Forseti Íslands kynnti málstað Íslendinga í Kýpur og í Litháen Jón Hákon Halldórsson skrifar 4. ágúst 2009 20:00 Ólafur Ragnar Grímsson hefur farið til Kýpur og Litháen í sumar. „
Á undanförnum vikum og mánuðum hefur forseti Íslands hitt að máli þjóðhöfðingja og forystumenn allmargra ríkja, m.a. í heimsókn sinni til Kýpur nýverið vegna Smáþjóðaleikanna og Litháen þar sem hann tók þátt í hátíðarhöldum vegna þúsund ára þjóðarafmælis." Þetta segir í svari forseta Íslands við fyrirspurn fréttastofu um það með hvaða hætti forsetinn hafi tekið þátt í að kynna málstað Íslands í Icesave deilunni. Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara, skrifaði nýlega greinar í fjögur erlend blöð þar sem hún tók upp málstað Íslendinga í Icesave deilunni. Eftir að greinarnar birtust hafa sérfræðingar á sviði almannatengsla fullyrt að íslensk stjórnvöld hafi ekki gert nógu mikið í því að kynna málstað Íslendinga á erlendum vettvangi. Fréttastofa spurði þess vegna forsetann að því með hvaða hætti hann hefði komið að því að kynna málstað Íslendinga í deilunni og hvort hann hygðist standa að eða taka þátt í slíku kynningarstarfi á næstunni. Forsetinn segir að bæði í heimsókninni til Kýpur og í Litháen hafi hann átt viðræður við marga þjóðarleiðtoga og sérstaka fundi með nokkrum þeirra. Þá hafi hann á undanförnum vikum átt viðræður hér heima við erlenda sérfræðinga, áhrifamenn og fjölmiðlafólk. Forseti segir hins vegar að samkvæmt íslenskri stjórnskipan fjalli ráðherrar um þau mál sem þeir og ríkisstjórn leggi fyrir Alþingi. Forsetar hafi ekki verið talsmenn einstakra frumvarpa. Hins vegar hafi bæði núverandi og fyrrverandi forsetar komið að því með ýmsum hætti að kynna málstað Íslands á erlendum vettvangi og við erlenda ráðamenn og þá oft í samvinnu við íslensk stjórnvöld á hverjum tíma. Fréttastofa hefur ítrekað í dag reynt að ná sambandi við Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra til að spyrja hann að því með hvaða hætti ráðherra hefði komið að kynningarstarfi á málstað Íslendinga og með hvaða hætti hann hygðist gera það. Ekki hefur náðst í ráðherrann, en hann er staddur erlendis.
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Innlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira