Fleiri fréttir

Mladic í felum í Belgrad

Serbneska blaðið Press segir að Ratko Mladic hafi í mörg ár verið í felum í íbúð í Belgrad.

Leit hætt: Málið rannsakað sem mannshvarf

Leit að Aldísi Westergren er formlega hætt en málið er komið á borð til rannsóknarlögreglunnar. Málið er rannsakað sem mannshvarf og er enn leitað vísbendinga um ferði Aldísar. Þess vegna biður lögreglan enn um vísbendingar um ferðir Aldísar.

Leggja fram frumvarp um upplýsingaskyldu ríkisfyrirtækja

Frumvarp um upplýsingaskyldu fyrirtækja, félaga og stofnana í eigu íslenska ríkisins verður dreift á alþingi í dag. Í því felst að fyrirtæki, félög og stofnanir sem eru að helmingi eða meira í eigu íslenska ríkisins upplýsi um allar afskriftir skuldunauta viðkomandi aðila.

Össur og Helgi vilja ofar á lista

Össur Skarphéðinsson, utanríkis- og iðnaðarráðherra, hefur ákveðið að gefa kost á sér í annað sætið í prókjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Áður hafði hann boðið sig fram í þriðja sætið en í kjölfar yfirlýsingar Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um að hún væri hætt í stjórnmálum hefur hann ákveðið að stefna hærra. Hann sækist því eftir öðru sætinu í prófkjörinu. Helgi Hjörvar alþingismaður hefur einnig ákveðið að sækjast eftir þriðja sætinu í stað þess fjórða.

Mun lækka launin og selja glæsibifreið

Lúðvík Lúðvíksson frambjóðandi til formanns VR segir að sitt fyrsta verk nái hann kjöri á miðvikudaginn verði að lækka laun formannsins ásamt því að selja glæsibifreið sem formaðurinn ekur um á.

Segja dóm Hæstaréttar samþykkja vændissölu þriðja aðila

Femínistafélag Íslands fordæmir nýfallin dóm Hæstaréttar í máli Bjarkar Eiðsdóttur blaðamanns á Vikunni og Ásgeirs Þór Davíðssonar gjarnan kenndan við Goldfinger. Hæstiréttur dæmdi Björk til að greiða Ásgeiri 500.000 kr fyrir að birta ummæli fyrrverandi nektardansmeyjar um vændi á Goldfinger.

Brutust óvart inn í klukkubúð

„Ég ætlaði að fara að kaupa mér kók og samloku," segir hinn rúmlega tvítugi Pálmi Þorsteinsson sem varð fyrir sérkennilegri uppákomu í nótt þegar hann gekk inn í 10-11 í Sporhömrum til þess eins að finna út að búðin var mannlaus. Í ljós kom að verslunin var lokuð og hafði verið síðan fyrsta mars. Með Pálma í för var bróðir hans en klukkan var að ganga fjögur um nóttina þegar þeir gengu inn.

Annþór laus af Litla Hrauni

Annþór Kristján Karlsson lauk afplánun á þriggja ára fangelsisdómi sínum síðast liðinn mánudag og er því laus úr fangelsi. Annþór hlaut þriggja ára dóm fyrir hrottalega líkamsárás þegar hann barði rúmliggjandi mann til óbóta með kylfu. Fyrir verknaðinn sat Annþór inni í tvö ár. Hann var síðan handtekinn fyrir smygl á 5,2 kílóum af amfetamíni og kókaíni í hinu svokallða UPS-hraðsendingarmáli.

Gagnrýnir fjölgun listamannalauna

„Starfslaun listamanna eru 267 þúsund krónur á mánuði eða um 80% hærri en grunnatvinnuleysisbætur,“ segir Haukur Þór Hauksson viðskiptafræðingur og prófkjörsframbjóðandi.

Neita að gefa út bók um óstjórn Bretlands

Tveir breskir útgefendur hafa neitað að gefa út bók sem fjallar á gagnrýninn hátt um stöðu Bretlands og fer ofan í saumana á því hvernig landinu hefur verið stjórnað.

Yfirvöld í Kaupmannahöfn hafa misst tökin

Borgaryfirvöld í Kaupmannahöfn hafa misst tökin á forvarnastarfsemi í borginni. Þetta segir Karen Jespersen, félagsmálaráðherra Danmerkur, og bendir sérstaklega á ástandið í Nørrebro-hverfinu máli sínu til stuðnings þar sem morð og ofbeldi hafa verið nánast daglegt brauð upp á síðkastið.

Spennan eykst á Kóreuskaganum

Árlegar heræfingar Bandaríkjanna og Suður-Kóreu hófust í morgun í Suður-Kóreu og lýsti herforingjastjórn Norður-Kóreu því yfir að æfingarnar væru ekkert annað en ögrun við Norður-Kóreumenn og hefði viðbúnaðarstig hers Norður-Kóreu verið aukið til samræmis við það.

Mótmæli við húsnæðisuppboð í New York

Hópur mótmælenda lét í sér heyra við uppboð í New York í gær þar sem verið var að bjóða upp íbúðarhúsnæði sem eigendurnir höfðu verið bornir út úr vegna vangoldinna húsnæðisskulda.

Flytja 12.000 hermenn frá Írak í september

Bandaríkjamenn hyggjast flytja 12.000 hermenn heim frá Írak í september á þessu ári. Þessu lýsti talsmaður Bandaríkjahers yfir í gær og sagði aðgerðina lið í áætlun Baracks Obama Bandaríkjaforseta um að ljúka hernaðarafskiptum í Írak haustið 2010. Sem stendur eru um 135.000 bandarískir hermenn í Írak.

Rúmlega 64 prósent vilja ESB-viðræður

Rúmlega 64 prósent landsmanna vilja taka upp aðildarviðræður um inngöngu í Evrópusambandið, samkvæmt könnun sem Samtök iðnaðarins létu gera nýverið.

Danir hefja loftrýmiseftirlit

Loftrýmiseftirlit danska flughersins hefst frá Keflavíkurflugvelli klukkan átta í dag. Fjörutíu og átta danskir hermenn verða hér í þrjár vikur vegna verkefnisins og nota við það fjórar F-16 herþotur. Þær munu stunda æfinga- og eftirlitsflug yfir sjó og hugsanlega yfir miðhálendinu.

Ófært víða fyrir norðan og vestan

Ófært er víða á Norður- og Norðausturlandi og sums staðar á Vestfjörðum, en vegagerðarmenn hættu snjómokstri í gærkvöldi vegna óveðurs. Það hefur nú skánað víðast hvar þannig að mokstur er hafinn á helstu leiðum.

Handtekinn eftir tvö innbrot

Þjófur var handtekinn í Reykjavík upp úr miðnætti eftir að hann hafði framið innbrot í tvær verslanir.

Á efnum á öðru hundraðinu

Lögreglan á Selfossi stöðvaði bíl eftir að hann mældist á 111 kílómetra hraða á Eyrarbakkaveginum í gærkvöldi. Ökumaðurinn reyndist í annarlegu ástandi og var færður á stöðina, þar sem prufur voru teknar af honum. Þær benda til að hann hafi verið undir áhrifum fíkniefna.

Slapp naumlega undan snjóflóði

Ökumaður bíls slapp naumlega undan stóru snjóflóði, sem féll á Siglufjarðarveg, Siglufjarðarmegin við Strákagöng laust eftir klukkan tíu í gærkvöldi.

Vopnin í eigu Vítisengla

Fjöldi vopna sem fannst í skógi nærri Hobro á Norður Jótlandi á föstudagskvöld er talinn vera í eigu meðlima vélhjólaklúbbsins Vitisengla. Danskir fjölmiðlar segja að lögreglan hafi fylgst með meðlimum Vítisengla frá því að vopnin fundust og tveir menn sem voru handteknir í gær tilheyri félagsskapnum.

Ekki dagur stórra yfirlýsinga

„Ég hef ekki verið á formannsbuxum. Ég hef hins vegar verið í framboði til varaformanns og fengið góð viðbrögð um land allt við því. Síðan hef ég verið að stefna á borgarsjtórnarkosningarnar," segir Dagur B. Eggertsson,

Ingibjörg Sólrún hætt í pólitík

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar og alþingismaður, er hætt í stjórnmálum. Ingibjörg tilkynnti þetta á fundi með fjölmiðlamönnum klukkan fimm í dag. Ingibjörg er formaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi utanríkisráðherra. Hún sagði að frá því að hún og Jóhanna Sigurðardóttir héldu blaðamannafund fyrir viku síðan hefið hún komist að því að hún hefði ekki heilsu í að starfa áfram í stjórnmálum. Hún hefur tilkynnt Jóhönnu Sigurðardóttur, Össur Skarphéðinssyni og helstu trúnaðarmönnum Samfylkingarinnar um þetta.

Brotthvarf Ingibjargar hefur engin áhrif á framtíðarsamstarf

„Þetta kom auðvitað á óvart af þvi að hún hafði kynnt gagnstæða niðurstöðu fyrir stuttu síðan. En ég held að við þessar aðstæður eigi fólk fyrst og fremst að hugsa um sjálft sig, heilsuna og fjölskylduna," segir Steingrímur J. Sigfússon um brotthvarf Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.

Guðbjartur Hannesson sigraði í Norðvesturkjördæmi

Guðbjartur Hannesson, forseti Alþingis, er ótvíræður sigurvegari í prófkjöri Samfylkingarinnar sem fram fór dagana 6.-8 mars, en kosningu lauk klukkan fjögur i dag. Alls greiddu 854 atkvæði en einn seðill var auður. Kosningin er bindandi fyrir sex efstu sætin. Þau raðast þannig:

Ekki verið að refsa Kolbrúnu

Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi er hástökkvari forvals Vinstri grænna í Reykjavík þar sem konur unnu almennt sigra.

Harður árekstur á Njarðarbraut

Harður árekstur þriggja bifreiða varð á Njarðarbraut á móts við ÓB bensínstöðina í Reykjanesbæ klukkan hálffjögur í dag. Ökumenn tveggja bifreiðanna voru fluttir með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en fengu að fara heim að lokinni skoðun. Bifreiðarnar voru fluttar af vettvangi með kranabifeið.

Sigurður leiðir lista framsóknarmanna á Suðurlandi

Sigurður Ingi Jóhannsson dýralæknir mun leiða lista Framsóknarflokksins á Suðurlandi. Þetta er niðurstaða póstkosningar sem verið var að kynna á kjördæmisþingi flokksins á Selfossi. Eygló Harðardóttir, alþingismaður hafnaði í öðru sæti.

Stjórnarskrárnefnd þurfti fáeina mánuði til að ljúka við störf sín

Stjórnarskrárnefnd hefði einungis þurft fáeina mánuði til viðbótar til að ljúka við störf sín. Þetta kom fram í máli Þorsteins Pálssonar ritstjóra Fréttablaðsins sem átti sæti í nefndinni. Þorsteinn og Jón Sigurðsson, fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, voru gestir á Sprengisandi á Bylgjunni i morgun.

Heilmikil endurnýjun

„Ég er bara mjög ánægð með þetta. Þetta er auðvitað heilmikil endurnýjun," segir Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri grænna. Katrín hafnaði í fyrsta sæti á lista flokksins í Reykjavík í forvali sem fór fram í gær. Hún bendir á að Svandís Svavarsdóttir kemur ný inn á þennan vettvang. Sama á við um Lilju Mósesdóttur og Ara Matthíasson „Þannig að þetta er auðvitað talsverð endurnýjun. Flott blanda af gömlu og nýju," segir Katrín.

Varað við sterkum vindhviðum undir Ingólfsfjalli

Lögreglan á Selfossi varar ökumenn sem fara um Suðurlandsveg undir Ingólfsfjall við miklum vindhviðum. Tvær hestakerrur sem voru fastar aftan í bílum sem fóru um veginn fuku út af með stuttu millibili í morgun þegar vindurinn skall á þeim. Lögreglan hvetur því vegfarendur til að fara með gát þarna.

Ráðist á hermenn á N-Írlandi

Tveir breskir hermenn biðu bana í skotárás á herstöð í Antrim sýslu á Norður - Írlandi í gærkvöld. Talsmaður ráðuneytisins segir að fjórir starfsmenn heðu særst, einn af þeim mjög alvarlega í árásinni á Massereene herstöðina í Antrim skammt frá Belfast á Írlandi. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á hendur sér en talið er að

Allt með kyrrum kjörum hjá Fáfni

Allt var með kyrrum kjörum í veislu sem mótorhjólaklúbburinn Fáfnir hélt í nýju klúbbhúsi sínu í Hafnarfirði í gær. Dómsmálaráðherra taldi veisluna og væntanlega gesti hennar vera ógn við allsherjarreglu og þjóðaröryggi Íslands og herti því landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli. Fáfnir er yfirlýstur stuðningsklúbbur Vítisengla. 18 meðlimir Vítisengla voru stöðvaðir við komuna til landsins og sendir aftur til síns heima.

Stöðvaður á 158 kílómetra hraða

Lögreglan á Selfossi stöðvaði tæplega þrítugan mann á Hellisheiði á 158 km hraða. Hann mun verða sviptur ökuskírteini sínu en hefði hann verið á 4 km meiri hraða hefði hann verið sviptur á staðnum. Þá eru 2 ökumenn grunaðir um ölvunarakstur. Einn gisti fangageymslur útaf ólátum og eignaspjöllum á Eyrarbakka þar sem hann skemmdi bifreið.

Á þriðja tug létust í sjálfsvígsárás

Tuttugu og átta létust og fimmtíu og sjö særðust í sjálfsvígsárás á lögreglustöð í Baghdad, höfuðborg Írak, í morgun. Að sögn lögreglu var ódæðismaðurinn klæddur sprengjuvesti og á mótorhjóli sem var þakið sprengjuefni. Vettvangurinn var þannig að erfitt reynist að bera kennsl á líkin.

Sofnaði í miðju innbroti

Brotist var inn íbúð í Austurborginni seint í gærkvöldi. Að sögn lögreglunnar höfðu húsráðendur brugðið sér af bæ en þegar að þau komu til baka sáu þau að ljós loguðu í íbúðinni. Þegar inn var komið tóku þau eftir því að ókunnugur maður lá sofandi á stofugólfunni. Lögreglan var kvödd á staðinn og fékk maðurinn að klára svefninn í fangageymslum. Ekki er vitað hvernig maðurinn komst inn í íbúðina.

Klifruköttur slapp með skrekkinn

Karlmaður frá Georgíufylki í Bandaríkjunum slapp með skrekkinn þegar að hann klifraði upp í 4,5 metra háan rafmagnsstaur í gær. Maðurinn rann til í staurnum en svo vel vildi til að buxurnar sem hann var íklæddur festust í staurnum og hann fell því ekki í jörðina.

Katrín varð efst í Reykjavík

Katrín Jakobsdóttir sigraði í forvali Vinstri grænna í Reykjavík sem fram fór í gær. Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi hafnaði í öðru sæti forvalsins og Lilja Mósesdóttir, hagfræðingur því þriðja. Niðurstöður urðu eftirfarandi:

Sjá næstu 50 fréttir