Fleiri fréttir

Unnið úr ábendingum varðandi ránið

Rannsóknadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er nú að vinna úr ýmsum ábendingum sem henni bárust í gær varðandi ránið í úraverslun Michelsens við Laugaveg á mánudagsmorgun, en lögregla gefur ekki upp hvort einhver hefur verið yfirheyrður.

Biðlisti í fangelsi styttist með aukinni samfélagsþjónustu

Alls bíða 368 eftir afplánun refsivistar, samkvæmt upplýsingum sem fram komu á fundi allsherjar- og menntamálanefnd með Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra í gær. Ráðherra segir að með því að fara eftir lögum sem Alþingi samþykkti um fullnustu refsingu sé hægt að fækka um 100 á biðlistanum.

Algjört minnisleysi í dómsal

Ákæruvaldið krefst átján mánaða fangelsis yfir tveimur síbrotamönnum, sem ákærðir eru fyrir vopnað rán. Mennirnir tilheyra svokölluðu Árnesgengi, en meðlimir þess voru ákærðir í sjötíu liðum eftir að hafa farið ránshendi um landið árið 2006. Þá er krafist sex til níu mánaða fangelsis yfir konu sem ákærð er fyrir hlutdeild í ráninu. Fólkið er ákært fyrir að færa mann nauðugan, með því að ógna honum með hnífum, á heimili hans og ræna þar tækjum og munum að verðmæti um tvær milljónir króna.

Hráki í gervigrasinu sýkir sár íþróttafólks

Mörg dæmi eru um að íþróttaiðkendur hafi fengið sýkingar í sár eftir að hafa dottið í gervigrasið í íþróttahúsinu Boganum á Akureyri. Ástæðan liggur í því að gervigrasið hefur ekki verið sótthreinsað eða þrifið frá því að húsið var opnað fyrir átta árum. Nú hefur verið brugðist við vandanum í samstarfi við Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra. Sigfús Ólafur Helgason, formaður íþróttafélagsins Þórs og umsjónarmaður í Boganum, benti á þetta vandamál í viðtali við N4 Sjónvarp á mánudagskvöld.

Biskup ákærður fyrir þöggun

Dr. Fortune minntist á málþinginu á kaþólskan biskup í Kansas sem var ákærður síðastliðinn föstudag fyrir að hylma yfir presti í sókn sinni sem var með hundruð barnaklámsmynda á tölvu sinni. Biskupinn, Robert Finn, er sakaður um að hafa brugðist skyldu sinni gagnvart börnum.

Bæjarstjóra sagt upp störfum

Eirnýju Valsdóttur, bæjarstjóra Voga á Vatnsleysuströnd, hefur verið sagt upp störfum og Anna Hulda Friðriksdóttir skrifstofustjóri hefur tekið við störfum um tímasakir. Þetta segir í tilkynningu frá bæjarfélaginu.

María ósátt við að hætta

Sigrún Björk Jakobsdóttir, stjórnarformaður Leikfélags Akureyrar, LA, telur að uppsögn Maríu Sigurðardóttur leikhússtjóra hafi verið gerð í fullri sátt við hana. María sendi frá sér yfirlýsingu til fjölmiðla í fyrradag þar sem fram kemur meðal annars að hún sé ósátt við að fá ekki að ljúka leikárinu. Þá segir hún að fjárhagsvandræðum leikfélagsins hafi verið haldið leyndum fyrir stjórn og leikhússtjóra, þó að útlit sé fyrir að þar sé um að kenna þekkingarskorti og reynsluleysi fremur en ásetningi.

Gerðardómi frestað á ný

Gerðardómi í deilum Norðuráls og HS orku hefur verið frestað fram í miðjan næsta mánuð. Deilan snýst um verð á orku frá fyrirtækinu, en fyrirtækin hafa tekist á fyrir gerðardómi í Svíþjóð.

Flugöryggi oft stefnt í hættu

Mikið hefur verið um það undanfarið að danskir flugmenn séu truflaðir með sterkum laser-ljósum af jörðu niðri. Samkvæmt frétt danska ríkisútvarpsins DR voru 22 slík atvik tilkynnt í síðasta mánuði.

Í lífshættu eftir hrottalega árás

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær og fyrradag fjóra menn sem grunaðir eru um að hafa gengið svo í skrokk á manni að hann var í lífshættu eftir misþyrmingarnar.

Verfall boðað í Grikklandi

Verkalýðsfélög í Grikklandi hafa boðað til verkfalls á morgunn. Meðlimir verkalýðsfélaganna eru nær tvær milljónir, helmingur alls vinnuafla Grikklands.

Fyrsta geimhöfn jarðar

Breski milljarðamæringurinn Richard Branson hefur opnað fyrstu geimhöfnina í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum. Athöfnin átti sér stað í dag og vígði Branson höfnina með því að brjóta kampavínsflösku á vegg hennar.

Níu ára ökumaður skutlaði pabba heim

Níu ára gömul stúlka var stöðvuð af lögreglunni í Michigan í gær. Þegar lögreglumaðurinn gekk að stúlkunni spurði hún hvað vandamálið væri. Hún taldi sig hafa ekið vel.

Ársfjórðungstölur Apple birtar

Tæknirisinn Apple tilkynnti í dag sölutekjur sínar fyrir síðasta ársfjórðung. Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu kom fram að fyrirtækið hefði selt 17 milljón iPhone símtæki og 11 milljón iPad spjaldtölvur.

Hillary Clinton heimsækir Líbíu

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Hillary Clinton, hefur boðið bráðabirgðastjórninni í Líbíu stuðning Bandaríkjanna.

Gríðarlegar vinsældir Twitter

Forstjóri samskiptasíðunnar Twitter tilkynnti í dag að 250 milljónir skilaboða birtist á síðunni daglega.

Íran segja samsæri skipulagt af andspyrnuhreyfingu

Yfirvöld í Íran tilkynntu í dag að einn af þeim sem sakaður er um að hafa skipulagt morðtilræðið á hendur sendiherra Sádí-Arabíu í Bandaríkjunum hafi í raun verið meðlimur í andspyrnuhreyfingunni Muhajedeen-Khalq.

Embættismenn eigi að geta átt samskipti við forsetann

Embættismenn forsætisráðuneytisins eiga að geta haft samskipti við embætti forseta Íslands án þess að þau samskipti verði túlkuð sem íhlutun í starf forseta. Þetta segir í bréfi sem Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sendi Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands.

Asnaeyru rædd á Alþingi í dag

Ákvörðun Alcoa að hætta við álver á Bakka varð tilefni snarpra orðaskipta á Alþingi í dag þar sem þingmenn ríkisstjórnarinnar tókust á um það við stjórnarandstöðuna hver hefði dregið hvern á asnaeyrunum í málinu.

Höfði opinn almenningi

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í dag að Höfði við Borgartún verði hafður almenningi til sýnis með reglubundnum hætti. Útbúið verði efni, miðað við þarfir ferðamanna, með upplýsingum um sögu hússins þar sem hlutverki þess í fundi leiðtoga Bandaríkjanna og Sovétríkjanna árið 1986 verði m.a. gerð góð skil. Sérstök áhersla verði lögð á að vernda húsið og láta það halda svipmóti sínu og virðuleika þrátt fyrir aukna notkun. Innheimtur verði aðgangseyrir, sem standa skal undir kostnaði.

Hefur þú séð Nubiu Silvu?

Lögreglan á Hvolsvelli lýsir eftir Nubiu Silva 15 ára stúlku. Nubia er um 160 cm á hæð, dökkhærð og grannvaxin. Nubia fór frá heimili sínu þann 11. október síðastliðinn. Ekki er vitað með vissu hvernig hún er klædd en lögreglan hefur upplýsingar um að hún sé á höfuðborgarsvæðinu. Þeir sem hafa upplýsingar um ferðir Nubiu eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við lögregluna á Hvolsvelli í síma 488 4110.

Blóðugur innbrotsþjófur staðinn að verki

Innbrotsþjófur var staðinn að verki við að brjótast inn á hárgreiðslustofu á Grensásveginum í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir inni á hárgreiðslustofunni en starfsfólk var ekki mætt til vinnu þegar maðurinn braust þar inn. Hann skar sig á hönd þegar hann braut gler til að komast inn á stofuna og var því blóðugur þegar lögreglumenn komu á staðinn. Maðurinn, sem er góðkunningi lögreglunnar, var í annarlegu ástandi og verður yfirheyrður síðar í dag þegar víman er runnin af honum.

Vitnaleiðslum lokið í Baugsmáli

Vitnaleiðslum í skattahluta Baugsmálsins lauk nú rétt eftir klukkan tvö í dag. Alls voru níu vitni leidd fyrir dóminn. Þar af voru fimm fyrir hádegi en fjögur nú eftir hádegi. Þeirra á meðal var Anna Þórðardóttir endurskoðandi, sem meðal annars annaðist skattframtöl fyrir Tryggva Jónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Baugs, á árunum 2000 til ársins 2002.

Snörp jarðskjálftahrina norður af Siglufirði

Snörp skjálftahrina varð norður af Siglufirði frá klukkan tíu í morgun til hálf tólf. Nokkrir skjálftar um þrír að stærð mældust á svæðinu en samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er ekki óalgengt að skjálftar mælist á þessu svæði. Engar tilkynningar hafa borist frá fólki um að skjálftarnir hafi fundist.

Michelsen býður eina milljón króna í fundarlaun

Frank Michelsen, eigandi úra- og skargripaverslunarinnar sem rænd var í gær, býður fundarlaun hverjum þeim sem geta gefið upplýsingar um ránið. Komi vísbending sem leiði til þess að málið verði upplýst og ránsfengurinn endurheimtur, fær sá hinn sami milljón króna fundarlaun. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá eigandanum.

Jón Ásgeir skipti sér ekki af skattskilunum

Stefán Hilmarsson, sem var endurskoðandi fyrir fjárfestingafélagið Gaum og Baug þegar félögin voru stofnuð, segist hafa séð um skattskýrslugerð fyrir Jón Ásgeir Jóhannesson persónulega á þeim tíma líka. Stefán bar vitni við aðalmeðferð skattahluta Baugsmálsins í morgun. Stefán sagði að hann og Ragnar Þórhallsson hafi annast framtalsgerð fyrir Jón Ásgeir Jóhannesson saman. Jón Ásgeir hafi ekki sjálfur skipt sér af þeirri framtalsgerð.

Lögreglan braut ekki lög við innkaup

,,Ég hef sannfærst um að embætti ríkislögreglustjóra hafi farið að lögum í innkaupum sínum. Sú mynd sem dregin hefur verið upp í fjölmiðlum af embættinu er ómakleg og röng. Hins vegar eru þessi mál almennt ekki í nógu góðum farvegi og því eru tilteknir þættir þeirra teknir til sérstakrar skoðunar," segir Ögmundur Jónasson innanríkisáðherra, í tilkynningu frá Innanríkisráðuneytinu, um innkaup ríkislögreglustjóra á tólum og tækjum fyrir lögregluna.

Fjögur og hálft tonn af hamborgurum seldust á 24 tímum

"Já, ég held að ég verði bara að vera heiðarlegur og segja að þetta fór fram úr okkar björtustu vonum," segir Árni Þór Árnason, framkvæmdastjóri Hópkaupa.is sem seldu yfir 40 þúsund hamborgara frá Metró á vefsíðu sinni í gær. Tilboðið var í gangi í 24 klukkutíma en með því var hægt að kaupa ostborgara á 99 krónur í staðinn fyrir 350 krónur.

Veist þú um Ólaf Þóri?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ólafi Þóri Guðjónssyni, 16 ára. Ólafur er grannvaxinn og 175 sm á hæð. Ekki er vitað um klæðaburð hans en síðast er vitað um ferðir hans í Kópavogi þann 7 október síðastliðinn. Lögreglan telur líklegt að hann geti verið á Selfossi og eru þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ólafs eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.

Ræningjarnir enn ófundnir

Ræningjarnir þrír, sem létu greipar sópa um úraverslum Michelsen við Laugaveg í Reykjavík í gærmorgun eru enn ófundnir, eftir því sem fréttastofan kemst næst.

Alvarleg kreppa í danskri kvikmyndagerð

Dönsk kvikmyndagerð er nú í alvarlegri kreppu. Hætta er á að þjóðin glati heilli kynslóð af hæfileikaríku kvikmyndagerðarfólki þar sem ekki fæst fjármagn til að gera stórar kvikmyndir í landinu.

Fjölmenni á borgarafundi í Hveragerði

Fjölmenni var á borgarafundi í Hveragerði í gærkvöldi þar sem jarðvísindamenn og talsmenn Orkuveitu Reykjavíkur fjölluðum um skjálftavirkni, sem orðið hefur vegna niðurdælingu á vatni frá Hellisheiðarvirkjun.

Lagði sig í hættu við að stela miklu af klósettpappír

Kona á miðjum aldri virðist hafa lagt sig í nokkra hættu í nánast mannskaðaroki í gærkvöldi, við að stela miklu af klósettpappír úr stórum flutningavagni, sem fauk aftan úr dráttarbíl undir Ingólfsfjalli í gærmorgun.

Synir Mubaraks áttu stórfé á leynireikningum

Stjórnvöld í Egyptalandi hafa greint frá því að fundist hafa 340 milljónir dollara, eða um 40 milljarðar kr. á leynireikningum í Sviss sem tveir synir Mubaraks fyrrum forseta landsins áttu.

Sjá næstu 50 fréttir