Fleiri fréttir

Vonast til að Íslendingur losni úr haldi í Reno í vikunni

Vonir standa til að íslenskur karlmaður, Fannar Gunnlaugsson, sem setið hefur í fangelsi í mánuð í Bandaríkjunum fyrir að hafa skilað dvalarleyfispappírum aðeins of seint, losni úr haldi í vikunni. Þetta segir Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins.

Segjast hafa fellt 220 talibana í Helmand

Talsmenn hersveita Bandaríkjanna í Afganistan greindu frá því í morgun að þeir hefðu fellt um 220 talibana í aðgerð í Helmand-héraði í suðurhluta landsins í síðustu viku. Er þetta einn mesti fjöldi uppreisnarmanna sem hersveitir á vegum NATO fella í Afganistan.

Flugmenn óttast atvinnuleysi

Flugmenn, sem Icelandair hefur sagt upp á árinu óttast að fá ekki vinnu annarsstaðar, sem jafnan hefur verið auðvelt þegar fyrirtækið hefur sagt upp flugmönnum.

Segir gagnrýni Bílamarkaðarins ekki rétta að öllu

Dagur Jónasson, framkvæmdastjóri Bílalands, segir gagnrýni Þrastar Karelssonar, framkvæmdastjóra Bílamarkaðarins í Kópavogi, á verðlagningu notaðra bifreiða, sem birtist í grein á Vísi í gær, ekki að öllu leyti réttmæta.

Sögulegar sættir

Guðjón Friðriksson sagnfræðingur og Matthías Johannessen fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins hafa náð sáttum vegna þess sem Guðjón kallaði ærumeiðandi lygaþvælu í dagbókum Matthíasar á netinu.

Fleiri flugmönnum sagt upp hjá Icelandair

Icelandair hefur sagt upp 16 flugmönnum til viðbótar þeim sem þegar hefur verið sagt upp á síðustu vikum og mánuðum. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Sjónvarpsins. Var ástæða uppsagnanna sögð minnkandi verkefni fyrirtækisins.

Hálf milljón sögð einangruð á Indlandi

Talið er að um hálf milljón manna í Bihar-héraði á Indlandi, nærri landamærum Nepals, sé einangruð í heimabæjum sínum eftir gríðarleg flóð þar að undanförnu.

Bush ekki á landsþing repúblikana vegna Gústafs

Hvorki George Bush Bandaríkjaforseti né Dick Cheney varaforseti munu taka þátt í landsþingi Repúblikanaflokksins sem hefst í Minnesota á morgun. Frá þessu greindi talsmaður Hvíta hússins í dag.

Einni og hálfri milljón safnað í Esjugöngu

Á áttunda hundrað voru skráð í Esjugöngu Kaupþings sem fram fór í gær, laugardaginn 30. ágúst. Gengið var til styrktar „Á allra vörum - átak gegn brjóstakrabbameini” en bankinn hét tvö þúsund krónum á hvern þann sem skráði sig til leiks.

Dalai Lama af sjúkrahúsinu á morgun

Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta, verður útskrifaður af sjúkrahúsi á morgun þar sem hann hefur sætt rannsóknum vegna kviðverkja. Talsmaður leiðtogans sagði líðan hans góða en vildi ekki tjá sig um niðurstöður rannsóknanna.

Forstjórastaða Landsvirkjunar laus til umsóknar

Forstjórastaða Landsvirkjunar er auglýst laus til umsóknar í blöðum dagsins. Í auglýsingunni kemur fram að forstjórinn þurfi meðal annars að hafa háskólamenntun sem nýtist í starfi

Forðaði stórslysi með naumindum

Litlu munaði að vörubíll félli ofan í Langadalsá í Ísafirði, en bíllinn vóg salt á brúarkantinum. Þetta varð með þeim hætti að ökumaður jeppa ætlaði sér yfir einbreiða brúna þó svo vörubíllinn væri það nálægt henni að ekki hefði verið nokkur leið að stöðva hann.

Tæpar 30 milljónir söfnuðust í Perlunni

Rúmar tuttugu og átta milljónir söfnuðust á Glæsimarkaði í Perlunni í gær. Ágóði af sölu og uppboði nam 18 milljónum og við það bætast framlög að upphæð 10 milljónum króna.

Enn erfið fæðing hjá ljósmæðrum

Fimmti samningafundur ljósmæðra og ríkisins hjá sáttasemjara hófst fyrir stundu. Takist ekki samningar um laun ljósmæðra hefjast boðaðar verkfallsaðgerðir á fimmtudag.

Nýtt meistaranám við Háskólasetur Vestfjarða

Menntamálaráðherra mun í dag formlega setja nýja námsleið á meistarastigi við Háskólasetur Vestfjarða. Um tímamót er að ræða því þetta er í fyrsta sinn sem staðbundið háskólanám er alfarið er kennt á Vestfjörðum.

Hefðbundinn erill hjá lögreglu

Þrír gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt, þar af einn sem grunaður er um akstur undir áhrifum fíkniefna. Að sögn varðstjóra var nokkur erill í bænum og töluverð ölvun.

Treyja Ólafs fór á eina milljón króna

Landliðstreyja Ólafs Stefánssonar sem hann klæddist í úrslitaleik Ólympíuleikanna var slegin á eina milljón króna á glæsimarkaði í Perlunni í dag. Milljónin líkt og allur annar ágóði af markaðnum rennur til uppbyggingar skóla fyrir börn og konur í Jemen, fátækasta ríki arabaheimsins

Slasaður eftir árekstur

Bifreið var ekið á staur skammt frá Select á Bústaðavegi um kvöldmatarleytið og er óökufær eftir. Var ökumaður hennar fluttur á slysadeild en ekki var unnt að fá upplýsingar

Á fimmta tug særðust í sprengingu á Sri Lanka

Á fimmta tug manna særðist þegar sprengja sprakk í Colombo, höfuðborg Sri Lanka, í dag. Líklegt þykir að Tígrarnir, skæruliðar Tamíla á Sri Lanka, hafi staðið að baki ódæðinu en sprengjan sprakk við fjölfarna götu í miðborginni.

Litháískir fangar afplána í heimalandinu

Þrír litháískir fangar sem hlotið hafa dóma hér á landi halda til síns heima á næstunni til þess að taka út refsingu sína. Þetta er í samræmi við samkomulag sem íslensk og litháísk stjórnvöld hafa gert.

Raðmorðingja með 23 ára feril leitað

Lögregla í Los Angeles leitar nú logandi ljósi að raðmorðingja sem grunaður er um að hafa minnst 11 mannslíf á samviskunni en fórnarlömbin eru flest vændiskonur. Morðin eru talin hafa átt sér stað á 23 ára tímabili og þykist lögregla þess

Keflavíkurskyttan enn ófundin

Aðili sem skaut úr loftbyssu á hús í Keflavík í nótt er ófundinn en lögregla segir einhvern eða einhverja liggja undir grun. Sandgerðishátíðin stendur nú sem hæst ásamt varnaræfingunni Norðurvíkingi 2008 og segir lögregla hvort tveggja hafa tekist með miklum ágætum það sem af er.

Öllu starfsfólki Kjötbankans sagt upp í gær

Öllu starfsfólki Kjötbankans, um 20 manns, var sagt upp störfum í gær. „Fyrirtækið verður að losa samninga sem í gildi eru til að geta farið út í breytingar á rekstrinum og skipulagsbreytingar svo laga megi fyrirtækið að framtíðinni,“ sagði Haukur Hjaltason, eigandi Kjötbankans.

Enn skelfur jörð í Sichuan-héraði

Jarðskálfti af stærðinni 6,1 stig á Richter skók Sichuan-héraðið í suðvesturhluta Kína klukkan hálffimm síðdegis að staðartíma. Upptök skjálftans eru talin vera um 50 kílómetra suðaustur af borginni Panzhihua segir Xinhua-fréttastofan kínverska.

Ólafur Ragnar kom til Bangladess í gær

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er nú staddur í opinberri heimsókn í Bangladess en þangað kom hann í gærkvöldi. Ólafur Ragnar mun meðal annars taka þátt í lokaathöfn alþjóðlegrar ráðstefnu um loftslagsbreytingar og fæðuöryggi í Suður-Asíu en ráðstefnan hófst á mánudag.

Segir tímabært að skoða siðvæðingu fjármálageirans

„Við vorum einmitt að samþykkja ályktun um sparisjóðina almennt og umhverfi fjármálafyrirtækja,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, innt álits á stofnfjáreign Árna M.

Guðný Halldórsdóttir bæjarlistamaður Mosfellsbæjar

Guðný Halldórsdóttir kvikmyndagerðarmaður var útnefnd bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2008 við hátíðlega viðhöfn í gærkvöldi þegar bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima, var sett með pompi og pragt.

Nemakort Strætó bs. fyrir alla nema suma

Ekki eru allir á eitt sáttir með hin svokölluðu Nemakort Strætó bs., strætisvagnakort sem sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu standa að og veita námsmönnum ókeypis aðgang að almenningsvögnum Strætó.

Uppskeruhátíð Grasagarðsins í dag

Árleg uppskeruhátíð verður haldin í nytjajurtagarði Grasagarðsins í Laugardal í dag milli klukkan 13 og 16. Slegið verður upp hlaðborði með fjölbreyttum og ferskum matjurtum.

Gustav nálgast Kúbu óðfluga

Fellibylurinn Gustav nálgast nú vestasta odda Kúbu með tæplega 20 kílómetra hraða á klukkustund en vindhraði bylsins mælist allt að 155 kílómetrar.

Sjá næstu 50 fréttir