Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bill Clinton í Norður Kóreu Bill Clinton fyrrverandi forseti Bandaríkjanna er nú staddur í Norður Kóreu til þess að reyna að fá tvo bandaríska blaðamenn lausa úr fangelsi. Þær Laura Ling og Euna Lee voru handteknar í mars fyrir að ferðast ólöglega í landinu og voru þær síðan dæmdar í tólf ára þrælkunarvinnu. 4.8.2009 07:15
Innbrotaalda í Reykjavík um helgina Á fimmta tug innbrota og þjófnaða hafa verið kærðir til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina, sem er talsvert meira en undanfarnar verslunarmannahelgar. Meðal annars var brotist inn í fyrirtæki, íbúðarhúsnæði, sumarhús og bíla. 4.8.2009 07:02
Tveir slösuðust á Hringbraut Tveir menn slösuðust þegar bíll þeirra hafnaði uppi á hringtorgi fyrir framan JL húsið vestast á Hringbraut í Reykjavík á þriðja tímanum í nótt. Þeir voru fluttir á Slysadeild til aðhlynningar og er ökumaðurinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. 4.8.2009 07:00
14 ára á stolnum bíl Lögreglan á Seofossi handtók tvo fjórtán ára pilta laust eftir miðnætti, eftir að hafa stöðvað þá á stolnum bíl rétt utan við bæinn. Þeir voru að sjálfsögðu réttindalausir líka, auk þess sem bíllinn var bremsulaus þannig að lögregla lét flytja hann brott með kranabíl. 4.8.2009 06:57
Obama fær 30 líflátshótanir á dag Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, fær 30 líflátshótanir á dag og sífellt fleiri leyniþjónustumenn gæta hans, eftir því sem fram kemur í nýrri bók um forsetann 3.8.2009 20:09
Um helmingur landsmanna styður ríkisstjórnina Tæpur helmingur þjóðarinnar styður ríkisstjórnina, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Stuðningur minnkar síðan í júní. 3.8.2009 18:00
Hundur drapst í vélhjólaslysi Umferð er farin að þyngjast verulega bæði á Suðurlandsvegi og Vesturlandsvegi, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Umferð hefur þó gengið mjög vel og er ekki vitað til þess að nein alvarleg slys hafi orðið. 3.8.2009 16:59
Umferð gengur vel Umferð til Reykjavíkur hefur gengið vel það sem af er degi og hefur lögreglunni ekki borist tilkynning um nein slys. Lögreglumenn í Borgarnesi segja að umferðin hafi verið róleg í morgun. Upp úr eitt hafi hún tekið að þyngjast örlítið. Lögreglumenn á Selfossi segja að umferð um Suðurlandsveg sé ekki enn tekin að þyngjast og geta þeir sér þess til að fólk fresti heimkomum úr helgarferðum vegna góðs veðurs. 3.8.2009 14:58
Mótmæla lögbanni á fréttir Ríkisútvarpsins Blaðamannafélag Íslands og Félag fréttamanna á Ríkisútvarpinu mótmæla lögbanni á fréttir Ríkisútvarpsins sem byggja á gögnum frá lánanefnd Kaupþings í aðdraganda efnahagshrunsins. 3.8.2009 19:18
Kaupþing friðþægir fyrir stjórnvöld Markmiðið með greiðsluaðlögunúrræði Kaupþings er að tryggja greiðsluvilja lántakenda og þar með rekstrargrundvöll bankans. Jafnvel virðist sem markmiðið sé einnig að fría stjórnvöld frá þeirri ábyrgð að tefla fram raunverulegum og sanngjörnum kerfisbundnum lausnum fyrir heimilin í landinu. Þannig skapi þetta úrræði ákveðna friðþægingu fyrir stjórnvöld. 3.8.2009 16:20
Forgangsverkefni að sinna Afganistan Forgangsverkefni NATO hlýtur að vera stríðið í Afganistan og að semja við hófsama menn úr röðum Talibana, segir Anders Fogh Rasmussen framkvæmdastjóri NATO. 3.8.2009 14:45
Barnalíknarheimili berst enn í bökkum vegna hruns Kaupþings Eigendur barnalíknarheimilisins Naomi House hafa skrifað Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, bréf og óskað eftir því að lögfræðileg greinagerð verði gert um bótagreiðslur til þeirra sem töpuðu fé við hrun íslensku bankanna. 3.8.2009 14:15
Lögreglan óskar aðstoðar við rannsókn 11-11 ránsins Tveir menn voru við vinnu í 11-11 versluninni þegar tveir menn vopnaðir hnífum ógnuðu þeim og flúðu á brott með þýfi. Starfsmennina sakaði ekki, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. 3.8.2009 13:01
Sjúkraflutningamenn vara við akstri undir áhrifum áfengis Sjúkraflutningamenn á Suðurlandi vilja brýna það fyrir ferðalöngum sem hyggja á heimferðir í dag eftir verslunarmannahelgina að ganga úr skugga um að ökumenn séu allsgáðir. 3.8.2009 12:07
Vopnað rán í 11-11 Tveir menn réðust vopnaðir hníf inn í 11-11 verslun í Skipholti um ellefuleytið í morgun. Mennirnir eru taldir vera um tvítugt. Þeir ógnuðu starfsfólki verslunarinnar, tóku með sér eitthvað þýfi og óku svo á brott á bláleitum smábíl. Lögreglumaður sem fréttastofa náði tali af sagðist ekki vita hversu mikið þýfi hefði verið tekið úr versluninni. 3.8.2009 12:01
Tveir látnir vegna skæðs lungnasjúkdóms í Kína Tveir hafa látist úr lungnasjúkdómi í norðvestur Kína en yfirvöld þar hafa sett heilt bæjarfélag í einangrun þar sem á annan tug manna hafa greinst með bráðsmitandi og banvænan lungnasjúkdóm. Sjúkdómurinn er af sömu gerð og svarti dauði sem dró hátt í 25 milljónir manna til dauða á miðöldum. Þetta kemur í kínverskum fjölmiðlum í morgun. 3.8.2009 10:15
Harry Potter áhorfendum lenti saman í bíó Sextán ára drengur í Bretlandi hefur verið kærður fyrir að hafa ætla sér að stórskaða konu með því að hella yfir hana klór. Atvikið átti sér stað fyrir viku í Leeds. Konan sem er 46 ára hafði farið í bíó ásamt tveimur börnum sínum að sjá Harry Potter. 3.8.2009 10:07
Þrjú kynferðisbrot til rannsóknar hjá lögreglunni á Selfossi Tvær nauðganir og ein nauðgunartilraun eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Selfossi eftir helgina. Fimmtán ára stúlka kærði nauðgun til lögreglunnar á laugardagsmorgun. 3.8.2009 09:59
Tvö umferðaróhöpp á Akureyri Bíll keyrði útaf við Fagraskóg á Ólafsfjarðarvegi á milli Akureyrar og Dalvíkur undir morgun. Engin slys urðu á fólki. 3.8.2009 09:47
Tvö kynferðisbrotamál í Vestmannaeyjum Tvö kynferðisbrotamál voru tilkynnt til lögreglunnar í Vestmannaeyjum í morgun. Brotin beindust í báðum tilfellum gegn ungum konum. Annað málið er enn í rannsókn en lögreglan segir að í hinu tilfellinu hafi hugsanlega verið um tilraun til nauðgunar að ræða. Þá var lögreglu tilkynnt um líkamsárás þegar karlmaður var sleginn í andlitið undir morgun. 3.8.2009 09:27
Brotist inn í fjögur hús í Reykjavík Brotist var inn í fjögur hús í Reykjavík í nótt. Eitt þeirra var við Keilufell í Breiðholti. Þar vöknuðu húsráðendur við þrusk um sexleytið í morgun. Þegar fólkið gáði að hvað um var að vera sá það að búið var að róta í öllu þeirra dóti og tveir bíllyklar höfðu verið teknir. 3.8.2009 09:10
Spænsku konungshjónin óhrædd við aðskilnaðarsinna Konungur Spánar Juan Carlos og drottningin Sofia ferðuðust til sumardvalarstaðar síns á Mallorca, aðeins tveim dögum eftir að sprengjutilræði aðskilnaðarsinna banaði tveimur í borginni Palmanova á eyjunni. 3.8.2009 08:00
Afgreiddi þrefaldan íbúafjölda bæjarins á Færeyskum dögum Met féll á veitingastaðnum Við Fjöruborðið á Stokkseyri um helgina, en staðurinn afgreiddi um 800 humarskammta í gær og hafði afgreitt 700 þegar blaðamaður hafði samband klukkan rúmlega níu í kvöld. 2.8.2009 21:25
Hundruðir Ísraela mótmæltu hatursglæpum Hundruðir Ísraela söfnuðust saman á mótmælafundi síðustu nótt eftir að ráðist var á ungliðamiðstöð samkynhneigðra í Tel Aviv í gærkvöldi. 2.8.2009 20:45
Nýfundin verk eftir Mozart leikin á hans eigin píanó Mozart var undrabarn. Hann byrjaði að spila tónlist aðeins þriggja ára gamall og að semja tónverk fimm ára. Talið er að hann hafi verið sjö eða átta ára gamall þegar hann samdi verkin sem kynnt voru í dag. 2.8.2009 19:17
Fleiri en tíu þúsund í Fjölskyldugarðinum Mikill mannfjöldi sótti Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag en þar var sannkölluð rjómablíða. Meðal þeirra sem stigu á stokk voru Skoppa og Skrítla, Glanni glæpur úr Latabæ og hljómsveitin Stuðmenn. 2.8.2009 19:13
Niðurrif í Tyrklandi misheppnaðist hörmulega Það gekk heldur illa þegar reynt var að jafna hús við jörðu á Tyrklandi í gær. Húsið endaði á þakinu. 2.8.2009 19:08
Falsaður Kjarval í umferð Falsaðir tvöþúsund krónaseðlar hafa fundist í nokkrum verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan rannsakar málið. 2.8.2009 19:00
Raul Castro: Varð ekki forseti til að innleiða kapitalisma Raul Castro forseti Kúbu sagði á þingi í dag að hann hefði ekki orðið forseti til þess að innleiða kapítalisma og hverfa frá sósíalisma. Hann beindi orðum sínum til Hillarys Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna. 2.8.2009 18:57
Meira en milljarður til framkvæmdasjóðs aldraðra Landsmenn greiða rúman milljarð í framkvæmdasjóð aldraðra í ár en sjóðnum er ætlað að byggja upp og efla öldrunarþjónustu í landinu. 2.8.2009 18:45
Smábátaeigendur efast um lögmæti tvöföldunar vaxta Smábátaeigendur, sem vilja láta frysta lán sín áfram, eru ósáttir við að frystingin hafi það í för með sér að vextir lánanna hækki um allt að hundrað prósent og að myntbreyting verði gerð á lánunum. Framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda efast um lögmæti aðgerðanna. 2.8.2009 18:39
Segir mörg félög á lánalistanum ekkert til saka unnið Bankastjóri Nýja Kaupþings segir brýnt að vernda trúnaðarupplýsingar um viðskiptavini bankans og því hafi verið krafist lögbanns á birtingu gagna um lánafyrirgreiðslur til þeirra. Formaður Blaðamannafélagsins segir ljóst að breyta þurfi lögum um bankaleynd hyggist bankinn beita þessum rökum áfram. 2.8.2009 18:27
Slapp furðuvel eftir mótorhjólaslys Mótorhjólamaður sem fór út af Þingvallaveginum um þrjú leytið í dag virðist hafa sloppið furðuvel, að því er vakthafandi læknir á slysadeild segir. 2.8.2009 17:17
Hættulegar Hondur innkallaðar Honda verksmiðjurnar hafa innkallað 440 þúsund bíla í Danmörku meðal annars af gerðinni Accord og Civic vegna hugsanlegs hættulegs galla í loftpúðunum sem eiga að verja fólk í árekstrum. 2.8.2009 17:13
Múhaha Frakklandsmegin við jarðgöngin undir Ermarsund eru búðir ólöglegra innflytjenda sem beita öllum brögðum til þess að komast yfir sundið til Bretlands. 2.8.2009 16:19
Rússland: Yfir hundrað látist í umferðinni á einni viku Umerðarslysahrina í Rússlandi hefur leitt til meira en hundrað dauðsfalla á einni viku, en ríkisstjórnin segja vandann „kerfislægan". 2.8.2009 16:08
Borgað með bensínhákum Bandaríkjaþing samþykkti á föstudag að bæta tveimur milljörðum dollara við í herferð til þess að losa bensínháka af götum landsins. 2.8.2009 16:01
Einn handtekinn vegna nauðgunar á Kirkjubæjarklaustri Lögreglunni á Hvolsvelli hefur borist kæra vegna nauðgunar sem átti sér stað á Kirkjubæjarklaustri snemma í morgun. Einn hefur verið handtekinn, en frumrannsókn á málinu stendur yfir. 2.8.2009 14:49
Laminn illa í Eyjum 24 ára gamall þjóðhátíðargestur hefur kært líkamsárás til lögreglu. Hann bar skarðan hlut frá borði eftir átök við annan mann í morgun og hlaut brotna tönn, nefbrot og skurð í andliti. 2.8.2009 14:06
Ein besta þjóðhátíð frá upphafi Birgir Guðjónsson, formaður þjóðhátíðarnefndar, var nýkominn inn í Herjólfsdal þegar fréttastofa náði tali af honum. 2.8.2009 13:47
Sprengjuhætta stafaði af heimilislausum La Guardia flugvöllur í New York var rýmdur með látum í gær þegar farþegi gerði sig líklegan til að sprengja þar sprengju. 2.8.2009 13:14
Palestínumenn út og gyðingar inn Tvær palestinskar fjölskyldur voru reknar af heimilum sínum í Austur-Jerúsalem í dag og gyðingafjölskyldum leyft að flytja í hús þeirra í staðinn. 2.8.2009 13:09
Treystu á Guð frekar en lækna Bandarískir foreldrar hafa verið fundin sek um að hafa treyst á Guð fremur en lækna, þegar ellefu ára dóttir þeirra misssti meðvitund. 2.8.2009 13:02
Fimmhundruð skógareldar í Kanada Yfir fimmhundruð skógareldar geisa nú í Kanada. Þeir eru einkum í Bresku Kólumbíu. Þar hafa verið miklir þurrkar og hiti undanfarnar vikur. Gordon Campbell ríkisstjóri segir að önnur eins eldhætta hafi ekki vofað yfir í manna minnum. Skógar og graslendi sé svo þurrt að eldar kvikni af minnsta tilefni. Slökkviliðsmenn berjast dag og nótt við eldana sem þegar geisa. 2.8.2009 12:58
Útilokar ekki Facebook siðareglur blaðamanna „Það er alveg umhugsunarefni að blaðamenn eigi að setja sér einhverjar siðareglur hvað svona varðar," segir Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, um tilvitnanir í Facebook síður fólks. 2.8.2009 12:34