Fleiri fréttir

Stjörnur hylltu Obama

Stjörnurnar hylltu Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseta, á tónleikum í Washington í gærkvöldi. Obama tekur fyrstur blökkumanna við embættinu á morgun. Búist er við að tvær milljónir manna mæti og fylgist með.

Háskólasjóður rýrnaði um þriðjung

Háskólasjóður Eimskipafélags Íslands rýrnaði um þriðjung í bankahruninu. Sjóðurinn var stofnaður árið 1964 og er honum ætlað stuðla að velgengni Háskóla íslands og styrkja efnilega stúdenta til náms. Í honum voru rétt rúmir þrír milljarðar í september síðastliðnum en nú eru í honum rúmir tveir milljarðar.

Sigmundur sparar Alþingi rúmlega 600 þúsund á mánuði

Þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sigraði Höskuld Þórhallsson í baráttunni um formannsstól Framsóknarflokksins sparaði það Alþingi 624 þúsund krónur á mánuði. Fráfarandi formaður, Valgerður Sverrisdóttir, er þingmaður og reglur segja til um að formenn stjórnmálaflokka á Alþingi fái 50 prósent álag ofan á þingfararkaup sitt.

Jarðvegsþjappa í óskilum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði nýlega hald á verkfæri. Mörgum þeirra hefur þegar verið komið til skila, en eftir stendur þessi jarðvegsþjappa, sem ekki er vitað hver á.

Upplýsingum um bólusetningar safnað í gagnagrunn

Bólusetningargrunnur sóttvarnalæknis er nú tengdur öllum heilsugæslustöðvum á Íslandi nema heilsugæslustöðinni í Ólafsvík. Haraldur Briem, sóttvarnalæknir, segir að hingað til hafi reynst erfitt að fá upplýsingar um fyrri bólusetningar fólks, það er að segja hvar og hvenær þær voru gerðar.

Ban Ki-moon heimsækir Gaza

Ban Ki-moon framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna ætlar að heimsækja Gaza svæðið á morgun að því er fram kemur hjá fréttastofu Reuters. Þetta er haft eftir heimildum innan úr ísraelsku ríkisstjórninni og búist er við því að hann heimsæki einni suðurhluta Ísraels í sömu ferð.

Með amfetamín í Herjólfi

Átján ára piltur var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir vörslu amfetamíns sem hann var tekinn með um borð í Herjólfi við komuna til Vestmannaeyja í nóvember á síðasta ári. Pilturinn sem varði sig sjálfur játaði brot sitt fyrir dómi. Honum var einnig gert að greiða sakarkostnað upp á rúmlega 75 þúsund krónur.

Metaðsókn hjá Keili

Hátt á fjórða hundrað umsóknir hafa borist um nám á vormisseri hjá Keili sem eru þrefalt fleiri en í fyrra. Umsóknarfrestur rennur út á morgun, 20. janúar. Við skólann er boðið upp á nám á framhalds- og háskólastigi, bæði í staðnámi og fjarnámi.

Sigurður Kári leiðir Röskvu

Sigurður Kári Árnason, 22 ára laganemi, leiðir framboðslista Röskvu, samtaka félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, til stúdentaráðs í ár. Kosningar til stúdentaráðs og Háskólaþings fara fram 4. og 5. febrúar næstkomandi. Röskva hefur leitt stúdentaráð undanfarin tvö ár.

Símasvindl: Varað við óþekktum erlendum símanúmerum

Símasvindlarar hafa herjað á íslendinga upp á síðkastið. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum bárust 1400 svokölluð uppköll frá 15.janúar en svipað svindl kom upp fyrir nokkrum mánuðum. Upplýsingafulltrúar Símans og Vodafone hvetja fólk til þess að vera á varðbergi gagnvart hringingum úr óþekktum númerum.

Abbas hvetur Palestínumenn til að sýna samstöðu

Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna og leiðtogi Fatha-hreyfingarinnar á Vesturbakkanum, hvetur öll samtök Palstínumanna til að senda fulltrúa til viðræðna í Egyptalandi hið fyrsta. Á þeim fundi verði tekið á deilumálum hreyfinganna og reynt að koma á sáttum fyrir fullt og fast. Abbas segir að fundað verði eins lengi og þurfa þyki.

Ný forysta framsóknar gæti trekkt að

Líklegt er að ný forysta Framsóknarflokksins geti orðið til þess að kjósendur gefi flokknum frekar tækifæri. Þetta segir Einar Mar Þórðararson stjórnmálafræðingur og að forystuskiptin í Framsóknarflokknum geti aukið þrýsting á hina flokkana að skipta um forystu.

Skila ársreikningum fyrir 2007 síðar í mánuðinum

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa enn ekki skilað ársreikningum sínum fyrir árið 2007 til Ríkisendurskoðunar. Sjálfstæðisflokkurinn hyggst ganga frá sínum reikningum síðar í mánuðinum og senda til ríkisendurskoðanda.

Mótmæla tvöföldu siðgæði í boðari lokun St. Jósefsspítala

Sjúkraliðar á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði skora á Guðlaug Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, og ríkisstjórnina að falla frá fyrirhugaðri lokun spítalans. Sjúkraliðarnir, hittust á fjölsóttum fundi nýverið, mótmæla jafnframt því tvöfalda siðgæði sem felist í boðari lokun sökum þess hve húsnæði og búnaður þess sé lélegur en þrátt fyrir það sé húsnæðið talið fullgott til að hýsa heilsulaus gamalmenni.

Fær sér hund eins og Obama

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins, þarf að standa við loforð sem hann gaf eiginkonu sinn og kaupa hund nú þegar hann er orðinn formaður flokksins. Barack Obama verðandi forseti Bandaríkjanna hyggst einnig kaupa hund á næstunni. ,,Hvað þetta varðar eru allavega líkindi með okkur," sagði Sigmundur í þættinum Í bítið í morgun.

Hald lagt á 300 lítrar af gambra

Í gær fóru lögreglumenn í húsleit í uppsveitum Árnessýslu vegna gruns um að þar færi fram landaframleiðsla. Leitin bar þann árangur að í húsinu fundust suðutæki, 300 lítrar af gambra og 20 lítrar af fullunnum landa sem hald var lagt á. Karlmaður hefur gengist við framleiðslunni.

Hlutfallslega hafa aldrei verið færri í Þjóðkirkjunni

Í fyrsta sinn í sögunni eru sóknarbörn Þjóðkirkjunnar færri en áttatíu prósent allra landsmanna. Hagstofa Íslands hefur tekið saman upplýsingar um mannfjölda eftir trúfélögum og sóknum miðað við 1. desember 2008 og þar kemur fram að sóknarbörn í Þjóðkirkjunni eru 195.576 talsins.

Ísraelar afboða Íslandsheimsókn

Ekkert verður af boðaðri komu ísraelska menntamálaráðherrans hingað til lands. Össur Skarphéðinsson hafði sem starfandi utanríkisráðherra frábeðið sér heimsókn ráðherrana og nú hafa ísraelsk stjórnvöld ritað utanríkisráðherra og tjáð honum að ekkert verði af heimsókninni.

Forseti Íslands íhugar málsókn gegn Bretum

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands segir í samtali við BBC að hann sé enn að íhuga málsókn gegn Bretum vegna setningar hryðjuverkalaga þeirra gegn íslensku bönkunum.

Höfnin í Vestmannaeyjum er morandi í síld

Höfnin í Vestmannaeyjum er nú morandi í síld og segir sjónarvottur að um mun meira síldarskot sé að ræða en um áramótin er höfnin fylltist einnig af síld.

Bretum verr við samkynhneigða en fólk af öðrum kynþáttum

Hópur sálfræðinga frá Shire Professional-ráðgjafarstofunni, undir stjórn dr. Pete Jones, hefur reiknað það út að meira en þriðjungi Breta sé illa við samkynhneigða en það er stærri hópur en sá sem leggur fæð á fólk af ólíkum kynþáttum en þar er um að ræða einn fjórða.

Vopnahlé á Gaza heldur

Vopnahléið á Gaza, sem Ísraelsmenn lýstu yfir á laugardagskvöld, heldur enn sem komið er. Palestínumenn fóru um svæðið í gær og notuðu berar hendur og jarðýtur til að grafa lík upp úr rústum víða um borgina.

Ummerki um metangas á yfirborði Mars

Ummerki um metangas hafa fundist á yfirborði Mars og getur það gefið til kynna einhvers konar líffræðilega virkni. Meira en 90 prósent af metangasi hér á jörðinni á rætur sínar að rekja til einhvers konar lífrænna vistkerfa og því þykir Michael Mumma og rannsóknarhópi hans hjá bandarísku geimferðastofnuninni NASA það sæta miklum tíðindum að finna merki um metangas á Mars.

Myndir af stríðsföngum á Facebook brot á Genfarsáttmála

Myndir, sem danskir hermenn tóku af stríðsföngum í Írak árið 2003 og einn Dananna birti á Facebook-síðu sinni, hafa vakið mikinn úlfaþyt innan danska hersins enda brjóta slíkar myndbirtingar í bága við Genfarsáttmálann.

Fjöldi Bandaríkjamanna kemst ekki á eftirlaun

Bandaríkjamenn sem nálgast eftirlaunaaldurinn hætta nú í æ ríkari mæli við að setjast í helgan stein en vinna þess í stað áfram vegna lífeyrissparnaðar sem hvarf í svarthol efnahagshrunsins.

Nýtt gjald fyrir óendurvinnanlegt sorp í Bretlandi

Nú styttist í að sveitarstjórnum í Bretlandi verði kleift að rukka þegna sína um allt að 9.500 krónur fyrir að henda óendurvinnanlegum úrgangi í heimilissorptunnur sínar. Upplýsingar um þetta munu berast yfirvöldum gegnum örflögur sem komið verður fyrir í tunnunum.

Tveir bílþjófar handteknir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo bílþjófa í nótt á stolnum bílum. Annar var tekinn í miðborginni og reyndi sá að komast undan lögreglunni á hlaupum en laut í lægra haldi.

Innbrot í verslun á Álftanesi

Brotist var inn í verslun á Álftanesi um klukkan hálfþrjú í nótt en þjófurinn tók til fótanna þegar hann sá lögregluna nálgast og hvarf út í myrkrið. Lögreglumenn sáu hins vegar spor hans í snjónum og röktu þau þó nokkurn spöl að heimili hans, þar sem hann var handtekinn.

Bíll valt út í læk í Heiðmörk

Þrír ungir menn sluppu ómeiddir þegar bíll þeirra valt út í læk í Heiðmörk um miðnætti. Þeir komust sjálfir út úr bílnum og hringdu eftir aðstoð.

Íslensku kolmunnaskipin lögð í haf á ný

Íslensku kolmunnaskipin, sem legið hafa í höfn í Færeyjum síðan fyrir helgi vegna brælu á miðunum suður af Færeyjum, eru lögð af stað á ný og eru um það bil að komast á miðin.

Landhelgisgæsla sjóræningja

Sjóránum fjölgaði mjög á síðasta ári. Samtals var ráðist á 293 skip á árinu, en af þeim var 49 skipum rænt og nærri 900 skipverjum haldið í gíslingu víðs vegar um heim.

Seðlabankastjóri sá skýrsluna ekki í apríl

Ingimundur Friðriksson seðlabankastjóri segir ekki rétt að hann hafi séð dökka skýrslu um ástand efnahagsmála eftir hagfræðingana Willem Buiter og Anne Sibert í apríl í fyrra, heldur um sumarið, í júlí.

Síðustu forvöð að gefa peysu

Söfnun á íslenskum ullarfatnaði, lopapeysum, lopasokkum, lopavettlingum, húfum og lopateppum til þurfandi eldri borgara í Bretlandi fer senn að ljúka. Tekið verður við ullarflíkum hjá Samskipum og á Bylgjunni í dag og á morgun. Vonir standa til að hægt verði að afhenda heilan gám af hlýjum og góðum íslenskum ullarfatnaði í Bretlandi í næstu viku.

Obama kominn í forsetagír

Barack Obama, verðandi forseti Bandaríkjanna, og Joe Biden, verðandi varaforseti, komu ásamt fjölskyldum sínum til Washington-borgar með lest á laugardag til að undirbúa sig fyrir embættistöku Obama á þriðjudag.

Börn í Árnesi missa íþróttaaðstöðu sína

Landsvirkjun ætlar að leigja 250 fermetra af íþróttaaðstöðu og mötuneyti í félagsheimilinu Árnesi undir upplýsingamiðstöð um virkjanirnar í Þjórsá til tíu ára. Hreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps kannar möguleikana á að byggja í staðinn nýtt íþróttahús við félagsheimilið þó að aðeins fimmtíu nemendur séu í Þjórsárskóla og þeim fari fækkandi.

Krafa um endurnýjun

„Ég tel að landsbyggðarsjónarmið hafi ráðið nokkru um þetta og það er sjónarmið sem ég er fullkomlega sátt við," sagði Siv Friðleifsdóttir sem varð undir í kjöri um varaformann Framsóknarflokkinn.

Al Qaeda hótar Þjóðverjum

Al Qaeda sendi frá sér skilaboð á Netinu um helgina þar sem þýskum hermönnum er hótað. Stjórnvöld í Þýskalandi segja að þetta bendi til þess að aukin hætta sé á hryðjuverkaárás á Þýskaland.

Leiðtogi Hamas segir Palestínumenn óhrædda

Einn af leiðtogum Hamas samtakanna sagði í dag að þriggja vikna árásir Ísraelsmanna á Gaza ströndinni væru misheppnaðar og hefðu ekki orðið til þess að skelfa Palestínumenn.

Birkir er nýr varaformaður Framsóknarflokksins

Birkir J. Jónsson var í dag kjörinn varaformaður Framsóknarflokksins. Hann hlaut 368 atkvæði eða 57%. Siv Friðleifsdóttir hlaut 238 atkvæði eða 38%. Ógildir seðlar voru 12 og 3 voru auðir. Kjósa þurfti tvisvar sinnum um varaformann þar sem hvorki Birkir né Siv fengu 50% greiddra atkvæða í fyrri umferðinni eins og ný lög gerðu ráð fyrir.

Sigmundur Davíð er formaður Framsóknarflokksins

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var kjörinn formaður Framsóknarflokksins nú fyrir stundu. Formaður kjörstjórnar gerði mistök fyrst þegar að hann kynnti úrslitin og kynnti Höskuld Þórhallsson sem nýjan formann. Þegar að Höskuldur var rétt í þann mund að stíga í pontu eftir að kjörið var kynnt var gert hlé á fundinum og formaður kjörstjórnar fór betur yfir stöðuna.

Sjá næstu 50 fréttir