Fleiri fréttir

Jónas frægasta byttan

Það er full ástæða til þess að íslenskir fjölmiðlar taki til alvarlegrar meðferðar áhrif drykkjumanna á Íslandssöguna síðustu 20, 30 eða 40 árin, segir Illugi Jökulsson rithöfundur.

Körfuboltamenn á kafi í snjó

Björgunarsveit var kölluð út í gærkvöldi til að aðstoða heilt körfuboltalið frá Sauðárkróki, sem sat fast í rútubíl uppi á Þverárfjalli, á milli Blönduóss og Sauðárkróks, eftir glæstan sigur á liði Breiðabliks í bikarkeppninni.

Ráðherra skammar eigin ríkisstjórn

Einn af ráðherrum ríkisstjórnarinnar, Jón Bjarnason, gagnrýnir eigið fjárlagafrumvarp í grein í Fréttablaðinu um helgina, og segir að niðurskurðartillögur frumvarpsins auki á misrétti landshluta og skerði búsetuskilyrði í litlum samfélögum.

Gagnrýnir ummæli Árna Páls

Það kostar svipað mikið að fara leið Hagsmunasamtaka heimilanna um almenna leiðréttingu skulda og að skera niður alla yfirveðsetningu af húsnæðisskuldum, segir stjórnarmaður í samtökunum. Yfirskuldsetning stefni í 175 milljarða. Hann gagnrýnir efnahags- og viðskiptaráðherra harðlega fyrir ummæli um að millistéttin þurrkist út verði farið í almennar aðgerðir.

Sylvía yfirgefur aldrei Karl Gústaf

Sérfræðingur sænska ríkissjónvarpsins í málefnum konungsfjölskyldunnar segir að Sylvia drottning muni aldrei yfirgefa Karl Gústaf þrátt fyrir sögusagnir um framhjáhald og villt líferni.

Sakaður um barnaníð: „Þær eru á höttunum eftir peningum"

Ægir Geirdal, frambjóðandi til stjórnlagaþings, segir ekkert hæft í ásökunum tveggja kvenna um að hann hafi misnotað þær þegar stúlkurnar voru á unglingsaldri. Hann segir málið snúast um peninga og ætlar í mál við netmiðil sem birti fyrstu fréttir af málinu.

Sigurbjörn sópar að sér verðlaunum

Sigurbjörn Bárðarson var útnefndur íþróttaknapi ársins, skeiðknapi ársins og knapi ársins á Uppskeruhátíð hestamanna sem fram fór á laugardaginn. Aldrei áður hefur sami knapi hlotið jafnmörg verðlaun á Uppskeruhátíð og nú, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landssambandi hestamanna.

Fyrsta litaða borgin í Evrópu

Borgin Leichester í Mið-Englandi verður á næsta ári fyrsta borgin í Evrópu þar sem hvítir innfæddir menn verða í minnihluta. Íbúar eru um 300 þúsund talsins og flestir íbúanna frá Pakistan, Indlandi, Afganistan og Afríku. Leicester hefur verið talin dæmi um vel heppnaða aðlögun innflytjenda.

Allar reglur brotnar við sölu Vestia

Allar verklagsreglur sem lagt var upp með við sölu eigna bankanna voru brotnar þegar að Landsbankinn seldi eignarhaldsfélagið Vestia til Framtakssjóðs lífeyrissjóðanna, segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Þjófar gripnir í Skorradal

Lögreglumenn úr Borgarnesi handtóku undir morgun tvo unga menn, sem höfðu brotist inn í að minnstakosti fjóra sumarbústaði í Skorradal og stolið talsverðum verðmætum úr þeim.

Skotárásin í Malmö: Fundu byssur hjá hinum grunaða

Sænska lögreglan hefur fundið tvö skotvopn á heimili mannsins sem grunaður er um skotárásir í Malmö síðasta árið. Maðurinn, sem er 38 ára gamall er í haldi lögreglu, en hún vill lítið gefa upp um hvernig málinu miðar. Við húsleit fundust tvær byssur og er maðurinn með leyfi fyrir þeim báðum. Ættingi mannsins segir að hann sé meðlimur í byssuklúbbi í Malmö en síðasta árið hafa fjölmargar skotárásir verið gerðar í borginni og hefur byssumaðurinn beint sjónum sínum að innflytjendum.

Vesturlönd gefa lítið fyrir kosningarnar í Búrma

Helstu leiðtogar á vesturlöndum gefa lítið fyrir fyrstu lýðræðislegu kosningarnar í Búrma í tvo áratugi og segja þær hvorki frjálsar né sanngjarnar. Barack Obama Bandaríkjaforseti er á ferð um Asíu og hann sagði í gær að kosningarnar hefðu ekki mætt kröfum alþjóðasamfélagsins.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar með áhyggjur af Bifröst

Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir miklum áhyggjum af hugmyndum um samruna Háskólanna að Bifröst og í Reykjavík. Í yfirlýsingu sveitarstjórnarinnar segir að fjöldi starfsmanna muni flytjast frá Bifröst til Reykjavíkur og að héraðið muni missa einn af sínum mikilvægustu vinnustöðum.

Námumaður hljóp maraþon

Einn námumanna Þrjátíu og þriggja sem sátu fastir í námu í Chile eins og frægt er orðið, tók sig til og hljóp í New York maraþoninu um helgina. Hinn 34 ára gamli Edison Pena hljóp kílómetrana 42 á fimm klukkustundum og 50 mínútum en frægt var þegar hann sagðist hafa haldið heilsunni í námunni með því að skokka um göngin á hverjum degi.

Barnshafandi flutt með þyrlu frá Eyjum

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í gærkvöldi barnshafandi konu til Vestmannaeyja þar sem læknar töldu öruggara að hún fæddi barn sitt á fæðingadeildinni í Reykjavík.

Súdan gæti losnað af hryðjuverkalista

Bandaríkjastjórn hefur gert stjórnvöldum í Súdan tilboð um að ríkið verði fjarlægt af lista ríkja sem styðja við hryðjuverkahópa. Súdan losnar við stimpilinn ef yfirvöld tryggja að kosningar sem fara eiga fram í landinu í janúar á næsta ári verða gagnsæjar og lausar við spillingu.

Olíusmit í hreyflum Airbus A380

Ástralska flugfélagið Qantas ætlar að kyrrsetja Airbus A380 risaþotur félagsins í þrjá daga til viðbótar en smávægilegir gallar hafa fundist í hreyflum vélanna. Hreyfill Airbus þotu sprakk í loft upp á dögunum yfir Singapore svo flugmennirnir þurftu að nauðlenda. Í kjölfarið fóru allar vélar sömu gerðar í ítarlega skoðun og segir forstjóri félagsins að í þreur vélum af sex hafi fundist olíusmit þar sem ekkert slíkt ætti að vera í svo nýjum hreyflum, en þeir eru tveggja ára gamlir.

Bílþjófur gómaður

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann á bíl, sem stolið var fyrir nokkrum dögum. Hann hafði skipt um númeraplötur á honum til að villa um fyrir lögreglu. Annar ökumaður var tekinn úr umferð í nótt fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna.

Brotist inn um hábjartan dag

Þjófar brutust inn í íbúðarhús við fjölfarna götu í Keflavík um miðjan dag í gær og létu greipar sópa. Þeir stálu sjónvörpum, hljómflutningstækjum, myndavélum tölvum og fleiru.

Er rólegri en vill ekki borða

Útselskópurinn Golli sem gekk á land við beituskúr í Breiðdalsvík í síðustu viku er kominn til Vestmannaeyja þar sem starfsmenn á Fiska- og náttúrugripasafninu fóstra hann. Kópurinn er ungur, enn á mjólkurstigi, og verður í Eyjum þar til hann er orðinn nógu stór til að vera sleppt á haf út. „Hann hefur það ágætt greyið þannig séð en er tregur til að borða og það er erfitt að koma fæðu ofan í hann þar sem hann er nautsterkur,“ segir Georg Skæringsson, starfsmaður safnsins og „fósturmamma“ Golla í

Útskrifa lögfræðinga án grunnþekkingar

„Ég hef áhyggjur af því hvort menntun lögfræðinga sé í öllum tilvikum nógu góð,“ segir Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður og formaður Lögmannafélags Íslands.

Hagkvæmari fyrir sveitarfélög

Sjálfstætt starfandi leikskólar fá að meðaltali 86 til 94 prósent af þeim kostnaði sem sveitarfélögin leggja til eigin leikskóla. Í flestum tilvikum innheimta einkareknu leikskólarnir ekki hærri skólagjöld en leikskólar sveitar­félaganna og eru þannig reknir fyrir umtalsvert lægri fjárhæðir.

Íslensku þjóðgildin eru jafnrétti og frelsi

„Áhugavert er að sömu gildi eru fundarmönnum efst í huga á tveimur þjóðfundum,“ segir Gunnar Hersveinn, rithöfundur og heimspekingur, sem greint hefur niðurstöður þjóðfundanna tveggja. „Ef til vill má kalla þau hin íslensku þjóðgildi sem ríkja um þessar mundir.“

Sósíalistar fengu gott fylgi

Frambjóðendum Sósíalistaflokksins í sveitarstjórnarkosningum á Grikklandi í gær virtist ætla að ganga vel, ef marka má fyrstu tölur. Þar með minnka likur á því að George Papandreou forsætisráðherra boði til þingkosninga.

Segist munu leiðrétta stefnuna

Barack Obama Bandaríkjaforseti segist þurfa að leiðrétta stefnu sína heima fyrir vegna kosningaúrslita, þar sem andstæðingar hans náðu meirihluta í fulltrúadeild þingsins.

Neyta sjaldnar áfengis

Unglingar í 10. bekkjum grunnskóla segjast neyta mun sjaldnar áfengis nú heldur en fyrir 12 árum. Í könnunum sem Rannsóknir og greining hafa framkvæmt árlega meðal tíundubekkinga síðastliðin tólf ár sést að áfengisneysla hefur dregist verulega saman. Árið 1998 sögðust 42 prósent unglinga hafa orðið ölvuð einhverntímann síðustu 30 daga, en 14 prósent árið 2010.

Sáttmáli skrifaður fyrir Íslendinga

Jafnrétti, lýðræði, mannréttindi, heiðarleiki og réttlæti eru á meðal þeirra helstu gilda sem fundargestir vilja að lögð verði til grundvallar í nýrri stjórnarskrá. Helstu niðurstöður Þjóðfundar um stjórnarskrá sem haldinn var á laugardag voru kynntar á blaðamannafundi í gær. Fundargestir voru um 950 talsins af landinu öllu.

Styrjaldir morgundagsins verða háðar á internetinu

Fréttaskýring: Hvernig mun öryggis- og viðbragðsteymi gegn tölvuárásum sem stjórnvöld hafa ákveðið að stofna verja netkerfi landsins? „Oft er sagt að styrjaldir morgundagsins verði háðar á internetinu," segir Þorleifur Jónsson, forstöðumaður tæknideildar Póst- og fjarskiptastofnunar.

Gagnrýndi stjórn sósíalista á Spáni

Mikill mannfjöldi fylgdist með Benedikt XVI. páfa þegar hann vígði hina sérstæðu kirkju, Sagrada familia, sem setur svip sinn á Barcelona á Spáni. Þegar páfi kom til kirkjunnar í gær biðu þar um 200 samkynhneigðir sem efndu til kossamótmæla gegn stefnu kaþólsku kirkjunnar, sem lítur samkynhneigð óhýru auga.

Samstarfið gengur vel

„Jón er borgarstjóri og hann stendur sig mjög vel, en þetta er líka hópvinna. Við erum ekki bara ein í Samfylkingunni og Besta flokknum að stjórna. Við gerum það með stórum hópi harðsnúinna starfsmanna Reykjavíkurborgar og síðan viljum við líka vinna með þeim sem eru í hinum flokkunum,“ segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, aðspurður hvort hann sé hinn raunverulegi borgarstjóri í Reykjavík.

Ísland verði miðstöð millilandaflugs frá Grænlandi

Íslandsstofa bindur vonir við að Ísland verði miðstöð millilandaflugs frá Grænlandi, en hingað til hafa Grænlendingar alltaf flogið í gegnum Kaupmannahöfn. Sendinefnd frá Íslandsstofu fer til Grænlands í vikunni til að kynna verkefnið.

Hugnast samstarf háskólanna í Borgarfirði

Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir yfir miklum áhyggjum af framkomnum hugmyndum um innlimun Háskólans á Bifröst í Háskólann í Reykjavík. Tillögurnar fela í sér að háskólanám á Bifröst muni leggjast af og það nám sem eftir stendur mun veikjast verulega, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá sveitarstjórn Borgarbyggðar. Sveitarstjórnin fagnar framkomnum hugmyndum um aukið samstarf háskólanna í Borgarfjarðarhéraði og mun leggja sitt af mörkum til þess að háskólarnir vaxi og dafni.

Byssumanninum lýst sem einfara

Karlmaður á fertugsaldri er í haldi lögreglunnar í Malmö í Svíþjóð, grunaður um að hafa staðið á bakvið átta skotárásir á innflytjendur þar í borg. Maðurinn, sem er 38 ára gamall, var handtekinn í íbúð sinni í miðbæ Malmö um klukkan sex síðdegis í gær.

Orðspor fjórflokksins lélegt

„Íslendingar hafa sýnt aðgerðarleysi ríkisstjórnar Samfylkingar og VG gríðarlegt langlundargeð. Það orsakast af því hvað hinir hlutar fjórflokksins hafa lélegt orðspor," segir í ályktun sem miðstjórn Frjálslynda flokksins samþykkti og sendi frá sér í dag.

Ferðir Herjólfs falla niður

Vegna veðurs mun Herjólfur ekki fara fleiri ferðir í dag milli lands og Vestmannaeyja. Farnar voru ferðir í morgun en hádegisferð sem var áætluð féll niður. Áætlað er að Herjólfur muni sigla frá Vestmannaeyjum klukkan 7:30 á morgun og frá Landeyjahöfn klukkan 9.

Afstaða rektors kom mönnum í opna skjöldu

Afstaða Magnúsar Árna Magnússonar, rektors Háskólans á Bifröst, um að slíta eigi viðræðum um sameiningu skólans við Háskólann í Reykjavík, kom stjórnarformönnum skólanna í opna skjöldu. Viðræðum um mögulega sameiningu verður haldið áfram. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu frá Andrési Magnússyni, formanni stjórnar Háskólans á Bifröst, og Finn Oddssyni, formanni háskólaráðs Háskólans í Reykjavík.

Skýr grunngildi

Niðurstöður Þjóðfundarins sem fram fór í Laugardalshöll í gær voru kynntar á blaðamannafundi í dag. Meðal helstu niðurstaðna eru að náttúra og auðlindir landsins séu óframseljanleg þjóðareign sem eigi að vernda, umgangast og nýta á sjálfbæran hátt þannig að aðgengi almennings sé tryggt. Þá er kveðið á um að atkvæða vægi verði jafnt, þingseta þingmanna verði háð tímatakmörkunum og þeim fækkað. Ráðherrar skulu ekki gegna þingmennsku ásamt ráðherraembætti. Þá er lagt til að skipan dómara verði endurskoðuð. Til að efla og bæta siðgæði þjóðarinnar þarf að kenna siðfræði í skólum landsins og auka samfélagslega ábyrgð almennings, að mati Þjóðfundarins.

Berlusconi segi af sér

Gianfranco Fini, forseti ítalska þingsins, vill að Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, segi af sér embætti. Fini er einn af stofnendum Frelsisflokks Berlusconi, en hann sagði skilið við flokkinn í sumar. Nokkrir þingmenn gerðu slíkt hið sama og við það veiktist pólitísk staða Berlusconi mikið. Ríkisstjórn hans hefur ekki lengur þingmeirihluta.

Elísabet drottning komin á Facebook

Elísabet II, drottning Breta, hefur opnað síðu á samskiptavefnum Facebook. Þetta gerir hún einkum fyrir tilstuðlan prinsessanna Beatrice og Eugenie sem eru dætur Andrews prins og Söruh Ferguson hertogaynju af York. Ár er frá því að drottningin hóf að nota Twitter en um jólin verða liðin þrjú ár frá því að hún opnaði sína eigin konunglegu síðu á myndbandavefnum YouTube.

Óásættanlegt að leggja niður háskólastarf á Bifröst

Hollvinasamtök Háskólans á Bifröst leggjast alfarið gegn hugmyndum sem fela í sér að háskólakennsla verði flutt frá Bifröst til Reykjavíkur. Samtökin leggja ríka áherslu á að sameiningarviðræður Háskólans á Bifröst og Háskólans í Reykjavík sem hafa staðið undanfarna mánuði fari fram á jafnræðisgrunni. „Að okkur hálfu er mjög skýrt að það á ekki að leggja Bifröst niður," segir formaður samtakanna.

Sjá næstu 50 fréttir