Fleiri fréttir

Guðjón Friðksson sakar Matthías um lygaþvælu

Guðjón Friðriksson sagnfræðingur sakar Matthías Johannessen fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins um að birta ærumeiðandi lygaþvælu á vefsíðu sinni. Þar heldur Matthías því fram að Guðjón hafi verið hrakinn úr kennslu fyrir pólitíska einkunnagjöf.

Undarlegt hvarf fjölskyldu bresks auðmanns

Breska lögreglan leitar nú að þriggja manna fjölskyldu auðmanns sem ekkert hefur spurst til síðan á þriðjudag þegar öll hús á landareign þeirra voru brennd. Málið þykir allt lykta af því að brunanum hafi verið ætlað að fela ummerki um að fjölskyldan hafi verið myrt - eða að hún sé á flótta.

Ekki hætta á mengunarslysi

Fyrrverandi varðskipið Þór rak í vonskuveðri upp að landi í Hvalfirði í morgun. Óttast var að mikil olía væri um borð og að mengunarslys væri í uppsiglingu. Dráttarbátnum Magna tókst hins vegar að draga Þór af staðnum.

Deilur innan ÁTVR á Akureyri

Uppnám er innan ÁTVR á Akureyri eftir að verslunarstjóri jós svívirðingum yfir starfsfólk sitt og lagði hendur á undirmann í samkvæmi. Níu starfsmenn hættu störfum vegna málsins. Aðstoðarforstjóri ÁTVR segir að verslunarstjórinn njóti trausts.

Fyrsta skóflustungan að hjúkrunarheimili aldraða í Boðaþingi

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og fulltrúi félags- og tryggingamálaráðherra, Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri, tóku fyrstu skóflustunguna að fyrri áfanga hjúkrunarheimilis fyrir aldraða í Boðaþingi í Kópavogi í morgun.

Banaslys í Mjóafirði

Umferðarslys varð í botni Mjóafjarðar í Ísafjarðardjúpi um klukkan þrjú í dag. Að sögn lögreglu valt bifreið út af veginum og hafnaði á hvolfi ofan í á. Tveir aðilar voru í bifreiðinni. Annar þeirra var látinn þegar næstu vegfarendur komu að. Hinn aðilinn mun ekki hafa slasast alvarlega. Lögreglumenn og sjúkraflutningamenn eru á vettvangi og eru tildrög slyssins til rannsóknar að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Með tíu grömm af kóki í endaþarminum

Í gærdag var tæplega tvítugur karlmaður handtekinn á Akureyrarflugvelli þar sem fíkniefnahundur lögreglunnar merkti hann við eftirlit. Í ljós kom að maðurinn hafði meðferðis um 10 grömm af efni sem talið er vera kókaín og hafði hann falið efnið í endaþarmi sínum. Að lokinni skýrslutöku var maðurinn látinn laus og málið telst upplýst.

Ingibjörg Sólrún í Betlehem

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, flutti í dag framsöguræðu sem sérstakur gestur á fundi friðarráðs kvenna í Betlehem.

Gæslan var á undan handboltahetjunum

Þegar Ólympíuliðið í handbolta veitti Fálkaorðum sínum móttöku á Bessastöðum á miðvikudag var haft orð á því að þetta væri í fyrsta skipti sem liðsheild væri veitt þessi orða.

Karadiz telur samsæri vera í gangi gegn sér

Radovan Karadzic neitar að lýsa sig sekan eða saklausan af stríðsglæpunum sem hann er ákærður fyrir í stríðsglæpadómstólnum í Haag. Hann staðhæfir að samsæri sé í gangi gegn honum og að „réttur Nató" vilji ekkert annað en tortímingu hans.

Sprunga við Kárahnjúkavirkjun

Mögulegt er að bergfylla losni úr vegg Hafrahvammagljúfurs á móts við Kárahnjúkafoss við Kárahnjúkavirkjun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun. Mannvirki eru ekki í hættu.

McCain valdi harðsnúna hægri konu

Sara Palin, varaforsetaefni Johns McCain er ríkisstjóri í Alaska. Hún er 44 ára gömul fyrrverandi fegurðardrottning og fimm barna móðir.

Segja íbúa við Þjórsá beitta opinberi valdbeitingu

Samtökin Sól á Suðurlandi segja íbúa við Þjórsá mismunað og beitta opinberi valdbeitingu. Samtökin segja slæmt að athugasemdir sem almenningur gerði við skipulagið voru sendar til lögfræðings á vegum Landsvirkjunar, sem fyrirtækið greiddi fyrir að svara athugasemdunum á þann veg sem því hentaði.

John McCain velur konu sem varaforsetaefni

John McCain forsetaframbjóðandi Repúblikana hefur valið ríkisstjórann Söru Palin sem varaforsetaefni sitt í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum. Stjórnmálaskýrendur vestra höfðu veðjað á að Mccain myndi velja konu sér við hlið og hefur það nú komið á daginn. Sara Palin er ríkisstjóri Alaska.

Móðir öryggisvarðar ósátt við vægan dóm árásamanns

Fjölskylda Óttarrs Ómarssonar sem varð fyrir lífshættulegri árás í 10-11 í Austurstræti í apríl er mjög ósátt við dóminn sem árásamaður hans hlaut. „Okkur finnst rugl að hann þurfi aðeins að sitja inn í einn og hálfan mánuð. Þar að auki finnst okkur ekki tímabært að meta strax hve mikil áhrif þessi árás mun hafa á Óttarr," segir Hrefna Snæhólm móðir Óttarrs.

Fráleitt að Þorgerður segi af sér

Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir fráleitt að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, þurfi að segja sér vegna tveggja ferða hennar á Ólympíuleikana.

Georgía slítur stjórnmálasambandi við Rússland

Georgía hefur ákveðið að slíta stjórnmálasambandi við Rússland. Þetta staðfesti aðstoðarutanríkisráðherra landsins í dag. Ástæðan er vitaskuld væringar sem verið hafa á milli ríkjanna sem náðu hámarki í skammvinnu stríði fyrr í mánuðinum. Þá hafa Rússar viðurkennt sjálfstæði georgísku sjálfstjórnarhéraðanna Abkasíu og Suður-Ossetíu en sú ákvörðun hefur verið fordæmd víða um heim.

Vonar að Þór hafi ekki orðið fyrir skemmdum

Gamla varðskipið Þór strandaði undan Hvammsvík skömmu fyrir hádegi. Þór hefur ekki verið í þjónustu Landhelgisgæslunnar síðustu ár en hann er nýttur við kvikmyndatökur við Grundartanga. Leikstjóri myndarinnar segir að skipið hafi verið mannlaust enda hafi tökuliðið fengið frí í gær vegna slæmrar veðurspár. Hann er vongóður um að skipið hafi staðist raunina.

Hulda ráðin forstjóri Landspítala

Hulda Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Landspítala -háskólasjúkrahúss og tekur til starfa um miðjan október. Guðlaugur Þór Þórðarsson, heilbrigðisráðherra, tilkynnt þetta á fundi með starfsmönnum nú í hádeginu og tók starfsfólk á móti Huldu með dynjandi lófataki.

Gervigrasvöllur varð rokinu að bráð

Gámurinn við Klébergsskóla á Kjalarnesi sem fauk í óveðrinu í morgun eyðilagði tvo ljósastaura og stórskemmdi grindverkið umhverfis gervigrasvöllinn við skólann. Björgvin Þór Þórhallson, skólastjóri segir að þetta sé þó ekki eina tjónið sem hlaust af rokinu því vindurinn feykti upp nýlögðu gervigrasinu við skólann.

Finnar segjast geta varist Rússum

Finnar eru órólegir vegna þróunarinnar í Rússlandi og sérstaklega vegna stríðsins í Georgíu. Finnar hafa sjálfir háð tvö stríð við Rússa.

Lausamunir fjúka í óveðri

Mikið óveður hefur gengið yfir landið í nótt og í morgun og hafa Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins þurft að sinna nokkrum beiðnum í morgun vegna þess.

Innanlandsflug liggur niðri

Allt innanlandsflug liggur niðri vegna veðurs. Athugað verður með flug klukkan eitt eftir hádegi. Áætlunarferðum til Viðeyjar hefur verið aflýst í dag.

Nýr forstjóri LSH kynntur á eftir

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, mun eftir hádegi tilkynna hver verður nýr forstjóri Landspítala háskólasjúkrahúss.

Fyrirmyndarökumenn í Hvalfjarðargöngum

Alls óku 56 ökumenn of hratt í Hvalfjarðargöngum á mánudag og þriðjudag. Lögreglan vaktaði 3.015 ökutæki á 46 klukkustundum og reyndust innan við 2% af heildarfjölda ökumanna aka of hratt. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 kílómetrar á klukkustund en þarna er 70 kílómetra hámarkshraði. Sá sem hraðast ók var á 118 kílómetra hraða.

Rússar neita að þeir ætli að nota olíu sem vopn

Forstöðumenn LUKOIL næst stærsta olíufélags Rússland neita því að ríkisstjórnin hafi skipað því að búa sig undir að draga úr olíusendingum til Vestur-Evrópu vegna hótana um refsiaðgerðir af hálfu Evrópusambandsins.

Hollenski smyglarinn áfram í gæsluvarðhaldi

Hollenskur karlmaður á áttræðisaldri var í gær úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald vegna aðildar að fíkniefnasmygli en tollverðir fundu tæp 200 kíló af fíkniefnum um borð í húsbíl hans þegar hann kom til landsins með ferjunni Norrænu 10. júní síðastliðinn.

Obama formlega gerður að forsetaefni

Barack Obama tók í nótt formlega við tilnefningu sem forsetaefni bandarískra demokrata á landsþingi þeirra í Denver í Colorado fylki.

Skjálftar á Reykjanesi

Þrír jarðskjálftar urðu vestur af Krísuvík á Reykjanesi á öðrum tímanum í nótt og var sá snarpasti 1,9 á Richter. Fyrir miðnætti hafði einn skjálfti orðið skammt frá Helguvík upp á 1,8 og fannst hann í grenndinni.

Íbúar New Orleans búa sig undir hið versta

Hitabeltissstormurinn Gústaf hefur gengið yfir Jamaíka með rigningu og miklu roki. Óveðrið hefur þegar orðið um 60 manns að bana á Haíti og Dóminíska lýðveldinu en enn gæti veðrið versnað.

Ný kvikmynd um æsku Lennons

Unnið er að gerð kvikmyndar um ævi Bítilsins Johns Lennon. Titill myndarinnar verður Nowhere Boy og mun hún einkum fjalla um unglingsár Lennons.

Aldraðir en illræmdir Argentínumenn dæmdir í lifstíðarfangelsi

Tveir illræmdustu menn úr argentínsku herstjórninni hafa verið dæmidr í lífstíðarfangelsi. Hinn áttatíu og tveggja ára gamli Antonio Bussi og hinn áttatíu og eins árs gamli Luciano Benjamin Menendez voru fangelsaðir fyrir að ræna fyrrverandi öldungadeildarþingmanni í apríl árið 1976.

Lögreglan rannsakar enn innbrot í Seljahverfi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn inbrotsþjófs eða þjófa, sem brutust inn í einbýlishús í Seljahverfi í Reykjavík í gærdag og stálu miklum verðmætum. Meðal annars tölvum, rafmagnstækjum og skartgripum. Engin nágranni virðist hafa séð til þjófanna.

Steypubíll valt við Akureyri

Full lestaður steypubíll valt út af þjóðveginum norðan við Akureyri í gærkvöldi, skammt frá Ólafsfjarðarafleggjara. Ökumaður slapp ómeiddur, en bíllinn náðist ekki upp á veginn aftur fyrr en eftir miðnætti, og hafði steyputunnan þá verið losuð af honum. Tildrög eru óljós.-

Fundu notaðar sprautunálar í Kókópuffs pakka

Unglingar fundu nokkrar notaðar sprautur og nálar í kókópuffs pakka, á milli eins grunnskólans og leikskólans á Selfossi í gærkvöldi. Þeir hirtu dótið upp en köstuðu því frá sér í runna við félagsmiðstöðina, í stað þess að láta lögreguna vita.

Átök milli lögreglu og mótmælenda í Bangkok

Átök brutust út í nótt á milli lögreglu og mótmælenda sem hafa lagt undir sig stjórnarráðsbygginguna í Bangkok, höfuðborg Tælands. Dómari í borginni hefur fyrirskipað lögreglunni að reka mótmælendur út úr byggingunni.

Putin kennir Bandaríkjamönnum um átökin í Georgíu

Vladimir Putin, forsætisráðherra Rússlands, segir að Bandaríkjamenn beri ábyrgð á átökunum í Georgíu. Hann segir að Bandaríkjamenn hafi ýtt undir átökin í von um að þau myndu gagnast öðrum forsetaframbjóðandanum í Bandaríkjunum.

Gámur fauk af vörubíl

Fjörutíu feta gámur fauk af vörubíl á Kjalarnesi undir morgun en þar fer vindurinn upp undir 30 metra á sekúndu í kviðum. Þar fauk líka stór gámur við Klébergsskóla, en olli ekki skemmdum eftir því sem best er vitað. Lögregla varar ökumenn við að fara þarna um.

Sjá næstu 50 fréttir