Fleiri fréttir

Vita hvar ágreiningurinn er

Forystumenn Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins funduðu með stjórnvöldum um áherslur í kjarasamningum í dag.

Uppselt á Eagles í forsölu

Allir miðar í forsölu á tónleika Eagles seldust upp á rúmum hálftíma. Opnað var fyrir forsölu N1 í gegn um midi.is klukkan tíu í morgun. Alls voru fimm þúsund miðar í boði, 2500 miðar á hvort svæði. Allir miðar á svæði A seldust upp á um tíu mínútum en miðar á svæði B voru uppseldir um hálftíma síðar. Áætlað er að um 6-8 þúsund manns hafi á einum tímapunkti reynt að kaupa miða samtímis og stóðst sölukerfi Miða.is álagið mjög vel; allt gekk snurðulaust fyrir sig og allar sölur gengu hratt í gegn. Almenn miðasala hefst á morgun kl. 11 á Miði.is og verða þá aðrir 5 þúsund miðar í boði, þeir allra síðustu.

Svanurinn þekktasta umhverfismerkið

Norræna umhverfismerkið Svanurinn er lang þekktasta umhverfismerkið á Íslandi. Þetta er niðurstaða könnunar um umhverfis- og neytendamerki sem Capacent Gallup gerði í desembermánuði. Þegar þátttakendur voru beðnir um nefna eitthvert umhverfismerki sem þeir könnuðust við þá nefndu 45% aðspurðra Svaninn en innan við 6% nefndu þau umhverfismerki sem næst komu í röðinni. Í sambærilegri könnun frá 2009 nefndu 28% Svaninn. Af þessu má sjá að Svanurinn er ekki einungis það merki sem er neytendum efst í huga heldur styrkir hann einnig stöðu sína verulega milli ára. Þegar þátttakendum könnunarinnar var sýnt merki Svansins sögðust 73% þekkja það og þegar spurt var hvaða merki tengir þú við umhverfisvernd nefndu langflestir Svaninn eða 79%. Svanurinn virðist einnig hafa bætt mjög ímynd sína og almenningshylli milli ára því árið 2009 sögðu 8% aðspurðra að þeim líkaði við Svaninn en 2010 er þetta hlutfall komið í 46%. Hlutfallið hækkar því rúmlega fimmfalt á milli ára. En jafnframt því að gera kröfu um minni umhverfisáhrif, er einnig gerð krafa um virkni og gæði vottaðrar vöru eða þjónustu. Á Íslandi bera nú 14 aðilar umhverfisvottun Svansins en það eru prentsmiðjurnar Guðjón Ó, Oddi, Svansprent, Ísafold og Háskólaprent; ræstingarþjónusturnar Sólarræsting, ISS, Hreint, Nostra og AÞ-þrif; iðnaðarhreinsiefni frá Undra, Farfuglaheimilið í Laugardag og á Vesturgötu og kaffihús Kaffitárs. Nánar má lesa um Svaninn á svanurinn.is.

Dýrin þjást líka í Japan - vildi ekki yfirgefa félaga sinn

Japanskir myndatökumenn gengu í gær fram á tvo hunda í rústunum í Japan þegar þeir voru að mynda hinar hrikalegu afleiðingar jarðskjálftans á föstudag og flóðbylgjunnar sem fylgdi í kjölfarið. Annar hundurinn er greinilega særður en félagi hans neitar að yfirgefa hann og situr hjá honum hundtryggur.

Reynt að lokka stelpur með nammi - sjötta málið á stuttum tíma

Menn á litlum dökkgráum bíl buðu tveimur tíu ára stúlkum sælgæti gegn því að þær kæmu upp í bíl með sér um miðjan dag í gær. Atvikið átti sér stað á Breiðvangi í Hafnarfirði, við Engjadalsskóla. Stúlkurnar hlupu í burtu, sem lögreglan segir hárrétt viðbrögð. Málið var tilkynnt til lögreglu og hafa nú alls sex tilkynningar borist á síðustu tveimur vikum um menn sem bjóða börnum upp í bíl til sín.

Kona fær dvalarleyfi þrátt fyrir synjun Útlendingastofnunar

Héraðsdómur hefur fellt úr gildi úrskurð dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins frá 14. desember 2009 um að synja konu um dvalarleyfi hér á landi á grundvelli þess að hún hafði stofnað til málamyndahjúskapar með íslenskum karlmanni. Með úrskurði sínum hafði ráðuneytið staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar.

Dregur úr geislun á ný og starfsmenn snúa aftur

Starfsmenn í Fukushima kjarnorkuverinu sem hafa reynt að kæla kjarnakljúfa þess síðustu daga hafa snúið aftur í verið eftir að hafa þurft að yfirgefa það í nótt þegar eldur varð þar laus og geislavirknin jókst til muna. Stjórnvöld segja nú að dregið hafi úr geisluninni á ný þannig að hún sé nú undir hættumörkum á svæðinu í kringum verið.

Funda með ríkisstjórninni

Fulltrúar aðilar vinnumarkaðarins mættu á fund leiðtoga ríkisstjórnarinnar um klukkan níu í morgun. Á fundinum stendur til að ræða þátt stjórnvalda í gerð kjarasamninga sem standa lausir. Bæði forseti Alþýðusambands Íslands og forystumenn Samtaka atvinnulífsins hafa lagt gríðarlega áherslu á það að ríkisstjórnin taki þátt í því að efla atvinnulífið.

Stýrivextir haldast óbreyttir

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana verða áfram 3,25%, hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum 4,0%, vextir á lánum gegn veði til sjö daga 4,25% og daglánavextir 5,25%. Verðbólga mælist nú 1,9% og er útlit fyrir að hún verði heldur meiri á næstunni en áður hafði verið spáð, þrátt fyrir vísbendingar um veikari efnahagsumsvif. Þetta kemur fram á vef Seðlabankans.

Elti innbrotsþjóf með öxi og Rottweiler-tík

"Adrenalínið tók völdin,“ segir Lúðvík Kjartan Kristjánsson, sem um þarsíðustu helgi elti tvo innbrotsþjófa frá Veiðiportinu á Grandagarði. Tíkin París lék aðalhlutverk er Lúðvík handsamaði annan þjófinn. Hann slapp þó aftur fyrir vangá öryggisvarðar sem beindi athygli lögreglu að Lúðvíki, sem bar öxi í eltingarleiknum.

Þeir skapstyggu lifa lengur en glaðlyndir

Umfangsmikil bandarísk rannsókn sem hófst árið 1921 og hefur staðið fram á okkar daga hefur leitt í ljós að það borgar sig að vera höstugur, eða skapstyggur, fremur en glaðlyndur ef maður vill lifa lengur.

Hersveitir Gaddafi halda sókn sinni áfram

Á meðan Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna deilir um hvort setja eigi flugbann á Líbýu eða ekki halda hersveitir Gaddafi einræðisherra landsins áfram sókn sinni gegn uppreisnarmönnum.

Eldur aftur laus í Fukushima kjarnorkuverinu

Eldur varð laus í kjarnakljúfi 4 í Fukushima kjarnorkuverinu í nótt en þetta er í annað sinn á tveimur dögum sem eldur blossar upp í þessum kjarnkljúfi.

Hafa játað á sig 75 innbrot

Þrír menn, tveir sautján ára og einn 23 ára, hafa verið ákærðir fyrir innbrot á 75 heimili, langflest á bilinu frá október í fyrra og til áramóta. Þegar mennirnir létu mest að sér kveða, í október og nóvember, voru þeir að verki í drjúgum hluta allra innbrota í heimahús á höfuðborgarsvæðinu.

Langur kafli ævinnar að baki

Þórir Sigurbjörnsson, kaupmaður í versluninni Vísi við Laugaveg, afgreiddi viðskiptavini sína í síðasta sinn í gær. Hann ætlar að setjast í helgan stein eftir langa vakt.

Höfnuðu tillögu um að hætta við

Sjálfstæðismenn í borgarstjórn Reykjavíkur kölluðu eftir því, á borgarstjórnarfundi í gær, að fyrirhugaðar sameiningar skóla yrðu dregnar til baka. Tillagan var felld með atkvæðum meirihlutans.

Stjórnlagaráð geti starfað til loka júlí

Róbert Marshall, formaður allsherjarnefndar, lagði í gær fram breytingartillögu við þingsályktunartillögu um skipan stjórnlagaráðs, þess efnis að ráðið geti starfað til loka júlí. Í upphaflegu tillögunni er gert ráð fyrir að stjórnlagaráð skili af sér frumvarpi fyrir lok júní.

Herlög gengin í gildi í Barein

Konungurinn í Barein hefur lýst yfir þriggja mánaða neyðarástandi í landinu. Jafnframt fær yfirmaður hersins víðtæk völd til að berja niður mótmæli, sem sjía-múslimar í landinu hafa verið í forystu fyrir undanfarnar vikur.

Vilja koma repúblikönum frá völdum

Þrátt fyrir að Scott Walker, ríkisstjóri Wisconsin, hafi komið umdeildum lögum um samningsrétt í gegnum ríkisþingið fyrir helgi er málinu ekki lokið.

Geislamengun lak úr kjarnorkuverinu

Sjötugri konu var bjargað úr rústum heimilis hennar í hafnarborginni Otsuchi í Japan í gær, fjórum dögum eftir að flóðbylgja svipti húsinu af grunni síðastliðinn föstudag.

Utankjörfundur hefst á morgun

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna þjóðaratkvæðagreiðslu, um framtíðargildi laga um Icesavesamninginn sem fram fer 9. apríl 2011 hefst á morgun og fer fram í öllum sendiráðum Íslands erlendis og aðalræðisskrifstofum Íslands í New York, Winnipeg, og Þórshöfn í Færeyjum. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar eftir samkomulagi hjá kjörræðismönnum Íslands erlendis, samanber meðfylgjandi lista.

Alþingi sendir samúðarkveðjur til Japans

Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sendi í gær Takahiro Yokomichi, forseta japanska þingsins, og japönsku þjóðinni samúðarkveðjur sínar og Alþingis.

Jón Gnarr í Vín á meðan sameining í skólakerfinu er rædd

Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, er staddur í Vínarborg í Austurríki þar sem hann er á ráðstefnu að kynna hugmyndina á bak við Besta flokkinn. Vegna þessa er Jón ekki viðstaddur umræður sem nú standa yfir á fundi borgarstjórnar um niðurskurð í menntamálum.

Neyðarástandi lýst yfir í Barein

Stjórnvöld í eyríkinu Barein hafa lýst yfir neyðarástandi í landinu sem tekur gildi þegar í stað og verður í gildi næstu þrjá mánuði hið minnsta. Mikil mótmæli hafa verið í landinu síðustu vikur og óróinn jókst í gær þegar erlendar hersveitir, meðal annars frá Sádi Arabíu voru fluttar til landsins að beiðni stjórnvalda.

Þegar farinn að skrifa handritið

Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi hefur ráðið Ottó Geir Borg til þess að skrifa handritið að bókinni "Ég man þig" eftir Yrsu Sigurðardóttur. Ottó er þegar byrjaður að skrifa handritið og Sigurjón er vongóður um að tökur geti hafist fljótlega. Hann segir vel koma til greina að taka myndina upp á Hesteyri, þar sem sagan gerist.

Valitor segir ábyrgðina liggja hjá söluaðila

"Það er frumskilyrði söluaðila í öllum greiðslukortaviðskiptum að sannreyna að réttur korthafi framkvæmi viðskiptin. Ef söluaðili er í vafa um hvort um réttan korthafa sé að ræða, getur hann leitað til þjónustuvers Valitor til að grennslast fyrir um hvort upplýsingar um nafn, heimilisfang, símanúmer og útgáfubanka kortsins komi heim og saman við þær upplýsingar sem söluaðili hefur fengið hjá kaupanda og þannig komið í veg fyrir að óprúttnir aðiliar svíki út vörur. Meginreglan er alltaf sú að fara að öllu með gát. "

Obama og Rassmussen: Gaddafí verður að fara

Barack Obama forseti Bandaríkjanna og Lars Lökke Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur ítrekuðu báðir í dag kröfu sína um að Moammar Gaddafi yrði að láta af völdum í Lýbíu.

Hagfræðingur segir gjaldþrot blasa við ef Icesave verður samþykkt

Með því að samþykkja Icesave má kaupa tíma til að endurskipuleggja hagkerfið og endurfjármögnun erlendra lána sme brátt eru á gjalddaga yrði auðveldari til skamms tíma. En það yrði þá líka kraftaverki líkast ef ríkissjóður færi ekki í greiðsluþrot nokkrum árum síðar, segir Ólafur Margeirsson, doktorsnemi í hagfræði við Exeter háskólann. Ólafur hefur skrifaði ítarlega greinagerð um Icesave sem hann birtir á fréttavefnum Pressunni.

Fundir stjórnlagaráðs verði opnir almenningi

Til stendur að hafa fundi stjórnlagaráðs opna samkvæmt breytingartillögu við þingsályktun um ráðið sem tekin verður til annarrar umræðu á Alþingi í dag. Samkvæmt henni eiga 25 stjórnlagaþingsfulltrúar að kjósa formann úr sínum hópi.

Minni hætta vegna geislavirkni en talið var

Niðurstöður mælinga á geislavirkni við Fukushima kjarnorkuverið í Japan benda ekki til að um víðtæka alvarlega geislamengun hafi verið að ræða, eða verði að ræða, og svæði þar sem heilsufarslegrar áhættu gætir sé mjög takmarkað. Þetta kemur fram í frétt á vef Geislavarna ríkisins.

Atlantsolía lækkar bensínlítrann um þrjár krónur

Atlantsolía lækkaði verðið á eldsneyti í dag vegna breytinga á heimsmarkaðsverði. Bensínlítrinn lækkar um þrjár krónur og kostar 227,70 krónur og dísellítrinn lækkar um tvær krónur og kostar 233,80.

Spyr hvað það kostar ríkið að hækka skattleysismörk

Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram fyrirspurn til fjármálaráðherra þar sem hún óskar eftir upplýsingum um hversu mikið tekjur ríkissjóðs myndu dragast saman ef skattleysismörk yrðu hækkuð.

Beina nýju munntóbaki að ungmennum

Til stóð að markaðssetja nýja tegund af skrotóbaki, sem er einskonar munntóbak, hér á landi. Markaðssetningunni er víðast beint að ungu fólki þar sem efnið er bragðbætt. Hjá Lýðheilsustofnun fengust þær upplýsingar að í það minnsta eitt fyrirtæki hafi verið farið að huga að innflutningi á efninu hér á landi.

Tveir fundust á lífi í rústunum

Tveimur var bjargað úr rústum í Japan í morgun, fjórum dögum eftir jarðskjálftann sem reið þar yfir á föstudag og flóðbylgjuna sem kom í kjölfarið. Sjötug kona fannst á lífi í bænum Otsuchi í Iwate héraði sem fór illa út úr skjálftanum. Konan hafði ofkælst en er ekki í lífshættu. Þá var manni bjargað í bænum Ishimaki í Miyagi héraði en þar færði flóðbylgjan allt á kaf. Um 2000 lík fundust í héraðinu í gær.

Sigurjón Sighvatsson vill kvikmynda bók Yrsu

Sigurjón Sighvatsson hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn á metsölubók Yrsu Sigurðardóttur, Ég man þig, sem var ein mest selda bók liðins árs og situr nú í efsta sæti Bóksölulistans.

Varð fyrir barðinu á kortasvindlurum - ósattur við Valitor

Vörur fyrir um eina milljón króna voru keyptar með stolnum greiðslukortum í gegn um netverslunina Eldhaf.is sem er á vegum endursöluaðila Apple á Norðurlandi. Guðmundur Ómarsson, eigandi Eldhafs ehf,, er ósáttur við greiðslukerfi kortafyrirtækisins Valitor sem neitar að bæta honum skaðann.

Mikið af makrílseiðum á loðnumiðunum

Sjómenn á loðnuskipum, sem nú eru að ljúka vertíðinni, segjast hafa orðið varir við mikið af makrílseiðum í aflanum í vetur, nokkuð sem hefur vart sést áður.

Sjá næstu 50 fréttir