Fleiri fréttir

Enn fjölgar fótunum

Ekkert lát virðist vera á aflimuðum fótum í sjónum vestan við Kanada. Sjötti fóturinn rak þar á land í gær, degi eftir að sá fimmti fannst á floti skammt undan ströndinni.

Hættur við hringferð á kajak

Bandaríski kajakræðarinn Marcus Demuth hafði samband við Landhelgisgæsluna í gær og tilkynnti henni að hann væri hættur við hringferð sína um landið.

Obama með forskot á McCain

Barack Obama hefur forskot á John McCain í þremur af mikilvægustu fylkjunum í Bandaríkjunum samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Spennan er því farin að magnast í komandi forsetakosningum en Obama hefur 12 prósenta forskot.

Tvö innbrot í Breiðholti

Tilkynnt var um tvö innbrot í Breiðholti til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag. Ekki er vitað hversu miklu var stolið en biður lögreglan fólk um að huga að íbúðum sínum á þessum árstíma. Frá klukkan 15:00 í dag var tilkynnt um þrettán árekstra til lögreglunnar.

Borgarísjaki sást í ískönnunarflugi

Í dag fór Fokker flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SYN í ískönnunarflug úti fyrir Vestfjörðum. Ískönnunin hófst klukkan 17:35 á stað: 66°10´N, 028°35´V og var ísröndinni fylgt þaðan til norð-austurs. Ísröndin reyndist vera næst landi 70 sjómílur NNV af Straumnesi og 77 sjómílur NV af Barða.

Tekinn á 127 km hraða á Reykjanesbraut

Á dagvaktinni stöðvaði lögregla á Suðurnesjum 12 ökumenn vegna hraðaksturs. Sá sem hraðast ók var mældur á 127 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km/klst.

Aldrei skal hlaupa undan ísbirni

Sjaldgæft er að ísbirnir drepi menn og eru slík tilvik í heiminum á síðasta áratug teljandi á fingrum annarrar handar. Kristján Már Unnarsson var á ísbjarnarslóðum í Norður-Kanada í vor þar sem hann kynnti sér leiðbeiningar um hvað menn eigi að gera ef þeir mæta ísbirni.

Sjálfstæðisflokkur hafnar áformum umhverfisráðherra

Sjálfstæðisflokkurin hefur hafnað áformum umhverfisráðherra um landsskipulagsáætlun og verður ráðherrann gerður afturreka með það ákvæði stjórnarfrumvarps að skipulagslögum, sem er til meðferðar Alþingis.

Harma verkfallsboðun flugumferðarstjóra

Stjórn Flugstoða ohf. harmar mjög verkfallsboðun Félags íslenskra flugumferðastjóra (FÍF) og vonar að til verkfalls þurfi ekki að koma. Samtök atvinnulífsins (SA) eru viðsemjendur FÍF í þessari kjaradeilu, en samningafundir SA og FÍF hófust um síðustu áramót.

Frændi sýknaður af kynferðislegri misnotkun

Karlmaður var sýknaður í Héraðsdómi Austurlands í dag en hann var ákærður fyrir að hafa káfað á kynfærum stúlku sem þá var 7-8 ára gömul. Maðurinn er frændi stúlkunnar og sagðist faðir hennar hafa komið að honum að nudda kynfæri hennar.

Hollenskt par með 300 grömm af kóki í Leifsstöð

Hollenskt par um fimmtugt var í dag úrskurðað í gæsluvarðhald til mánudags í Héraðsdómi Reykjaness. Það var handtekið í Leifsstöð í gær með 300 grömm af kókaíni í farteskinu.

Ártúnsbrekka opin á ný

Búið er að opna fyrir alla umferð um Ártúnsbrekku til austurs en þar fór fullfermdur vörubíll á hliðina um hádegisbil í dag.

Hjalti fer fyrir ísbjarnastarfshópi

Hjalti J. Guðmundsson, sviðsstjóri náttúruauðlinda hjá Umhverfisstofnun, verður formaður starfshóps sem umhverfisráðherra hefur skipað og á að vinna tillögur vegna hugsanlegrar landtöku hvítabjarna hér á landi. Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag er hópurinn skipaður eftir að tveir hvítabirnir komu hingað til lands á tveggja vikna tímabili. Starfshópur ráðherra á við vinnu sína að taka mið af reynslunni í þessi tvö skipti og viðbrögðum við komu bjarnanna.

Kerfið er á hraða snigilsins

Foreldraráðgjafi Þroskahjálpar á Suðurnesjum segir að ástandið á svæðinu sé afar slæmt. ,,Kerfið er á hraða snigilsins og fylgir ekki eftir þörfinni hverju sinni."

Bensínverð hækkaði í dag

Eldsneytisverð hækkaði í dag. Verð á bensínlítranum er 178,4 krónur og 173,4 í sjálfsafgreiðslu hjá olíufélögunum að Atlantsolíu undanskildri. Þar kostar líterinn 168,7 krónur í sjálfsafgreiðslu.

Fánum stolið af leiði Jóns Sigurðssonar

Fánar, sem blöktu við hún við leiði Jóns Sigurðssonar í Hólavallakirkjugarði við Suðurgötu, voru horfnir þegar starfsmenn Framkvæmda- og eignasviðs hugðust taka þá niður að kvöldi þjóðhátíðardags.

Bush vill leyfa olíuboranir við strendur Bandaríkjanna

George Bush Bandaríkjaforseti hefur beðið þingið um að aflétta 27 ára banni við því að bora eftir olíu við strendur Bandaríkjanna. Ástæða þess eru sú að hann vill auka sjálfstæði Bandaríkjanna varðandi olíu þannig að þau þurfi ekki að reiða sig á innflutning olíu.

Var smitaður af illskeyttum þráðormum

Ísbjörninn sem felldur var á Þverárfjalli fyrir um tveimur vikum reyndist smitaður af tríkínum sem eru þráðormar sem eru illskeyttir sjúkdómsvaldar í mörgum tegundum spendýra.

Ísraelsmenn samþykkja vopnahlé í Gaza

Ísraelsmenn hafa samþykkt vopnahlé til þess að enda margra mánaða átök við hin palestínsku Hamas-samtök. Á vopnahléið að taka gildi á morgun og ætti það að létta þeirri herkví sem Ísraelsmenn hafa haldið Gazasvæðinu í.

Mikil ásókn í nám Keilis og íbúðir á Vellinum

Rúmlega tvær umsóknir voru um hvert sæti í skóla Keilis á næsta skólaári eftir því sem segir í tilkynningu hans. Umsóknarfrestur um skólavist rann út eftir helgi og bárust alls 621 umsókn um 300 sæti sem til ráðstöfunar.

Málaferli erfið leið fyrir SÁÁ

Ari Matthíasson framkvæmdastjóri SÁÁ segir að samtökin eigi mikið undir samstarfi við Reykjavíkurborg og ríkið sem kaupi ákveðna þjónustu af samtökunum. Af þeim sökum sé ,,erfitt að standa í stjórnsýslukærum gagnvart þessum aðilum."

60 ára og eldri hvattir til að fara út og ganga

Ungmennafélag Íslands hefur hrundið af stað verkefninu Gæfuspor. ,,Gæfuspor er verkefni þar sem fólk 60 ára og eldri er hvatt til að fara út og ganga sér til ánægju og heilsubótar," segir í fréttatilkynningu.

Salmonella á sambýli aldraðra á höfuðborgarsvæðinu

Fjórir einstaklingar tengdir sambýli aldraðra á höfuðborgarsvæðinu greindust með salmonellu í upphafi mánaðarins eftir því sem segir í nýjum Farsóttarfréttum Landlæknisembættisins. Um var að ræða tvo starfsmenn og tvo heimilismenn.

Skipar starfshóp til að fara yfir ísbjarnamál

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur skipað starfshóp til þess að fara yfir mál ísbjarnanna sem gengið hafa á land á síðustu vikum. Óskað verður eftir því að fá lánað eða kaupa búrið sem flutt var til landsins til þess að reyna að fanga birnuna á Hrauni á Skaga.

Utanríkisráðuneytið styrkir Barnaheill

Barnaheill, Save the Children, á Íslandi fengu nýverið 10 milljóna króna styrk frá utanríkisráðuneytinu til menntaverkefnis samtakanna í N–Úganda.

Miklar tafir í Ártúnsbrekku til klukkan 16 hið minnsta

Umferð um Ártúnsbrekku til austurs hefur tafist mikið eftir að flutningabíll með fullfermi valt á hliðina neðst í brekkunni. Búast má við töluverðum töfum, að minnsta kosti til klukkan 16, á meðan reynt verður að koma bílnum á réttan kjöl.

Bændur á dráttarvélum til Brussel

Dráttarvélar voru áberandi á vegum í Belgíu í morgun. Þær stefndu allar sem ein til Brussel. Bændur í Belgíu segjast ekki standa undir sívaxandi olíukostnaði og krefjast þess að stjórnvöld leggi sitt af mörkum til að lækka olíuverðið.

Birnan var tæp 150 kíló

Birnan sem felld var í við Hraun á Skaga í Skagafirði í gær reyndist 147 kíló við vigtun. Forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra segir það sýna að líkamsástand dýrsins hafi ekki verið gott.

Vinir Tíbets tendra kyndil við kínverska sendiráðið

Félagið Vinir Tíbets stendur fyrir mótmælum við kínverska sendiráðið klukkan 17:30 í dag. Tilgangurinn er að vekja athygli á því að hætt hafi verið við að hlaupa með ólympíueldinn um þau svæði Tíbets sem urðu fyrir barðinu á jarðskjálftanum 12. maí.

Sjá næstu 50 fréttir