Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Flugfreyjunum haldið fjarri Franska blaðið Le Parisien kveðst hafa undir höndum nafnlaust bréf þar sem segir að flugfélagið Air France hafi fyrirskipað að aðeins flugþjónar en ekki flugfreyjur mættu vinna á fyrsta farrými þegar Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, væri um borð. Air France vísar þessu á bug. 5.8.2011 05:45
VÍS verður einn bakhjarla Hofs Vátryggingamiðstöð Íslands og Menningarhúsið Hof á Akureyri hafa undirritað samstarfssamning um að VÍS verði einn af bakhjörlum Hofs næstu þrjú starfsárin. 5.8.2011 05:30
200 íslenskir titlar gefnir út - langt fram úr björtustu vonum Um tvö hundruð íslenskir titlar og bækur um Ísland verða gefin út á þýska málsvæðinu í haust í tilefni af Bókamessunni í Frankfurt þar sem Ísland verður heiðursgestur. Aðstandendur Sögueyjunnar Íslands, verkefnisins um þátttökuna, segja fjöldann fara langt fram úr björtustu vonum. 5.8.2011 05:00
Varar við útbreiðslu kreppu Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, José Manuel Barroso, hefur varað við því að skuldavandi sé að breiðast út fyrir evrusvæðið. Forsetinn sendi ríkisstjórnum Evrópusambandsríkjanna bréf í gær þar sem hann kallaði eftir fullum stuðningi þeirra við evrusvæðið. 5.8.2011 04:45
Tilnefningu forsetans hafnað Öldungadeild þingsins á Haítí hafnaði nýverið ráðningu Bernards Gousse í embætti forsætisráðherra landsins. Gousse var hafnað vegna þátttöku hans í ofsóknum á hendur stuðningsmönnum Jean Bertrand Aristide, fyrrverandi forseta. 5.8.2011 04:30
Sveitarfélögin munu fá aukið hlutverk Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir viðbúið að frekari verkefni muni færast frá ríki til sveitarfélaga. Þegar rætt er um að endurskoða rekstur hins opinbera verði einnig að horfa til sveitarfélaganna; þau séu fjármögnuð með skattfé líkt og ríkissjóður. Út frá þjónustuþætti og þeirri nánd sem sveitarfélögin búi yfir sé jákvætt að flytja fleiri verkefni þangað. Hann segir að skoða verði hvort í einhverjum tilvikum sé verið að bjóða meiri þjónustu en þörf sé á. 5.8.2011 04:00
Hvítabjörn drap einn og særði fjóra Einn maður lét lífið og fjórir særðust alvarlega í árás ísbjarnar á Svalbarða í dag. Mennirnir voru Bretar en ekki er vitað hvað þeir voru að gera á þessum slóðum. Einum úr hópnum tókst að skjóta dýrið til bana. 5.8.2011 11:17
Var fullur þegar hann skrifaði undir samningana Martin Resendiz, bæjarstjóri Sunland Park í Nýju Mexíkó hefur viðurkennt að hafa verið drukkinn þegar hann skrifaði undir níu samninga við kalifornískt fyrirtæki, Synthesis. Nú hefur Synthesis lögsótt bæinn og krefur hann um eina milljón bandarískra dollara, eða um 116 milljónir íslenskra króna. 4.8.2011 23:15
Vilji til að stofna nýtt stjórnmálaafl stjórnlagaráðsfulltrúa Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri og stjórnlagaráðsfulltrúi útilokar ekki að vilji sé meðal stjórnlagaráðsfulltrúa að stofna nýtt stjórnmálaafl. Breyta þurfi vinnubrögðum í íslenskum stjórnmálum og sú umræðupólitík og sátt sem einkenndi stjórnlagaráðið sé góður grunnur til að byggja á. 4.8.2011 18:39
Hinsegin dagar hefjast í kvöld Í kvöld fer fram opnunarhátíð Hinsegin daga og hefur fjöldi sjálfboðaliða unnið hörðum höndum að undirbúningi hátíðarinnar sem haldin verður í tólfta sinn á Íslandi nú um helgina. 4.8.2011 18:15
Lést af slysförum við Hellu Litla stúlkan sem lést af slysförum norðan við Hellu á miðvikudagskvöld hét Eva Lynn Fogg. Stúlkan var flutt með þyrlu á Landspítalann í Fossvogi en var úrskurðuð látin þegar þangað kom. 4.8.2011 22:23
Lýsa eftir stolinni bifreið Lögreglan á Akureyri lýsir nú eftir bifreið, sem tilkynnt var að hefði verið stolið þann 31. júlí síðastliðinn. Bifreiðin er af gerðinni Hyundai Sonata, árgerð 1995, blágræn að lit og með bílnúmerið SY152. 4.8.2011 22:15
Rúmlega 1.200 nöfn á undirskriftalista Kvikmyndaskólans Kvikmyndaskóli Íslands hefur nú hrint af stað undirskriftasöfnun með það fyrir augum að þrýsta á stjórnvöld að gera slíkan samning við skólann að honum verði kleift að starfa áfram. Nú þegar hafa rúmlega þúsund manns ritað nafn sitt á listann. 4.8.2011 21:30
Stóraukin framleiðsla á kjúklinga- og svínakjöti Á meðan framleiðsla á lamba- og nautakjöti hefur staðið í stað hefur framleiðsla á svínakjöti tvöfaldast og á kjúklingakjöti fimmfaldast á aðeins fimmtán árum. Þetta kemur fram í riti Hagstofunnar, Ísland í tölum, sem gefið var út í dag. 4.8.2011 20:00
Blásandi borhola er Hveragerðingum hvimleið Blásandi borhola heldur vöku fyrir íbúum í Hveragerði. Magnús Þór Sigmundsson, tónlistarmaður í bænum, segir ástandið óviðunandi. Hann þurfi að ímynda sér að hávaðinn sé sjávarniður til að festa nótur á blað. 4.8.2011 19:30
Ísland heiðursgestur bókamessunnar í Frankfurt - 200 bækur þýddar Um tvö hundruð íslenskar bækur hafa verið þýddar á þýsku í tilefni af bókamessunni í Frankfurt en Ísland er heiðursgestur messunnar í ár. 4.8.2011 19:15
Forstöðumenn ríkisstofnana íhuga að stefna ríkinu Forstöðumenn ríkisstofnana íhuga að stefna ríkinu vegna tafa sem orðið hafa á, að launalækkun sem þeir tóku á sig 2008 gangi til baka. Þeir segja nýlega hækkun á launum þeirra málinu óviðkomandi, en hún kostar hið opinbera 300 milljónir á ári. 4.8.2011 18:27
Harður árekstur á Akureyri Ökumaður fólksbifreiðar var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri eftir harðan árekstur á gatnamótum Gránufélagsgötu og Glerárgötu á Akureyri um klukkan tvö í dag. 4.8.2011 16:43
Óska eftir vitnum að nauðgun í Herjólfsdal Í morgun kærði kona á þrítugsaldri kynferðisbrot sem mun hafa átt sér stað aðfaranótt mánudags á tímabilinu frá hálf tvö til tvö við hljóðskúr í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum. 4.8.2011 16:22
Flugmenn skrifuðu undir samning við Flugfélag Íslands Flugmenn hjá Flugfélagi Íslands skrifuðu undir kjarasamning við Flugfélag Íslands um tvöleytið í dag. Hafsteinn Pálsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, segir að veigamest þátturinn í nýju samningarnir lúti að starfsöryggismálum. Hann vill að öðru leyti ekki tjá sig um samningana. Atkvæði verða væntanlega greidd um nýju samningana á næstu dögum. 4.8.2011 15:57
Sækja slasaða konu Björgunarsveitamenn af Héraði eru nú á leið á Eyjabakkajökul í norðaustanverðum Vatnajökli að sækja konu sem slösuð er á ökkla. 4.8.2011 15:41
Mikil spenna við tökur á Tveir og hálfur maður Mikil spenna ríkti á tökustað á mánudag þegar tekinn var upp fyrsti þátturinn af Tveir og hálfur maður, þar sem Asthton Kutcher kom í staðinn fyrir Charlie Sheen. Dagskrárstjóri CBS sjónvarpsstöðvarinnar segir að það hefði mátt heyra saumnál detta. 4.8.2011 15:06
Konan fundin Búið er að finna bílinn RS-M06 og Magneu Guðnýju Stefánsdóttur, konuna sem auglýst var eftir fyrr í dag, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum. 4.8.2011 14:55
Obama er fimmtugur í dag Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, er fimmtugur í dag. Obama hefur átt viðburðarríkan stjórnmálaferil undanfarin ár. Hann var kjörinn forseti fyrir tveimur og hálfu ári síðan. Áður en hann tók við því embætti var hann öldungadeildarþingmaður. 4.8.2011 14:11
Bíll brann við Veiðileysu Eldur kviknaði í bíl sunnan við Veiðileysu, skammt frá Djúpavík eftir hádegi í dag. Lögreglumaður, slökkviliðsbíll og tveir sjúkrabílar eru á staðnum og var veginum lokað vegna slyssins. 4.8.2011 13:33
Íslensk hönnun á pokum til styrktar UN Women Hönnunarteymið Marandros; Katla Rós Völudóttir og Ragnar Már Nikulásson ásamt fatahönnuðinum Unu Hlín Kristjánsdóttur sem hannar undir merkinu Royal Extreme hönnuðu poka til styrktar UN Women á Íslandi. Pokarnir eru þegar komnir í sölu. Það er hlutverk UN Women á Íslandi að vekja landsmenn til umhugsunar um stöðu kvenna í fátækustu ríkjum heims og pokarnir eru ein leið til að ná til fólks. Það er ósk listamannanna að með hverjum poka sem selst aukist meðvitund landsmanna um samtökin og stöðu kvenna í þróunarlöndum og á stríðshrjáðum svæðum, en allur ágóði af pokunum rennur beint til UN Women. Una hefur vakið mikla athygli frá því að hún frumsýndi fyrstu línu sína á RFF fyrir tveimur árum og Katla Rós og Ragnar voru meðal annars tilnefnd til forsetaverðlauna nýsköpunarsjóðs á dögunum. Í tilkynningu frá UN Women segir að pokarnir séu sumarlegir og henta bæði konum og körlum. Það er ósk UN Women á Íslandi að gefa efnilegum íslenskum listamönnum tækifæri árlega til að hanna nýja poka og koma þannig list sinni á framfæri. Allur ágóði af pokunum rennur óskiptur til UN Women á Íslandi. Listamennirnir gáfu alla vinnu sína og hvetur landsnefndin alla til þess að leggja málefninu lið og kaupa sér poka. Pokarnir fást í Aurum, GK , Kiosk, Mýrinni, Kisunni og Minju. Einnig er hægt að fjárfesta í eintaki á skrifstofu UN Women á Laugavegi 42 4.8.2011 13:27
Síðasti hommi Hitlers látinn Síðasti eftirlifandi homminn sem nazistar sendu í útrýmingarbúðir er látinn í Þýskalandi. Rudolf Brazda var 98 ára. Hann var sendur í Buchenwald fangabúðirnar í ágúst árið 1942 og var þar í haldi allt til þess að bandarískir hermenn frelsuðu fangana árið 1945. Samtök samkynhneigðra í Þýskalandi tilkynntu um lát Brazdas. 4.8.2011 13:16
Leikari úr Lögregluskólanum látinn Bubba Smith, fyrrverandi stjarna úr ameríska fótboltanum og leikari er látinn. Bubba var án efa frægastur fyrir að leika lögreglumanninn Moses Hightower í Police Academy myndunum. Eftir því sem fram kemur í Los Angeles Times lést Bubba Smith á heimili sínu, en dánarorsök er ókunn. Hann var 66 ára gamall. Bubba Smith lék í sex Police Academy myndum af sjö. 4.8.2011 13:13
Einn fullorðinn og tvö börn í sjálfheldu í Úlfarsfelli Undanfarar björgunarsveita af höfuðborgarsvæðinu eru nú í Úlfarsfelli þar sem þrjár manneskjur eru í sjálfheldu í Hamrahlíð. Um er að ræða einn fullorðinn og tvö börn. 4.8.2011 13:10
Farah Fawcett í líki Barbídúkku Barbídúkkur í líki leikkonunnar Farah Fawcett eru komnar á markað erlendis. Dúkkurnar eru seldar til styrktar rannsóknum á krabbameinni en Fawcett lést úr krabbameini fyrir tveimur árum. Farah Fawcett var farsæl leikkona sem sló í gegn árið 1976 þegar hún lék í þáttunum Charlie´s Angels. Fawcett var greind með krabbamein árið 2006 og stofnaði nokkru síðar minningarsjóð sem ætlað var að fjármagna krabbameinsrannsóknir, en samkvæmt Fox news rennur söluágóði af dúkkunum í þann sjóð. Þegar Barbídúkkurnar voru hannaðar var höfð til hliðsjónar ein þekktasta ljósmyndin af Fawcettt þar sem hún er íklædd rauðum sundbol. 4.8.2011 13:06
Forstöðumenn leita til umboðsmanns Alþingis Forstöðumenn ríkisstofnana hafa leitað til umboðsmanns Alþingis vegna launaágreinings við Kjararáð, og íhuga að fara með málið fyrir dómstóla. Þeir telja hugsanlegt að ríkið sé skaðabótaskylt vegna tafa á launahækkunum. 4.8.2011 12:24
Önnur nauðgun á Þjóðhátíð kærð Tæknideild lögreglunnar á Selfossi, sem er rannsóknadeild fyrir allt Suðurland, fékk í gær aðra formlega kæru um nauðgun á þjóðhátíðinni í Vestmannaeyjum og þriðja kæran er að líkindum í burðarliðnum. 4.8.2011 12:00
Lýst eftir konu á Suðurnesjum Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Magneu Guðnýju Stefánsdóttur, til heimilis að Bragavöllum 4 í Reykjanesbæ. Magnea fór frá heimili sínu um klukkan fimm í morgun á bifreið sinni, sem er lítill svatur jeppi með skráningarnúmerið RS-M06. 4.8.2011 11:51
Ríkið greiddi fyrir flutning Sævars Ciesielski til Íslands „Okkur þótti þetta vera eðlileg ákvörðun," segir Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, um þá ákvörðun Innanríkisráðuneytisins að bera allan kostnað af því að flytja Sævar Marinó Ciesielski frá Danmörku, þar sem hann lést, til Íslands. 4.8.2011 11:34
Jón Stóri reyndi að svindla sér heim með Herjólfi Óvænt uppákoma varð við Básaskersbryggju í Vestmannaeyjum þegar Jón Stóri, sem þekktur er úr undirheimum Reykjavíkur, reyndi að svindla sér um borð í Herjólf. Jón keyrði bifreið sína framhjá röðinni og inn í Herjólf en þó hann væri sjálfur með farmiða fyrir leiðinni heim var hann ekki með miða fyrir bílinn sinn. 4.8.2011 11:01
Jörðin hafði tvö fylgitungl Tveir vísindamenn við háskólann í Santa Cruz í Kaliforníu halda því fram að fyrir milljörðum ára hafi jörðin haft tvö tungl, eitt stórt og eitt lítið. Grein um þetta eftir þá Martin Jutzi og Erik Asphaug er birt í hinu virta vísindariti Nature. 4.8.2011 10:04
Helmingi færri vildu í forsætisráðuneytið: Engin vonbrigði Ríflega tvöfalt fleiri sóttu um stöðu upplýsingafulltrúa í umhverfisráðuneytinu en í forsætisráðuneytinu þegar störfin voru auglýst. 93 sóttu um starf upplýsingafulltrúa hjá umhverfisráðuneytinu en 37 sóttu hjá forsætisráðuneytinu. Umsóknarfrestur vegna starfanna rann út sama dag hjá báðum ráðuneytum, þann 13. mars. 4.8.2011 09:56
Fatlaðir ætla yfir Vatnajökul Hópur erlendra ofurhuga ætlar að freista þess að fara í snjódrekaflug þvert yfir Vatnajökul í apríl á næsta ári. Þetta væri ekki í frásögur færandi ef þrír í hópnum væru ekki bundnir við hjólastól. 4.8.2011 09:00
Umferð hleypt á nýja akbraut á Vesturlandsvegi Umferð til suðurs hefur verið hleypt á nýja akbraut á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ, frá Þingvallavegi að Álafossvegi. Umferð til norðurs verður óbreytt á einni akrein um sinn. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að vinna hefjist aftur á svæðinu þann 8. ágúst og er áætlað að umferð verði komin á endanlegt mannvirki þann 20. ágúst. 4.8.2011 08:47
Styrkja soltin börn í Sómalíu Efnilegustu ungu skákmenn landsins munu tefla við gesti og gangandi á skákmaraþoni í Ráðhúsi Reykjavíkur um næstu helgi. Mótherjar ungmennanna munu geta borgað upphæð að eigin vali sem rennur beint í söfnun Rauða kross Íslands vegna hungursneyðarinnar í Sómalíu og öðrum löndum Austur-Afríku. 4.8.2011 08:30
Haraldur blátönn ýkti hlut sinn í sögu Danmerkur Eftir því sem fornleifauppgreftrinum í Jelling í Damörku miðar áfram verður æ ósennilegra að Haraldur blátönn hafi verið sá konungur sem kristnaði Dani. 4.8.2011 08:11
Verulega grunsamlegur ökumaður stöðvaður Það var meira en lítið misjafnt við ökumanninn, sem lögreglan í Borgarfirði stöðvaði í fyrrakvöld vegna gruns um fíkniefnaakstur. 4.8.2011 08:02
Óbreytt rennsli í Skaftá Rennslii jókst ekki í Skaftá í nótt, en búist er við hlaupi úr Eystri-Skaftárkatli í jöklinum, en hlaupið í síðustu viku var úr vestari katlinum. 4.8.2011 08:00
Endurheimti bíl úr óskilum frá Eyjum Sigurgeir Snævar Árnason varð hæstánægður í gær þegar Anna Louise Ásgeirsdóttir, frá munavörslunni í Vestmannaeyjum, kom akandi á bílnum hans upp á hlað. Hann hafði nefnilega týnt lyklinum að bílnum þegar hann var á Þjóðhátíð í Eyjum og gat því ekki komið á honum heim með Herjólfi að hátíð lokinni. 4.8.2011 08:00
Fjórða bók Stig Larsson er ekki til Eva Gabrielsson, fyrrum sambýliskona rithöfundarins Stig Larsson, segir það fjarri raunveruleikanum að Larsson hafi náð að skrifa fjórðu bók sína áður en hann lést. 4.8.2011 07:57