Fleiri fréttir

Engin umsókn um sjö læknastöður

Enginn heimilislæknir sótti um sjö lausar stöður sem auglýstar voru nýverið. Um tuttugu læknar hafa flutt af landinu eftir efnahagshrunið, sýnir könnun Landlæknisembættisins.

Eftirspurn eftir hlutum mikil

Stjórn Icelandair hefur ákveðið að samþykkja áskriftir fyrir 1.059.000.000 nýrra hluta sem boðnir voru út í almennu hlutafjárútboði sem lauk 23. desember. Alls bárust 852 áskriftir fyrir samtals 2.855.633.620 bréf, sem er næstum þrefalt það magn sem í boði var.

Þúsundir heimila án vatns dögum saman

Þúsundir heimila á Norður-Írlandi hafa verið án vatns dögum saman eftir frosthörkurnar undanfarið. Víða sprungu rör í frostinu og svo þegar þiðnaði á ný lak vatnsforðinn að stórum hluta út í jarðveginn án þess að berast inn á heimilin.

Býst við tæplega fjögur hundruð manns

„Það er ekki mikið í gangi á nýársdag. Ef maður vill reyna á sig á fyrsta degi ársins er um að gera að fara í sjósund,“ segir Árni Jónsson, framkvæmdastjóri Ylstrandar­innar, sem stendur fyrir árlegu sjósundi í Nauthólsvík á nýársdag.

Stórtækir sígarettuþjófar handteknir

Þrír piltar voru handteknir á sjötta tímanum í kvöld grunaðir um að hafa stolið yfir 20 þúsund sígarettum í söluskálanum Björkinni á Hvolsvelli á aðfaranótt miðvikudagsins. Piltarnir eru allir undir tvítugu og voru allir handteknir á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli.

Jólasveinar og lögreglan heimsóttu Barnaspítala Hringsins

Það var heldur betur kátt á hjalla þegar nokkrir jólasveinar heimsóttu Barnaspítala Hringsins með lögreglumönnum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni léku jólasveinarnir á alls oddi og skemmtu bæði börnunum, foreldrum þeirra sem og starfsfólki Barnaspítalans.

Bílvelta á Snæfellsnesvegi

Bílvelta varð á Snæfellsnesvegi þegar að bíll rann út af í hálku og valt. Bílstjórinn var einn í bílnum og slasaðist hann ekki illa. Þá varð hálkuslys á Holtavörðuheiði. Lögreglumenn úr Borgarnesi eru á leið þangað en ekki er vitað hversu alvarlegt það er.

Magasin var rýmt vegna brunaboðs

Það varð uppi fótur og fit í Magasin á Store Torv í Kaupmannahöfn þegar brunaviðvörunarkerfi fór í gang þar seinni partinn í dag. Atvikið varð um hálfsex að staðartíma. Rýma þurfti húsið og viðskiptavinir þurftu að dúsa úti á götu á meðan að aðstæður voru kannaðar. En einungis fimmtán mínútum seinna var þeim hleypt inn í verslunina að nýju. Fram kemur á vef Danmarks Radio að brunavarnarkerfið hafi farið í gang vegna þess að það kviknaði í örbylgjuofni.

Hundrað ökumenn fá sekt vegna hraðaksturs

Um hundrað ökumenn, sem keyrðu of hratt á Hafnarfjarðarvegi í gær, voru myndaðir og eiga von á sekt frá lögreglunni. Sá sem hraðast ók var á 107 kílómetra hraða en 9 prósent ökumanna sem óku leiðina á einni klukkustund keyrðu of hratt.

Meirihlutinn fallinn og fylgið hrynur af Besta

Meirihlutinn í borginni er fallinn og Sjálfstæðisflokkurinn yrði á ný stærsti flokkurinn í borginni ef gengið yrði til kosninga nú samkvæmt nýrri könnun. Fylgi Besta flokksins dalar en hann fengi fjóra menn kjörna.

Vilja að bæjarbúar borgi reikninginn

Meirihluti bæjarráðs í Kópavogi vill að bæjarsjóður greiði sex hundruð þúsund króna lögfræðikostnað þriggja bæjarfulltrúa vegna meiðyrðamáls sem Frjáls miðlun höfðaði gegn þeim. Einn bæjarfulltrúanna segir eðlilegt að bærinn greiði kostnaðinn, því hann komi til vegna starfa þeirra fyrir Kópavog.

Sýslumaðurinn Sunnlendingur ársins

Kjartan Þorkelsson, sýslumaður Rangæinga, var kosinn Sunnlendingur ársins 2010 af lesendum Sunnlenska fréttablaðsins og sunnlenska.is.

Rússar svara gagnrýni

Ráðamenn í Moskvu svara vestrænir þjóðarleiðtogum fullum hálsi sem hafa gagnrýnt niðurstöðu rússneskra dómstóla í máli auðjöfursins Mikhail Khodorkovsky. Utanríkisráðherra landsins biður vesturlönd um að skipta sér ekki af innanríkismálum Rússlands.

Sjósund á nýju ári

Fyrir þá sem vilja skella sér í nýárssund í ísköldum sjó í upphafi árs, þá verður Ylströndin í Nauthólsvík opin frá klukkan 11 til 14 á Nýársdag.

Jón Sigurðsson merktur á nýju ári

Afmælisár Jóns Sigurðssonar forseta rennur upp á nýársdag, en hann fæddist á Hrafnseyri við Arnarfjörð 17. júní 1811. Afmælisins verður minnst með margvíslegum hætti allt árið en merking styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli markar upphaf afmælishaldsins.

Tilurð falska kúnnalistans kemur rithöfundi ekki á óvart

„Það er nefnilega svo að helstu andstæðingar nafn- og myndbirtingastefnu fjölmiðla eru Gróurnar," segir Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður og annar höfundur ævisögu Catalinu Ncogo, Hið svarta man, um falska kúnnalistann, sem birtist á netinu á dögunum.

Vill að Eiður Smári leggi fram sönnunargögn

Ingi Freyr Vilhjálmsson, blaðamaður á DV, skorar á Eið Smára Guðjohnsen, knattspyrnumann, að leggja fram skrifleg sönnunargögn sem sanni að fréttaflutningur af fjármálum hans sé rangur.

Ríkisráð kemur saman á gamlársdag

Venju samkvæmt hefur ríkisráð Íslands verið kvatt saman á Bessastöðum á gamlársdag. Fundurinn hefst klukkan hálftíu. Samkvæmt stjórnarskránni eru það forseti lýðveldisins og ráðherrar sem skipa ríkisráð, og hefur forseti þar forsæti. Þar eru lög og mikilvægar stjórnarráðstafanir bornar upp fyrir forseta.

Yngri en 18 ára mega ekki fara í ljósabekki

Fólki yngra en 18 ára verður óheimil notkun sólarlampa, í öðrum tilgangi en læknisfræðilegum, á sólbaðsstöðum og öðrum sambærilegum stöðum um næstu áramót.

Stálu yfir 20 þúsund sígarettum

Sígarettum að verðmæti á aðra milljón króna var stolið úr söluskálanum Björkinni á Hvolsvelli í nótt. Þjófarnir brutu rúðu og komust þannig inn, að því er fram kemur á vefnum Sunnlenska. Þar kemur líka fram að þjófarnir virðast hafa gengið hreint til verks og stolið ákveðnum sígarettutegundum en látið aðrar vera.

Ætluðu að myrða blaðamenn vegna skopteikninga - fjórir handteknir

Fjórir karlmenn af mið-austurlenskum uppruna hafa verið handteknir í Danmörku vegna gruns um að skipuleggja hryðjuverk þar í landi. Það var danska leyniþjónustan sem handtók mennina en þeir komu til Danmerkur frá Svíþjóð í gærkvöldi. Byssa með hljóðdeyfi fannst í fórum mannanna ásamt skotfærum.

Tólf mánaða fangelsi fyrir árás á lögreglumann

Karlmaður sem réðst á lögregumann í sumar hefur verið dæmdur í 12 mánaða fangelsi. Maðurinn kýldi lögregluvarðstjóra í andlitið þegar að hann var við skyldustörf aðfaranótt fimmtudagsins áttunda júlí síðastliðinn. Maðurinn játaði brot sitt. Hann hafði áður hlotið skilorðsbundinn fangelsisdóm vegna líkamsárásar og rauf því skilorð með árásinni á lögreglumanninn.

Samið við lækna fyrir áramót

Samningur sjálfstætt starfandi heilsugæslulækna við Sjúkratryggingar Íslands rennur út um áramótin. Samningnum var sagt upp í sumar þegar Álfheiður Ingadóttir var heilbrigðisráðherra. Steingrímur Ari Arason segir að verið sé að vinna að því að gera nýjan samning og á von á að takist.

Dóttirin fær ekki svínaflensusprautu

„Við erum búin að hringja og hafa samband við fimm eða sex heilsugæslustöðvar og fáum alltaf sama svarið. Hún fær ekki svínaflensusprautu,“ segir Víkingur Birgisson. Hann er afar ósáttur við að tvítug dóttir hans fær ekki bólusetningu gegn svínainflúensu á heilsgæslustöð á höfuðborgarsvæðinu þar sem hún er búsett á landsbyggðinni. Dóttir Víkings stundar nám í Reykjavík.

Töluverðar seinkanir hjá Iceland Express

Töluverðar seinkanir hafa verið á flugi Iceland Express í þessari viku. Framkvæmdastjóri félagsins segir aðstæður hafa verið óviðráðanlegar.

Steingrímur segir ekkert hæft í sögu um samstarf við Framsókn

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir ekkert hæft í þeim sögusögnum að viðræður séu hafnar við Framsókn um að ganga inn í stjórnarsamstarfið og segir undarlegt að menn séu að kjafta um slíkt. Þá kallar formaður Framsóknar fréttirnar „spuna."

Allir fimmtán í landsdómi þurfa að taka afstöðu til kröfu Sigríðar

Að óbreyttum lögum þurfa allir fimmtán dómendur í landsdómi að taka afstöðu til þeirrar kröfu saksóknara Alþingis að fá aðgang að gögnum rannsóknarnefndar Alþingis, en þjóðskjalavörður hefur neitað um aðgang að nauðsynlegum gögnum, eins og yfirheyrslum rannsóknarnefndar og tölvupóstum Geirs H. Haarde.

Falskur kúnnalisti Catalinu kærður til lögreglunnar

„Ég veit að einn skjólstæðingur minn hefur leitað til lögreglu vegna málsins og ætlar að kæra þetta,“ segir Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður, en til hans hafa leitað nokkrir einstaklingar vegna þess að þeir eru nefndir á nafn á fölskum kúnnalista Catalinu Ncogo.

Reese Witherspoon trúlofuð

Leikkonan Reese Witherspoon og kærasti hennar til eins árs, umboðsmaðurinn Jim Toth, trúlofuðu sig um jólin. Búist er við því að þau gangi í það heilaga strax á næsta ári.

Furðustrandir mest seld í Eymundsson

Furðustrandir, bók Arnaldar Indriðasonar, var mest selda bókin í Eymundsson á þessu ári, samkvæmt nýjustu tölum. Á eftir Arnaldi kemur bókin „Ég man þig“ eftir Yrsu Sigurðardóttur og því næst Svar við bréfi Helgu eftir Bergsvein Birgisson. Mest selda fræðibókin var bókin

Hægrimenn með stærri heilamöndlu

Heilinn í vinstrimönnum og hægrimönnum er gerólíkur, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem læknar í Lundúnum gerðu.

Julian Assange neyðist til að skrifa bók

Julian Assange, forsvarsmaður uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks, hefur skrifað undir samning um útgáfu bókar sem færir honum eina milljóna punda eða jafnvirði tæplega 117 milljóna íslenskra króna.

Hærra frístundagjald

Hækkanir verða á gjaldskrá frístundaheimila og frístundaklúbba Reykjavíkur á næsta ári. Við breytinguna hækkar frístundagjaldið um 20% og gjald á síðdegishressingu um 35%. Þetta þýðir að fyrir fólk með eitt barn í 5 daga vistun með síðdegishressingu hækkar gjaldið úr 10.515 krónum á mánuði í 12.940 krónur á mánuði.

Þúsund íbúum komið til bjargar

Þúsundir manna komast nú hvorki lönd né strönd í norðausturhluta Ástralíu eftir ein mestu flóð þar undanfarna áratugi. Flytja þurfti um þúsund manns frá heimilum sínum í Queensland. Flóðin eru vegna mikilla rigninga og storma á þessum svæðum undanfarnar vikur. Áströlsk stjórnvöld hafa notað þyrlur til að flytja vistir til þeirra sem lokast hafa af vegna flóðanna. Þyrlur hafa jafnframt verið notaðar til að flytja fólk á brott, þar á meðal rúmlega 300 íbúa smábæjarins Theodore.

„Einhverjir alveg að missa sig í spunanum“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segist hafa séð nokkrar furðufréttir að undanförnu. Í gær spurðist af þreifingum um mögulega aðild Framsóknarflokksins að ríkisstjórninnni. Sigmundur gefur lítið fyrir það á samskiptavefnum Facebook. „Nú eru einhverjir alveg að missa sig í spunanum. Búinn að sjá nokkrar furðufréttir,“ skrifar formaðurinn.

Forsetinn vill frið á Kóreuskaga

Forseti Suður-Kóreu vill hefja friðarviðræður á nýjan leik við nágrannanna í norðri en undanfarnar vikur hafa hótanir magnast á báða bóga á Kóreuskaga.

Neanderdalsmenn borðuðu grænt

Neanderdalsmenn virðst hafa neytt fjölbreyttari fæðu en áður var talið. Rannsóknir benda nefnilega til að grænmeti og sjávarréttir hafi gjarnan verið á matseðlinum.

Varað við hálku

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar ökumenn við hálku í efri byggðum og á fáförnum götum, en búið er að salta aðal umferðaræðar. Einn ökumaður missti stjórn á bíl sínum í óvæntri hálku laust fyrir miðnætti og hafnaði á ljósastaur, en maðurinn slapp ómeiddur.

Sjá næstu 50 fréttir