Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skoða nettóarð virkjunar Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra telur nauðsynlegt að gera Kárahnjúkavirkjun heildstætt upp og fá á hreint hver er nettó virðisaukinn sem eftir verður í samfélaginu. Hann segist hafa beðið sitt fólk í ráðuneytinu að kanna hvort ekki sé hægt að taka þau gögn saman. Ekki er þó ákveðið með heildarúttektina. 30.5.2009 06:00
Þjóðarsátt í uppnámi „Það er ljóst að kjarasamningar hanga á bláþræði og líklegt að það slitni upp úr þessu endanlega,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Aðilum vinnumarkaðarins tókst ekki að ná samkomulagi um launahækkanir þrátt fyrir langar fundarsetur í gær. Þjóðarsátt um áætlun í efnahags-, kjara-, og félagsmálum er í uppnámi. 30.5.2009 05:30
Skattahækkun talin nauðsyn Ólíklegt er talið að eigendur fasteigna muni njóta fyrirsjáanlegrar lækkunar á fasteignamati nú um mánaðamótin. Sveitarstjórnarfólk kvíðir mikilli lækkun og líklegt er talið að þau sveitarfélög sem ekki hafa fullnýtta álagsprósentu hækki hana til að halda óbreyttum tekjum. 30.5.2009 05:30
Verði áminntur fyrir að segja ólykt af Lýsi Lögmaður Lýsis, Sigurbjörn Magnússon, krefst þess að skipulags- og byggingarfulltrúi Ölfuss dragi ummæli um fyrirtækið til baka eða verði áminntur ella. 30.5.2009 05:00
Aung San Suu Kyi sögð sjúk Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Búrma (Myanmar), er í brýnni þörf fyrir læknisaðstoð í fangelsinu þar sem hún dvelur á meðan réttað er yfir henni. Þetta fullyrða samflokksmenn hennar. 30.5.2009 05:00
Spyr Jóhönnu um krónubréf Sigmundur Ernir Rúnarsson, Samfylkingu, hefur lagt fram fyrirspurn til Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, þar sem farið er fram á nána útlistun á útgefnum krónubréfum. 30.5.2009 05:00
Lækkun vaxta fellir krónuna enn frekar Ekki eru aðstæður til að lækka vexti eða losa um gjaldeyrishöftin, sögðu fulltrúar AGS í gær. Umsókn að ESB myndi breyta efnahagsáætlun AGS hér á landi. Forgangsverkefni að koma fram með áætlun til að draga úr fjárlagahalla. 30.5.2009 04:45
Kæru Office 1 var vísað frá Kæru Samtaka verslunar- og þjónustu fyrir hönd Office 1 gegn Ríkiskaupum hefur verið vísað frá kærunefnd útboðsmála. 30.5.2009 04:30
Endurskoðun minnki hættu á misnotkun hryðjuverkalaga Ráðherrar og staðgenglar þeirra frá hinum 47 aðildarríkjum Evrópuráðsins luku tveggja daga fundi sínum í Reykjavík í gær með því að samþykkja aðgerðaáætlun sem nær til stefnumótunar samtakanna á sviði fjölmiðlunar og internetsins. 30.5.2009 04:30
Skjálftinn mældist 4,7 á richter - stöðugir eftirskjálftar Jarðskjálftinn, sem átti upptök sín um 8 kílómetra norðaustur af Grindavík, var af stærðinni 4,7 á richter, segir Gunnar Guðmundsson jarðskjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir að skjálftinn hafi fundist víða, meðal annars í Borgarfirði. Skjálftinn varð klukkan 21:33. 29.5.2009 21:54
Á annað hundrað eftirskjálftar Gunnar B. Guðmundsson, jarðskjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að á annað hundrað eftirskjálftar hafi fylgt jarðskjálftanum sem varð klukkan rúmlega hálftíu í kvöld norðaustur af Grindavík. Þeir stærstu hafa verið um 3 stig á richter en stóri skjálftinn var 4,7 stig. 29.5.2009 23:44
Íbúi í Grindavík: Hélt að um Suðurlandsskjálfta væri að ræða Sigmar Eðvarðsson, bæjarfulltrúi í Grindavík, segir jarðskjálftann sem varð klukkan rúmlega hálftíu í kvöld hafa staðið í 4 til 5 sekúndur. Ár er liðið frá Suðurlandsskjálftanum og segir Sigmar að hann hafi í fyrstu talið að um annan slíkan skjálfta hafi verið ræða. Hann hafi ekki áttað sig ekki á því að upptök skjálftans væru í grennd við bæinn. 29.5.2009 22:55
Líklega um eðlilegar jarðskorpuhreyfingar að ræða Allstór jarðskjálfti varð á svæði um 11 kílómetra suðvestur af Hafnarfirði klukkan 21:33 í kvöld. Skjálftinn varð nánast undir Reykjanesbraut nálægt Kúgerði, segir Sigurður Þ. Ragnarsson jarðeðlisfræðingur. Fyrstu tölur bentu til að hann væri 3,9 á Richter en endurreiknaðar tölur Evrópsku jarðskjálftamiðstöðvarinnar benda til þess að hann hafi verið 4,8 á Richter og á um tveggja kílómetra dýpi, segir Sigurður. 29.5.2009 21:40
Lögreglu ekki borist tilkynningar um tjón Lögreglunni á Suðurnesjum hefur ekki borist neinar tilkynningar um tjón vegna jarðskjálftann sem varð klukkan hálf tíu í kvöld norðvestan af Grindavík. 29.5.2009 22:14
Fyrrum ráðherra víkur vegna útgjaldahneykslisins Elliot Morley, fyrrum landbúnaðarráðherra Bretlands, segir að það hafi verið mistök hjá sér að láta breska þingið greiða af húsnæðisláni hans eftir að lánið var að fullu greitt upp. Hann hefur ákveðið að sækjast ekki eftir endurkjöri en hann hefur setið á þingi um árabil fyrir Verkamannaflokkinn. 29.5.2009 20:44
Mikil óvissa ríkir um framgang viðræðna Mikil óvissa ríkir um framgang viðræðna Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins, að fram kemur á vef ASÍ. Í viðræðum samninganefndar ASÍ við fulltrúa Samtaka atvinnulífsins í dag var tekist á um tímasetningar launahækkana í gildandi kjarasamningi. 29.5.2009 20:09
Telur að stjórnarflokkarnir styðji tillögu framsóknarmanna Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, er bjartsýn á að stjórnarflokkarnir muni styðja frumvarp sem þingmenn flokksins lögðu fram á Alþingi í dag. 29.5.2009 20:00
Tryggt að hryðjuverkalögum verði ekki beitt í óskyldum málum Ráðherrar fjölmiðlamála hjá 47 ríkja Evrópuráðsins, þar á meðal Íslands, samþykktu einróma í dag ályktun um að ríki ráðsins skuli tryggja að hryðjuverkalögum sé ekki beitt í málum óskyldum hryðjuverkum eða til að hefta tjáningafrelsi. Ráðherrafundi Evrópuráðsins um fjölmiðla og nýmiðlun lauk í Reykjavík í dag. 29.5.2009 19:21
Eitt undarlegasta safn landsins er í Hólminum Mismunandi gruggugt vatn í glersúlum og veðurorð á gólfi eru einu sýningargripirnir í einu undarlegasta safni á Íslandi. Stykkishólmsbær fórnaði meira að segja bóksafninu á fegursta útsýnisstað bæjarins undir skringilegheitin. 29.5.2009 19:12
Hefðu ekki getað afstýrt árekstri Aðeins tilviljun réði því að ekki varð árekstur milli farþegaþotu Icelandair og svifvængsflugmanns yfir Bláfjöllum fyrr í mánuðinum, að sögn talsmanns rannsóknarnefndar flugslysa, en frumrannsókn er á lokastigi. 29.5.2009 18:48
Félög Jóns Ásgeirs og Björgólfsfeðga styrktu Samfylkinguna um tugi milljóna Félög tengd Jóni Ásgeir Jóhannessyni og feðgunum Björgólfi Guðmundssyni og Björgólfi Thor Björgólfssyni styrktu Samfylkinguna um ríflega fjörtíu milljónir króna á árinu 2006. 29.5.2009 18:48
Þúsundir minntust fyrrum forseta S-Kóreu Tugir þúsunda komu saman á götum Seoul í dag og minntust Roh Moo-Hyun, fyrrverandi forseta Suður-Kóreu, sem framdi sjálfsmorð fyrir rúmri viku. Forsetinn fyrrverandi var afar vel liðinn af fjölmörgum samlöndum sínum. Útför hans fór fram í dag og þar sagði Han Seung-soo, forsætisráðherra landsins, að Roh yrði meðal annars minnst fyrir að hafa barist fyrir mannréttindum og stéttlausu samfélagi. 29.5.2009 18:41
Þýsk stjórnvöld hótuðu Íslendingum Þýsk stjórnvöld hótuðu að hafa áhrif á viðræður Íslands við Evrópusambandið og samninginn við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn ef þýskir innstæðueigendur Kaupþing Edge fengju ekki greitt. 29.5.2009 18:36
Olíuskattar klúðruðu Drekaútboðinu Einn helsti sérfræðingur Noregs í olíumálum segir að dræm þátttaka í Drekaútboðinu hljóti að vera vonbrigði fyrir íslensk stjórnvöld og telur að fráhrindandi og illskiljanleg skattalöggjöf sé meginástæðan. Hann segir áformað vinnslugjald fáránlega hátt. 29.5.2009 18:35
Lögregla rannsakar andlát aldraðar konu á Hrafnistu Hrafnistuheimilin hafa tilkynnt Landlækni um lát 87 ára gamallar konu á Hrafnistu í Hafnarfirði og samkvæmt vinnuferlum óskað eftir lögreglurannsókn. Fram kemur í tilkynningu frá Hrafnistuheimilunum eru ekki uppi grunsemdir um að saknæmt athæfi hafi átt sér stað. 29.5.2009 17:56
Samfylkingin þáði 73 milljónir í styrki frá 25 aðilum árið 2006 Samfylkingin hefur aflað upplýsinga um fjáröflun einstakra aðildarfélaga hennar, kjördæmis- og sveitastjórnarráða árið 2006. Í tilkynningu frá flokknum segir að þessar fjáraflanir hafi að mestu farið fram í aðdraganda sveitastjórnarkosninga og komu til viðbótar fjáröflun Samfylkingarinnar á landsvísu á árinu 2006. 29.5.2009 16:34
Papeyjarsmyglið: Þrír áfram í gæsluvarðhaldi Þrír karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 9. júní og einn til 5. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þrír þeirra hafa kært úrskurðinn til Hæstaréttar. 29.5.2009 16:24
Barðastrandaránið: Þriðja manninum sleppt Þriðja manninum sem handtekinn var í tengslum við hrottalegt rán á Seltjarnarnesi í vikunni hefur verið sleppt. Að sögn Ómars Smára Ármannssonar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu átti maðurinn ekki beinan þátt í ráninu sjálfu en lögregla taldi hann búa yfir vitneskju sem þá vantaði. Eftir að maðurinn hafði veitt þær upplýsingar var honum sleppt. Hinir mennirnir tveir sem handteknir voru í tengslum við ránið hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 3.júní. 29.5.2009 15:58
Fipaðist á hlaupabretti, fór í mál og tapaði Tryggingamiðstöðin var sýknuð af skaðabótaskyldu vegna óhapps sem varð í heilsuræktarstöðinni Hreyfigreiningu ehf árið 2006. Forsaga málsins er sú að kona á fimmtugsaldrinum mætti í heilsuræktina og bjóst þá við að finna einkaþjálfara sem myndi fara með henni í salinn. Ekki náðist samstundis í einkaþjálfarann vegna bilunar í tölvubúnaði. 29.5.2009 15:38
Hryðjuverkalög verði endurskoðuð reglulega Meðal helstu atriða í lokayfirlýsingu ráðherrafundar Evrópuráðsins sem haldinn var hér á landi í vikunni er hvatning fundarins til Evrópuríkja að þau skuli reglulega endurskoða lög sín um baráttu gegn hryðjuverkum og beitingu þeirra. „Þannig skuli koma í veg fyrir að þeim sé misbeitt í málefnum sem eru alls óskyld hryðjuverkum - til að mynda til að hefta tjáningarfrelsi eða halda upplýsingum leyndum,“ segir ennfremur. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra sótti fundinn fyrir Íslands hönd. 29.5.2009 15:24
Tilnefningar til Grímunnar 2009 Tilkynnt var um tilnefningar til Grímunnar 2009 kl. 15 í Borgarleikhúsinu og afhenti forseti Ísland hinum tilnefndur viðurkenningarskjal því til staðfestingar. Gríman verður veitt þann 16. júní samkvæmt venju. 29.5.2009 15:00
Kastaðist ekki út úr bílnum á Grindavíkurvegi Í frétt Stöðvar 2 og Vísis frá því í gær sem fjallaði um banaslys á Grindavíkurvegi var sagt að ökumaður annars bílsins hefði slasast talsvert þegar hann kastaðist út úr bílnum við áreksturinn, þar sem hann hafi ekki verið í öryggisbelti. Valdimar Leó Friðriksson framkvæmdarstjóri Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna segir þetta ekki rétt. Hið rétta sé að báðir mennirnir hafi verið klipptir út úr bifreiðunum. 29.5.2009 14:39
Papeyjarsmyglið: Óskað eftir áframhaldandi gæsluvarðhaldi Fíkniefnalögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir fjórum mönnum sem voru handteknir vegna Papeyjarsmyglsins svokallaða. Þeir hafa allir verið í varðhaldi frá því snemma í apríl en það rennur út í dag. 29.5.2009 14:35
Algjörlega fráleitt að verið sé að tefja Evrópumálið Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins mælti fyrir tillögu stjórnarandsötðunar um mögulega umsókn um aðild að Evrópusambandinu í Alþingi í dag. Sagði hann meðal annars að algjörlega fráleitt væri að halda því fram að tillagan væri tilraun til þess að tefja málið líkt og haldið hefur verið fram. 29.5.2009 14:04
Lýsi vill refsa skipulagsfulltrúa Ölfuss Lýsi hf. hefur krafist þess að ummæli sem Sigurður Jónsson, skipulags- og byggingafulltrúi Ölfuss, lét falla í viðtali við hádegisfréttir RÚV í apríl síðastliðnum verði dregin til baka og á þeim beðist afsökunar. Þá krefst fyrirtækið þess einnig að hann verði áminntur fyrir brot í starfi. 29.5.2009 13:43
Nýr aðstoðarmaður iðnaðarráðherra Arnar Guðmundsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra. Arnar hefur starfað í Hagfræðideild Landsbankans, hjá Fjárfestingarstofunni og Útflutningsráði Íslands, Aflvaka hf. atvinnuþróunarfélagi Reykjavíkur og sem upplýsingafulltrúi, ritstjóri og blaðamaður, m.a. hjá Alþýðusambandi Íslands. 29.5.2009 12:43
Flugmaður tekinn með fölsuð vegabréf Landamæraeftirlit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á þrjú fölsuð vegabréf sem fundust í fórum flugmanns. Maðurinn millilenti á Reykjavíkurflugvelli nýlega. Við leit kom í ljós að hann hafði undir höndum vegabréfin þrjú sem tilheyrðu greinilega ekki flugmanninum sjálfum. 29.5.2009 12:40
Segja Bandaríkjamenn standa að baki sprengjuárás í Íran Írönsk yfirvöld segja að Bandaríkjamenn hafi staðið að baki sprengjuárás í mosku í suð-austurhluta Írans í gærkvöldi. Minnst nítján féllu í árásinni og um sextíu særðust. 29.5.2009 12:26
Lilja Mósesdóttir sat hjá við aðra umræðu Athygli vakti við Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, studdi ekki skattahækkanafrumvörp ríkisstjórnarinnar við aðra umræðu í gærkvöldi. Þetta gerði Lilja til að knýja á um að málið yrði ekki afgreitt án þess að upplýsingar lægju fyrir um áhrif hækkananna á ýmsa bótaflokka ríkissjóðs og varð þetta til þess að fulltrúar fjármálaráðuneytis voru ræstir út með hraði. 29.5.2009 12:22
Bensínlítrinn hækkar um 16 og fjörutíu Bensínlítrinn í sjálfsafgreiðslu hefur hækkað um 16 krónur og 40 aura frá því í gær, sem er líklega mesta bensínhækkun á einum sólarhring til þessa. 29.5.2009 12:19
Rauðvínið hækkar um 123 krónur - bjórinn um 18 Fimmtán prósenta áfengisgjaldið, sem samþykkt var á Alþingi í gærkvöldi, er innheimt við innflutning og er innifalið í innkaupsverði ÁTVR frá byrgjum. Vinsælt rauðvín í þriggja pela flösku hækkar um 123 krónur, vodka um 437 krónur, koníak um 467 og stór bjórdós um 18 krónur. 29.5.2009 12:11
Skattahækkanirnar stoppa lítið upp í fjárlagagatið Skattahækkanirnar sem Alþingi ákvað í gærkvöldi á bensín, áfengi og bíla eru aðeins einn fertugasti af því sem þarf til að loka risastóru fjárlagagatinu. 29.5.2009 12:09
Sakar bæjarfulltrúa um óheiðarleika Formaður Bæjarráðs Vestmannaeyja, Páley Borgþórsdóttir, segir í grein sem birtis á Eyjar.net, að hana blöskri óheiðarleiki oddvita V-listans. Ástæðan fyrir skrifum Páleyjar eru átök sem hafa verið innan bæjarstjórnar vegna mannaráðningar í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyjar. Þá var eiginmaður Páleyjar ráðinn sem forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar en einnig var faðir bæjarstjóra Vestmannaeyja, Elliða Vignissonar, ráðinn sem umsjónarmaður íþróttahússins. 29.5.2009 11:27
Faglegar ráðningar og stöður auglýstar Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins spurði Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra út í ráðningar í bönkunum og þeim fyrirtækjum sem ríkið hefur tekið yfir á undanförnum mánuðum í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í morgun. Spurði hann hvort stefnan væri að auglýsa stöðurnar. Menn voru léttir. 29.5.2009 11:10
Aftur kannabis í Kópavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi um kvöldmatarleytið í gær. 29.5.2009 11:01