Fleiri fréttir

Eyjólfur Sverrisson nýr landsliðsþjálfari í Mýrarbolta

Stjórn Mýrarboltafélags Íslands hefur skrifað undir samning við Eyjólf Sverrisson um að hann þjálfi bæði landslið Íslands í mýrarbolta, karla og kvenna. Launakjör eða önnur ákvæði samningsins verða ekki gefin upp að svo stöddu.

Icelandairmálið afar sérstakt

„Þetta er afar sérstakt. Við getum alveg sagt það,“ segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair um mál konu sem hefur stefnt flugfélaginu.

Varað við hruni í Kverkfjöllum

Daglega hrynur meira og minna úr ísstálinu fyrir ofan íshellinn í Kverkfjöllum, að sögn landvarða í Sigurðarskála og getur verið stór hættulegt að vera þar á ferð. Þar varð banaslys í vor vegna hruns. Ferðamálastofa hvetur ferðaþjónustuaðila og leiðsögumenn til að brýna þessar hættur fyrir fólki á þeirra vegum og taka fullt mark á varúðaskiltum. Talið er að stór fylla kunni að hrynja úr jöklinum á hverri stundu.-

Talinn hafa barið manninn með hnúajárni

Grunur leikur á að rúmlega fertugur karlmaður hafi notað hnúajárn þegar hann réðst á mann um sextugt í Grindavík og slasaði hann aðfaranótt síðastliðins laugardags.

Verulega dregur úr umferð

Umferðin á sex mælingastöðvum út frá höfuðborgarsvæðinu, var 7,7 prósentum minni um nýliðna helgi, en um sömu helgi í fyrra, samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar.

Listmunasali smyglaði tonni af fílabeini

Listmunasali í Philadelphiu hefur verið handtekinn og ákærður fyrir að smygla tonni af útskornum fílabeinum til Bandaríkjanna. Viðskipti með fílabein eru stranglega bönnuð í Bandaríkjunum og samkvæmt alþjóðalögum.

Tax-Free afsláttur verði skýrari

Kvartanir bárust til Neytendastofu vegna svonefndra Tax-Free daga Hagkaupa. Kvartanirnar sneru að því að neytendur voru óánægðir með að fá aðeins 20,32 prósenta afslátt af vörum á Tax Free-dögum, en þeir töldu sig eiga rétt á 25,5 prósenta afslætti, sem er prósentuhlutfall virðisaukaskatts. Frá þessu er sagt á vef Neytendasamtakanna.

Miklar aurskriður kosta tíu lífið í Suður Kóreu

Að minnsta kosti tugur manna hefur farist í aurskriðum í fjallendi í Suður Kóreu. Mikið úrhelli undanfarna daga hefur valdið aurskriðum í fjalllendinu sem er í um 100 km fjarlægð austur af Seoul höfuðborg landsins.

Stór jarðskjálfti við Goðabungu

Jarðskjálfti upp á 3,2 á Rishter varð um það bil fimm kílómetra aust-suðaustur af Goðabungu í Mýrdalsjökli laust fyrir klukkan eitt í nótt.

Herjólfur væntanlega á áætlun í dag

Kvöldferðir Herjólfs voru felldar niður í gærkvöldi vegna of mikillar ölduhæðar við Landeyjahöfn. Nú hefur veður lægt og verður væntanlega siglt eftir áætlun.

Slapp ómeiddur úr bílveltu

Ungur ökumaður, sem var einn á ferð, slapp ómeiddur þegar bíll hans valt út af Skeiðavegi á móts við bæinn Kílhraun um kvöldmatarleitið í gær og valt að minnsta kosti heila veltu uns hann nam staðar á hvolfi.

Breivik undirbjó aðra hryðjuverkaárás

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik hafði skipulagt aðra hryðjuverkaárás og ætlaði sér að framkvæma hana ef hann slyppi úr fangelsi eftir árásina á Útey og sprenginguna í miðborg Óslóar sem kostaði a.m.k. 76 lífið.

Lestakerfi Osló stöðvað, sprengjusveit á staðnum

Búið er að stöðva alla umferð um stóran hluta af lestakerfi Oslóar og flytja farþega úr lestunum á brott. Búið er að rýma aðaljárnbrautarstöðina. Einnig er búið að flytja fólk úr nærliggjandi húsum.

Saka bæinn um skort á virðingu við íbúana

„Ég held að virðingarstiginn hjá bæjaryfirvöldum sé þannig að eldri borgarar og elsta hverfið sé lægst í stiganum,“ segir Hrefna Geirsdóttir, einn íbúa í Faxatúni í Garðabæ sem ósáttir eru við vaxandi umsvif í Túnahverfinu.

Var tvisvar næstum flúinn

Með stefnuyfirlýsingu sinni birti Anders Behring Breivik dagbók um athæfi sitt vikurnar fyrir hryðjuverkin. Þar lýsir Breivik vinnu sinni og frístundum meðan á smíði sprengjunnar stóð.

Húsnæðisskortur ríkir í Vestmannaeyjum

Íbúum hefur fjölgað í Vestmannaeyjum þriðja árið í röð en íbúum fækkaði sautján ár í röð þar á undan. Elliði Vignisson bæjarstjóri segir að nú sé fjöldi íbúa kominn í 4.200 manns og væri sú tala orðin mun hærri ef ekki væri fyrir að fara húsnæðisskorti í bænum.

Æskulýðsfélög vilja kynferðisbrotafagráð

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur heyrt af því að íþrótta- og æskulýðsfélög vilji að stofnað verði fagráð eða skýrar verklagsreglur settar um meðferð kynferðisbrota sem framin eru innan vébanda félaganna.

Sveiflukennt sumar hjá frjókornunum

Magn frjókorna í andrúmsloftinu í Reykjavík hefur sveiflast mikið það sem af er sumri. Um tíma leit út fyrir að frjókornamagnið myndi jafnast á við metsumarið í fyrra en síðustu daga hefur það heldur minnkað.

Aðgerðasinnar ólíkir Breivik

Sören Pind, ráðherra innflytjendamála í Danmörku, baðst í gær afsökunar á ummælum sem hann lét falla á Facebook-síðu sinni. Þar sagði hann öfgahyggju vera að aukast og nefndi hópa danskra aðgerðasinna í sömu andrá og fjöldamorð Anders Behring Breivik í Noregi, sem hann sagði "djöfullegustu ásjónu“ öfgahyggjunnar.

Atvinnulíf Flateyrar í gíslingu

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar segir í bókun frá fundi sínum í gær að það sé til skammar hvernig unnið var úr málefnum þrotabús Eyrarodda ehf. á Flateyri. Fyrirtækið Toppfiskur, sem falaðist eftir öllum eignum þrotabúsins með það fyrir augum að hefja útgerð og vinnslu á Flateyri, dró tilboð sitt til baka í síðustu viku.

Íkveikja á Patreksfirði - játningar liggja fyrir

Upptök elds, sem olli mjög miklum skemmdum á einbýlishúsi á Patreksfirði aðfararnótt mánudags síðastliðings, voru af mannavöldum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum.

Björgunaræfingar á Faxaflóa

Það var mikið um að vera á Faxaflóanum í dag þegar Landhelgisgæslan og áhöfn danska varðskipsins Knud Rasmussen æfðu björgunaraðgerðir.

Heppinn að vera á klósettinu þegar skothríðin hófst

Ungur norskur maður sem var staddur í Útey síðastliðinn föstudag segir það hafa bjargað lífi sínu að hafa verið staddur á salerninu þegar skotárásin hófst. Hann náði að flýja inn á annað salerni og sat þar af sér árásina í 90 mínútur ásamt tveimur öðrum.

Ferðir Herjólfs falla niður í kvöld

Ferðir Herjólfs falla niður í kvöld vegna veðurs og ölduhæðar milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar. Ferðirnar sem um ræðir eru klukkan 20:30 frá Eyjum annars vegar og klukkan 22:00 frá Landeyjahöfn hinsvegar.

Landsbankinn hafði ekkert samráð við Íbúðalánasjóð

Ekkert samráð var haft við Íbúðalánasjóð þegar ákveðið var að færa niður lán Landsbankans, þrátt fyrir að sjóðurinn ætti meira en 50 milljarða lánanna. Lögfræðingur sjóðsins segir að þessi lán verði ekki lækkuð nema sjóðnum verði bætt tjónið.

Lögmaður Breivik segir hann geðveikan

Anders Behring Breivik er ánægður með afleiðingar hermdarverkanna sem hann framdi á föstudag, þó hann hafi ekki búist við að geta gengið jafnlangt og raun bar vitni. Lögfræðingur hans veitti hrollvekjandi innsýn í hugarheim hans í dag.

78 látnir í flugslysi

Að minnsta kosti 78 manns létu lífið í dag þegar flugvél marrokkóska hersins hafnaði á fjalli í sunnanverðu landinu. Þremur hefur verið bjargað úr flakinu á lífi.

Drög að nýrri stjórnarskrá rædd

Síðari umræða um drög að nýrri stjórnarskrá fer nú fram í Stjórnlagaráði og hafa tveir kaflar, undirstöður og mannréttindi og náttúra, af níu nú þegar verið samþykktir í ráðinu. Nú fer fram umræða um þriðja kaflann í drögunum eða Alþingi. Búast má við að fundurinn standi þar til klukkan sjö og hefjist aftur á morgun klukkan níu.

Fjórtán ára á hundrað kílómetra hraða með fimm farþega

Fjórtán ára unglingspiltur var tekinn við akstur fólksbíls á Vesturlandsvegi í Reykjavík á þriðja tímanum á aðfararnótt mánudags. Bíll piltsins mældist á yfir 100 km hraða en með honum í ökuferðinni voru fimm vinir og/eða kunningjar á aldrinum 13-15 ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Rauði krossinn dreifði 400 tonnum af mat

Rauði krossinn dreifði um helgina 400 tonnum af matvælum til 24 þúsund manna á svæði uppreisnarmanna í Sómalíu. Næringarstöðvar og heilsugæslustöðvar Rauða krossins eru starfandi um allt landið.

Tvítugur piltur játaði kannabisræktun í Hafnarfirði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Hafnarfirði um helgina. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 40 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar, auk græðlinga. Piltur um tvítugt var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu. Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Segir falsmynd dregna upp af stöðu ríkissjóðs

"Þetta slær mig illa. Það eru nokkrar vikur síðan ríkisstjórnin gaf út þá yfirlýsingu að vegna góðrar stöðu ríkissjóðs væri hann í færum til að stórhækka bætur og styðja við gerð kjarasamninga með stórauknum útgjöldum," segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins um nýjustu fréttir af ríkisreikningi fyrir síðasta ár. Fréttablaðið greindi frá því að halli á ríkisrekstri hafi numið 123 milljörðum króna. Það er 41 milljarði meira en gert var ráð fyrir.

Safna húsbúnaði fyrir fórnarlömb mansals og vændis

Vel gengur að safna húsmunum í nýtt athvarf Stígamóta fyrir fórnarlömb mansals og vændis sem stefnt er að því að opna þann 1. september. Stígamót óskuðu á dögunum eftir húsgögnum og búnaði sem öðlast gæti framhaldsslíf í athvarfinu og hafði fjöldi fólks samband í framhaldinu. „Ég hef varla undan því að svara fólki sem vill gefa okkur," segir Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, verkefnastýra athvarfsins. „Ég er búin að fá örugglega fjörutíu tölvupósta og fjölda símtala frá fólki sem er aflögufært," segir hún og er að vonum ánægð með viðbrögðin. Meðal þess sem vantaði í hið nýja athvarf voru rúm, sængur, útvarpstæki, mottur og bækur. Stígamót fá húsnæðið afhent nú um mánaðarmótin. Allan næsta mánuð verður unnið að því að mála og koma húsnæðinu í samt lag, og þá verður tekið við fyrstu skjólstæðingunum þann 1. september. Lengi hafa staðið vonir til að Stígamót gæti opnað athvarf fyrir fórnarlömb mansals og vændis, og er nú loks komið að því. „Það er full þörf á þessu. Hér á landi er ekkert búsetuúrræði fyrir konur sem seldar eru mansali inn í kynlífsiðnaðinn. Konur sem eru í vændi, bæði íslenskar og erlendar, geta nýtt sér þetta úrræði til að segja skilið við þennan heim," segir Steinunn. Spurð hvort ekki þurfi sérstaka öryggisgæslu við athvarf sem þetta segir Steinunn að Stígamót vinni með lögreglunni að því að tryggja öryggið. Hún vísar hins vegar til þess að í sambærilegum athvörfum á Norðurlöndunum hafi það ekki verið stórt vandamál að menn ráðist að þeim í því skyni að sækja konurnar. „Það virðist vera að þessir ósvífnu glæpamenn sleppi hendinni af konunum þegar þær eru komnar í öruggt skjól," segir hún.

Trampólín fuku - varað við roki í dag

Leiðindaveðri er spáð á höfuðborgarsvæðinu í dag og er fólk minnt á að festa lausamuni eða koma þeim í skjól. Þetta á ekki síst við um trampólín en nokkur slík fuku úr görðum í umdæminu í fyrrinótt. Spáð er vaxandi suðaustanátt með rigningu, 10-18 m/s síðdegis.

Ekkert samkomulag um byggingu nýs fangelsis

Ekki tókst að ná samkomulagi um byggingu nýs fangelsis á ríkisstjórnarfundi í morgun. Fyrirfram höfðu Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra stefnt að því að reyna að ná samkomulag um byggingu fangelsisins á fundinum, en ágreiningur er um það hvernig eigi að fjármagna það. Samkvæmt upplýsingum frá innanríkisráðuneytinu er stefnt að því að taka ákvörðun um málið fyrir lok ágúst.

Tugir sýndu strokuþrælnum stuðning

Nokkrir tugir manns söfnuðust saman í friðsamlegum mótmælum við stjórnarráði í hádeginu þar sem þess var krafist að máritaníski strokuþrælllinn Mouhammade Lo verði leyft að dvelja á Íslandi á meðan mál hans er tekið fyrir í innanríkisráðuneytinu. Forsvarsmenn samtakanna No Borders, sem berjast fyrir réttindum flóttamanna, eru afar ósáttir við þá ákvörðun ráðuneytis Ögmundar Jónassonar að strokuþrælnum skuli vísað aftur til Noregs. Þar hafði Mouhammade sótt um hæli en ekki fengið svar þegar hann flúði til Íslands. Talsmenn No Borders segja að Mouhammade verði sendur í þrældóm til heimalandsins fái hann ekki hæli í Noregi. Þá gagnrýna þeir „aðför lögreglunnar gegn lögvörðum mannréttindum hans," eins og það er orðað á vef samtakanna. Mouhammde er 22 ára gamall en hann flúði hingað til lands frá Noregi þar sem hann hafði sótt um hæli en ekki fengið svar. Útlendingastofnun sem og íslenska innanríkisráðuneytið tóku á dögunum þá ákvörðun að vísa mannium úr landi og aftur til Noregs. Í tilkynningu sem No Borders sendu þá frá sér kom fram að ef maðurinn fengi ekki hæli í Noregi yrði hann sendur í þrældóm í heimalandi sínu. Er þess því krafist að hann fái hæli hér. Eftir að ákveðið var að vísa Mohammde úr landi flúði hann af Fit hostel þar sem hann dvaldi og hefur síðan farið huldu höfði. Búið er að kæra ákvörðun Útlendingastofnunar og ráðuneytisins.

Kynþáttahatari réðst á fyrrverandi kennara sinn í Grindavík

Karlmaður um fertugt réðst á fyrrverandi kennara sinn, mann um sextugt, í Grindavík um helgina og hótaði honum lífláti. Víkurfréttir segja að árásin hafi átt sér stað eftir deilur á Facebook um fjöldamorðin í Noregi. Árásin var kærð til lögreglu sem lítur málið alvarlegum augum og hefur Vísir fengið staðfest að málið sé í rannsókn þar.

Sjá næstu 50 fréttir