Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Næturfrost á hálendinu Næturfrost var víða á hálendinu í nótt og niður í byggðir á norðaustanverðu landinu. Kuldinn á hálendinu tefur fyrir að snjófannir bráðni þar af vegum, þannig að hálendisvegirnir eru lang flestir enn lokaðir. 21.6.2011 07:16
Vopnað rán í Reykjavík - ræningjans leitað Vopnað rán var framið í sólarhringsverslun í vesturhluta Reykjavíkur um klukkan hálf fjögur í nótt. Þjófurinn, sem var grímuklæddur, ógnaði starfsfólki með hnífi og hafði á brott með sér eitthvað af peningum úr peningakassanum. 21.6.2011 07:14
Segir enga þöggun um landnámskenningar Gunnar Karlsson sagnfræðingur hafnar ásökunum um að fræðasamfélagið á Íslandi einblíni á fornrit varðandi tímasetningu landnáms og þaggi niður kenningar sem gangi gegn þeim. 21.6.2011 06:15
Vilja kjörna fulltrúa burt úr stjórn OR Skil verða á milli stjórnar og eigenda Orkuveitu Reykjavíkur (OR) verði hugmyndir meirihlutans í Reykjavík að veruleika. Vilji hans stendur til þess að kjörnir fulltrúir sitji ekki í stjórn OR heldur verði ráðið í hana eftir hæfni. 21.6.2011 06:00
Iceland Express seint í 64 prósentum tilvika Iceland Express stendur sig illa í að halda áætlun miðað við helstu flugfélög í flugi um Keflavíkurflugvöll. Þetta kemur fram í tölum Isavia ohf. sem rekur íslenska flugvelli. 21.6.2011 06:00
Fyrirtækjarisi fjárfestir í íslensku vatni "Nú er fyrirtækið að fullu fjármagnað, við getum gefið í og farið í markaðssetningu af krafti. Við höfum vaxið töluvert en nú getum við fylgt því eftir á myndarlegan hátt," segir Jón Ólafsson, stofnandi og stjórnarformaður Icelandic Water Holdings. 21.6.2011 06:00
178 útskrifaðir frá Keili Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs sem hefur aðsetur á Keflavíkurflugvelli, útskrifaði samtals 178 nemendur í vor, en útskriftir fóru fram bæði í Reykjavík og á Akureyri. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Keili. 20.6.2011 16:17
FÍB ítrekar andstöðu við vegatolla Félag íslenskra bifreiðaeigenda gaf í dag út fréttatilkynningu þar sem þeir ítreka andstöðu sína við þær hugmyndir um einkavæðingu vegakerfisins og vegatolla á vegfarendur sem Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins berjast nú fyrir. 20.6.2011 15:25
Jackass-stjarna lætur lífið í bílslysi Jackass-stjarnan Ryan Dunn lést í bílslysi í gærkvöldi en þetta kemur fram á vefnum TMZ.com. 20.6.2011 15:02
Tekinn með fjögur kíló af amfetamíni Karlmaður á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til fimmta júlí næstkomandi að kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. 20.6.2011 14:44
Opnað fyrir ótakmarkaða sköpun á lénum Fyrirtækið ICANN (Internet Corporation for Assigned Names and Numbers), sem hefur um árabil séð um ýmis verkefni tengd internetinu, svo sem úthlutun IP-talna, hefur nú ákveðið að leyfa sköpun nýrra léna. 20.6.2011 14:25
Vilja að embætti umboðsmanns Alþingis verði stjórnarskrárbundið B-nefnd Stjórnlagaráðs kynnti nýjan kafla um sveitarfélög í stjórnarskrá á 13. ráðsfundi. Þar er lagt til að stjórnarskrárbinda svokallaða nálægðarreglu, en hún kveður á um að þeir þættir opinberrar þjónustu sem betur þykir fyrir komið í héraði skuli vera á hendi sveitarfélaga. 20.6.2011 14:21
Stal hundruðum lítra af díselolíu Aðfaranótt fimmtudagsins 16. júní síðastliðinn voru unnin skemmdarverk á stórri hjólaskóflu í sandnámu í landi Hrauns í Ölfusi. Allar rúður hjólaskóflunnar voru brotnar og reynt hafði verið að gangsetja hana. Jafnframt var útvarpstæki úr vinnuvélinni stolið. Ljóst er að tjónið er mikið í krónum talið. 20.6.2011 13:06
Fékk sér sundsprett við Ljósafossvirkjun Um klukkan hálf sjö á sunnudagsmorgun barst lögreglu tilkynning um tvo menn sem voru að príla utan í Ljósafossvirkjun við Úlfljótsvatn. 20.6.2011 13:02
Ferðamanni sem braust inn í sumarbústað komið undir læknishendur Erlendur ferðamaður, sem braust inn í sumarhús við Vík í Mýrdal, er nú kominn undir læknishendur í Reykjavík þar sem talið er að maðurinn eigi við geðræn vandamál að stríða. 20.6.2011 13:02
Viðbúnir öðru Múhameðsstríði Allir starfsmenn forlagsins Cappelen Damm í Osló voru í dag sendir heim til sín af öryggisástæðum. Forlagið er að senda frá sér bókina Ofríki þagnarinnar eftir danska blaðamanninn Flemming Rose. 20.6.2011 12:50
Gengur varla að fara í þriggja ára samstarf með bundið fyrir augun „Það gengur varla að fara í þetta þriggja ára samstarf með bundið fyrir augun," segir Gylfi Arnbjörnsson formaður ASÍ sem þarf að taka ákvörðun fyrir lok dags á morgun um hvort forsendur séu fyrir þriggja ára samningum eða aðfararsamningur til eins árs verði látinn gilda. 20.6.2011 12:13
Yfirkjörstjórnin í Tælandi gagnrýnd fyrir Íslandsferð Tælenskir þingmenn hafa gagnrýnt yfirkjörstjórn landsins harðlega fyrir að ferðast til Íslands og Danmerkur, þrátt fyrir að þingkosningar séu á næsta leiti í landinu. Kosið verður þann þriðja júlí næstkomandi og fjórir af fimm meðlimum yfirkjörstjórnar fóru í ferðina sem tekur fimm daga. 20.6.2011 11:28
Veit ekki enn hver tilnefndi hann Gunnlaugur Sigurðsson, sem var í morgun útnefndur Reykvíkingur ársins, segist hæstánægður með titilinn en hann hafi hinsvegar enn ekki hugmynd um það hver það var sem tilnefndi hann. Gunnlaugur var sóttur heim til sín eldsnemma í morgun og var þaðan haldið með reykvíkinginn í laxveiði í Elliðaánum þar sem hann veiddi fyrsta lax vorsins en þar með var sú hefð rofin að borgarstjóri renndi ávallt fyrstur fyrir lax við opnun ánna. 20.6.2011 11:26
Grikkir út í kuldann Niðursveifla varð á mörkuðum í Evrópu í morgun eftir að leiðtogar þjóða á evrusvæðinu frestuðu því að taka ákvörðun um 10 milljarða sterlingspunda lán til Grikklands. Niðurstaða þeirra var sú að Grikkir þyrftu að grípa til enn frekari niðurskurðar áður en hægt væri að samþykkja lánið. 20.6.2011 11:10
Medvedev ekki fram gegn Putin Dmitry Medvedev forseti Rússlands segir að hann muni ekki bjóða sig fram gegn Vladimir Putin í forsetakosningunum á næsta ári. Medvedev gaf í skyn að ekki væri búið að ákveða hvor þeirra byði sig fram. 20.6.2011 11:07
Georg Guðni látinn Georg Guðni Hauksson, listmálari, er látinn. Hann var bráðkvaddur laugardaginn 18. júní síðastliðinn. 20.6.2011 10:35
Beringssund verði næsti Panamaskurður Ólafur Ragnar Grímsson er staddur í Alaska þar sem hann flytur ræðu á setningarathöfn fjölþjóðlegrar ráðstefnu. Viðfangsefni ráðstefnunnar er að ræða nauðsyn framkvæmda og sérstakra framtíðaráætlana með tilliti til nýrra siglingaleiða sem bráðnun íss á Norðurslóðum mun innan tíðar hafa í för með sér. 20.6.2011 10:33
Mamman fékk hraðasekt en keyrði aldrei bílinn Þegar að Bandar Al Ammar, blaðamaður frá Sádí-Arabíu, sótti um að fá þjónustustúlku fyrir aldraða móður sína á dögunum, var honum tjáð af yfirvöldum að hann þyrfti fyrst að borga ógreidda hraðasekt móður sinnar áður en hann gæti lagt inn umsóknina. 20.6.2011 10:04
Þrír skotnir á kúrekasýningu Þrír bandarískir ferðamenn særðust á kúrekasýningu í Suður-Dakóta á dögunum. Mennirnir voru í hópi fólks sem var að fylgjast með sviðsettum skotbardaga í stíl Villta Vestursins. Leikararnir nota púðurskot í byssur sínar en eitthvað virðist hafa farið úrskeiðis því í miðjum bardaganum fór allt í einu að blæða úr þremur áhorfendum. 20.6.2011 09:36
Flóttamönnum fjölgar mikið Flóttamenn frá stríðshrjáðum löndum hafa ekki verið fleiri í heiminum í fimmtán ár. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Langflestir þeirra hafast við í fátækum löndum sem eru illa búin til þess að taka við fólkinu en flestir eru í pakistan, tæplega tvær milljónir, og þar á eftir koma Íran og Sýrland. Við lok síðasta árs er áætlað að 43 milljónir manna hafi verið á vergangi vegna stríðsátaka eða náttúruhamfara. Af þeirri tölu eru rúmlega helmingur börn. 20.6.2011 09:32
Eldur í mannlausum sendibíl Eldur kviknaði í mannlausum sendibíl, sem stóð í grennd við Olísstöðina norðan við Gullinbrú í Reykjavík um klukkan fjögur í nótt. Vegfarandi tilkynnti um eldinn og var bíllinn alelda þegar slökkvilið kom á vettvang. 20.6.2011 09:31
Hreinsað til í Ríó fyrir HM 2014 Brasilíska lögreglan hefur hertekið eitt stærsta fátækrahverfið í Ríó de Janeiro en til stendur að losa hverfið við glæpaklíkurnar sem þar ráða ríkjum. Aðgerðirnar eru hluti af undirbúningi landsins fyrir heimsmeistaramótið í knattspyrnu árið 2014 en hverfið er nálægt Maracana vellinum þar sem úrslitaleikurinn mun fara fram. 20.6.2011 08:20
Dottið í dúnalogn á Akureyri Allt er nú dottið í dúnalogn á Akureyri, eftir erilsama bíladaga um helgina, að sögn lögreglunnar þar. Alls þurfti að stinga hátt í tuttugu manns í steininn um helgina vegna óspekta, átaka og ölvunar. 20.6.2011 08:18
Beðið eftir ávarpi frá Sýrlandsforseta Forseti Sýrlands Bashar al-Assad mun í dag ávarpa þjóð sína í fyrsta sinn í tvo mánuði en mikil átök hafa verið í landinu á milli mótmælenda og öryggissveita forsetans. 20.6.2011 08:16
Otaði hnífi og stal sálmabókum Tveir karlmenn, sem handteknir voru í Reykjavík í gærdag eftir að hafa sýnt ofbeldistilburði, dvelja enn í fangageymslum lögreglunnar, þar sem þeir sofa úr sér fíkniefnavímu og verða yfirheyrðir í dag. 20.6.2011 08:07
Gekk í flasið á innbrotsþjófum Þegar íbúi einbýlishúss í austurborginni kom heim til sín í gærkvöldi voru þar tveir þjófar að tína þýfi í töskur, sem þeir höfðu meðferðis. 20.6.2011 08:05
Tekinn á ofsahraða á Hellisheiði Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Hellisheiði eftir að hafa mælt bílinn á 154 kílómetra hraða. Sekt fyrir tiltækið nemur 130 þúsund krónum auk þess sem ökumaðurinn missir ökuréttindi í einn mánuð. 20.6.2011 07:14
Reykvíkingur ársins renndi fyrir laxi í Elliðaánum Gunnlaugur Sigurðsson, 79 ára fyrrverandi lögreglumaður, sem útnefndur hefur verið Reykvíkingur ársins, rennir fyrstur fyrir lax í Elliðaánum en veiði hófst þar nú klukkan sjö. Þar með er rofin sú hefð að borgarstjóri renni fyrstur manna fyrir lax í Elliðaánum við opnun þeirra á vorin. Gunnlaugur var ekki lengi að ná í fyrsta laxinn eða um tíu mínútur. Gunnlaugur hefur búið í sama fjölbýlishúsinu í Fellsmúla í 40 ár og þykir dómnefnd hann hafa sýnt fagurt fordæmi fyrir fyrir góða hirðu á öllu utandyra, án þess að þiggja greiðslur fyrir, og hæfni í mannlegum samskiptum við nágranna sína. 20.6.2011 07:00
Sprautufíklar þurfa að mæta skilningi Formaður HIV-Íslands – Alnæmissamtakanna á Íslandi, Gunnlaugur Ingivaldur Grétarsson, hefur sagt af sér formennsku í félaginu. „Mér hefur ekki tekist að blása meðstjórnendum mínum í brjóst þann ákafa sem ég hef til að berjast fyrir mannréttindum HIV-smitaðra fíkla sem nota sprautubúnað,“ segir Gunnlaugur í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér. 20.6.2011 07:00
Sunnlendingar sitji við sama borð og aðrir Sveitarstjórnarfólk á Suðurlandi segir andstöðu almennings við vegtolla ekki þurfa að standa nauðsynlegum vegaframkvæmdum fyrir þrifum. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sagði að loknum fundi með aðilum vinnumarkaðarins í gær að sökum andstöðu almennings og atvinnurekenda væru ekki forsendur til að ráðast í stórframkvæmdir á grundvelli vegtolla. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, segir ótrúlegt að ekki skuli enn vera hafnar framkvæmdir við Suðurlandsveg. 20.6.2011 06:00
Bjargaði kind og lömbum úr sjálfheldu í kafasnjó "Hún brosti við mér þakklát“ segir Börkur Hrólfsson leiðsögumaður sem bjargaði kind úr sjálfheldu í kafsnjó í gær. Kindin reyndist ekki ein á ferð í vetrarríkinu fyrir austan. 19.6.2011 19:34
Ögmundur telur varhugavert að taka upp vegatolla Innanríkisráðherra telur varhugavert að taka upp vegatolla og segir gríðarlega andstöðu við það meðal fólksins í landinu. Hann fundaði með fulltrúum vinnumarkaðarins og atvinnulífsins í dag sem saka ríkið um forsendubrest í tengslum við nýju kjarasamningana. 19.6.2011 18:41
Vigdís Finnbogadóttir verðlaunuð Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseta Íslands, hlaut í dag verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta fyrir árið 2011. Verðlaunin hlýtur hún fyrir að efla og styrkja vináttu milli Íslands og Danmerkur sem ötull talsmaður menningarsamskipta þjóðanna. Forusta hennar í stjórn sjóðsins Den Nordatlantiske Brygge tryggði endurbyggingu „Bryggjunnar“ þar sem síðan hefur verið haldið á loft menningu Íslands í Kaupmannahöfn, líkt og það er orðað í tilkynningu. 19.6.2011 18:17
Ungmennin sem lýst var eftir heil á húfi Burkni Þór Berglindarson og Kolbrún Sigríður Kristjánsdóttir sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í gær eru heil á húfi, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. Ekkert hafði spurst til þeirra frá því í hádeginu á fimmtudag. 19.6.2011 17:38
Þétt umferð til Reykjavíkur Umferð til höfuðborgarinnar tók að þyngjast þegar leið á daginn og má áfram búast við talsverðri umferð um helstu umferðaræðar til og frá höfuðborgarsvæðinu, að sögn lögreglu. Margir virðist hafa notað tækifærið þar sem 17. júní bar í ár upp á föstudegi og farið út úr bænum á fimmtudaginn. Umferð í gegnum umdæmi lögreglunnar á Selfossi í dag hefur dreifst ágætlega. 19.6.2011 17:36
Áfram ósætti milli Fatah og Hamas Fyrirhugaður fundur leiðtoga Fatah og Hamas, helstu samtaka Palestínumanna, sem fram átti að fara eftir helgi hefur verið frestað. Of mikið ber í milli í deilu fylkinganna, að því er fram kemur á fréttavef breska ríkisútvarpsins BBC. Í lok apríl var greint frá því að fylkingarinar hefðu náð samkomulagi um að skipa sameiginlega bráðabirgðastjórn og halda síðan kosningar. 19.6.2011 17:30
Ásta Katrín sjálfboðaliði ársins hjá Fjölskylduhjálpinni Matthías Imsland, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands, afhenti Ástu Katrínu Vilhjálmsdóttur í dag verðlaun fyrir að vera sjálfboðaliði ársins hjá samtökunum. Um er að ræða viðurkenningu sem afhend er á hverju ári. Verðlaunin voru veitt í húsnæði Fjölskylduhjálparinnar í Eskihlíð á fjórða tímanum í dag. 19.6.2011 17:12
Hagfræðingarnir funda með þingnefnd eftir helgi „Það er verið að kanna hvenær þeir aðilar sem þarna eiga í hlut komast,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG og formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar. Hún á von á því að nefndin komi saman á þriðjudaginn til að ræða um skýrslu hagfræðinga um frumvörp Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um breytingar á stjórn fiskveiða. Verið er að athuga hvort og þá hvenær hagfræðingarnar komast og af þeim sökum hefur ekki verið boðað formlega til fundarins, að sögn Lilju. 19.6.2011 16:47
Bauluðu og hrópuðu að Amy Winehouse Fjölmiðlar í Serbíu segja tónleika bresku tónlistarkonunnar Amy Winehouse sem fram fóru í Belgrad í gærkvöldi hneyksli og söngkonunni til minnkunar. 19.6.2011 16:02