Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rændi skóm og faldi þá undir brjóstunum á sér Brjóstgóð kona hélt að hún kæmist upp með að stela skópari með því að fela skóna undir brjóstunum á sér. Öryggismyndavélar hjá útsölumarkaðinum Beall´s Outlet í Flórídafylki Bandaríkjanna komu þó upp um þjófinn. 30.12.2010 20:00
Jóhanna gefur Steingrími svigrúm til að róa órólegu deildina Forsætisráðherra er þess fullviss að ríkisstjórnin nái að klára erfið mál eins og Icesave í þinginu þrátt fyrir hjásetu órólegu deildarinnar í VG, enda sé hún með meirihluta. Hún vill gefa Steingrími frið til að laga ástandið í eigin flokki. 30.12.2010 18:55
Segir ekkert óeðlilegt að ráðherra hafi skoðun á rekstri sakamála Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, segir ekkert óeðlilegt við að hann sem ráðherra dómsmála hafi skoðun á rekstri sakamála fyrir dómstólum, en formaður lögmannafélagsins hefur gagnrýnt ráðherrann fyrir óeðlileg afskipti. 30.12.2010 18:45
Lögreglan leitar karlmanns og sex ára sonar hans Lögreglan á Selfossi lýsir eftir Herði Ársæli Ólafssyni sem ætlað er að sé á bifreiðinni OX-987, sem er af gerðinni Hyundai Sonata, dökkrauð að lit árgerð 1997. 30.12.2010 18:41
Verjandi Geirs furðar sig á því að Alþingi hafi ekki haft lykilgögn Verjandi Geirs H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra furðar sig á því að Atlanefndin og Alþingi skuli ekki hafa haft aðgang að lykilgögnum þegar ákvörðun var tekin um að ákæra hann fyrir landsdómi. Saksóknari Alþingis hefur óskað eftir gögnum sem tengjast Geir í sextíu og sex liðum. 30.12.2010 18:39
Framtíð peningastefnunnar: Vill einhliða upptöku evru Seðlabanki Íslands sendi fyrr í mánuðinum frá sér skýrslu sem bar heitið Peninagstefnan eftir höft. Þar viðurkennir bankinn að árangur peningastefnunnar hér á landi hafi verið slakur síðustu ár og áratugi. Hann leggur til ýmsar úrbætur á stefnunni, sem miða einkum af því að skapa fleiri stjórntæki en aðeins stýrivexti, undir nafninu verðbólgumarkmið-plús. 30.12.2010 18:30
Heimdallur vill betra aðgengi að rauðvíni með steikinni Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, dreifði dreifimiðum við helstu áfengisverslanir Reykjavíkur í dag þar sem félagsmenn gagnrýndu skattlagningu ríkisins á áfengi. 30.12.2010 17:59
Gamlárshlaup ÍR fer fram í 35. skipti Árlegt Gamlárshlaup ÍR hefst á gamlársdag klukkan tólf á hádegi. Ræst verður á gatnamótum Hólavallagötu og Túngötu í miðbæ Reykjavíkur. 30.12.2010 17:49
Nokkur hundruð kíló af hveiti út um allt Nokkur hundruð kíló af hveiti þyrlaðist út um allar götur við Lyngháls í Reykjavik þar sem Ömmubakstur er. Þar var flutningabíll að flytja hveiti og rörafesting í bílnum gaf sig með fyrrgreindum afleiðingum. Vilhjálmur Þorláksson, framkvæmdastóri fyrirtækisins, segir að tjónið hlaupi ef til vill á hundruðum þúsunda. Hins vegar sé mest um vert að enginn hafi slasast þegar óhappið átti sér stað. Unnið er að því að hreinsa hveitið upp. 30.12.2010 16:35
Tryggingastofnun greiðir út bætur 31. desember Tryggingastofnun hefur ákveðið að greiðslur úr sjóðnum verða greiddar út þann 31. desember en nokkurra óánægju hefur gætt þar sem til stóð að greiða bæturnar út þann 1. janúar. 30.12.2010 16:21
Lögreglan rannsakar Herra Hafnarfjörð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú hvort herrafataverslunin Herra Hafnarfjörður hafi gerst brotleg við lög með því að bjóða viðskiptavinum ókeypis áfengi með hverjum seldum jakkafötum. 30.12.2010 16:00
Vefmiðlar með um helming frétta Í samanburði við síðustu ár má sjá að netmiðlar eru að koma mjög sterkt inn og mælast nú með um 48% af öllu innlendu efni samkvæmt fjölmiðlaúttekt Creditinfo. 30.12.2010 15:56
Oftast fjallað um og rætt við Steingrím Það var oftast fjallað um Steingrím J. Sigfússon og rætt við hann í fjölmiðlum samkvæmt ráðherrapúlsi Cretidinfo sem tók saman fréttir og umfjöllunarefni þeirra að hluta til árið 2010. 30.12.2010 15:41
Sorglegar uppsagnir á Austurlandi Heilbrigðisstofnun Austurlands segir upp tíu manns um þessi mánaðamót. Þá munu tíu hætta til viðbótar og starfshlutfall verður skert hjá öðrum tíu. Hagræðingaraðgerðirnar snerta því alls um þrjátíu starfsmenn stofnunarinnar. 30.12.2010 14:57
Óskuðu vinum gleðilegra jóla á auglýsingaskilti „Við vorum að vona að einhverjir hefðu gaman af þessu, og það tókst heldur betur,“ segir Stefán Þór Helgason, háskólanemi og einn þeirra sem birtu jólakveðju á auglýsingaskilti í Reykjavík nú rétt fyrir jólin. Hann segir hugmyndina hafa kviknað fyrir jólin í fyrra en þá hafi einfaldlega ekki gefist tími fyrir kveðjuna. 30.12.2010 14:52
Mótmælendur reknir frá sendiráði Bandaríkjanna - þeir neita að fara „Lögreglan er hérna og vill að við förum,“ segir Lárus Páll Birgisson, sem ásamt um tíu mótmælendum, hafa tekið sér stöðu fyrir framan sendiráð Bandaríkjanna til þess að mótmæla hernaði og stríðsrekstri auk þess sem Lárus vill benda á aðrar og friðsamari lausnir í heimsstjórnmálum. 30.12.2010 14:52
Borgarbúar þurfa að henda jólatrjánum sjálfir Borgarbúar geta farið sjálfir með jólatrén sín endurgjaldslaust á endurvinnslustöð eða keypt þjónustuna hjá sorphirðufyrirtækjum og íþróttafélögum. Sorphirða Reykjavíkur hirðir ekki jólatré fremur en 2010. Flestir fara eina ferð um jólin á endurvinnslustöðvar Sorpu með ýmsar umbúðir, pakkningar utan um flugelda og annað sem til fellur. Jólatréð er eitt af því sem þarf að fara í endurvinnslu. 30.12.2010 14:06
Kettirnir sluppu úr reykfylltri íbúðinni Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í Skeiðarvog í Vogahverfinu um eittleytið í dag. Mikill reykur kom úr íbúð húss í götunni, sem reyndist koma út frá potti sem gleymst hafði á hellu. 30.12.2010 13:25
Manndrápum, kynferðis- og fíkniefnabrotum fjölgar frá 2009 Samkvæmt bráðabirgðatölum ríkislögreglustjóra um fjölda skráðra afbrota hjá lögreglu á árinu 2010, er fjöldi hegningarlagabrota á árinu tæp 15 þúsund brot, sem er um 7% fækkun frá 2009. 30.12.2010 13:24
Átta af hverjum tíu Íslendingum skráðir á Facebook Í umfjöllun Time kemur í ljós að sprenging hefur orðið í fjölda íslenskra notenda á Facebook. Um 265.420 Íslendingar eru skráðir á vefinn. 30.12.2010 13:00
Frábær viðbrögð við fylgishruni Borgarfulltrúi Besta flokksins segir viðbrögð sín við fylgishruni flokksins frábær. Hann segir flokkinn hafa verið óhræddan við að taka óvinsælar ákvarðanir og það taki lengri tíma en sex mánuði að breyta hlutunum í borginni. 30.12.2010 12:24
Getur skapað fordæmi fyrir aðra en kjörna fulltrúa Lagastofnun Háskóla Íslands telur að fordæmi geti skapast fyrir aðra en kjörna fulltrúa að fá lögfræðikostnað sinn greiddan úr bæjarsjóði, nái tillaga meirihluta Kópavogsbæjar þess efnis fram að ganga. Það gæti skapað umtalsverðan kostnað fyrir Kópavogsbæ. 30.12.2010 12:09
Spara um 300 milljónir með sameiningu ráðuneyta Guðbjartur Hannessons, nýr velferðarráðhera, segir sameiningu þriggja ráðuneyta fela í sér í betri nýtingu á mannauði þvert á málaflokka. Engir starfsmenn, hvorki í velferðar- né innanríkisráðuneyti missa vinnuna við sameininguna. 30.12.2010 12:04
Ástþór Magnússon boðaður í yfirheyrslu hjá lögreglu „Ef lögreglan vill handtaka mig þá er það ekkert mál. Ég er ekkert að fela mig. Ég lét lögregluna vita að ég yrði á Íslandi yfir jólin,“ segir Ástþór Magnússon. Hann kveðst hafa verið boðaður í yfirheyrslu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu klukkan eitt í dag. 30.12.2010 11:52
Helmingurinn af flugeldunum selst á morgun „Þetta gengur bara mjög vel, við erum á pari við árið í fyrra," segir Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Hann hvetur fólk til að koma í dag og klára flugeldakaupin. 30.12.2010 11:20
Sameiningu Landlæknis og Lýðheilsustöðvar frestað Sameiningu Landlæknisembættisins og Lýðheilsustöðvar hefur verið frestað um tvo mánuði að minnsta kosti. Til stóð að sameina stofnanirnar 1. janúar næstkomandi og hafa starfsmenn stofnanna tveggja unnið að undirbúningi sameiningar. 30.12.2010 10:32
Ekki alvarlega slasaður Maðurinn sem fluttur var með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild Landspítalans í gær eftir umferðarslys á Holtavörðuheiði er ekki með alvarlega áverka. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á slysadeild Landspítalans verður maðurinn að öllum líkindum útskrifaður af spítala í dag. Slysið varð með þeim hætti að fólksbíll og flutningabíll rákust saman og það var maður úr fólksbílnum sem fluttur var til Reykjavíkur. 30.12.2010 10:20
Fjölskylda borgarfulltrúa færði Palestínumönnum gervifætur Fjölskylda Bjarkar Vilhelmsdóttur, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, dvaldi í Egyptalandi og Palestínu yfir jólin og færði heimamönnum á Gazaströndinni efni í 36 gervifætur fyrir hönd samtakanna Ísland-Palestína. Það er til viðbótar þeim sem smíðaðir voru í maí á síðasta ári og í nóvember síðastliðinum af liðsmönnum Össurar Kristinssonar og fyrirtækis hans OK Prosthetics. 30.12.2010 10:15
N1 situr uppi með tíu þúsund eintök „Þetta var góður skóli. Við munum auðvitað læra af þessu og horfa í aðferðafræðina. Við ætlum að endurtaka leikinn, vera þá með fleiri titla,“ segir Hermann Guðmundsson, forstjóri olíufélagsins N1. 30.12.2010 10:00
Geðlæknar gagnrýna heilbrigðisráðuneytið Geðlæknafélag Íslands gagnrýnir skýrslu vinnuhóps heilbrigðisráðuneytis til að skipuleggja aðgerðir til þess að draga úr misnotkun ofvirknislyfja, eða metýlfenídati. 30.12.2010 09:44
Gæsluvarðhalds krafist yfir fjórum vegna hryðjuverkaárásar Einn af fjórum karlmönnum sem handteknir voru í Danmörku í gær grunaðir um hryðjuverkatilraun verður látinn laus. 30.12.2010 09:38
Skólastjóri Hraðbrautar ver sig á Youtube „Ef vel tekst til, að þeirra mati sem standa að aðförinni, verður skólinn lagður niður innan tíðar," segir Ólafur H. Johnson, skólastjóri Menntaskólans Hraðbrautar, sem nú hefur birt níu myndbönd á vefnum Youtube. 30.12.2010 09:33
Áramótadjammið kostar sitt Áramótadjammið er ómissandi hjá mörgum skemmtanaglöðum Íslendingum. En það kostar sitt að skemmta sér á þessu síðasta kvöldi ársins og sumir eiga væntanlega eftir að vakna timbraðir á nýju ári, töluvert blankari en þegar þeir skelltu sér út kvöldið áður. Fréttablaðið fór á stúfana og athugaði hvað áramótadjammið kostar. 30.12.2010 09:30
Fyrrverandi forseti dæmdur fyrir nauðgun Moshe Katsav, fyrrverandi forseti Ísraels, hefur verið sakfelldur fyrir að nauðga fyrrverandi samstarfskonu sinni þegar hann var ferðamálaráðherra árið 1998. Hann á yfir höfði sér sex ára fangelsisdóm. 30.12.2010 09:01
Ekkert lát á flóðunum í Ástralíu Ekkert lát er á flóðunum í norðausturhluta Ástralíu og enn komast þúsundir manna hvorki lönd né strönd. Stjórnvöld í hafa lýst yfir neyðarástandi í þremur bæjum. Flytja hefur þurft hundruð íbúa frá heimilum sínum í Queensland til viðbótar við þá þúsund sem fluttir voru á brott fyrr í vikunni en þá var meðal annars notast við þyrlur. 30.12.2010 08:51
Steingrímur og Jóhanna vildu Davíð aftur í pólitík Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra og núverandi ritstjóri Morgunblaðsins og Mbl.is, segist hafa verið dreginn aftur í pólitík. Hann segist aldrei hafa lagt til að mynduð yrði þjóðstjórn haustið 2008 og þá segir hann að bloggheimar hafi haft áhrif rannsóknarnefnd Alþingis og skýrslu nefndarinnar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í sérstakri áramótaútgáfu Viðskiptablaðsins sem kom út í dag. 30.12.2010 08:28
Flugeldum stolið úr rammgerum gámi Brotist var inn í flugeldamarkað í Höfðahverfi í Reykjavík, en markaðurinn er í stórum rammgerum gámi. Þjófarnir beittu grjóti og líklega kúbeini til að komast inn. Í fljótu bragði virðist sem þeir hafi stolið litlu, en mikið af skoteldum er í gámnum og sprengihætta mikil. Þjófarnir komust undan og verður gæsla við gáminn væntanlega efld. 30.12.2010 07:11
Blaðburðarmaður Fréttablaðsins fældi þjóf Íbúi í einbýlishúsi í Garðabæ vaknaði upp við þann vonda draum í nótt að verið var að reyna að spenna upp glugga á húsinu í þeim tilgangi að brjótast þar inn. Hann hringdi þegar í lögreglu, en hafði ekki sjálfur haft afskipti af innbrotsþjófnum þegar lögregla kom á vettvang. Þá hafði þjófurinn hinsvegar látið sig hverfa út í nóttina, án þess að hafa komist inn í húsið, en sjá má ummerki eftir hann á gluggaumbúnaði. Talið er að hann hafi tekið til fótanna þegar blaðburðarmaður kom með Fréttablaðið að húsinu rétt áður en lögreglan kom. 30.12.2010 07:09
Þúsundir enn án vatns á Norður-Írlandi Ráðherra málefna Norður-Írlands í bresku ríkisstjórninni segir ljóst að eitthvað meiriháttar hefur brugðist á Norður-Írlandi en um 36 þúsund íbúar landsins hafa verið án vatns dögum saman eftir frosthörkurnar undanfarið. Nokkur svæði hafa verið án vatns í allt að 11 daga. Af þeim sökum hafa íbúar annað hvort þurft að kaupa vatn á flöskum úr búðum eða nálgast það í neyðarvatnstönkum sem komið hefur verið upp á götuhornum. Ráðherrann segir brýnt að koma vatnsmálunum í lag og nú sé ekki rétti tíminn til að finna sökudólga. Farið verði rækilega yfir málið eftir að íbúunum hefur verið tryggt vatn. 30.12.2010 07:04
Skíðafólk féll úr stólalyftu Átta skíðamenn slösuðust töluvert þegar kröftugir vindar feyktu sætum í stólalyftu til með þeim afleiðingum að fólkið féll niður um 8-10 metra. Atvikið átti sér stað í gær á vinsælu skíðasvæði nærri Portland í Main í Bandaríkjunum. Lyftan var í framhaldinu stöðvuð og sátu um 150 skíðamenn fastir í henni í nokkra stund. Fólkið sem slasaðist var flutt á sjúkrahús, þar af þrír sem hlutu beinbrot. Í hópi hinna slösuðu voru bæði börn og fullorðnir. 30.12.2010 06:55
Óttast þjóðarmorð Nýskipaður sendiherra Fílabeinsstrandarinnar hjá Sameinuðu þjóðunum óttast þjóðarmorð í landinu. Laurent Gbagbo, forseti Fílabeinsstrandarinnar, hefur ekki viljað viðurkenna úrslit forsetakosninganna í síðasta mánuði þrátt fyrir að Sameinuðu þjóðirnar hafi staðfest þau og hótanir nágrannaríkja um að beita hervaldi láti hann ekki af embætti. Sendiherrann segir mannréttindi brotin víðsvegar um landið og að hátt í 200 stjórnarandstæðingar hafi nú þegar látið lífið. 30.12.2010 06:53
Óttast um heilsuna vegna sorpbrennslu Steingrímur Jónsson, bóndi á Efri-Engidal í Skutulsfirði, óttast að áralöng reykmengun frá sorpbrennslustöðinni Funa hafi skaðað heilsu heimilisfólksins á bænum. Hann óttast jafnframt að þurfa að bregða búi vegna eitrunar í jarðvegi og á annað hundrað ára fjölskyldusögu á jörðinni ljúki þar með. 30.12.2010 06:30
Eldosið sem hafði áhrif um allan heim Eldgos hófst í sprungu á norðanverðum Fimmvörðuhálsi, skammt vestan gönguleiðarinnar, 20. mars síðastliðinn. Gosið stóð í tæpan mánuð og hafði ekki teljandi áhrif, þótt ný sprunga opnaðist í lok mánaðarins og hraun rynni í Hvannárgil. Töluðu sumir um „túristagos“ en 12. apríl voru ekki frekari merki um eldsumbrot á þessum fyrstu gosstöðvum. 30.12.2010 06:30
Byltingarleiðtogar ákærðir Júlía Tímosjenko, fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu, var yfirheyrð í gær í tengslum við ásakanir um spillingu. Hún var fyrr í mánuðinum ákærð fyrir að hafa notað fé, sem fékkst við sölu á kolefniskvóta samkvæmt Kyoto-bókuninni, til þess að standa straum af lífeyrisgreiðslum þegar hún var forsætisráðherra. Hún neitar þeim ásökunum. 30.12.2010 06:00
Stórhert eftirlit verður með ávísun ofvirknilyfja Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur vinnuhóps um stórhert eftirlit með ávísun ofvirknilyfja til að sporna við misnotkun þeirra. Lyf eins og rítalín og concerta, sem flokkast sem ávana- og fíkniefni, eru fyrst og fremst ætluð börnum en 50 prósenta aukning á notkun þeirra á síðustu fjórum árum skýrist af ávísunum til fullorðinna. 30.12.2010 06:00