Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sigmundur Ernir líklega á leið á þing Kristján L. Möller hlaut örugga kosningu í 1. sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Sigmundur Ernir Rúnarsson fjölmiðlamaður hreppti annað sætið og er líklegt að þessi niðurstaða verði til þess að hann verði á meðal nýliða á þingi eftir næstu kosningar. Jónína Rós Guðmundsdóttir hreppti það þriðja en hún var færð í það sæti vegna kynjakvóta. 7.3.2009 17:53
Hrönn ÍS sökk á Ísafirði Hrönn ÍS sökk í höfninni á Ísafirði í dag og munaði minnstu að 50 tonna bátur Jón Forseti ÍS sem lá utan á Hrönn myndi líka sökkva. Lóðsinum tókst hins vegar að draga hann frá og bjarga honum. Þessir bátar hafa ekki siglt um skeið og samkvæmt heimildum fréttastofu er ólíklegt að Hrönn sigli aftur. 7.3.2009 19:45
Björgvin hreppti fyrsta sætið Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður og fyrrverandi ráðherra, hreppti fyrsta sæti í prófkjöri samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Oddný Guðbjörg Harðardóttir lenti í öðru sæti en Róbert Marshall í þriðja sæti. All kusu 2389 manns og varðröð 6 efstu manna þessi 7.3.2009 19:14
Átján Vítisenglum hefur verið vísað frá Allt er til reiðu í nýju klúbbhúsi Fáfnis í Hafnarfirði fyrir veislu sem þar verður í kvöld. Lítið fer fyrir erlendum gestum sem boðað höfðu komu sína þar sem átján vítisenglar hafa verið stöðvaðir við komuna til landsins. 7.3.2009 18:53
Stunginn í nárann í brúðkaupsveislu Brúðkaupsveisla í Gladsaxe í Kaupmannahöfn tók óvæntan og ofbeldisfullan endi í morgun. Tveir ungir menn voru stungnir með hníf og lögreglan í Vestegnes í Kaupmannahöfn óskar nú eftir upplýsingum frá almenningi til að geta upplýst málið. 7.3.2009 17:24
Að miðju Íslands á 150 jeppum Þrjú hundruð manna ferðahópur á 150 jeppum fór í morgun að miðju Íslands sem er skammt norðaustur af Miklafelli í Hofsjökli. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu gekk ferðin vel að öðru leyti en því að bifreið annars mannsins, 7.3.2009 16:54
Grétar leiðir lista frjálslyndra í Suðurkjördæmi Grétar Mar Jónsson alþingismaður leiðir lista Frjálslynda flokksins í Suðurkjördæmi í næstu kosningum. Þetta var ákveðið á fundi stjórnar kjördæmisfélags flokksins í dag. Georg Eiður Arnarsson, Vestmannaeyjum verður í öðru sæti listans og Guðrún María Óskarsdóttir, Hafnarfirði verður í þriðja sæti. 7.3.2009 16:23
Ökumaðurinn sem ók á Tsvangirai handtekinn Ökumaður bifreiðarinnar sem ók á bifreið Morgans Tsvangirai, forseta Zimbabwe, með þeim afleiðingum að konan hans beið bana hefur verið handtekinn. Ökumaðurinn starfaði fyrir bandarísk stjórnvöld og sá um að flytja lyf gegn alnæmisveirunni. Susan Tsvangiarai, eiginkona Morgans, lést í slysinu en þau hjónin voru á ferð í syðri hluta Harare, sem er höfuðborg Zimbabwe. Morgan Tsvangirai hlaut áverka á höfði og hálsi en hann var útskrifaður af spítala í dag. 7.3.2009 15:51
Sigmundur og Vigdís leiða lista framsóknarmanna Sigmundur Davíð Gunnlaugsson leiðir lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður og Vigdís Hauksdóttir leiðir lista í Reykjavíkurkjördæmi suður. Þetta varð niðurstaða framsóknarmanna á þingi 7.3.2009 15:24
Obama ætlar að gera allt til að örva hagkerfið Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hét því í dag að gera allt sem þyrfti til þess að örva hagkerfið en sagði jafnframt að erfiðir tímar væru framundan fyrir Bandaríkjamenn. Obama, sem hefur hrint af stað ýmsum aðgerðum til að fást við kreppuna frá því að hann tók við embætti þann 20. janúar 7.3.2009 15:19
Gott að ríkisstjórnin leiði hugann að hag atvinnulífsins og fjölskyldna „Í tillögum ríkisstjórnarinnar er að finna mörg góð markmið," segir Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um þær tillögur sem ríkisstjórnin kynntu í gær til þess að sporna við atvinnuleysinu. Með tillögunum ætlar ríkisstjórnin að skapa rúmlega 4000 ársverk á næstu misserum. 7.3.2009 14:00
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst klukkan tvö í dag Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna prófkjörs Samfylkingarinnar í Reykjavík hefst klukkan tvö í dag í kosningamiðstöð Samfylkingarinnar á Skólabrú við Austurvöll. Hún stendur til 13. mars. Í fréttatilkynningu frá Samfylkingunni segir að þeir kjósendur sem ekki eiga heimangegnt á kjördag, hafa ekki aðgang að tölvu, nota ekki heimabanka eða vilja kjósa með gamla laginu á pappír, er velkomið að kjósa utan kjörfundar. 7.3.2009 13:36
Tæpur helmingur vill hvorki Jón Baldvin né Ingibjörgu Um 45% vilja hvorki Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur né Jón Baldvin Hannibalsson sem næsta formann Samfylkingarinnar. Þetta voru niðurstöður nýrrar könnunar MMR. Þá sýna niðurstöður að rösklega 35% vilja heldur 7.3.2009 13:01
Aldís enn ófundin Engin formleg leit verður gerð að Aldísi Westergren um helgina. Ekkert hefur spurst til hennar í ellefu daga þrátt fyrir víðtæka leit. Síðast var leitað á fimmtudag en þá gengu eitthundrað björgunarsveitarmenn og konur um svæðið í kring um Reynisvatn. 7.3.2009 12:23
Gera grín að Clinton Rússneskir miðlar gera óspart grín að utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Hillary Clinton. Hún hitti kollega sinn frá Rússlandi í Genf og gaf honum við það tilefni gjöf. Það var starthnappur í litlu gulu boxi sem átti að tákna hið nýja samband Bandaríkjanna og Rússlands. Stafsetningin var þó eitthvað að flækjast fyrir Hillary. Í stað þess að á hnappnum stæði endurræsing stóð of hátt verð. Gjöfinni hefur verið lýst sem táknrænum mistökum í rússneskum miðlum í dag. 7.3.2009 10:15
Víða hægt að skíða í dag Víða er hægt að skella sér á skíði í dag. Skíðasvæðin á Dalvík, í Hlíðarfjalli á Akureyri, á Siglufirði og Tindastóll í Skagafirði eru opin. Þá eru skíðasvæði höfuðborgarbúa í Skálafelli og Bláfjöllum opin. Opið er til tíu í kvöld í Bláfjöllum. Eftir klukkan fjögur kostar þúsund krónur inn á svæðið og rennur sú upphæð óskipt til félagsins Breið bros, sem eru samtök barna með skarð í vör. 7.3.2009 10:11
Tsvangirai á batavegi Morgan Tsvangirai forsætisráðhera Simbabve er á batavegi eftir að hafa slasast í árekstri í gær. Hann fékk að fara heim af spítala í morgun. Eiginkona forsætisráðherrans lést í slysinu. Aðeins er um mánuður frá því að ráðherrann svór embættiseiðinn og tók við af Mugabe. 7.3.2009 09:59
Lögreglan handtók menn í innbrotsleiðangri Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo karlmenn um þrjú leytið í nótt þegar þeir voru að reyna að brjótast inn í verslun á Laugaveginum. Þegar lögregla kom að voru þeir þeir enn að reyna að spenna upp hurð verslunarinnar. Mennirnir sem eru á miðjum aldri gista nú fangageymslur. 7.3.2009 09:55
Áfram viðbúnaður vegna Vítisengla Töluverður viðbúnaður verður áfram á Leifsstöð í dag en búist er við að einhverjir meðlimir Vítisengla eða Hells Angels samtakana freysti þess að komst inn í landið þrátt fyrir strangt landamæraeftirlit. 12 meðlimir samtakanna voru stöðvaðir við komuna til landsins í gær og snúið við en þeir ætluðu allir í veislu sem mótorhjólaklúbburinn Fáfnir heldur í nýju klúbbhúsi sínu í Hafnarfirði í kvöld. 7.3.2009 09:51
Fimm prófkjör um helgina Úrslit ráðast í fimm prófkjörum nú um helgina auk þess sem Framsóknarmenn í Reykjavík munu stilla upp á sína framboðslista. 7.3.2009 09:48
Yfirmönnum klínískra sviða Landspítala fækkar úr 23 í 6 Landspítalinn auglýsir eftir sex framkvæmdastjórum um helgina samkvæmt nýju skipuriti spítalans sem tekur gildi að fullu fyrsta júní 2009. Samkvæmt nýja skipuritinu verður klínískum sviðum á Landspítala fækka úr 12 í 6. 7.3.2009 09:42
Von er á fjölda Vítisengla til Íslands í dag Fjöldi liðsmanna vélhjólasamtakanna Vítisengla er væntanlegur til landsins í dag. Þeir ætla að freista þessa að komast inn í landið í gegnum strangt landamæraeftirlit og í gleðskap vélhjólaklúbbsins Fáfnis sem opnar nýtt klúbbhús í Hafnarfirði með pompi og prakt í dag. 7.3.2009 08:00
Idol: Lísa hlaut síðasta sætið í úrslitin Tíu stelpur kepptu um fimm sæti í úrslitum Idolstjörnuleitar í beinni útsendingu á Stöð 2 í kvöld. Keppnin var æsispennandi og hélt dómnefndin keppendum við efnið með hárbeittum, gagnrýnum athugasemdum. Fimm stelpur duttu út og fimm stelpur fóru áfram. 6.3.2009 22:41
Ungum stúlkum nauðgað í Afganistan Stúlkum allt niður í sjö ára gömlum er nauðgað í Afganistan þar sem aðstæður kvenna eru littlu betri en þegar Talíbanar voru þar við völd. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi. 6.3.2009 21:17
Stjórnlagaþing gæti kostað einn og hálfan milljarð Birgir Ármannsson alþingismaður segist hafa gert tilraun til þess að áætla kostnað við væntanlegt stjórnlagaþing. Niðurstaða Birgis er sú að kostnaðurinn gæti numið á bilinu 1.200 og 1.500 milljónir króna. Hann segir óvissuþættina þó vissulega vera marga en í lauslegum útreikningum sínum en miðað sé við útgjöld sem falla muni til miðað við ákvæði frumvarps sem lagt var fram á Alþingi í dag. 6.3.2009 20:20
Kolbrún Stefánsdóttir skipar fyrsta sætið í kraganum Félagsfundur var haldinn í kjördæmaráði Frjálslynda flokksins í kraganum í kvöld. Á fundinum var borin upp tillaga að skipun listans frá 1. sæti til 5. sæti. Samþykkt var að 1. sætið skipi Kolbrún Stefánsdóttir framkvæmdastjóri Sjálfbjargar og ritari Frjálslynda flokksins. 6.3.2009 22:00
Idolið í beinni útsendingu Föngulegur hópur 20 söngvara hefur nú verið valinn af dómnefnd Idolsins til að halda áfram keppni um titillinn Idol stjarna 2009. Í kvöld keppa 10 efnilegustu stelpurnar um áframhaldandi sæti í Idol stjörnuleit í beinni útsendingu frá íslensku Óperunni. 6.3.2009 20:44
Átta ára piltur særður eftir skotárás - annar 10 ára handtekinn Átta ára gamall piltur er alvarlega særður eftir skotárás á ferðamannastað í suðurhluta Tyneside á Englandi í kvöld. Lögregla segir að tíu ára gamall piltur hafi verið handtekinn vegna málsins. Pilturinn var skotinn í handlegg og bringu og undirgengst nú skurðaðgerð á Northumbria sjúkrahúsinu að sögn lögreglu. 6.3.2009 20:37
Leggur fram frumvarp um eignaumsýslufélög Fjármálaráðherra leggur væntanlega fram í næstu viku fram frumvarp um eignaumsýslufélag, sem getur tekið stærstu fyrirtæki landsins sem eiga í fjárhagsörðugleikum tímabundið yfir á meðan verið er að byggja þau upp. 6.3.2009 19:15
Eiginkona Tsvangirai lést í bílslysi í dag Robert Mugabe forseti Zimbabwe heimsótti forsætisráðherrann Morgan Tsvangirai á sjúkrahús en ráðherrann lenti í bílslysi í dag. Eiginkona ráðherrans lést í bílslysinu en risastór trukkur keyrði á bifreiðar Tsvangirai með fyrrgeindum afleiðingum. 6.3.2009 19:01
Fékk slettu af grænum búðingi Peter Mandelson viðskiptaráðherra Breta fékk heldur óblíðar móttökur hjá konu sem vill stöðva stækkun Heathrow-flugvallar í Lundúnum. Hún vatt sér að ráðherranum og sletti á hann grænum búðingi. 6.3.2009 19:00
Segja Helguvík geta stytt kreppuna Ráðamenn Norðuráls eru staðráðnir í að koma smíði álvers í Helguvík á fulla ferð á ný og segja stórlækkun stálverðs og byggingarkostnaðar bjóða upp á kjöraðstæður. Forstjóri Hitaveitu Suðurnesja segir verkefnið geta stytt kreppuna verulega. 6.3.2009 18:45
Stjórnmálamenn verða líka skoðaðir Rannsóknarnefnd um bankahrunið ætlar að skoða hvort stjórnmálamenn hafi fengið sérstaka fyrirgreiðslu í bankakerfinu. Fjölmiðlafólk fær sömu meðferð hjá nefndinni. Stjórnendur bankanna og lykilmenn úr stjórnsýslunni verða yfirheyrðir. 6.3.2009 18:24
Blaðamenn fjalli síður um viðkvæm mál Elín Arnar ritstjóri Vikunnar og Björk Eiðsdóttir blaðamaður segja niðurstöðu Hæstaréttir í meiðyrðarmáli sem féll í gær vera einstaka í hinum vestræna heimi. Jafnframt lýsa þær furðu sinni með dóminn en Hæstiréttur ómerkti ummæli viðmælanda blaðsins og blaðamanninum sem skráði viðtalið var gert að greiða hálfa milljón í miskabætur, auk dráttarvaxta og málskostnaðar. 6.3.2009 17:59
Tólf Vítisenglar stöðvaðir í Leifsstöð Tólf félagar í vélhjólasamtökunum Hells Angels og stuðningsklúbbum þeirra voru stöðvaðir við komu þeirra til landsins í Leifsstöði í dag. Mönnunum var meinuð landgana. Sex þeirra hafa þegar farið úr landi. Á miðvikudag var tveimur félagsmönnum samtakanna meinuð landganga og héldu þeir aftur til síns heima daginn eftir. 6.3.2009 17:39
Segjast ekki hafa brotið samkeppnislög Bændasamtök Íslands telja sig ekki hafa brotið samkeppnislög. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Bændasamtökunum í kjölfar þess að Samkeppniseftirlitð úrskurðaði að samtökin skuli greiða 10 milljónir króna í stjórnvaldssekt fyrir ólöglegt samráð. 6.3.2009 17:08
Kjötsúpa og þungarokk í Vítisenglaveislu Margt verður á boðstólnum í innflutningsgleði Fáfnis sem verður haldin annað kvöld, en mikill viðbúnað er vegna komu Vítisengla víðsvegar úr heiminum á Leifsstöð í dag. Dómsmálaráðuneytið hefur sagt fyrirhugaðan fagnað Fáfnis ógna allsherjareglu og þjóðaröryggi. Enn hefur enginn Vítisengill komið inn í landið en félagar þeirra, með Jóni Trausta Lútherssyni fremstan í flokki, bíða eftir þeim upp á Leifstöð. 6.3.2009 15:45
Þingmenn úr öllum flokkum leggja fram frumvarp um hópmálsóknir Tíu þingmenn allra flokka á Alþingi hafa lagt fram frumvarp um hópmálsókn sem gerir fólki kleift að höfða sameiginlega mál til kröfu um bætur í stað þess að hver og einn fari í mál. Fyrsti flutningsmaður er Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna. Meðflutningsmenn eru meðal annars allir fulltrúar í allshverjarnefnd Alþingis. 6.3.2009 15:42
Raddir fólksins boða til mótmælafundar Samtökin Raddir fólksins standa fyrir útifundi á Austurvelli á morgun. Þetta er 22. vika útifundanna og 28 mótmælafundurinn á Austurvelli undir yfirskriftinni Breiðfylking gegn ástandinu, að fram kemur í tilkynningu frá samtökunum. 6.3.2009 15:29
Prófkjörshelgi framundan Fjölmörg prófkjör fara fram á næstu dögum og því fara línur að skýrast hverjir munu leiða framboðslista flokkanna. Kosið verður til Alþingis eftir 49 daga. Um helgina ráðast úrslit í fimm prófkjörum auk þess sem að framsóknarmenn í Reykjavík stilla upp á sína framboðslista og kynnt verða úrslit úr póstkosningu flokksins í Suðurkjördæmi. 6.3.2009 15:12
Óttast áhrif hvalveiða á ferðaþjónustu og orðspor Íslands Ferðamálaráð lýsir áhyggjum af áhrifum hvalveiða á ferðaþjónustu og orðspor landsins. Ráðið hefur sent Össuri Skarphéðinssyni iðnaðarráðherra, ráðherra ferðamála, yfirlýsingu þess efnis að ráðið taki undir þær áhyggjur sem Samtök ferðaþjónustunnar og fyrirtæki í Hvalaskoðunarsamtökum Íslands, hafa þegar lýst af fyrirhuguðum hvalveiðum Íslendinga. 6.3.2009 14:52
Ríkisstjórnin lofar allt að 6000 nýjum störfum Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögur í atvinnumálum,sem ætlað er að skapa rúmlega 4000 ársverk á næstu misserum. Unnið verður að framgangi ellefu tillagna sem kynntar voru á fundi með blaðamönnum í dag. 6.3.2009 14:29
Mestur stuðningur við Samfylkinguna - fylgi framsóknar dalar Fylgi Samfylkingarinnar mælist nú 30,5%. Þetta er veruleg aukning frá síðustu könnun í febrúar þegar fylgi flokksins mældist 24,1%. Fylgi Framsóknarflokksins dalar nokkuð og fer úr 14,9% í febrúar í 10% nú. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Markaðs- og miðlarannsókna, MMR. 6.3.2009 12:51
Vinstri grænir styðja ekki frumvarp Össurar Vinstrihreyfingin grænt framboð styður ekki frumvarp iðnaðarráðherra um heimild til samninga um álver í Helguvík. Steingrímur J. Sigfússon reiknar þó með að frumvarpið nái fram að ganga með stuðningi stjórnarandstöðunnar. 6.3.2009 12:47
Fáfnismenn bíða eftir félögum sínum í Leifsstöð Meðlimir úr mótorhjólaklúbbnum Fáfni eru mættir í komusalinn í Leifsstöð þar sem þeir bíða eftir að hitta félaga sína sem væntanlegir eru víðs vegar að úr heiminum í dag. Eftirlit hefur verið hert í stöðinni vegna þessa en félagar Fáfnismanna eru meðlimir í mótorhjólasamtökunum Hells Angels sem yfirvöld skilgreina sem skipulögð glæpasamtök. 6.3.2009 12:25