lögreglu í dag Lögregla hefur verið í viðamiklum aðgerðum í dag. Erfitt hefur reynst að fá upplýsingar um málið en farið hefur verið í nokkrar húsleitir nú fyrir hádegið, að því er heimildir fréttastofu herma. Í hádegisfréttum RÚV kom fram að þrír hafi verið handteknir vegna málsins. Von er á tilkynningu frá lögreglu innan tíðar. 14.3.2012 12:24
Ráðast líklegast í átak fyrir sumarstörf Allt útlit er fyrir að ráðist verði í sérstakt átak vegna sumarstarfa ungmenna þetta árið. Nauðsynlegar aðgerðir að mati formanns stúdentaráðs Háskóla Íslands. 14.3.2012 12:09
Rektor á Hólum um líkamsárás: Okkur er rosalega brugðið "Okkur öllum er alveg rosalega brugðið því þetta er eitthvað sem við eigum ekki að venjast hérna,“ segir Skúli Skúlason, rektor í Háskólanum á Hólum. Kona sem er nemandi við skólann var slegin ítrekað með hurðarhún í andlitið aðfaranótt sunnudagsins. Hún hlaut skurði í andliti og margar tennur brotnuðu og var flutt til Reykjavíkur með sjúkrabíl. Árásarmaðurinn hefur játað árásina en hann er ekki nemandi í skólanum var einungis gestur á heimavistinni um helgina. 14.3.2012 12:08
Barnaníðsmálum fjölgar hjá lögreglu Kærum til lögreglu vegna kynferðisbrota gegn börnum fjölgaði um 30 prósent milli áranna 2010 og 2011. Í fyrra voru kærurnar 58 talsins en 41 árið á undan. Tilkynningum til barnaverndarnefnda vegna barnaníðs fjölgaði að sama skapi á tímabilinu, úr 428 tilkynningum árið 2010 í 461 árið 2011. 14.3.2012 11:00
Mun ódýrara að hita upp húsin á Seltjarnarnesi en í Reykjavík Verð á heitu vatni í Reykjavík er ennþá tæplega 70% hærra en hjá nágrannasveitafélaginu Seltjarnarnesi, sem býður lægst verð, en er 23% hærra en í Mosfellsbæ. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Orkuvaktarinnar sem meðal annars fylgist með verðbreytingum á orkumarkaði. Þróunin frá október 2010 og fram til 2012 var tekin saman og hefur mesta hækkunin orðið hjá Selfossveitum, um 32,7% og hjá Hitaveitur Mosfellsbæjar, um 34,6 prósent. 14.3.2012 10:22
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins afhent í dag Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mun afhenda Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins á Hótel Reykjavík Natura klukkan fimm í dag. Þetta er sjöunda árið í röð sem verðlaunin eru afhent. Veitt verða verðlaun í fjórum flokkum auk heiðursverðlauna. 14.3.2012 09:58
Bók Viktors á meðal 10 efstu Rafbókarútgáfan af glæpasögunni Flateyjargáta, eftir Viktor Arnar Ingólfsson, skaust í sjötta sæti á metsölulista bandarísku Amazon-vefverslunarinnar á mánudaginn og sat þar enn í gær. Flateyjargáta er ein af tíu íslenskum skáldsögum sem AmazonCrossing-útgáfan gefur út á þessu ári. Enskur titill bókarinnar er The Flatey Enigma. 14.3.2012 09:37