Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ætlar ekki að gefa kost á sér til biskups "Ég var að spá í það en ég alveg búinn að gefa það frá mér núna,“ segir séra Þórhallur Heimisson, sóknarprestur við Hafnarfjarðarkirkju, aðspurður hvort að hann ætli að gefa kost á sér til embættis biskups. Nafn hans hefur dúkkað upp í umræðunni um hugsanlega frambjóðendur til embættisins en Karl Sigurbjörnsson, biskup, mun láta af embætti í sumar. 19.1.2012 09:19
Leiða vatn til átöppunar í Kópavogi Fyrirtækið Catco vatn ehf. hefur fengið heimild bæjaryfirvalda í Kópavogi til að leggja vatnslögn frá aðveituæð Orkuveitunnar í Reykjavík að iðnaðarhúsnæði í Kópavogi. 19.1.2012 09:00
Ræða uppsögn kjarasamninga Skiptar skoðanir eru um það innan verkalýðshreyfingarinnar hvort segja skuli upp gildandi kjarasamningum. Endurskoðunarnefnd Alþýðusambandsins þarf að skila ákvörðun í dag um það hvort sambandið hyggst virkja endurskoðunarákvæði kjarasamninganna. 19.1.2012 09:00
Grænt ljós á búfjárrækt í Skutulsfirði Beitartilraun í nágrenni við sorpbrennslustöðina Funa í Skutulsfirði sýnir að svæðið hentar aftur til búfjárhalds. Matvælastofnun ætlar að aflétta banni á nýtingu fóðurs. Bóndinn í Efri-Engidal segir það litlu breyta og leitar réttar síns. 19.1.2012 08:45
Sú sem rannsakaði fjöldamorðin í Útey sagði upp störfum Janne Kristiansen, yfirmaður norsku öryggislögreglunnar, tilkynnti dómsmálaráðherra landsins í nótt að hún ætlaði að segja upp störfum. Ástæðan ku vera hugsanlegt brot á þagnarskyldu Kristansen var spurð að því af þingmanninum Akhatar Chaudry á norska þinginu í gær hvort að öryggislögreglan myndi starfa með pakistönsku leyniþjónustunni. 19.1.2012 08:42
Meirihluti vill staðgöngumæðrun Velferðarmál Alþingi samþykkti í gær þingsályktunartillögu um staðgöngumæðrun með 33 atkvæðum gegn þrettán. Fjórir þingmenn sátu hjá og aðrir voru fjarverandi. 19.1.2012 08:30
Unnið að frávísunartillögu Þingflokkar funduðu í gær um tillögu Bjarna Benediktssonar um að draga ákæru á hendur Geir H. Haarde til baka. Tillagan verður til umræðu á morgun og hefur hún valdið miklum titringi innan stjórnarflokkanna. 19.1.2012 08:15
Íbúar við Tjarnargötu andmæla gistiheimili Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hafnar ásökunum íbúasamtaka um losaraleg vinnubrögð í framkvæmd reglugerða um gististaði. Eftirlitið er þó samstiga íbúunum í að skora á borgaryfirvöld að koma böndum á gististaði í íbúðabyggð. 19.1.2012 07:45
Helmingur lýtalækna svaraði ekki Helmingur þeirra lýtalækna sem landlæknisembættið krafði upplýsinga um brjóstastækkanir hefur ekki svarað formlega. Frestur til svara rann út 13. janúar síðastliðinn. 19.1.2012 07:30
Skerpa lög um peningaþvætti Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, mælti í gær á Alþingi fyrir frumavarpi um breytingu á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti. Skerpt er á skilgreiningum á persónuskilríkjum og því hver sé raunverulegur eigandi bankareikninga. 19.1.2012 07:30
Heitt sumar veldur köldum vetri Hækkandi hitastig yfir sumartímann gæti valdið því að veturnir verði kaldari og snjóþyngri, samkvæmt nýrri kenningu umhverfisvísindamanna. Þeir telja þetta líklega skýringu á öfgafullu veðurfari á norðurhveli jarðar á undanförnum árum. 19.1.2012 07:15
Meira en 20 er enn saknað Enn er 23 manna saknað en ellefu að auki hafa fundist látnir í skemmtiferðaskipinu Costa Concordia, sem strandaði við Ítalíu um síðustu helgi. 19.1.2012 07:15
Vetrarfæri um allt land Vetrarfæri eru um allt land , víða þæfingur og sumstaðar ófært, þannig að mikil vinna bíður Vegagerðarmanna í dag við snjóruðning og hálkuvörn. 19.1.2012 07:14
Dvínandi líkur á uppsögn kjarasamninga Dvínandi líkur eru á því að kjarasamningum verði sagt upp vegna vanefnda stjórnvalda á fyrirheitum, sem gefin voru við undirritun samninganna. 19.1.2012 07:09
Strand Costa Concordia dýrasta sjóslys sögunnar Talið er að strand Costa Concordia við eyjuna Giglio á Ítalíu sé dýrasta sjóslys sögunnar. 19.1.2012 07:06
Náttúruhamfarir kostuðu um 30.000 mannslíf í fyrra Náttúruhamfarir kostuðu um 30.000 jarðarbúa lífið á síðasta ári. Fjárhagstjón af völdum þeirra er hið mesta í sögunni á einu ári en það er metið upp á um 366 milljarða dollara eða sem svarar til 45.000 milljarða króna. 19.1.2012 07:04
Fjórir jarðskjálftar við Hellisheiðarvirkjun Fjórir jarðskjálftar upp á einn komma þrjá til tvo á Richter, urðu norð-norðvestur af Hellisheiðarvirkjun í gær. Sá snarpast um klukkan hálf sjö í gærkvöldi. 19.1.2012 07:02
Gefa lítið fyrir endurskoðunina sjávarútvegurHafrannsóknastofnun telur ekki ástæðu til að endurskoða tillögurnar um aflamark í ýsu fyrir fiskveiðiárið 2011/2012. Landssamband smábátaeigenda (LS) gefur lítið fyrir vinnubrögð Hafrannsóknastofnunar. 19.1.2012 07:00
FIFA krefst þess að bjórsala verði leyfð á HM í Brasilíu Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hefur krafist þess að bjór verði seldur á öllum leikvöngum þar sem Heimsmeistarakeppnin í fótbolta fer fram í Brasilíu árið 2014. 19.1.2012 06:54
100 ár liðin frá ferð Robert Scott á Suðurpólinn Í þessari viku voru liðin 100 ár frá örlagaríkum leiðangri breska landkönnuðarins Robert Scott á Suðurpólinn. 19.1.2012 06:52
Kennari átti óvænt 120 milljarða inn á bankareikningi Grunnskólakennari á Indlandi varð fyrir töluverðu áfalli í vikunni þegar hann athugaði stöðuna á bankareikingi sínum. Í ljós kom að innistæðan var nær 500 milljarðar rúpía eða yfir 120 milljarðar króna. 19.1.2012 06:45
Útlit fyrir aukinn viðbúnað á Þjóðhátíð Útlit er fyrir að viðbúnaður og gæsla verði aukin fyrir næstu Þjóðhátíð í Eyjum í ljósi þess að að minnsta kosti fimm konur tilkynntu um nauðgun þar á síðasta ári. 19.1.2012 06:45
Norðmenn æfir af reiði út í dönsku dómarana Norðmenn eru æfir af reiði út í dönsku dómarana á leik Íslands og Noregs sem Ísland vann með tveimur mörkum í gærkvöldi. Norðmenn telja að dómararnir hafi haft af þeim víti á lokamínútinni í leiknum. 19.1.2012 06:41
Systurskipin voru aflahæst Einni lengstu humarvertíð hér á landi lauk rétt fyrir jól, að því er aflafrettir.com greina frá. Systurskipin Þórir SF og Skinney SF voru aflahæst; Þórir með tæp 320 tonn og Skinney 318 tonn. 19.1.2012 06:30
Fréttaskýring: Ágreiningur um öll grundvallaratriðin Rökræður forsvarsmanna fjórflokksins um sjávarútvegsmál í gær staðfestu að breytingar á stjórn fiskveiða verður stærsta og erfiðasta mál Alþingis í vetur. 19.1.2012 06:00
Flestir vilja koma aftur Erlendir ferðamenn dvöldu að jafnaði 10,2 nætur á Íslandi sumarið 2011 og ferðuðust langflestir, eða 79,6 prósent, á eigin vegum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í könnun sem Ferðamálastofa fékk MMR til að gera meðal erlendra ferðamanna hér á landi í fyrrasumar. 19.1.2012 05:30
FBI býður 1 milljón dollara fyrir Gerena Aðeins einn af þeim sem eru á lista FBI yfir þá tíu sem eru efstir á lista yfir eftirlýsta glæpamenn er verðlagður á eina milljón dollara, ef þannig má að orði komast. Bandaríska alríkislögreglan býður eina milljón dollara, tæplega 130 milljónir króna, fyrir upplýsingar sem leiða til handtöku Victors Manuels Gerena. 18.1.2012 23:59
Þvertekur fyrir að skila afturenda Saddam Hussein Yfirvöld í Írak heimta að fyrrverandi hermaður breska hersins skili afturenda Saddam Husseins hið fyrsta. Maðurinn gefur lítið fyrir óskir stjórnvalda í Írak. 18.1.2012 23:08
Hungraður sebrahestur bragðaði á stúlku Sebrahestur nartaði í stúlku eftir að hafa fengið að bragða á gómsætum kartöfluflögum. Vitanlega var félagi stúlkunnar með snjallsíma á lofti og náðist atvikið því á myndband. 18.1.2012 22:30
Skipstjóri Concordia segist hafa dottið í björgunarbátinn Skipstjóri skemmtiferðaskipsins Costa Concordia heldur því fram að hann hafi hrasað á þilfari skipsins og þannig dottið í björgunarbát sem ferjaði fólk á þurrt land. 18.1.2012 22:00
Ritstjóri Eyjunnar hættur Karl Th. Birgisson hefur ákveðið yfirgefa ritstjórastól Eyjunnar. Persónulegar ástæður liggja að baki ákvörðuninni og þakkar hann útgefendum og lesendum síðunnar ánægjulega samfylgd. 18.1.2012 21:57
Nærmynd af Heiðu Kristínu Heiða Kristín Helgadóttir ætlaði að verða annað hvort Bandaríkjaforseti eða forsætisráðherra Íslands. Hún stýrði Besta flokknum til sigurs í borginni en undirbýr nú Bjarta framtíð fyrir Alþingiskosningar árið 2013. 18.1.2012 21:28
Náði mynd af andliti í Norðurljósunum Hinn tuttugu og fimm ára gamli ljósmyndari, Jonathan Tucker, náði ótrúlegri mynd af Norðurljósunum á dögunum. Tucker var staddur í Kanada þegar hann tók myndina en þegar hann kom heim tók hann eftir því að andlit sést mótað í ljósunum. Myndin var tekin í Yukon en á henni sést mótað fyrir nefi, kinnum og brosandi munni í grænu ljósunum. 18.1.2012 20:00
Sigríður vill efla lýðræðið innan Þjóðkirkjunnar Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur í Grafarholti, ætlar að gefa kost á sér til embættis biskups. Hún segir að kirkjan þurfi alltaf á siðbót að halda og framundan sé mikil þörf á miklu umbótartímabili í Þjóðkirkjunni. 18.1.2012 19:30
Hleraður í hálft ár Annar höfuðpauranna í stærsta fíkniefnamáli síðasta árs var hleraður af lögreglu í rúmt hálft ár áður en hann var handtekinn í október. Hann neitaði sök við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 18.1.2012 18:30
Fíkniefnasali tekinn í Kópavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í Kópavogi í gærkvöld. Karl á þrítugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknarinnar og viðurkenndi hann að fíkniefnin, marijúana og kókaín, hefðu verið ætluð til sölu. Þá tók lögregla líka í sína vörslu töluvert af peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. 18.1.2012 18:09
Stal vöruflutningabíl fullum af vodka Atvinnulaus Rússi stal vöruflutningabíl fullum af vodka og öðru áfengi í Rússlandi nýlega en lögreglan stöðvaði hann þó áður en hann náði að taka sjúss af einni flösku. 18.1.2012 17:31
Sigríður vill verða biskup Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur í Grafarholti, ætlar að gefa kost á sér til embættis Biskups Íslands. Þetta kom fram í síðdegisútvarpinu á Rás 2 nú fyrir stundu. 18.1.2012 17:25
Nýr biskup mun taka við í lok júní Stefnt er að því að vígja nýjan biskup á prestastefnu sem fram fer um Jónsmessu í júní. Karl Sigurbjörnsson biskup hefur beðist lausnar frá embætti þann 30. júní. Kjörnefnd tekur nú til starfa vegna fyrirhugaðra biskupskosninga. Stefnt verður að því að leggja fram kjörskrá sem miðast við 1. febrúar næstkomandi, samkvæmt ákvörðun Kirkjuráðs í dag. 18.1.2012 16:24
Bæjarfulltrúar svara 100 körlum: Ofbeldi er aldrei líðandi Bæjarfulltrúar í Vestmannaeyjum hafa svarað karlmönnunum hundrað sem sendu bréf til bæjarstjóranum í Vestmannaeyjum, lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum og framkvæmdastjóra ÍBV spurningar um það kynferðisofbeldi sem framið hefur verið á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og hvaða áhrif það gæti haft á fyrirkomulag og framtíð hátíðarinnar. Í yfirlýsingu bæjarstjórnar er bréfriturum þakkaður sá áhugi "sem þeir hafa á öryggismálum á Þjóðhátíðinni í Vestmannaeyjum. Þeir segja það samfélagslega ábyrgð okkar allra að hindra að ofbeldisverk séu framin. Því erum við sammála.“ 18.1.2012 16:14
Mun semja frumvarp um staðgöngumæðrun Alþingi samþykkti í dag að fela velferðarráðherra að skipa starfshóp sem undirbýr frumvarp til laga sem heimilar staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni. Það var Ragnheiður Elín Árnadóttir sem var fyrsti flutningsmaður tillögunnar, en samkvæmt henni verður við vinnslu frumvarpsins unnið að því að tryggja í fyrsta lagi hag og réttindi barnsins, að tryggja í öðru lagi rétt, sjálfræði og velferð staðgöngumóðurinnar og fjölskyldu hennar, og að tryggja í þriðja lagi farsæla aðkomu hinna verðandi foreldra. Tillagan var samþykkt með 34 atkvæðum gegn 13. Fjórir sátu hjá. 18.1.2012 16:13
Gefa kost á sér í embætti 2. varaformanns Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði hefur ákveðið að gefa kost á sér til embættis 2. varaformanns Sjálfstæðisflokksins en kosið verður í þá stöðu í fyrsta sinn á fundi flokksráðs í lok mars. Aldís hefur verið formaður sveitarstjórnarráðs Sjálfstæðisflokksins í nokkur ár. Hún á sæti í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga auk þess að hafa verið bæjarstjóri í Hveragerði í tæp sex ár. Auk þess hefur hún gengt fjölda annarra embætta bæði heima í héraði sem utan. Auk Aldísar hefur Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, gefið kost á sér í embættið. 18.1.2012 15:47
Hundrað karlmenn spyrjast fyrir um kynferðisofbeldi á Þjóðhátíð Hundrað karlmenn hafa sent bæjarstjóranum í Vestmannaeyjum, lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum og framkvæmdastjóra ÍBV spurningar um það kynferðisofbeldi sem framið hefur verið á Þjóðhátíð ií Vestmannaeyjum og hvaða áhrif það gæti haft á fyrirkomulag og framtíð hátíðarinnar. Á meðal þeirra sem skrifa undir bréfið eru Halldór Gylfason og Jörundur Ragnarsson leikarar, Ragnar Bragason leikstjóri og Hugleikur Dagsson rithöfundur. 18.1.2012 15:08
Slæmt veður víðast hvar um landið Slæmt veður er nú víða um land. Hálka og óveður er á Hellisheiði, hálka og skafrenningur í Þrengslum og snjóþekja víða á Suðurlandi að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar. Á Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði er skafrenningur og þæfingsfærð og óveður frá Hellu og austur fyrir Vík í Mýrdal. Á Suðurnesjum er snjóþekja á flestum vegum og skafrenningur á Reykjanesbraut. 18.1.2012 14:45
Leita að Jóhanni Inga Margeirssyni Lögreglan á Akranesi, leitar að Jóhanni Inga Margeirssyni , 15 ára, sem strauk frá starfsmönnum meðferðarheimilis Barnaverndarstofu. Síðast sást hann við Keiluhöllina í Öskjuhlíð laugardaginn 14. janúar síðastliðinn. Var hann klæddur í skærgræna Adidas peysu og hvítar buxur. Drengurinn er hávaxinn, grannur með ljóst hár. Talið er að hann haldi sig á höfuðborgarsvæðinu. 18.1.2012 13:32