Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Pólverji framseldur til heimalandsins Hæstiréttur hefur staðfest ákvörðun innanríkisráðuneytisins, um að Pólverji sem hefur hlotið dóma í heimalandi sínu skuli verða framseldur þangað. Héraðsdómur hafði áður fellt ákvörðun ráðuneytisins úr gildi. 28.7.2011 10:02
SÞ dreifir matvælum til hungraðra barna í Sómalíu Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna (WFP) hóf í gær dreifingu á matvælum til bágstaddra á þurrkasvæðunum í austanverðri Afríku. 28.7.2011 09:15
Telur ekki útséð um aðra kreppu Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segist vera uggandi yfir alþjóðlegu efnahagsástandi. Hann segir að í síðustu viku hafi verið umtalsverð hætta á nýrri kreppu og ekki sjái fyrir endann á því máli enn þá. 28.7.2011 08:45
Herjólfur ferjar 300 þúsund farþega í ár Útlit er fyrir að Herjólfur ferji 300 þúsund farþega til og frá Vestmannaeyjum í ár en til samanburðar má geta þess að þessi fjöldi var einungis 120 þúsund síðasta árið sem Herjólfur tók höfn í Þorlákshöfn. 28.7.2011 08:30
Verður að auka verðmætasköpun í landinu Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir stöðuna í ríkisfjármálum slæma. Það sé grafalvarlegt að áætlanir um rekstur ríkisins á síðasta ári skuli ekki hafa náð fram að ganga, jafnvel þó þar spili innspýtingarútgjöld inn í. 28.7.2011 08:15
Fyrsta íslenska stjórnarskráin að fæðast Frumvarp að nýrri stjórnarskrá var samþykkt samhljóða á ráðsfundi stjórnlagaráðs í gær. Það verður síðan afhent Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis á morgun. 28.7.2011 08:00
Fólskuleg líkamsárás í Suðurhólum Hópi barna varð varð illa brugðið við að verða vitni að fólskulegri líkamsárás og ránstilraun á gangstíg í Suðurhólum í Reykjavík, við leiksvæði Hólabrekkuskóla í gærkvöldi. 28.7.2011 07:55
Norðmenn skipa sérstaka rannsóknarnefnd Norsk stjórnvöld hafa ákveðið að koma á fót sérstakri sjálfstæðri rannsóknarnefnd sem á að fara í saumana á því sem gerðist s.l. föstudag þegar a.m.k. 76 létu lífið í hryðjuverkaárás Anders Behring Breivik. 28.7.2011 07:42
Skipum og bátum á sjó fækkar verulega Innan við 300 skip og bátar our á sjó við landið klukkan sex í morgun, eða meira en helmingi færri en marga undanfarna daga. 28.7.2011 07:38
Landlæknisembættið flutt Aðsetur Landlæknisembættisins flyst á Barónsstíg 47, þar sem Heilsuverndarstöðin í Reykjavík var áður til húsa, þann 2. ágúst næstkomandi. 28.7.2011 07:30
Hópslagsmál glæpagengja í Esbjerg Lögreglan í Esbjerg í Danmörku handtók 16 manns í gærkvöldi eftir að gífurleg hópslagsmál brutust þar út milli tveggja stuðningshópa glæpagengja í landinu. 28.7.2011 07:29
Dópaður ökumaður tekinn fyrir hraðakstur á Geirsgötu Ökumaður var stöðvaður á 99 kílómetra hraða á Geirsgötu í nótt þar sem hámarkshraði er 50 kílómetrar. Lögreglumönnum leist ekki allskosta á ökumanninn, enda kom í ljós að hann var undir áhrifum fíkniefna. 28.7.2011 07:28
Hitabeltisstormurinn Don nálgast Texas Fjórði hitabeltisstormur fellibyljatímabylsins sækir nú í sig veðrið á Mexíkóflóa. Gefin hefur verið út stormviðvörun í Texas en reiknað er með að stormurinn nái landi þar á morgun föstudag. 28.7.2011 07:26
Almenningur í Bandaríkjunum reiður og pirraður Almenningur í Bandaríkjunum er búinn að fá upp í kok af þingmönnum sínum og mikil reiði og pirringur ríkir í nú garð þeirra. Ástæðan er deilan um skuldaþak Bandaríkjanna sem virðist vera komin í óleysanlegan hnút. 28.7.2011 07:24
Þjóðverjar og Danir eru frídagakóngar ESB Þótt að Angela Merkel kanslari Þýskalands hafi nýlega gagnrýnt lönd í Suður Evrópu fyrir að halda of marga frídaga og fara of snemma á eftirlaun kemur í ljós að það eru Þjóðverjar og Danir sem halda felsta frídaga af löndum Evrópusambandsins. 28.7.2011 07:21
Hafnsögumenn semja og aflýsa verkfalli Samningar hafa tekist milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og þeirra hafnsögumanna sem enn voru með lausa samninga. Þar með hefur boðuðu verkfalli hafnsögumanna verið aflýst en það átti að hefjast þann 4. ágúst n.k. 28.7.2011 07:17
Vilja rækta tilapíu og flúru á Suðurnesjum Tvö fyrirtæki vinna nú að því að hefja fiskeldi á Suðurnesjum og verður framleiðslan samtals um fimm þúsund tonn innan fárra ára ef hugmyndirnar ganga eftir. Einnig munu þá að minnsta kosti 110 manns vinna við þessar stöðvar. 28.7.2011 07:00
Fjórir skátar reknir fyrir kynferðisbrot gegn börnum Forsvarsmenn Bandalags íslenskra skáta (BÍS) hafa rekið fjóra menn úr hreyfingunni á undanförnum árum eftir að upp komst að þeir höfðu beitt unga skáta kynferðisofbeldi. Elsta málið er um 30 ára og það nýjasta átti sér stað í fyrra. 28.7.2011 07:00
Húsaleiga rokin upp úr öllu valdi í Vestmannaeyjum Húsaleiga í Vestmannaeyjum er rokin upp úr öllu valdi fyrir þjóðhátíðina um helgina. Fólk þarf að borga fleiri hundruð þúsunda króna fyrir íbúð eða hús yfir helgina. 28.7.2011 06:55
Sakamaður skal framseldur Sakamaður skal framseldur til Póllands, samkvæmt dómi Hæstaréttar. Maðurinn sem um ræðir á eftir að afplána refsingu sem hann var dæmdur til í heimalandi sínu fyrir líkamsárásir og hylmingu. 28.7.2011 06:45
Líklegast munu allir vökna Veðurfræðingar eru ekki öfundsverðir nú fyrir verslunarmannahelgina þegar öll spjót standa á þeim en veruleg óvissa ríkir enn um veðurhorfur næstu fjóra daga, að sögn Þorsteins V. Jónssonar veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. 28.7.2011 06:30
Bardagarnir erfiðir í brynju Riddarar og hermenn í þungum herklæðum eins og tíðkuðust á sextándu öld eyddu meira en tvöfalt meiri orku í að hreyfa sig en óvarðir menn samkvæmt nýrri rannsókn sem gerð var í Leeds-háskóla á Bretlandi. 28.7.2011 06:15
Engir saurgerlar í Nauthólsvík Umhverfismál Mælingar á saurgerlum við strandlengju Reykjavíkur sýna að sjórinn er hreinn og vel innan þeirra marka sem sett eru í reglugerðum. Vatnsgæði sjávar eru mæld á ellefu stöðum frá apríl til október. 28.7.2011 06:00
Miklar göngur sagðar í Hítará Miklar göngur voru í Hítará um síðustu helgi. Holl sem lauk veiðum á sunnudaginn náði fimmtíu löxum á land. Þeir sem tóku við ánni veiddu svo sautján laxa á fyrstu kvöldvaktinni að því er segir á vef Stangveiðifélags Reykjavíkur. 28.7.2011 05:45
Með þekktum gullsmiðum Gullsmiðurinn Kristján Eyjólfsson hefur fengið inngöngu í hin virtu bresku samtök The Goldsmiths‘ Company Directory, sem eru lokuð samtök gullsmiða í Bretlandi. Samtökin eiga rætur sínar að rekja til þrettándu aldar og eru meðlimir nú einungis þrjú hundruð. Kristján er eini Íslendingurinn í samtökunum. 28.7.2011 05:30
Kínverska lögreglan bjargar 89 börnum Kínverska lögreglan hefur á undanförnum vikum bjargað 89 börnum sem hafði verið smyglað frá Vietnam til Kína. Börnin voru á aldrinum tíu daga til nokkurra mánaða og talið að hafi átt að selja þau til ættleiðingar. 27.7.2011 21:30
Yfirlýsing ungra jafnaðarmanna vegna atburðanna í Noregi Ungir jafnaðarmenn á Íslandi gáfu í dag út yfirlýsingu vegna atburðanna í Noregi síðastliðinn föstudag. Í yfirlýsingunni segja þau árásirnar ekki aðeins vera árás á ungliðahreyfingu Verkamannaflokksins eða stjórnvöld í Noregi, heldur sé um að ræða árás á lýðræðið allt. 27.7.2011 21:00
Mörg slys rakin til slakra viðgerða á bílum Alvarlegar afleiðingar margra slysa í umferðinni má rekja til þess að ekki hafi verið rétt staðið að viðgerð á bílum. Alltof margir spara sér pening í stað þess að láta fagaðila gera við ökutæki sem uppfylla öryggiskröfur. Dauðans alvara segir maður sem rannsakað hefur umferðarslys með lögreglu og rannsóknarnefnd umferðarslysa. 27.7.2011 20:30
Framlag íslendinga jafnhátt og framlag íslenska ríkisins Á tveimur vikum hafa hátt í sjö þúsund Íslendingar safnað átján og hálfri milljón króna fyrir vannærð og sveltandi börn í Sómalíu, Keníu og Eþíópíu. Þetta jafngildir framlagi íslenska ríkisins til sama málefnis. Forsvarsmenn Unicef á Íslandi eiga ekki til orð yfir árangrinum. 27.7.2011 20:00
Reykjavíkurborg áminnt og sektuð Innanríkisráðuneytið hefur sent Reykjavíkurborg bréf þar sem þess er krafist að þriggja ára fjárhagsáætlun borgarinnar verði kynnt innan fjögurra vikna, annars verði gripið til úrræða. Staðgengill borgarstjóra segir fjármögnun málefna fatlaðra það eina sem enn eigi eftir að fullvinna. 27.7.2011 19:45
Fyrrverandi starfsmenn Kaupþings greiðiþrotabúi bankans sex milljónir Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag tvo fyrrverandi starfsmenn Kaupþings, karlmann og konu, til að greiða þrotabúi bankans um sex milljónir króna, hvor fyrir sig. 27.7.2011 18:36
Stjórnlagaráð samþykkti alla kafla samhljóða Stjórnlagaráð samþykkti samhljóða alla kafla í drögum að nýrri stjórnarskrá á síðasta fundi sínum í dag eftir rúmlega þriggja mánaða vinnu. Nú fær þjóðin orðið, sögðu fultrúar stjórnlagaráðs sem tóku lagið eftir að drögin að stjórnarskránni voru samþykkt. 27.7.2011 18:25
Norska lögreglan birtir nöfn hinna látnu Norska lögreglan birti í dag nöfn þrettán einstaklinga sem létu lífið í hryðjuverkaárásunum tveimur í Noregi síðastliðinn föstudag, en fleiri nöfn verða birt á hverju kvöldi klukkan sex á norskum tíma héðan í frá. 27.7.2011 17:51
Gera ráð fyrir að selja tæplega 600 þúsund lítra af bjór Gert er ráð fyrir að um 125 þúsund viðskiptavinir heimsæki Vínbúðirnar í vikunni sem er að líða eða 25 - 30% fleiri en vikuna á undan. Árið 2010 komu 124 þúsund viðskiptavinir sem er svipaður fjöldi og árið áður. Þá voru seldir 744 þúsund lítrar af áfengi þar af 587 þúsund lítrar af bjór. 27.7.2011 16:26
Stjórnlagaráð greiðir bratt atkvæði um frumvarpið í heild Atkvæðagreiðsla stjórnlagaráðs um frumvarp um nýja stjórnarskrá fer fram innan stundar. Afgreiðsla mála hefur gengið hratt í dag. Nú síðast var samþykktur kafli um utanríkismál og kafli um stjórnarskrárbreytingar. Í þeim fyrri er meðal annars kveðið á um að heimilt sé að gera þjóðréttarsamninga sem fela í sér framsal ríkisvalds til alþjóðlegra stofnana sem Ísland á aðild að í þágu friðar og efnahagssamvinnu. Í kafla um stjórnarskrárbreytingar segir meðal annars að þegar Alþingi hefur samþykkt frumvarp til breytinga á stjórnarskrá skuli það borið undir atkvæði allra ksoningabærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar. 27.7.2011 16:12
Yfirlögregluþjónn varar við nauðgunarlyfjum „Það er mikilvægt að leita til einhvers sem maður treystir og þekkir en ekki til næsta manns ef það er einhver sem er að bjóða fram aðstoð sína," segir Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn um það hvernig fólk eigi að bregðast við ef því er byrlað nauðgunarlyfi. 27.7.2011 16:00
Trúnaðarbrestur innan stjórnar Borgarahreyfingarinnar Alvarlegur trúnaðarbrestur hefur komið upp innan stjórnar Borgarahreyfingarinnar og skora aðrir stjórnarmenn á Guðmund Andra Skúlason að segja sig úr stjórn hreyfingarinnar. Áskorun þessi var bókuð á stjórnarfundi sem haldinn var í gær. Þar kom fram gagnrýni á meðferð Guðmundar Andra á fjármálum félagsins og formanni falið að koma bókhaldsgögnum hreyfingarinnar til endurskoðanda sem fyrst. Guðmundur Andri sendi í framhaldinu frá sér ítarlega greinargerð þar sem hann segir ásakanirnar ekki eiga við rök að styðjast, og segir að um sé að ræða góða aðför að heiðri hans. 27.7.2011 15:54
Gátlisti ökumanna fyrir helgina Nú er verslunarmannahelgin framundan og má búast við mikilli umferð um vegi landsins. Umferðarstofa óskar landsmönnum ánægjulegrar helgar og öruggrar heimkomu, en til að tryggja það sem best vill Umferðarstofa koma eftirfarandi á framfæri: Ekki fara of hratt né of hægt Ökumenn eru hvattir til að halda jöfnum hraða og fara hvorki of hratt né of hægt því með og hægum akstri eykst hættan á óþarfa framúrakstri. Ef ökumenn þurfa að fara hægar en almennur hámarkshraði segir til um eins og t.d. ökumenn sem eru með eftirvagna þá er mjög brýnt að þeir hagi akstri þannig að sem auðveldast sé fyrir aðra bíla að komast fram úr. Við framúrakstur skal þess gætt að bannað er að fara framúr yfir heila óbrotna línu sem aðskilur akstursstefnur. Minnt skal á að ökumenn með eftirvagna mega ekki fara hraðar en 80 km/klst. Lítill hópur ökumanna er í mikilli hættu Þótt öryggisbeltin hafi fyrir löngu sannað ágæti sitt og flestir ökumenn noti þau er sá litli hópur ökumanna sem ekki notar öryggisbelti hlutfallslega einn þeirra hópa vegfarenda sem eru í hvað mestri lífshættu. U.þ.b. 20% þeirra sem látast í umferðarslysum eru taldir hafa látist af völdum þess að þeir voru ekki í öryggisbeltum. Einn laus einstaklingur í bíl stofnar ekki bara eigin lífi í hættu heldur og einnig annarra sem í bílnum eru. Við árekstur eða bílveltu kastast viðkomandi til í bílnum og höggþunginn getur orðið margföld þyngd hans. Sem dæmi má nefna að ef maður sem er 75kg af þyngd lendir í árekstri á 70km hraða án bílbelta verður höggþungi hans u.þ.b. 6 tonn. Ökumenn eru hvattir til að ganga tryggilega frá farangri þannig að ekki sé hætta á að hann kastist til og valdi líkamstjóni við árekstur. Manndráp af gáleysi 20% allra banaslysa í umferðinni eru af völdum þess að ökumaður er undir áhrifum áfengis og er þá ekki meðtaldir aðrir vímugjafar. Oft eru áhrifin ekki mikil en afleiðingarnar hinsvegar mjög alvarlegar. Í flestum tilfellum eiga tryggingarfélög endurkröfurétt á ökumann sem valdur er að slysi vegna ölvunar og ef ölvaður ökumaður verður valdur að dauða einhvers er litið á það sem manndráp af gáleysi og kveðnir hafa verið upp fangelsisdómar í slíkum tilfellum. Það er mikilvægt að aðstandendur ökumanns sem hyggst aka undir áhrifum vímuefna reyni að koma í veg fyrir það. Ef það tekst ekki með góðum ráðum skal hringja í 112 og koma með því í veg fyrir að viðkomandi verði valdur að alvarlegu slysi. Það vandamál sem hugsanlega kann að skapast af því að hringt sé í lögreglu er lítilvægt borið saman við mögulegar afleiðingarnar ölvunaraksturs. Hafa skal í huga að áfengi er lengi að fara úr líkamanum og í sumum tilfellum getur þurft að bíða í 14 - 15 klukkustundir áður en áfengi er farið úr blóðinu. Slysatíðni karla og kvenna? Svo virðist sem karlkyns ökumenn séu líklegri til að viðhafa tiltekna áhættuhegðun í umferðinni en konur og nota ekki viðeigandi öryggisútbúnað. Fram kemur í slysaskýrslu Umferðarstofu fyrir árið 2010 að þá voru 44 ökumenn valdir af slysum þar sem ölvun þeirra var aðal orsök slyssins. Af þeim voru 36 karlmenn og 8 konur. Í slysatölum ársins 2010 kemur einnig fram að þeir ökumenn sem urðu valdir af slysum þar sem hraðakstur er aðal orsök voru samtals 50. Þar af voru 7 konur en 43 karlar. Af þessu má ljóst vera að töluvert fleiri karlmenn eru valdir af slysum vegna hraðaksturs og ölvunar en konur og er þessi munur margfalt meiri en sá munur sem er á fjölda karla og kvenna í umferðinni. Starfsmenn Umferðarstofu munu standa vaktina um helgina og miðla upplýsingum og leiðbeiningum til vegfarenda á Bylgjunni, Rás 1 og Rás 2. 27.7.2011 15:40
Atvinnuflugmenn samþykktu kjarasamning Atvinnuflugmenn, sem starfa hjá Icelandair Group, samþykktu nýjan kjarasamning. Kosningu um samninginn lauk í dag og var hann samþykktur með 183 atkvæðum á móti 41, en átta sátu hjá. Kjörsókn var 82%. 27.7.2011 15:07
Nýr rósagarður í Laugardalnum Nýr rósagarður hefur verið opnaður í Laugardal. Rósagarðurinn var vígður á fimmtudag í liðinni viku með viðhöfn til heiðurs Jóhanni Pálssyni, grasafræðingi og fyrrverandi garðyrkjustjóri Reykjavíkurborgar, en hann fagnaði áttræðisafmæli sínu þann dag. Rósagarðurinn nýi, sem er hluti af skrúðgarðinum í Laugardal, er samvinnuverkefni Rósaklúbbs Garðyrkjufélags Íslands, Yndisgróðurs og Reykjavíkurborgar. Rósagarðurinn er staðsettur milli Grasagarðsins og félagsheimilis KFUM og KFUK við Holtaveg. Hann er aðgengilegur frá Sunnuvegi og Holtavegi. Vígsla Rósagarðsins var í framhaldi af rósagöngu, en þar leiddi Jóhann gesti um rósasafn Grasagarðsins og fræddi fólk á ógleymanlegan hátt um rósirnar sem þar er að finna. Ríflega 120 manns sóttu viðburðinn í blíðskaparveðri, nutu fróðlegrar og skemmtilegrar leiðsagnar Jóhanns um rósirnar í Grasagarðinum og fögnuðu vígslu Rósagarðsins í Laugardal 27.7.2011 14:37
Ný grein um Hæstarétt Íslands Stjórnlagaráð hefur samþykkt 6. kafla draga um dómsvald í drögum að nýrri stjórnarskrá. Í kaflanum kemur fram ný grein um Hæstarétt Íslands þar sem segir að að hann sé æðsti dómstóll ríkisins og hafi endanlegt vald til að leysa úr öllum málum sem lögð eru fyrir dómstóla. Þó megi ákveða með lögum að sérstakur dómstóll leysi endanlega úr ágreiningi um kjarasamninga og lögmæti vinnustöðvana, þó þannig að ákvörðunum hans um refsingu verði skotið til annarra dómstóla. Í kaflanum kemur enn fremur fram að sjálfstæði dómstóla skuli tryggja með lögum og skipan ákæruvaldsins skuli ákveðin með lögum. Búast má við að atkvæðagreiðsla um frumvarpið í heild fari fram innan skamms. 27.7.2011 14:33
Ögmundur áminnir Jón Gnarr Innanríkisráðuneytið hefur sent skrifstofu borgarstjóra Reykjavíkurborgar bréf þar sem skorað er á Reykjavíkurborg að senda þriggja ára áætlun til ráðuneytisins án tafa. Í bréfinu er hótað dagsektum og stöðvun greiðsla úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga ef áætlunin verður ekki birt. 27.7.2011 14:07
Pólverji ákærður fyrir að selja Breivik hættuleg efni Pólskur maður hefur verið ákærður í heimalandi sínu fyrir að selja fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik efni í sprengju. Norska Dagbladet segir að hann sé ákærður fyrir brot gegn almannaheil. 27.7.2011 13:29
Múslima grunaði múslima Múslimar eru margir slegnir yfir því að það fyrsta sem þeim datt í hug þegar þeir fréttu af morðárásunum í Noregi var að þar væru múslimar að verki. Múslimarnir voru ekki einir um það því fréttir hafa borist af því að áður en lá fyrir að árásarmaðurinn væri ljóshærður Norðmaður urðu múslimar fyrir aðkasti á götum úti í Noregi. 27.7.2011 12:27
Sá hann grínmyndina af Múhameð? Borgarstjórinn í Kandahar í Afganistan var myrtur í sjálfsmorðssprengingu í morgun. Morðinginn hafði komið sprengjunni fyrir í vefjarhetti sínum. 27.7.2011 12:20