Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stef-úrskurði sennilega áfrýjað „Ég áætla að úrskurðinn verður kærður," segir Svavar Lúthersson, forsvarsmaður Istorrent, sem tapaði dómsmáli gegn Stef nú í morgun. Að sögn Svavars er dómurinn fyrst og fremst áfall fyrir deilisskráar-samfélagið en fjölmargir nýta sér hverskyns niðurhal. 4.2.2009 13:08
Tugir almennra borgara falla í Srí Lanka Sameinuðu þjóðirnar segja fimmtíu og tvo almenna borgara hafa fallið í bardögum stjórnarhers og uppreisnarmanna Tamíltígra á Srí Lanka síðasta sólahring. Klasaskrpengja mun hafa skollið á sjúkrahús á bardagasvæðinu en sú bygging hefur orðið fyrir ítrekuðum árásum síðustu daga. 4.2.2009 12:50
Gagnrýnir Olli Rehn fyrir ummæli um Ísland Hans-Gert Pöttering, forseti Evrópuþingsins, gagnrýnir stækkunarstjóra sambandsins Olli Rehn fyrir ummæli sem hann lét falla um Ísland í breska blaðinu Guardian. Þar sagði Rehn að Íslendingar gætu ferst aðilar að Evrópusambandinu árið 2011, á sama tíma og Króatar ganga inn. 4.2.2009 12:48
Loka herstöð Bandaríkjanna í Kirgistan Stjórnvöld í Kirgistan hafa ákveðið að loka herstöð Bandaríkjamanna í Mið-Asíuríkinu. Þetta var tilkynnt í morgun eftir að Rússar höfðu heitið Kirgistönum jafnvirði ríflega tvö hundruð og þrjátíu milljörðum íslenskra króna í efnahagsaðstoð. Herstöðin hefur verið mikilvæg fyrir aðgerðir Bandaríkjamanna og Atlantshafsbandalagsins í Afganistan. Þaðan hafa birgðir verið fluttar til hermanna sem há baráttu við Talíbana þar. 4.2.2009 12:38
Bankastjórarnir hafa ekki svarað Jóhönnu Seðlabankastjórarnir þrír hafa enn ekki svarað bréfi sem forsætisráðherra sendi þeim á mánudag, þar sem þess er farið á leit að þeir láti af embætti og geri starfslokasamning við ríkið. Frestur sem gefinn var til að svara bréfinu rennur út á morgun. 4.2.2009 12:30
Sævar vill 1. sætið í Suðurkjördæmi Sævar Ciesielski, sem fékk þyngsta dóminn í Geirfinnsmálinu svokallaða, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. Flokkurinn fékk tvo þingmenn kjörna í kjördæminu fyrir tveimur árum. 4.2.2009 12:23
Þriggja ára barn í innheimtu Þriggja ára gamall drengur búsettur á Eyrabakka hefur fengið senda til sín fimm greiðsluseðla frá heilbrigðisstofnun Suðurlands og þar á meðal innheimtukröfu upp á þrjú hundruð krónur. 4.2.2009 12:08
Þrír vilja fyrsta sætið hjá Framsókn Þrír sækjast eftir fyrsta sætinu á framboðslista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi í næstu þingkosningum. Friðrik Jónsson, sérfræðingur í alþjóðasamskiptum og formaður Framsóknarfélagsins á Akranesi, sækist eftir því að leiða listann. Áður höfðu Guðmundur Steingrímsson og Gunnar Bargi Sveinsson, sveitarstjórnarmaður í Skagafirði, líst því yfir að þeir stefna á fyrsta sætið. Magnús Stefánsson, eini þingmaður flokksins í kjördæminu, tilkynnti nýverið að hann hyggst ekki sækjast eftir endurkjöri. 4.2.2009 12:04
Hvað eru norðurljós? Hvaða fyrirbæri er þetta sem stundum sést og stundum ekki - fyrirbæri sem þrátt fyrir nafn sitt Norðurljós sést ekki á norðurpólnum en sést yfir Íslandi? 4.2.2009 12:00
Allir flokkar fái nefndarformann Undanfarna daga hefur verið rætt um að allir flokkar á Alþingi skipti með sér formennsku í fastanefndum þingsins. Fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna eru meðal þeirra sem talað hafa fyrir tillögunni. Framsóknarflokkurinn hyggst ekki taka að sér nefndarformennsku nema aðrir flokkar geri slíkt hið sama. 4.2.2009 11:33
Kallað eftir umsögnum ólíkra aðila Í samræmi við verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar mun nefnd um þróun Evrópumála á næstu dögum óska eftir upplýsingum um sértæka hagsmuni fjölda umsagnaraðila hvað varðar hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Í því skyni hefur bréf verið sent til samtaka, stofnana og fyrirtækja og óskað eftir svörum fyrir 20. febrúar. Gert er ráð fyrir að nefndin skili skýrslu til ríkisstjórnarinnar fyrir 15. apríl. 4.2.2009 11:08
Stef sigraði Svavar „Meginniðurstaðan er sú að að lögbannið gegn Istorrent er algjörlega staðfest og svo var bótaskyldan viðurkennd," segir Snæbjörn Steingrímsson, framkvæmdarstjóri Smáís, en Stef sigraði dómsmál varðandi höfundarvarið efni sem þeir höfðuðu gegn Svavari Lútherssyni sem hélt úti síðunni Istorrent, nú í morgun. 4.2.2009 10:40
Þing kemur saman Alþingi kemur saman eftir hádegi í fyrsta skipti eftir að ný ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur var mynduð. Umtalverðar breytingar verða gerðar á nefndarskipan og nýir formenn fastanefnda kjörnir. Þá er ráðgert að þingmenn kjósi nýjan forseta í stað Sturlu Böðvarsson. Þingfundur hefst klukkan hálf tvö. 4.2.2009 09:37
Blagojevich harður á sakleysi sínu Rod Blagojevich, fyrrum ríkisstjóri Illinois, kveðst saklaus af ásökunum um að hafa ætlað sér að selja öldungadeildarþingsæti Baracks Obama. 4.2.2009 08:35
Lést þegar farsími sprakk í brjóstvasa Þeir sem telja farsíma með öllu hættulaus fjarskiptatæki ættu að endurskoða afstöðu sína. Starfsmaður í kjörbúð í Guangzhiu í Kína fékk að reyna þetta með afdrifaríkum hætti en hann hreinlega lést þegar sími hans sprakk með látum í vasa hans á föstudaginn. 4.2.2009 08:27
Breskir vinnuveitendur og foreldrar gramir skólum Vinnuveitendur og foreldrar í Bretlandi lýsa gremju sinni í garð þarlendra grunnskóla en þriðjungur skólanna aflýsti kennslu annan daginn i röð í gær vegna óveðursins sem geisar í Bretlandi. 4.2.2009 08:24
Kynferðisglæpamönnum hent út af MySpace Aðgangi um það bil 90 þúsund skráðra kynferðisglæpamanna að samskiptavefnum MySpace hefur verið lokað í kjölfar átaks bandarískra yfirvalda í þá átt að auka öryggið á opnum samskipta- og spjallvefjum á Netinu. 4.2.2009 08:21
Sleðaferð endaði með banaslysi Sextán ára stúlka lést og þrjár slösuðust mismikið eftir að hafa rennt sér á fullri ferð á sleða í gegnum eina girðingu og stöðvast á þeirri næstu í Rotherham í Bretlandi. 4.2.2009 08:14
Sterkefnaðir undir stýri Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði tvo ökumenn undir morgun, grunaða um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar var líka ökuréttindalaus, eftir að hafa verið sviptur þeim, og á farþega í öðrum bílnum fundust þrjú grömm af amfetamíni og eitt gramm af hassi. 4.2.2009 07:26
Lögregla upprætti umfangsmikla kannabisræktun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu upprætti stórfellda kannabisræktun í iðnaðarhúsi í Hafnarfirði í gærkvöldi. Lögreglumenn réðust þar inn og fundu um það bil hundrað kannabisplöntur sem allar voru komnar á lokastig ræktunar. 4.2.2009 07:08
Afsagnir voru forsenda trausts „Ekki er deilt um það í þinginu að þessar afsagnir voru eins og mál voru komin algerlega nauðsynleg forsenda þess að skapa mætti traust og frið um bankann á nýjan leik.“ 4.2.2009 06:45
Davíð hefur ekki gefið Jóhönnu svar Frumvarp um breytingar á Seðlabankanum verður lagt fram á þingi í vikunni. "Að sjálfsögðu styður maður góð mál,“ segir Pétur Blöndal alþingismaður. Forsætisráðherra telur ásættanlegt að semja um tólf mánaða starfslok bankastjóra. 4.2.2009 06:00
Deilt um hvalveiðar í nýja meirihlutanum Siv Friðleifsdóttir, formaður þingflokks framsóknarmanna, er ósátt við hugmyndir Steingríms J. Sigfússonar sjávarútvegsráðherra um að breyta ákvörðun fyrrverandi ráðherra um að heimila hvalveiðar 3.2.2009 22:06
Eygló vill leiða Framsókn í Suðurkjördæmi Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur ákveðið að sækjast eftir fyrsta sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi í komandi þingkosningum. Þetta tilkynnir hún á heimasíðu sinni í kvöld. 3.2.2009 23:27
Óttast að eldur hefði komið upp í Málmey Slökkvilið var kallað að höfninni á Sauðárkróki á níunda tímanum þegar grunur lék á að kviknað hefði í togaranum Málmey. 3.2.2009 20:57
Fresta fundi til að fylgjast með Jóhönnu Samfylkingarmenn í Reykjavík hyggjast fresta fyrirhuguðum félagsfundi sínum sem átti að fara fram á morgun vegna stefnuræðu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. 3.2.2009 21:52
Bréfið sem Jóhanna sendi Davíð „Ljóst er að traust manna á fjármálakerfi Íslendinga hefur beðið gífurlegan hnekki. Á það jafn við um fjármálafyrirtækin sem starfað hafa á markaðnum og opinbera aðila, 3.2.2009 20:26
Leggja fram tilboð í Árvakur Hópur sem kallar sig Almenningshlutafélag um Morgunblaðið hyggst gera Nýja Glitni tilboð í Árvakur hf. Samkvæmt áætlun bankans þurfa óskuldbindandi tilboð að berast í síðasta lagi síðdegis á morgun. 3.2.2009 20:00
Færeyskir jafnaðarmenn óska Jóhönnu til hamingju Jafnaðarflokkurinn í Færeyjum hefur sent Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra bréf þar sem Íslendingum er óskað til hamingju með 3.2.2009 19:50
Könnunin ágætis vísbending „Þetta er ágætis vísbending og gott að við erum að bæta við okkur," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, um nýjustu skoðanakönnun fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. Könnunin sýndi að Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest 3.2.2009 19:31
Kolbrún segist ráða - annað segir Jóhanna Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra segir að hún muni ráða, en ekki iðnaðarráðherra, þegar kemur að því að túlka ákvæði stjórnarsáttmálans um engin ný áform um álver. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir hins vegar að skilningur Össurar sé réttur. 3.2.2009 19:01
Hvítá brúuð vestan Flúða Ný stórbrú yfir Hvítá í uppsveitum Árnessýslu er meðal verkefna sem Vegagerðin býður út á næstu dögum til að skapa aukna atvinnu. Sérstök áhersla verður lögð á mannaflsfreka brúarsmíði sem og smærri verk sem henta minni verktökum. 3.2.2009 18:54
Ekki strikað yfir skuldirnar Ekki verður hægt að strika yfir hluta af skuldum almennings, segir nýskipaður viðskiptaráðherra. Slíkt myndi setja allt fjármálakerfið á annan endann. 3.2.2009 18:50
Nýgræðingarnir sitja lengst frá forsætisráðherranum Ríkisstjórnin hyggst koma fimmtán til tuttugu frumvörpum í gegnum Alþingi á næstu vikum til að verja heimilin og atvinnulífið frekari áföllum. Fyrsti ríkisstjórnarfundurinn undir forsæti Jóhönnu Sigurðardóttur var í morgun. 3.2.2009 18:45
Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Sjálfstæðisflokkurinn fengi flest atkvæði ef gengið yrði til kosninga nú samkvæmt niðurstöðu könnunar Fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. Tæp fjörutíu prósent kjósenda hafa þó ekki gert upp hug sinn. Könnun var gerð í gær en hringt var í 800 einstaklinga á landinu öllu. 3.2.2009 18:30
Ný menntastefna borgarinnar verður mótuð Borgarstjórn Reykjavíkur hefur samþykkt að skipa vinnuhóp sem á að móta nýja menntastefnu á grundvelli nýrra laga um leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda. 3.2.2009 18:04
Flugstjórinn gat varla talað Farþegum í rússnesku Aeroflot vélinni leist ekki á blikuna þegar þeir sáu flugstjórann sem átti að fljúga með þá frá Moskvu til New York í desember síðastliðnum. 3.2.2009 17:17
Ræður sér óflokksbundinn aðstoðarmann Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, hefur ráðið Sigtrygg Magnason rithöfund sem aðstoðarmann sinn. Sigtryggur hefur einnig starfað við blaðamennsku og markaðsmál. 3.2.2009 16:39
Kanna hugsanlega stríðsglæpi á Gaza ströndinni Alþjóða glæpadómstóllinn í Haag í Hollandi hefur hafið frumrannsókn á því hvort Ísraelar hafi framið stríðsglæpi í innrás sinni á Gaza ströndina. 3.2.2009 16:38
Ný könnun: Mikið flökt á fylgi flokkanna Í skoðanakönnun sem framkvæmd var fyrir fréttastofu kemur í ljós að tæp 40 prósent aðspurðra eru óákveðnir þegar þeir eru spurðir hvaða flokk þeir myndu kjósa ef kosið væri í dag. Mikið flökt virðist vera á fylgi flokkanna. 3.2.2009 16:29
Flest allir hestarnir tryggðir „Flest allir hestarnir voru tryggðir held ég," segir Rúnar Þór Guðbrandsson, deildarstjóri einstaklingsviðskipta hjá VÍS en hann var á vettvangi þegar um tíu hestar fóru ofan í Reykjavíkurtjörn eftir að ís gaf sig. 3.2.2009 16:28
Angela Merkel sendir páfa tóninn Angela Merkel kanslari Þýskalands sagði í dag að Benedikt páfi yrði að gera alveg ljóst að Páfagarður leyfi enga afneitun á helför gyðinga í síðari heimsstyrjöldinni. 3.2.2009 16:12
Bjóða sig fram til forystu í Frjálslynda flokknum Guðrún María Óskarsdóttir og Ásgerður Jóna Flosadóttir bjóða sig fram til forystu í Frjálslynda flokknum á komandi landsþingi flokksins 13. til 15. mars. 3.2.2009 16:07
Hamas verða að viðurkenna Ísrael Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að Bandaríkjamenn séu reiðubúnir að vinna með öllum deilendum í Miðausturlöndum. 3.2.2009 15:42
Fjölnir Þorgeirs bjargaði gæðingum „Ísinn hrundi allt í einu niður," sagði Fjölnir Þorgeirssonar þegar blaðamaður náði tali af honum niður við Reykjavíkurtjörn eftir að sjö hestar fóru ofan í tjörnina. 3.2.2009 15:33