Fleiri fréttir

Tíminn stendur í stað á Lækjartorgi

Keyrt var á klukkuna á Lækjartorgi í gærkvöldi samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg. Ökumaður virðist hafa ekið á klukkuna rétt fyrir klukkan níu í gær því hún hefur verið stopp síðan þá.

Ríkisstjórn mynduð í Líbanon

Samsteypustjórn hefur verið mynduð í Líbanon sem gefur Hizbollah-samtökunum og bandamönnum þeirra næg völd til þess að beita neitunarvaldi. Er það samkvæmt samningi sem komst á þar í landi í maí síðastliðnum og batt enda á stjórnmálakreppu í landinu.

Flóttatilraun fanga mistókst

Gæsluvarðhaldsfangi, sem verið var að flytja af Litla-Hrauni í Hegningarhúsið við Skólavörðustíg, reyndi að flýja þegar hann fór út úr bifreið sem flutti hann á milli staða. Maðurinn var handsamaður um mínútu eftir að hann flúði, að sögn Páls Winkels, fangelsismálastjóra.

Víkingar fá stærri lóð við Stjörnugróf

Knattspyrnufélagið Víkingur hefur fengið fyrirheit um stækkun athafnasvæðis félagsins við Stjörnugróf eftir að núgildandi leigusamningur við gróðrastöðina Mörk rennur út, árið 2016.

Bréfið til Guðmundar ekki rætt í stjórn OR

Fulltrúi Samfylkingarinnar í stjórn Orkuveitunnar segir að ákvörun um að senda Guðmundi Þóroddssyni, fyrrverandi forstjóra Orkuveitunnar, bréf þar sem hann er krafinn um að skila gögnum hafi ekki verið rædd í stjórn fyrirtækisins.

Tilraunir Írana sýna að varnir BNA séu óþarfar

Nýlegar flugskeytatilraunir Írana sanna að varnaráætlun Bandaríkjamanna í Evrópu er óþarfi að mati utanríkisráðherra Rússa, Sergei Lavrov. Hann telur tilraunirnar sanna að eldflaugarnar nái ekki lengra en 2000 kílómetra.

Lögreglan leitar enn árásarmanna

Lögregla leitar enn tveggja ungra karlmanna sem réðust á leigubílstjóra í Garðabæ í nótt, börðu hann og hótuðu honum með hnífi.

Þórunn ekki lengur andófsmaður

Umhverfisráðherra sagðist í október vera andófsmaður innan ríkisstjórnarinnar. Í fréttum Stöðvar 2 í gær sagðist hún alls ekki á leiðinni að verða undir innan ríkisstjórnarinnar.

Hundrað og áttatíu milljónir til menntaverkefna á landsbyggðinni

Menntamálaráðherra hefur ákveðið að veita allt að 180 milljónum króna til menntaverkefna á landsbyggðinni sem eru þáttur í mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna tímabundins aflasamdráttar. Veittir verða styrkir til 59 verkefna að þessu sinni.

Vonar að mál Ramses verði afgreitt sem fyrst

Katrín Theódórsdóttir, lögfræðingur Paul Ramses hefur ekkert heyrt frá dómsmálaráðuneytinu eftir að hafa lagt inn kæru á miðvikudaginn. Hún vonar að mál Ramses verði afgreitt sem fyrst vegna sérstaka aðstæðna í því. Hún segist ekki þekkja nein fordæmi fyrir því að semja við Útlendingastofnun eins og Atli Gíslason, þingmaður Vinstri hreyfingarinnar- Græns framboðs, stakk upp á.

Kjartan fékk lögfræðing í mál Guðmundar

Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, leitaði til Kjartans Magnússonar, stjórnarformanns Orkuveitunnar, eftir að hafa ítrekað beðið Guðmund Þóroddsson, fyrrverandi forstjóra fyrirtækisins, um að skila gögnum af stjórnarfundum.

Hæstu æfingagjöldin í Borgarnesi

Kostnaður sem fylgir íþrótta- og tómstundaiðkun barna og unglinga getur vegið þungt í heimilisbókhaldi hjá barnafjölskyldum. Fótboltinn er með vinsælli íþróttum og er stundaður um allt land. Neytendasamtökin ákváðu að kanna árgjald fyrir börn í 4. flokki og skoða hvaða áhrif íþróttastyrkur sveitarfélaga hefur á æfingagjöldin.

Hvalfjarðagöngin 10 ára í dag

Í dag eru tíu ár frá því að Hvalfjarðargöngin voru opnuð. Á vefsíðu Hvalfjarðarsveitar segir að um sé að ræða mestu samgöngubót sögunnar. Á þessum tíu árum hafi um 14 milljónir ökutækja farið um göngin.

Þorsteinn neitar öllu við yfirheyrslur

Samkvæmt heimildum Vísis neitar Þorsteinn Kragh öllum ásökunum við yfirheyrslu hjá lögreglu. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan í síðustu viku eftir að hafa verið handtekinn í tengslum viði innflutningi á um 190 kílóum af hassi sem Hollendingur var tekinn með á Seyðisfirði í byrjun júní.

Pakistanar vilja að SÞ rannsaki morðið á Bhutto

Utanríkisráðherra Pakistan hefur farið formlega fram á það að Sameinuðu þjóðirnar komi á laggirnar nefnd til að rannsaka dauða Benazir Bhutto fyrrum forsætisráðherra landsins en hún var myrt í desember s.l.

Þrjú tekin dópuð undir stýri

Lögreglan í Árnessýslu tók tvær konur og einn karlmann úr umferð á bílum þeirra með skömmu millibili í uppsveitum sýslunnar, á sjöunda tímanum í gærkvöldi, öll grunuð um fíkniefnaneyslu.

Hlaupið úr Grænalóni í rénun

Hlaupið úr Grænalóni sunnan undir Vatnajökli, virðist nú í rénun og ljóst að það muni ekki skapa neina hættu.

Kæfði eiginkonu og tvö ungabörn

Lögreglan í Pennsylvaníu hefur handtekið 38 ára gamlan mann sem er grunaður um að hafa drepið fyrrverandi eiginkonu sína og tvö börn með því að kæfa þau til dauða.

Tjáir sig ekki um hugsanlega lögsókn Guðmundar

Páll Magnússon, útvarpsstjóri, treysti sér ekki til þess að tjá sig um hugsanlega lögsókn Guðmundur Þóroddsson, fyrrverandi forstjóra Orkuveitunnar, á hendur Rúv. Hann segist ekki hafa séð fréttina þar sem Guðmundur var sakaður um að hafa tekið trúnaðargögn ófrjálsri hendi þegar hann hætti sem forstjóri og neitað að skila þeim.

Guðni ræður sér aðstoðarmann

Agnar Bragi Bragason, Reykvíkingur og Valsari, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Guðna Ágústssonar þingmanns Framsóknarflokksins. Agnar segist hlakka til að takast á við starfið.

Íranir falsa ljósmynd

Ljósmynd sem birtist á forsíðum stærstu dagblaða heims af eldflaugatilraunum Írana var fölsuð. Á myndinni sáust fjórar eldflaugar lyfta sér frá jörðu en í raunveruleikanum voru þær aðeins þrjár.

Sjóliðar lagfærðu minnismerki

Sjóliðar úr breskum tundurspilli sem liggur við Reykjavíkurhöfn gerðu endurbætur á minnismerki í Fossvogskirkjugarði í dag. Liðsforingi um borð segir það fremur sjaldgæft að sjóliðar um borð bjóði sig fram til slíkra verka.

Fjölgun á komu hælisleitanda

Þeir hælisleitendur sem lengst hafa beðið eftir úrlausn sinna mála hjá Útlendingastofnun komu hingað til lands árið 2005. Flestir hælisleitendur koma hingað til lands frá Schengen svæðinu.

Kannað hvað orsakaði bilun

Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Flugleiða, segir að bilun hafi komið upp hreyfli Boeing 757-200 vélar sem var á leið frá Amsterdam til Keflavíkur í dag.

Sagður hafa látist af eðlilegum orsökum

Blaðafulltrúi skemmtiferðaskipsins Aurora, Michelle Angel, segir við Vísi að farþegi hafi látist um borð í skipinu í nótt af náttúrulegum orsökum. Enginn grunur sé um að morð hafi verið framið.

Þórunn flýr undan sjónvarpsvélum

Samfylkingin er í úlfakreppu vegna klofnings í afstöðunni til stóriðjuuppbyggingar. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra flýr ítrekað undan sjónvarpsvélum þegar reynt er að spyrja hana hversvegna hún kallaði eftir aukafundi þingflokksins um málið.

VG: Hreinusnarátak farið úr böndunum

Vinstri grænir í Reykjavík telja brýnt að borgaryfirvöld gæti meðalhófs í hreinsunaraðgerðum sínum í miðborginni. Fulltrúi flokksins lagði fram bókun á fundi borgarráðs í morgun þar sem segir að svo virðist sem að hreinsunarátak borgarinnar hafi farið úr böndunum og málning þekji nú áratugagömul listaverk. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sóleyju Tómasdóttur, varaborgarfulltrúa VG.

181 farþegi heill á húfi eftir rautt útkall í Keflavík

Allt tiltækt lið slökkviliðs og lögreglu var kallað út að Keflavíkurflugvelli fyrir stundu en þar lenti Boeing 757-200 vél Icelandair með einkennisstafina TF-FIZ. Vélin var með dautt á vinstri hreyfli en lendingin gekk vel.

„Fólkið á Íslandi hefur virkilega snert hjarta mitt"

„Ég er svo þakklátur fyrir allan þann stuðning sem fólkið á Íslandi hefur sýnt mér“ segir Paul Ramses sem dvelur nú á gistiheimili fyrir hælisleitendur í Róm. „Það sýnir okkur að Íslendingar eru friðelskandi þjóð og umhugað um mannréttindi sem er gott að vita og gott fyrir fólkið.“

Hvaðan komu auður og völd Vatnsfirðinga til forna?

Alþjóðlegur hópur fornleifafræðinga rannsakar hvers vegna Vatnsfjörður í Ísafjarðardjúpi varð eitt ríkasta og valdamesta höfðingjasetur landsins á miðöldum. Samhliða er þar rekinn fornleifaháskóli fyrir nemendur víðs vegar að úr heiminum.

Andstæðar fylkingar í Simbabve tala saman

Stjórnarflokkurinn í Simbabve, Zanu-PF og báðar fylkingar í stjórnarandstöðuflokknum MDC hafa byrjað viðræður í Suður-Afríku. Þetta eru fyrstu viðræður þeirra síðan forsetakosningarnar voru í lok júní.

Björgólfur vann meiðyrðamál

Ummæli Kristjáns S. Guðmundssonar um Björgólf Guðmundsson, stjórnarformann Landsbankans, sem birtust í grein hans í Morgunblaðinu í október 2007 undir yfirskriftinni „Eimskip, óskabarn þjóðarinnar" voru dæmd ómerk í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Óprúttnir aðilar svíkja og pretta í nafni MS-félagsins

Árvökulir borgarar létu MS-félagið vita af því í dag að fólk væri að ganga í hús í Breiðholtinu í dag og biðja um lausafé í söfnunarbauk til styrktar félaginu. Berglind Ólafsdóttir hjá MS-félaginu segir að þarna hafi ekki verið um fólk á þeirra vegum að ræða. Félagið stundi ekki að ganga í hús og biðja um fé til styrktar félaginu.

Íhugar málsókn gegn RÚV

Guðmundur Þóroddsson íhugar málsókn gegn fréttastofu Ríkissjónvarpsins í kjölfar fréttar þar sem gefið var í skyn að hann hafi tekið skjöl Orkuveitunnar ófrjálsri hendi. Guðmundur lýsir furðu á einhliða fréttaflutningi fréttastofunnar þar sem engin tilraun hafi verið gerð til að bera efni fréttarinnar undir sig. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Guðmundi.

Sjá næstu 50 fréttir