Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eiturlyfjabaróninn Coke er enn ófundinn Forsætisráðherra Jamaíka, Bruce Golding, hét því í gærkvöld að koma á allsherjarreglu í landinu. Meira en 30 manns hafa fallið í blóðugri baráttu gegn eiturlyfjabaróninum Christopher Coke sem staðið hefur yfir frá því um helgina. 26.5.2010 07:04
Ætla að skera niður um 24 milljarða evra Ítalska ríkisstjórnin hefur samþykkt 24 milljarða evra niðurskurð fyrir næsta ár og þarnæsta til að fást við fjárlagahallann. Upphæðin samsvarar 3800 milljörðum íslenskra króna. 26.5.2010 06:59
Besti flokkurinn með sjö fulltrúa Besti flokkurinn fær 43 prósenta fylgi og sjö fulltrúa í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt skoðanakönnun Morgunblaðsins. Vantar því aðeins einn fulltrúa á hreinan meirihluta. 26.5.2010 06:48
Sendir 1200 hermenn að landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, ætlar að senda allt að 1200 hermenn að landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó til að fást við ólöglega 26.5.2010 06:44
Óbreytt staða í Fjarðabyggð Meirihluti Fjarðalistans og Framsóknarflokks í Fjarðabyggð heldur í sveitarstjórnarkosningunum á laugardag, ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var í gærkvöldi. 26.5.2010 06:30
Snæfellsjökull lýstur upp til að vekja fólk „Þetta verða skilaboð til allra hér á jörðu um að við verðum að takast á við hnattræna hlýnun,“ segir þýski listamaðurinn Gert Hof, sem áætlar að lýsa upp sjálfan Snæfellsjökul í október á þessu ári. 26.5.2010 05:15
Greina hefði átt frá styrkjunum Forstjóri Veiðimálastofnunar rannsakar hvort Bjarni Jónsson, deildarstjóri hjá stofnuninni, hafi sótt um og þegið styrki í gegnum einkafyrirtæki sitt í samkeppni við Veiðimálastofnun. DV greindi frá málinu á dögunum. 26.5.2010 05:00
Hross bar pestina líklega til Þýskalands Hrossapestin sem geisað hefur hér á landi virðist ekki í rénun. Stór hrossabú eru víða óstarfhæf og þekkt að folöld hafi fæðst veik. Grunur leikur á að hross sem flutt var út til Þýskalands nýlega hafi smitað hross á búgarði þar. Þetta segir Björn Steinbjörnsson dýralæknir sem kortlagt hefur útbreiðslu pestarinnar. 26.5.2010 04:30
Mestu breytingarnar í 30 ár Stjórnendur Menntaskólans á Akureyri hafa ráðist í umfangsmiklar breytingar á námsskrá og kennslufyrirkomulagi skólans. Eru þetta mestu breytingar sem gerðar hafa verið frá því áfangakerfi var tekið upp fyrir 30 árum. Hugmyndin að baki breytingunum er að auka virkni nemenda og ábyrgð þeirra á námi sínu. 26.5.2010 04:00
Fimm milljónir stunda í netleik Fimm milljónir vinnustunda fara forgörðum daglega vegna þess hve margir spila netútgáfu tölvuleiksins Pac-Man á leitarvef Google, að því er áætlað er í nýrri rannsókn Rescue Time. 26.5.2010 04:00
Beiðnum um vistun fjölgar um fjórðung Umsóknum um vistun barna á meðferðarheimili fjölgaði um 26 prósent fyrstu þrjá mánuði ársins 2010 miðað við sama tímabil árið á undan, að því er fram kemur í nýrri samantekt Barnaverndarstofu. „Fyrstu þrjá mánuði ársins 2009 voru 38 umsóknir, en fjölgaði í 48 sama tímabil árið 2010,“ segir þar. 26.5.2010 04:00
Kýldi og skallaði lögreglu Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir að kýla lögreglumann í andlitið og skalla annan lögreglumann í ennið. 26.5.2010 02:30
Bensínverðið þokast niður Olíufélögin lækkuðu bensínverð um tvær krónur og verð á dísilolíu um þrjár krónur í gær, í kjölfar mikillar lækkunar á olíuverði á heimsmarkaði. 26.5.2010 02:00
Bankaræningjar misreiknuðu sig Bankaræningjar í Þýskalandi misreiknuðu sig illilega þegar þeir ætluðu að sprengja upp peningahólf í banka einum á landsbyggðinni. Þeir virðast hafa notað allt of mikið sprengiefni því bankinn hreinlega sprakk í loft upp. Enginn slasaðist þó í sprengingunni en brak úr bankanum skemmdi þó nærliggjandi byggingar og bíla. Fimmtíu og fimm slökkviliðsmenn voru í því að slökkva elda í byggingum og bílum á svæðinu. Ræningjarnir hurfu að sögn lögreglu á braut tómhentir og er þeirra nú leitað. 25.5.2010 23:48
Átján stútar teknir um helgina Átján ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um hvítasunnuhelgina. Í tilkynningu frá lögreglu segir að fjórtán þeirra hafi verið stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Mosfellsbæ og einn í Hafnarfirði. Einn var tekinn á föstudag, níu á laugardag, fimm á sunnudag og þrír á mánudag. 25.5.2010 22:29
Breskir krimmar handteknir á Spáni Lögregla í spænsku ferðamannaparadísinni Costa del Sol hefur handtekið tugi breskra ríkisborgara sem eru grunaðir um stórfellda glæpastarfsemi á Spáni og á Bretlandi. Mennirnir eru sagðir hafa haldið úti umfangsmiklu eiturlyfja- og byssusmygli og verið með höfuðstöðvar sínar á Spáni. 25.5.2010 22:16
Handteknir við innbrotstilraun Lögreglan handtók í kvöld tvo menn við innbrot í verslunarhúsnæði í Hófgerði í Kópavogi. Mennirnir höfðu komist inn og tekið flatskjá og önnur verðmæti. Þeir voru enn á staðnum þegar lögreglu bar að garði og reyndu þeir að leggja á flótta. Lögreglumennirnir höfðu þó hendur í hári þeirra og dvelja mennirnir nú í fangageymslum og bíða yfirheyrslu. 25.5.2010 21:15
Hera Björk komst áfram Fulltrúi Íslands í Eurovision, Hera Björk, komst áfram úr undankeppninni sem fram fór í Telenor höllinni í Osló í kvöld. Hera fær því að flyta lagið Je Ne Sais Quoi í aðalkeppninni á laugardaginn kemur. Atkvæðagreiðslan var gríðarlega spennandi en íslenski fáninn var sá síðasti sem kom upp úr hattinum. Hér að neðan má sjá þau tíu lönd sem komust áfram í úrslitakeppnina. 25.5.2010 20:54
Tvö álfyrirtæki talin raunhæfur kostur - ríkisstjórn vill leita betur Verkefnisstjórn um nýtingu orkunnar í Þingeyjarsýslum hefur komist að þeirri niðurstöðu að tvö verkefni séu áhugaverð og raunhæf; álver á vegum Alcoa og álver á vegum kínverska fyrirtækisins Bosai. Ríkisstjórnin vill hins vegar leita betur að einhverju öðru. 25.5.2010 19:35
Segist saklaus af bókaþjófnaði Ari Gísli Bragason fornbókasali segist vera saklaus af bókaþjófnaði en eins og Vísir greindi frá fyrr í dag hefur hann verið ákærður ásamt Böðvari Kvaran fyrir þjófnað á tugum bóka úr dánarbúi Böðvars Kvaran. Í samtali við Pressuna segist Ari vera miður sín yfir ákærunni en hann er sagður hafa vitandi vits tekið við stolnum bókum til endursölu. 25.5.2010 19:34
Hera Björk stóð sig með prýði Flutningur Heru Bjarkar fékk frábærar viðtökur í Osló í dag þegar hún flutti framlag Íslands í Eurovision keppninni. Hera flutti lagið Je Ne Sais Quoi með stakri prýði og þegar flutningi lauk ætlaði þakið að rifna af Telenor höllinni. Nú verður kosið um hvaða lönd komast áfram í úrslitakepnnina sem haldin verður á laugardag. 25.5.2010 20:16
Þrír farþegar slösuðust í ókyrrð yfir Atlantshafi Þotu frá United Airlines lenti í svo mikilli ókyrrð á Atlantshafi að þrír um borð slösuðust. Vélin var á leið frá London til Los Angeles og þurfti að lenda henni í Ottawa í Kanada til þess að koma hinum slösuðu undi læknishendur. Þeir sem slösuðust, einn úr áhöfn og tveir farþegar, brotnuðu meðal annars á fótum og á ökla. Vélin verður kyrrsett í Kanada og leitað að skemmdum. 25.5.2010 20:08
Ríkisstjórnin á endastöð Verkalýðsforingi af Vesturlandi boðar verkföll gegn handónýtri ríkisstjórn í haust. Ríkisstjórnin sé margklofin og geti ekki sinnt brýnustu málum vegna innbyrðis deilna. Ríkisstjórnin sé komin á endastöð - og það fyrir löngu. Forsætisráðuneytið vísar á bug staðhæfingum um aðgerðarleysi í atvinnumálum. 25.5.2010 18:40
Eignir grunaðra verði gerðar upptækar án dóms Eignir þeirra sem grunaðir eru um að hafa hagnast á glæpsamlegan hátt verða gerðar upptækar án þess að refsidómur hafi fallið, nái frumvarp Helga Hjörvars þingmanns Samfylkingarinnar fram að ganga. Íslendingar geta dregið úr skaðanum sem hlaust af bankahruninu með þessu úrræði segir yfirmaður frá Europol sem er kominn hingað til lands. 25.5.2010 18:28
Einstaka öskusprengingar í Eyjafjallajökli Lítil virkni var í Eyjafjallajökli í dag þó vart hafi orðið við einstaka öskusprengingar. Í stöðuskýrslu frá Veðurstofunni fyrir daginn í dag segir að mesmegnis stígi vatnsgufa frá eldstöðinni og að greinilega sé mikið gas sjáanlegt umhverfis gíginn. Ellefu jarðskjálftar hafa mælst frá miðnætti undir eldfjallinu, en átta skjálftar mældust þar í gær. 25.5.2010 18:01
Rafmagnsleysi á Laugavegi Rafmagnsleysi er nú á Laugavegi. Í tilkynningu frá Orkuveitunni segir að bilun hafi orðið á fæðisstreng í götunni og nú er rafmangslaust í húsum frá númer 60 til 80. Unnið er að því að koma rafmagni á aftur og eru vinnuflokkar á staðnum. 25.5.2010 17:49
Rannsaka árás á lóð Barnaskóla Vestmannaeyja Lögreglan í Vestmannaeyjum rannsakar nú mál sem upp kom á lóð Barnaskóla Vestmannaeyja þann 21. maí síðdegis. Þá var lögreglu tilkynnt um að fjórir drengir á 16. ári hafi ráðist á þann fimmta, sem er á 14. ári. Að sögn lögreglu mun drengnum hafa verið haldið niðri af þremur drengjanna á meðan sá fjórði lamdi hann ítrekað. Málið er litið alvarlegum augum og er það í rannsókn lögreglu. 25.5.2010 17:08
Blóðugir bardagar á Jamaica Tuttugu og sjö manns hafa fallið í bardögum milli lögreglumanna og liðsmanna eiturlyfjabarónsins Christiphers Coke á Jamaica. 25.5.2010 16:52
Stríð vofir yfir á Kóreuskaga Spenna milli Norður- og Suður-Kóreu hefur vaxið með hverjum deginum síðan alþjóðleg rannsóknarnefnd staðfesti að norðanmenn hefðu sökkt herskipi sunnanmanna í síðasta mánuði. 25.5.2010 16:02
Dópdallur settur í farbann Skip, sem grunur leikur á að hafi verið notað til þess að smygla um þremur tonnum af kannabis til Hollands, hefur verið sett í farbann. 25.5.2010 16:02
ASÍ: Ríkisstjórnin fær falleinkun Það var þungt hljóðið í formönnum aðildarfélaga ASÍ á formannafundi í dag samkvæmt tilkynningu frá ASÍ. 25.5.2010 15:38
Ákærðir fyrir stórfelldan bókaþjófnað Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært Ara Gísla Bragason og Böðvar Yngva Jakobsson fyrir þjófnað á tugum bóka úr dánarbúi Böðvars Kvarans á seinni hluta ársins 2006 og fyrri hluta ársins 2007. 25.5.2010 15:29
Flaggskip Nelsons í flösku á Trafalgartorgi Risastór glerflaska með líkani af HMS Victory flaggskipi Nelsons í orrustunni við Trafalgar var afhjúpuð á Trafalgartorgi í Lundúnum í dag. 25.5.2010 15:01
AGS mótmælt í Búkarest Þúsundir ellilífeyrisþega fóru út á götur Búkarest höfuðborgar Rúmeníu í dag til þess að mótmæla niðurskurði sem gerður er að kröfu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Niðurskurðurinn felur 25.5.2010 14:14
Engin eldsumbrot en nokkuð um svifryk Gosið liggur niðri samkvæmt stöðumati almannavarna en þó er nokkuð um svifryksmengun á svæðinu. Á Hvolsvelli hafa loftgæði verið góð síðan á föstudaginn en veðrið hefur verið hæglátt. Ekkert öskufall hefur átt sér stað á svæðinu á þessum tíma. 25.5.2010 14:13
Mannskætt gullrán í Bagdad Fimmtán manns voru drepnir þegar vopnaðir ræningjar gerðu árás á gull- og skarpgripamarkað í Bagdad í dag. 25.5.2010 13:58
Hornið kom út um munninn Miðað við þessa mynd er það eins og spænski nautabaninn Julio Aparicio hafi upplifað dálítið kraftaverk. 25.5.2010 13:51
Nafn mannsins sem lést í sjósundi Maðurinn sem drukknaði í sjósundi á laugardagskvöldið í Stykkishólmi hét Marís Þór Jochumsson en hann var 39 ára gamall, fæddur 28. október 1970. Hann var til heimilis að Vindási 4 í Reykjavík. Hann lætur eftir sig unnustu og börn úr fyrra sambandi. 25.5.2010 13:45
Lagfæringar á veginum inn í Þórsmörk að hefjast Lagfæringar á veginum inn í Þórsmörk hefjast í vikunni og reiknað er með að fært verði inn í Mörk um næstu helgi. Það er eigi að síður í valdi Almannavarna hvort umferð verði leyfð á svæðinu samkvæmt upplýsingum sem finna má á vefsíðu Vegagerðarinnar. 25.5.2010 13:00
Ákærður fyrir að lemja tvo lögregluþjóna með mánaðar millibili Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir að slá lögregluþjón með krepptum hnefa í andlitið í nóvember á síðasta ári þegar hann hugðist hafa afskipti af manninum vegna skyldustarfa sinna. Árásin átti sér stað í fangaklefa á Húsavík. 25.5.2010 12:50
Sigldi til Íslands á ónýtum dópdalli og til baka með Norrænu Einn Hollendingurinn af þremur, sem voru handteknir við komuna til Seyðisfjarðar fyrir um tveimur vikum síðan grunaðir um aðild að fíkniefnasmygli, er farinn úr landi. 25.5.2010 12:23
Kaupþing og Landsbankinn styrktu Gísla Martein um milljón Kaupþing og Landsbankinn styrktu Gísla Martein Baldursson, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, um eina milljón króna fyrir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna árið 2006. Þetta segir Gísli Marteinn í samtali við Vísi. Eins og DV hafði áður greint frá styrktu Baugur og FL Group Gísla Martein jafnframt um milljón hvor. 25.5.2010 11:35
Fámenn mótmæli fyrir utan stjórnarráðið Um fimmtíu mótmælendur mótmæltu fyrir utan stjórnarráðið á meðan ríkisstjórnarfundur fór fram þar innandyra í morgun. Mótmælin eru á vegum Heimavarnarliðsins sem eru samtök sem mótmæla uppboðum á heimilum. 25.5.2010 11:32
Stefnuræða í Lundúnum lokar á valdaafsal til Brussel Venju samkvæmt var það Elísabet drottning sem flutti stefnuræðu hinnar nýju ríkisstjórnar Bretlands. 25.5.2010 11:05
Þyrla sótti slasaðan ökumann til Borgarfjarðar Ökumaður bifreiðar, sem valt í Borgarfirðinum, var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvoginum í morgun. 25.5.2010 10:26