Fleiri fréttir

Guðbjartur inn - Kristján út og Árni skiptir um stól

Guðbjartur Hannesson þingmaður Samfylkingarinnar, verður ráðherra í ríkisstjórn Íslands og Kristján L. Möller mun láta af embætti samgöngumálaráðherra. Þetta hefur fréttastofa eftir öruggum heimildum en nú stendur yfir flokksráðsfundur Samfylkingarinnar á Hótel Loftleiðum þar sem Jóhanna Sigurðardóttir formaður flokksins og forsætisráðherra kynnir tillögur að nýrri ráðherraskipan.

Ásmundur Einar: Ögmundur verður ekki þægur ráðherra

„Menn eru komnir í algjört öngstræti með þessa stjórnarandstöðu innanborðs. Nú á að kippa henni inn fyrir borðstokkinn," segir Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.„Þegar órólega deildin er tekin inn þá er það væntanlega til þess að hún verði róleg.

Þing kemur saman í dag

Alþingi kemur saman i dag að loknu sumarleyfi. Þingfundur hefst klukkan hálftvö með því að Benedikts Gröndals, fyrrverandi forsætisráðherra og þingmanns, verður minnst, en hann lést í sumar.

Friðarferlið hafið að nýju

Beinar friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna eru hafnar eftir tveggja ára hlé. Viðræðurnar fara fram í Washington höfuðborg Bandaríkjanna og í gærkvöldi bauð Barack Obama forseti til kvöldverðar í Hvíta húsinu.

Hague sver af sér samkynhneigð

Utanríkisráðherra Bretlands hefur gefið út yfirlýsingu þar sem sögusögnum um samkynhneigð hans er vísað á bug.

Nokkur vafasöm ummæli stjórnmálamanna

Þau vöktu athygli, orð Þórunnar Sveinbjarnardóttur, sem sagði við fréttamann Ríkisútvarpsins í gær að hann skyldi segja frænda sínum að hoppa upp í rassgatið á sér. Þótt mörgum finnist ummælin þess eðlis að vart sé hægt að hafa þau eftir, er þetta síður en svo í fyrsta sinn sem ummæli íslenskra stjórnmálamanna vekja eftirtekt. Vísir rifjaði upp nokkur ummæli sem hefðu ef til vill best verið látin ósögð. Og þó….

Hundrað ára afmælis berklahælisins minnst

Berklahælið að Vífilsstöðum verður 100 ára á sunnudaginn, en hælið tók formlega til starfa 5. september árið 1910. Í tilefni tímamótanna verður dagskrá í aðalbyggingu hælisins á laugardaginn kemur, 4. september, með viðburðum fyrir alla fjölskylduna milli klukkan 13 og 16.

Þingflokkarnir funda

Þingflokkar Vinstri grænna og Samfylkingarinnar hittast klukkan níu til að ráða ráðum sínum um breytingar á ríkisstjórninni, og hundrað manna flokksstjórn Samfylkingarinnar hefur verið kölluð til fundar klukkan tíu.

Námamennirnir eru ekki byttur og dópistar

Heilbrigðisráðherra Chile hefur þurft að koma fram í fjölmiðlum og kveða niður sögusagnir þess efnis að námamennirnir 33 sem dúsa í lokaðri námu á 700 metra dýpi, séu alkóhólistar og fíkniefnaneytendur.

Leiðbeiningar fyrir lögreglu í mansalsmálum birtar

Greiningadeild ríkislögreglustjóra hefur tekið saman upplýsingar og leiðbeiningar um verklag fyrir lögreglu í mansalsmálum. Leiðbeiningarnar eru að stórum hluta byggðar á handbók norsku lögreglunnar um mansal. Þetta var gert í samræmi við aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn mansali.

Gíslatökumaður skotinn til bana

Lögregla í Maryland í Bandaríkjunum skaut í gær til bana mann sem hafði ráðist inn á starfsstöð Discovery sjónvarpsstöðvarinnar og tekið þrjá starfsmenn í gíslingu. Hann var vopnaður skammbyssu auk þess sem hann hafði spent á sig nokkrar áldósir sem lögregla óttaðist að væru sprengjur.

Kveikt í rusli og mikið að gera í sjúkraflutningum

Eldur var kveiktur í rusli uppi á þaki í leikskóla í Grafarvogi um tíu leytið í gærkvöldi, en slökkviliðinu tókst að ráða niðurlögum eldsins áður en hann ylli teljandi tjóni. Þakið er slétt og klætt tjörupappa, þannig að eldhaf hefði orðið, ef ekki hefði verið slökkt í tæka tíð. Talið er að börn eða unglingar hafi verið þarna að verki.

Rafmagnstruflanir víða um land

Eldur kviknaði í raftengibúnaði álversins á Grundartanga í gærkvöldi og truflanir urðu líka í álverinu í Straumsvík og á Reyðarfirði, vegna rafmagnstruflana víða um land á tíunda tímanum í gærkvöld.

Óvíst hvern Jóhanna velur

Óvissa ríkti um það í gærkvöldi hver kæmi nýr inn í ríkisstjórn fyrir hönd Samfylkingarinnar. Ögmundur Jónasson verður nýr ráðherra Vinstri grænna en úr Samfylkingunni eru nöfn Guðbjarts Hannessonar og Oddnýjar G. Harðardóttur helst nefnd.

Breyttur miðbær er á umræðustigi

„Allt er þetta svolítið í höndum Strætós enn þá,“ segir Karl Sigurðsson, borgarfulltrúi Besta flokksins og formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkur. Strætó bs. kynnti í gær hugmyndir sem miða að því að færa skipti- og endastöð vagna frá Hlemmi að BSÍ og breyta akstri um miðborg Reykjavíkur.

Stefnir í aðhaldsaðgerðir

Reykjanesbær freistar þess nú að selja eignir til að geta greitt upp 1,8 milljarða króna lán, og er undir smásjá stjórnvalda vegna fjárhagsvanda. Bæjarstjórinn segir að skýrast muni í september hvert framhaldið verði og hvort bærinn þurfi að ráðast í harkalegar aðhaldsaðgerðir.

Einoka aðgang að ljósleiðara

Upplýsingatækni Míla vinnur gegn markmiðum ríkisins um samkeppni á fjarskiptamarkaði með því að meina Vodafone um aðgang að ljósleiðarahringtengingu um landið. Þetta er mat Vodafone sem fengið hefur afhentan frá utanríkis­ráðuneytinu einn af átta ljósleiðaraþráðum í svokölluðum NATÓ-ljósleiðara sem Varnarmálastofnun hafði áður umráð yfir.

Yfirheyrslur enn í gangi

„Það eru yfirheyrslur í gangi og verða áfram,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, spurður um gang rannsóknar á morðinu sem framið var í Hafnarfirði í síðasta mánuði.

Niðurstöður þingmannanefndar fyrirferðarmestar

Tveggja vikna septemberþing verður sett í dag. Það er fyrst og fremst hugsað til að afgreiða mál sem ekki tókst að klára fyrr í ár. Fjölmiðlalög og lagabálkur um útlendinga og flóttamenn meðal þess sem ræða á.

Fjarskiptasjóður er að ljúka verki sínu

Lög um Fjarskiptasjóð gera að verkum að hann getur ekki styrkt verkefni á borð við ljósleiðaratengingu Öræfasveitar. Við jaðar útbreiðslusvæðis Fjarskiptafélags Öræfinga kunna hins vegar að vera staðir sem falla undir styrkhæfar aðgerðir sjóðsins.

Ljósleiðaratenging meiri bylting en hringvegurinn

Formleg opnun ljósleiðaranets fyrir um 50 sveitabæi í Öræfasveit fer fram á morgun, föstudaginn 3. september. „Haldin verður opnunarhátíð í Hólmgarði í Öræfasveit,“ segir Knútur Bruun, stjórnarformaður Fjarskiptafélags Öræfinga. „Bæjarstjórinn á Höfn telur þetta meiri framfarir en opnun hringvegarins. Enda getur maður nú setið í Öræfasveit og átt viðskipti við heiminn allan, auk möguleika í tengslum við fjarkennslu og annað slíkt. Þetta bætir öll búsetuskilyrði og heldur ungu fólki heima í sveitinni.“

Eldhús OR kostar 120 milljónir á ári

Eldhús í húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur (OR) kostaði 61 milljón í uppsetningu. Eldhúsið var sett upp árið 2003 og þremur árum síðar var bætt við innréttingum fyrir 9 milljónir til viðbótar. Rekstrarkostnaður eldhússins árið 2009 var 119,7 milljónir króna.

Lifði af fall af fertugustu hæð

Rúmlega tvítugur maður lifði af fjörutíu hæða fall ofan af húsþaki í New York. Maðurinn lenti á fólksbifreið af gerðinni Dodge Charger. Hann fór í gegnum bakrúðu bílsins og hafnaði í aftursætinu. Maðurinn brotnaði á báðum fótum en svo virðist sem hann hafi stokkið fram af þakinu.

Ellisif Tinna skilar góðu búi

Ellisif Tinna Víðisdóttir, forstjóri Varnarmálastofnunar, var leyst undan reglubundnum starfsskyldum sínum frá og með deginum í gær. Hún verður á launum til áramóta þrátt fyrir engar sérstakar starfsskyldur þangað til.

Segja ráðherra brjóta lögin

Niðurstaða lögfræðiálits sem Landssamband íslenskra útvegsmanna lét vinna er að sjávarútvegsráðherra hafi farið á svig við lög þegar hann ákvað að gefa ekki út aflamark í úthafsrækju fyrir komandi fiskveiðiár.

Endurgerð Vaktarabæjarins að ljúka

Framkvæmdum við endurgerð Vaktarabæjarins, næstelsta timburhúss Grjótaþorpsins, lýkur á næstu tveimur mánuðum að sögn Þorsteins Bergssonar, framkvæmdastjóra Minjaverndar.

Segjast hóflega bjartsýnir

Litlar vonir virðast bundnar við að nýjar viðræður Ísraela og Palestínumanna skili árangri, þótt þátttakendur segist hóflega bjartsýnir.

Forsendan fyrir stríðinu reyndist ekki rétt

„Vandinn við þetta stríð, í huga margra Bandaríkjamanna, er að ég held sá, að forsendan sem notuð var til að réttlæta upphaf þess reyndist þegar til kom ekki rétt,“ sagði Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, á miðvikudag þegar hann heimsótti bandaríska hermenn í borginni Ramadi í Írak.

Tvö þúsund blöðrur í loftið

Nemendur í leik- og grunnskólum munu sleppa 2.000 blöðrum til himins þegar ljósanótt í Reykjanesbæ verður sett í 11. sinn við Myllubakkaskóla í dag. Nemendur koma til athafnarinnar í skrúðgöngu með trommuslætti þar sem þeir flagga litum skólanna. Gítarsveit nemenda Gítar Myllos stjórnar fjöldasöng sem endar á fyrsta ljósalaginu, Velkomin á Ljósanótt, og Árni Sigfússon bæjarstjóri setur hátíðina.

Reykurinn í rofasal

Bilun varð í rofahúsi álvers Norðuráls á Grundartanga í kvöld sem varð til þess að rafmagn var slegið af álverinu. Minniháttar bruni olli því að reykur kom úr rýminu og fóru lögreglu- og slökkviðiliðsmenn á vettvang. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglunni í Borgarnesi var fólk ekki í hættu. Starfi slökkviliðsmana lýkur innan skamms en nú er unnið að því að hleypa rafmagni á álverið á nýjan leik.

Ósátt við ákvörðun Guðlaugs Þórs

Stór hluti landsmanna er óánægður með þá ákvörðun Guðlaugs Þór Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, að segja ekki af sér þingmennsku. Að sama skapi eru fjölmargir ósáttir við þá fyrirætlun Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, fyrrverandi varaformanns Sjálfstæðisflokksins, að setjast á nýjan leik á þing í haust. Þetta kemur fram í könnun sem MMR vann fyrir Viðskiptablaðið og greint er frá á vef blaðsins í kvöld.

Ósátt við vinnubrögð eftir slys

Fleiri en eitt dæmi eru um að láðst hafi að tilkynna foreldrum að börn þeirra hafi lent í alvarlegum slysum þegar að þau lenda á slysadeildum.

Björgvin gerir upp bankahrunið

Aðdragandi og eftirmálar efnahagshrunsins á Íslandi haustið 2008 er veigamikill þáttur í bók sem Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, skrifar um þessar mundir. Hann nýtur aðstoðar Karls Th. Birgissonar, blaðamanns og fyrrverandi framkvæmdastjór Samfylkingarinnar, við skrifin.

Flokksráð VG ekki kallað saman

Þingflokkur Vinstri grænna kemur saman klukkan níu í fyrramálið í þinghúsinu. Flokksráð VG verður ekki boðað til fundar vegna uppstokkunar á ríkisstjórninni. „Það er þingflokkurinn sem raðar upp sínum ráðherrum,“ sagði Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri þingflokksins, í samtali við fréttastofu í kvöld.

Reykur í álverinu á Grundartanga

Reykur kom upp í rými í álverinu á Grundartanga nú undir kvöld og var slökkviliðið á Akranesi kallað út vegna þess. Ekki er vitað á þessari stundu hvað veldur reyknum. Allt starfsfólk sem var inni í álverinu þegar að reyksins varð vart er komið út úr húsinu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akranesi.

Senda persónuupplýsingar um flugfarþega til bandarískra yfirvalda

Íslensk flugfélög þurfa að senda persónuupplýsingar úr farþegaskrám sínum til bandarískra yfirvalda á grundvelli samkomulags sem stjórnvöld hér á landi og í Bandaríkjunum hafa gert. Samkvæmt samkomulaginu njóta upplýsingarnar sömu verndar og upplýsingar um flugfarþega sem miðlað er til Bandaríkjanna frá ríkjum Evrópusambandsins. Greint er frá þessu á vef Persónuverndar.

Samninganefndin heldur ótrauð áfram

„Okkar vinnu Íslandsmegin miðar vel. Það er engin bilbugur á okkar fólki og góður taktur í þessu öllu saman og ég held að það sama verði að segja ESB-megin,“ segir Stefán Haukur Jóhannesson, formaður samninganefndar Íslands í aðildarviðræðum við Evrópusambandið.

Gerður Kristný verðlaunuð

Gerður Kristný fékk Vest-norrænu barnabókaverðlaunin í dag fyrir bók sína Garðurinn. Vestnorrænu barnabókaverðlaunin eru veitt annað hvert ár og fara dómnefndir yfir tilnefndar bækur frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi. Verðlaunin hafa verið veitt fimm sinnum og er þetta í fjórða skiptið sem íslenskur höfundur vinnur til verðlaunanna.

Öflugri flugsveitir vekja spurningar

Ákvörðun bandaríska flughersins, að senda hingað á morgun mun öflugri flugsveit til loftrýmisgæslu en áður hefur tíðkast, hefur vakið spurningar innan íslenska stjórnkerfisins hvort hún tengist áhuga herforingja NATO á að Íslandi verði komið upp eftirlitsmiðstöð fyrir norðurslóðir.

Tvískinnungur íslenskra útgerðarmanna

Evrópusambandssinnar segja það til marks um tvískinnung íslenskra útgerðarmanna að á sama tíma og þeir berjast gegn aðkomu útlendinga í íslenskum sjávarútvegi kaupi þeir upp kvóta innan lögsögu Evrópusambandsins.

Sjá næstu 50 fréttir