Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ferjusigling setur Noreg á annan endann Maraþonútsending norska ríkissjónvarpsins, NRK2, frá Hurtigruten, siglingu ferjunnar Nord Norge milli Bergen og Kirkenes, hefur slegið í gegn, ekki aðeins meðal Norðamanna, heldur um heim allan. Ferjan lagði upp á fimmtudag og strax fyrsta kvöldið fylgdust 1,3 milljónir manna með beinni útsendingu frá ferjunni. 19.6.2011 14:02
Vilja fund um skýrslu sérfræðinganna Fulltrúar Sjálfstæðisflokks- og Framsóknarflokks í sjávarútvegs- og landbúnarðarnefnd Alþingis hafa óskað eftir því að boðað verði til fundar í nefndinni vegna skýrslu hagfræðinga um frumvörp sjávarútvegsráðherra um breytingar á stjórn fiskveiða. Þeir vilja að höfundar skýrslu sem kynnt var í síðustu viku verði boðaðir á fundinn. 19.6.2011 13:30
Reykvíkingur ársins kynntur til leiks við opnun Elliðaánna Jón Gnarr, borgarstjóri, verður viðstaddur opnun Elliðaánna í fyrramálið klukkan 7 í boði Stangaveiðifélags Reykjavíkur sem hefur umsjón með ánum. Í ár verður hins vegar bryddað upp á þeirri nýbreytni að borgarstjóri mun ekki veiða lax í ánum. Þess í stað mun fulltrúi almennings í Reykjavík renna fyrir lax í stað borgarstjóra. 19.6.2011 13:16
Trúðu ekki að vinur þeirra væri raðmorðingi Vinir og kunningjar raðmorðingjans Hans Jürgen voru grunlausir um þá illsku sem vinur þeirra hafði að geyma. Gamall vinur raðmorðingjans Hans Jürgen S. trúði ekki sínum eigin eyrum þegar þýskir blaðamenn báru honum fregnina um að besti vinur hans væri nauðgari og raðmorðingi. 19.6.2011 12:30
Einar vill að Jón rífi kvótafrumvörpin Fyrrverandi sjávarútvegsráðherra segir að núverandi ráðherra ætti að fara niður í ráðuneyti sitt og rífa frumvörpin um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, nú þegar sérfræðingar á hans vegum hafa gagnrýnt frumvörpin harðlega. 19.6.2011 12:25
Haldið upp á Kvenréttindadaginn með margvíslegum hætti Kvenréttindadagurinn er í dag, 19. júní, og eru margir viðburðir skipulagðir víðsvegar um Reykjavík til að fagna honum. Í dag eru 96 ár liðin frá því að íslenskar konur, 40 ára og eldri, fengu langþráðan kosningarrétt og kjörgengi til Alþingis. 19.6.2011 12:14
Páfagarður aðstoðar fórnarlömb kynferðisbrota Páfagarður í Róm hyggst setja upp hjálparmiðstöð á netinu til að aðstoða fórnarlömb kynferðisbrota af hendi kirkjunnarþjóna. Þetta kemur fram á fréttasíðu BBC og er liður í viðleitni Páfagarðs til að takast á við þau hneyksli sem upp hafa komið. 19.6.2011 12:00
Breytingar á kvótakerfinu má ekki bara skoða út frá hagfræði Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, segir að breytingar á kvótakerfinu eigi ekki einungis að skoða út frá hagfræði. Einnig verði að huga að samfélagslegum breytingum. Hún hefur fulla trú á að umtalsverðar breytingar verði gerðar á kvótakerfinu. 19.6.2011 11:29
Karlar finni skömm af því að yfirgefa heimili sín Gera ætti feður sem hlaupa brott af heimilum sínum hornreka í samfélaginu, á sama hátt og drukknir ökumenn eru gerðir hornreka. Þetta segir David Cameron, forsætisráðherra Breta, í bréfi sem hann skrifaði í Sunday Telegraph. Ástæðan fyrir skrifunum er sú að í dag er feðradagur í Bretlandi. Cameron segir að feður sem hlaupa á brott eigi að finna fulla skömm af gerðum sínum. Hann segir að konur eigi ekki að þurfa að ala börn sín upp einar. 19.6.2011 11:16
Lentu í vandræðum með 444 kíló af kókaíni um borð Liðsmenn Strandgæslunnar í Buenos Aires höfuðborg Argentínu fundu 444 kíló af kókaíni um borð í lúxús seglskútu sem lent hafi í vandræðum úti fyrir ströndum landsins í gær. Skútan er skráð í Bandaríkjunum en var með spænskri áhöfn og var á leið frá La Plata til Piriapolis í Úrúgvæ þegar vél hennar bilaði. 19.6.2011 11:00
Konur fá frítt inn á Árbæjarsafnið Skyggnst verður inn í heim genginna reykvískra kvenna á 19. öld af öllum stigum þjóðfélagins á Árbæjarsafni í dag, Kvennréttindadaginn. Á þessum degi árið 1915 fengu íslenskar konur kosningarétt og af því tilefni er frítt inn fyrir konur á Árbæjarsafnið í dag. 19.6.2011 10:49
Hafnaði á skeri og lenti í sjónum Karlmaður missti stjórn á sæþotu fyrir utan Arnarnes í Garðabæ í gærkvöldi með þeim afleiðingum að hann hafnaði á skeri og lenti í sjónum. Maðurinn kom sér af sjálfsdáðum upp á skerið og sat þar fastur í rúman hálftíma. Slökkvilið og björgunarsveitir voru kallaðar út og komu manninum til bjargar. Hann reyndist ómeiddur þrátt fyrir allt. 19.6.2011 10:22
Tíu þúsund Sýrlendingar flúnir til Tyrklands Um tíu þúsund Sýrlendingar dvelja nú í flóttamannabúðum í Tyrklandi en fólkið er að flýja óróleikan í heimalandinu þar sem öryggissveitir hafa myrt hundruð mótmælenda undanfarnar vikur. 19.6.2011 10:10
Hrapaði til jarðar á flugsýningu Eins hreyfils flugvél hrapaði til jarðar á flugsýningu í Plock í miðhluta Póllands í gær. Flugmaðurinn var einn um borð í flugvélinni, sem er að gerðinni Christen Eagle II og er mjög vinsæl til að sýna alls kyns flugkúnstir. 19.6.2011 09:59
Átta í fangageymslum á Akureyri Nóttin var mjög erilsöm hjá lögreglunni á Akureyri í nótt en þar standa Bíladagar yfir. Fjöldi fólks lagði leið sína í bæinn og sátu margir að sumbli fram undir morgun. Allir átta fangageymsluklefar voru nýttir og segir varðstjóri nokkra þeirra hafa hýst fleiri en einn yfir nóttina. Eitthvað var um slagsmál og voru tveir stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. 19.6.2011 09:56
Tekinn á ofsahraða á Vesturlandsvegi Ökumaður var tekinn fyrir of hraðan akstur á Vesturlandsvegi í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi mældist bíll hans á 163 kílómetra hraða en þarna er 90 kílómetra hámarkshraði. 19.6.2011 09:54
Karlmaður fannst látinn Karlmaður um fimmtugt sem fjölmennt lið lögreglu- og björgunarsveitarmanna leitaði að í gær fannst látinn í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglunni á Hvolsvelli lítur út fyrir að maðurinn hafi orðið bráðkvaddur. 19.6.2011 09:29
Styðja rétt samkynhneigðra Sameinuðu þjóðirnar hafa nú, í fyrsta sinn í sögu sinni, lýst yfir stuðningi við réttindi samkynhneigðra. Bandaríkin, Evrópuríki og ríki Suður-Ameríku greiddu ályktun þess efnis atkvæði sitt og segja þetta mikilvæg tímamót en fulltrúar Afríkuríkja og íslamskra ríkja fordæma ályktunina. 19.6.2011 08:00
Í beinni frá Hrafnseyri fyrstir allra útvarpsmanna Hermann Gunnarsson og Þorgeir Ástavaldsson voru í beinni útsendingu á Bylgjunni frá Hrafnseyri í Arnarfirði í dag og í gær, fyrstir allra útvarpsmanna. 18.6.2011 20:17
Röð fyrir utan NASA - styttist í tónleika GusGus Á áttunda tímanum í kvöld hafði myndast dágóð röð fyrir utan NASA við Austurvöll vegna útgáfutónleika nýjustu plötu GusGus, Arabian Horse. Um er að ræða tvenna tónleika og uppselt er í forsölu á þá báða, en einhverjir miðar verða seldir í hurð. Þeir sem ekki komst á þessa tímamótatónleika geta glaðst vegna þess að fyrri tónleikarnir verða í beinni útsendingu á Vísi. Útsendingin hefst klukkan 20:30 en sjálfir tónleikarnir hefjast síðan klukkan rúmlega 21. 18.6.2011 19:58
Viðbrögð Helga Björns: Ég held að þetta sé í alvöru Allt eldvarnarkerfi Hörpu fór í gang á ellefta tímanum í gærkvöldi á miðjum tónleikum Helga Björnssonar og tvö þúsund manns þurftu að rýma tónleikasali og veitingahús. Enginn eldur hafði þó brotist út - heldur steig gufa upp úr uppþvottavél. 18.6.2011 19:51
Vill að ríki taki upp frjálsan hugbúnað Richard Stallman er umdeildur maður. Hann hefur allan sinn feril barist fyrir frjálsum hugbúnaði, lagði grunninn að GNU-Linux stýrikerfinu og boðar fagnaðarerindi tölvufrelsis víða um heim. 18.6.2011 19:45
Vann 26 milljónir í lottóinu Einn heppinn lottóspilari var með allar tölur réttar í lottóinu í kvöld og er hann rúmum 26 milljónum ríkari fyrir vikið. Vinningurinn kom á miða með tölunum 2, 21, 22, 37 og 38. Ekki kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá hvort vinningshafinn hafi verið með tölurnar í áskrift. 18.6.2011 19:35
Afdrif ofbeldismannsins býsna endaslepp Það skyti skökku við ef ofbeldismenn fengju hraðari afgreiðslu á húsnæðisvandræðum sínum en brotaþolar, segir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Hún telur að lög sem leyfi að ofbeldismenn séu fjarlægðir af heimilum sínum hefðu gagnast betur ef þeir fengju strax meðferð við sinni ofbeldishneigð. 18.6.2011 18:57
Hundar sem réðust á konu aflífaðir Hundarnir sem réðust á konu í Reykjanesbæ í lok síðasta mánaðar voru aflífaðir í gær ásamt fleiri hundum sem voru í umsjá eiganda þeirra. 18.6.2011 18:42
Eldur í potti Talsverður viðbúnaður var hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins á sjötta tímanum í dag þegar tilkynning barst um eld í íbúðum aldraðra í Mörkinni við Suðurlandsbraut. Skömmu síðar kom í ljós kom að um var að ræða eld í potti á eldavél í einni íbúð. Í framhaldinu var flestum bílum snúið við. Einhver reykur var í umræddri íbúð en allt lítið út fyrir að ekki hafi orðið neitt tjón. 18.6.2011 18:13
Vill sjá hausa fjúka „Í ríkisstjórnum þar sem menn gerðu faglegar kröfur og kysu gagnsæ vinnubrögð væru hausar farnir að fjúka, eftir þá útreið sem sjávarútvegsstefna ríkisstjórnarinnar hefur fengið," segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um skýrslu hagfræðinga um kvótfrumvarp ríkisstjórnarinnar. Sérfræðinganefndin gagnrýnir frumvarp núverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jóns Bjarnasonar, um breytingar á stjórn fiskveiða harðlega. Frumvarpið geri nýliðun í greininni erfiða og álögur á útgerðina verði of miklar, að mati sérfræðinganna. 18.6.2011 17:48
Þingkonan sem var skotin í höfuðið heimsækir heimaborgina Bandaríska þingkonan Gabrielle Giffords sem skotin var í höfuðið í Arizona í janúar heimsækir um helgina borgina Tucson í fyrsta sinn eftir ráðist var á hana. Hún hefur dvalið á sjúkrastofnun í Houston að undanförnu og náð merkilega miklum framförum þó enn sé nokkuð í að hún nái fullum bata. Giffords var útskrifuð þaðan á miðvikudaginn. 18.6.2011 16:32
Flugmenn valda vonbrigðum Icelandair lýsir yfir vonbrigðum með að Félag íslenskra atvinnuflugmanna hafi boðað til verkfallsaðgerða í formi yfirvinnubanns þrátt fyrir að flugfélagið hafi boðið flugmönnum sambærilegar launahækkanir og aðrir í samfélaginu hafa samið um að undanförnu, þar á meðal aðrir starfshópar Icelandair. 18.6.2011 15:23
Stjórnvöld virði störf kennara Skólameistari Menntaskólans á Akureyri segir mikilvægt að stjórnvöld meti og virði störf kennara því rannsóknir sýni að öflugt skólastarf sé langbesta forvörnin gegn rótleysi og lífsfirringu. Hann fagnar að náðst hafi kjarasamningur milli ríkis og kennara. Þetta er meðal þess sem fram kom í ræðu Jóns Más Héðinssonar, skólameistara, þegar Menntaskólanum á Akureyri var slitið 131. sinn í dag. 18.6.2011 15:11
Lýst eftir pilti og stúlku Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Burkna Þór Berglindarsyni og Kolbrúnu Sigríði Kristjánsdóttur en ekki er vitað um ferðir þeirra frá því í hádeginu á fimmtudag þegar þau voru í Árbæjarhverfi. 18.6.2011 14:39
Bera börur og safna áheitum Hópur ungmenna frá björgunarsveit Suðurnesja gengur nú meðfram Reykjanesbraut með níðþungur börur en hópurinn lagði af stað í morgun frá samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð í Reykjavík. 18.6.2011 14:30
Hugh Hefner ekki lengi að jafna sig - tvíburar fluttir inn Svo virðist sem að Hugh Hefner, stofnandi Playboy tímaritsins, ætli ekki að eyða miklum tíma í að sleikja sárin eftir að fyrrverandi unnusta hans hætti við að giftast honum því Hefner bauð tvíburum að flytja inn á Playboy-setrið í hennar stað. Samkvæmt erlendum fjölmiðlum eru systurnar Karissa og Kristina Shannon nú þegar fluttar inn. 18.6.2011 14:00
Blómsveigur lagður á leiði Bríetar Elsa Hrafnhildur Yeoman, forseti borgarstjórnar, mun leggja blómsveig á leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, kvenréttindakonu og bæjarfulltrúa, í Hólavallakirkjugarði til að heiðra minningu baráttukvenna fyrir kvenfrelsi á á morgun Kvenréttindadaginn. Athöfnin hefst klukkan 14:30. 18.6.2011 13:43
Flugmenn samþykkja yfirvinnubann Flugmenn Icelandair hafa samþykkt yfirvinnubann sem hefst næstkomandi föstudag verði ekki búið að semja við þá um kjarabætur. Boðað yfirvinnubann þýðir að forfallist flugmaður kemur enginn sjálfkrafa í staðinn. Bannið kemur því til með að hafa áhrif á flugferðir Icelandair. 18.6.2011 13:24
Lýst eftir 15 ára stúlku Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir 15 ára stúlku, Kolbrúnu Sigríði Kristjánsdóttur. Kolbrún fór að heiman í Árbæjarhverfi síðastliðinn fimmtudag klukkan tólf á hádegi klædd í skærgræna íþróttapeysu, gráar íþróttabuxur og gráa íþróttaskó. Kolbrún er 168 cm að hæð, um 70 kg og með rautt sítt hár. 18.6.2011 13:11
Kvartaði sáran undan handjárnunum Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, kvartaði sáran undan handjárnum sem honum var gert að hafa fyrir aftan bak þegar hann var handtekinn í síðasta mánuði. Hann sagði þau of þröng. Daginn eftir handtökuna bað hann um egg í fangelsinu. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslum sem hafa verið opinberaðar um handtökuna. 18.6.2011 13:02
Snjóvarnargirðing ver kálgarð fyrir kanínum Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stendur í sumar fyrir könnun á kanínustofni borgarinnar. Er vonast til þess að í haust liggi fyrir nægar upplýsingar til að skipuleggja aðgerðir til að stemma stigu við fjölgun og útbreiðslu stofnsins. Villtum kanínum hefur fjölgað mikið undanfarin ár og ekki eru allir sáttir við tilvist þeirra. 18.6.2011 13:00
Sérfræðingahópur Jóns gagnrýnir kvótafrumvarpið Fimm manna sérfræðinganefnd sjávarútvegsráðherra gagnrýnir frumvarp ráðherrans um breytingar á stjórn fiskveiða harðlega. Frumvarpið geri nýliðun í greininni erfiða og álögur á útgerðina verði of miklar. 18.6.2011 12:34
Ekki vísbendingar um frekari óróa Jarðskjálftahrina varð í Geitlandsjökli í sunnanverðum Langjökli um klukkan átta í morgun. Jarðskjálftahrinan stóð yfir í um 15 mínútur og mældust stærstu skjálftarnir rúmlega þrjú stig á richter. Sigþrúður Ármannsdóttir, landfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir skjálftana þó ekki hafa verið marga eða um tíu talsins. 18.6.2011 12:31
Konan töluvert slösuð Átta manns slösuðust í alvarlegu umferðarslysi á Reykjanesbraut í gærkvöldi. Ökumaðurinn sem olli slysinu er grunaður um ölvunarakstur. 18.6.2011 12:26
Kjarasamningar í uppnámi Svo gæti farið að kjarasamningar, sem náðust eftir margra mánaða viðræður, verði hleypt í uppnám í næstu viku vegna aðgerða sem ríkisstjórnin lofaði en aðilar vinnumarkaðarins telja hana ekki hafa efnt. 18.6.2011 12:14
Ófreskjan frá Kiel játar á sig fimm morð Ófreskjan frá Kiel, raðmorðinginn Hans-Jürgen S., sem var handtekinn í byrjun apríl njósnaði um ungar stúlkur í bíl sínum, beið eftir rétta tækifærinu og myrti þær síðan. Tæp 30 ár eru frá því Hans varð síðasta fórnarlambi sínu að bana. DNA sýni kom lögreglunni á sporið. 18.6.2011 11:36
Bandaríkjamenn ræða um frið við talíbana Bandaríkjamenn eiga í friðarviðræðum við talíbana í Afganistan. „Friðarviðræður eru hafnar og þeim miðar vel. Erlendar hersveitir taka þátt í viðræðunum og þá einkum Bandaríkjamenn sem leiða þær,“ sagði Hamid Karzai, forseti Afganistans, á blaðamannafundi í morgun. 18.6.2011 11:11
Harpa rýmd í miðjum tónleikum Helga Björns Hátt í 2000 manns þurftu að yfirgefa Hörpu í hasti í gærkvöldi, á meðan tónleikarnir Dægurperlur Helga Björns stóðu sem hæst í Eldborgarsalnum, þegar brunavarnarkerfi hússins fór í gang. 18.6.2011 10:18