Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þekktur kínverskur andófsmaður fangelsaður Einn þekktasti andófsmaður Kínverja, Hu Jia, hefur verið dæmdur í þriggja og hálfsárs fangelsi fyrir undirróðursstarfsemi. Jia er þrjátíu og fjögurra ára gamall og hefur barist fyrir mannréttindamálum í Kína um árabil. Á meðal helstu baráttumála hafa verið umhverfismál, trúfrelsi og réttindi þeirra sem smitaðir eru af HIV veirunni. 3.4.2008 07:58
Stjórnarandstaðan sigraði í Zimbabve Nú eru loksins komnar lokatölur í þingkosningunum í Zimbabwe en kosningarnar fóru fram á laugardaginn var. Stjórnarandstöðuflokkur Morgans Tsvangirais fór með sigur af hólmi og hefur nú meirihluta þingsæta á bakvið sig. Enn á eftir að tilkynna um úrslitin í forsetakosningunum sem fram fóru samhliða en Tswvangirai hefur þegar lýst yfir sigri í þeim. 3.4.2008 07:57
Mótmælum hætt í bili Vörubílstjórar hafa nú opnað fyrir umferð á Reykjanesbraut til móts við Sprengisand og á Kringlumýrarbraut við Miklubraut. Miklar tafir sköpuðust af aðgerðunum en ekki er vitað hvar þá mun bera niður næst. 3.4.2008 07:20
Hellisheiði lokuð Margir ökumenn lentu í erfiðleikum á Hellsiheiði í gærkvöldi þegar óveður brast þar á með með snjókomu þannig að fyrst varð fljúgandi hálka og síðan þæfingur og ófærð. 3.4.2008 06:59
Með fíkniefni í miðbænum Tveir karlar, annar um þrítugt en hinn nokkru yngri, voru handteknir í miðborginni síðdegis í gær en báðir voru með ætluð fíkniefni í fórum sínum. Mennirnir tóku afskiptum lögreglu mjög illa og höfðu í hótunum. Kom til átaka og fór svo að beita þurfti varnarúða til að hemja annan þeirra en sá hafði slegið lögreglumann í höfuðið. 2.4.2008 23:00
Ingibjörg Sólrún hittir Rice í Washington Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, mun eiga tvíhliða fund í Washington með Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna þann 11. apríl næstkomandi. 2.4.2008 21:40
AFL undirbýr aðgerðir Á stjórnarfundi AFLs Starfsgreinafélags sem var að ljúka var samþykkt eftirfarandi ályktun um stöðu kjaramála í ljósi verðhækkana og gengisfalls íslensku krónunnar að undanförnu. 2.4.2008 21:36
Ósáttur við ummæli lögreglu Sturla Jónsson, einn af forsprökkum þeirra vöruflutningsbílstjóra sem mótmælt hafa háu eldsneytisverði undanfarið, segist afar ósáttur við ummæli sem höfð voru eftir lögreglunni á Suðurnesjum í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Þar kom fram að mótmæli vörubílstjóra á Reykjanesbrautinni í morgun hefðu tafið lögreglumenn frá því að sinna neyðartilviki. 2.4.2008 20:49
Hættu við áætlunarflug vegna einkaþotu á kostakjörum Forsætisráðuneytið var búið að bóka áætlunarflug til Búkarest með viðkomu í London í eina nótt áður en ákvörðun var tekin um að fljúga frekar á Nato fundinn með einkaþotu. Að sögn Grétu Ingþórsdóttur, aðstoðarkonu Geirs Haarde, var ákveðið að taka síðari kostinn þegar í ljós kom að kostnaðurinn væri aðeins 100 til 300 þúsund krónum meiri. 2.4.2008 20:20
Undirbúa umfangsmiklar aðgerðir Stjórnvöld undirbúa umfangsmiklar aðgerðir í peningamálum á næstu dögum, samkvæmt heimildum Stöðvar tvö. Formenn stjórnarflokkanna funduðu um málið með bankastjórum Seðlabankans í gær, sem er meginástæða þess að þau komust ekki með áætlanaflugi á NATO fund í Búkarest og fóru með leiguflugi í morgun. 2.4.2008 18:32
Ekið á ungling Ekið var á unglingsstúlku í Skeiðarvogi við Vogaskóla um klukkan 20:20 í kvöld. Hún var fluttur á brott með sjúkrabifreið en ekki er vitað um ástand hans að svo stöddu. 2.4.2008 21:14
Heimdallur ályktar til stuðnings Sollu Stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, samþykkti í dag ályktun þar sem tekið er undir hugmyndir Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um lækkun innflutningstolla neytendum til hagsbóta. 2.4.2008 20:45
42 myndaðir á Strandgötu Brot 42 ökumanna voru mynduð á Strandgötu í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Strandgötu í norðurátt, nærri Hellubraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 468 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var liðlega 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 75. 2.4.2008 19:12
Flokkur Mugabe tapaði meirihluta í stjórn Robert Mugabe forseti Simbabve og Zanu flokkur hans hafa tapað meirihluta í ríkisstjórn samkvæmt opinberum úrslitum kosninganna á laugardaginn. Zanu flokkurinn hefur fengið 94 af 210 þingsætum, en stjórnarandstöðuflokkarnir 105. Endanlegar niðurstöður forsetakjörsins hafa ekki enn verið birtar. 2.4.2008 16:48
Tvær grenjaskyttur létust við Blönduvirkjun Seinnipartinn í gær fóru tveir menn til veiða á tófu í skothúsi sem staðsett er á Auðkúluheiði skammt ofan við Blönduvirkjun. Í morgun er þeir skiluðu sér ekki til byggða fór sonur annars þeirra ásamt öðrum manni að til að kanna með þá. 2.4.2008 17:00
Sautján ára á 153 km hraða Sautján ára stúlka var tekin fyrir hraðakstur á Reykjanesbraut, sunnan Hafnarfjarðar, í nótt en bíll hennar mældist á 153 km hraða miðað við klukkustund. 2.4.2008 16:34
Útvarpsstjóri boðar til aðalfundar Aðalfundur Ríkisútvarpsins ohf. verður haldinn fimmtudaginn 17. apríl 2008 í útvarpshúsinu við Efstaleiti 1, Reykjavík, og hefst fundurinn kl. 14.00. 2.4.2008 16:26
Hafa 46 daga til þess að breyta eftirlaunalögum Þingmenn hafa 46 starfsdaga til þess að breyta hinum umdeildu eftirlaunalögum ef utanríkisráðherra á að verða að ósk sinni um að ljúka málinu fyrir þinglok. 2.4.2008 16:10
Forsætisráðuneyti neitar að upplýsa kostnað við einkaþotu Forsætisráðuneytið ætlar ekki að gefa upp kostnað vegna leigu á einkaþotu undir Geir H. Haarde, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og fylgdarlið þeirra til Búkarest. Þetta staðfesti Bolli Þór Bollason ráðuneytisstjóri í dag. 2.4.2008 15:55
SUS hvetur íslenska stjórnmálamenn til að sniðganga ÓL Samband ungra sjálfstæðismanna hvetur íslenska stjórnmálamenn til að sniðganga opnunar- og lokahátíð Ólympíuleikanna sem hefjast í Peking 8. ágúst og sýna með þeim hætti andstöðu íslenskra stjórnvalda við meðferð kínverskra stjórnvalda á þegnum sínum. 2.4.2008 15:53
Samkeppniseftirlitið kannar ummæli um matarhækkun Samkeppniseftirlitið hefur sent tvennum hagsmunasamtökum erindi vegna ummæla á opinberum vettvangi um verðhækkanir á matvælum og gruns um að seilst hafi verið of langt við hagsmunagæslu. Vísar eftirlitið til samkeppnislaga máli sínu til stuðnings. 2.4.2008 15:44
Hættulegur fangi slapp úr haldi í London Hættulegur fangi gengur nú laus í London eftir að hann slapp úr haldi skömmu áður en hann átti að koma fyrir dómara. Þar biðu hans ákærur vegna vopnaðs ráns. 2.4.2008 15:35
Risaeðlupöddur finnast í rafi Vísindamenn hafa fundið fjöldan allan af 100 milljón ára gömlum skordýrum í rafi. Fundurinn minnir á myndina Jurassic Park en í henni voru risaeðlur klónaðar úr blóði skordýrum sem fest höfðu í trjákvoðu sem seinna breyttist í raf. 2.4.2008 15:28
Bush ítrekar að NATO stækki til austurs George Bush Bandaríkjaforseti hefur ítrekað að hann hvetji Nató til að stækka til austurs. Fyrir leiðtogafund NATO í Búkarest í dag hvatti hann til þess að fyrrum Sovétlýðveldin Úkraína og Georgía yrðu boðin velkomin í bandalagið. 2.4.2008 15:21
Handvömm að ráðherra fundaði ekki með nefnd fyrir Búkarestferð Handvömm virðist hafa ráðið því að utanríkisráðherra fundaði ekki með utanríkismálanefnd Alþingis áður en hún hélt á leiðtogafund Atlantshafsbandlagsins í Búkarest í dag. Þetta sagði Árni Páll Árnason, varaformaður utanríkismálanefndar á Alþingi. 2.4.2008 15:19
Sektaðir fyrir að vera með hass í bílnum Tveir piltar voru dæmdir í Héraðsdómi Norðulands eystra í dag til sektar fyrir að hafa haft hass í bifreið sinni sem þeir óku á of miklum hraða. Piltarnir mættu ekki fyrir dóm og var sú fjarvist metin til játningar í málinu. 2.4.2008 15:08
Setur reglugerð um þátttöku TR í kostnaði vegna bæklunarlækna Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð um greiðsluþátttöku Tryggingastofnunar ríkisins vegna þjónustu sjálfstætt starfandi bæklunarlækna sem eru án samninga. 2.4.2008 14:53
Vill fara yfir brunaskýrslu í borgarráði Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, hefur farið fram á það að ný skýrsla Brunamálastofnunar um brunann í miðborg Reykjavíkur í fyrra verið kynnt í borgarráði sem fyrst. 2.4.2008 14:42
Ríkisstjórnin gagnrýnd fyrir aðgerðaleysi í eldsneytismálum Stjórnarandstaðan á Alþingi gagnrýndi í dag ríkisstjórnarflokkanna fyrir aðgerðarleysi í ljósi hækkandi eldsneytisverð. 2.4.2008 14:32
Slökkvistarfi lokið við Grettisgötu Slökkvistarfi lauk laust fyrir klukkan 13 í íbúð við Grettisgötu 86 þar sem kviknað hafði í potti á eldavél. Slökkvilið reykræsti íbúðina og tók lögregla að því búnu við á vettvangi. Íbúðin var mannlaus en nágranni í húsinu tilkynnti um atvikið til slökkviliðs. 2.4.2008 14:23
Tyrkir fella 16 Kúrda Tyrkir segja að herlið þeirra hafi drepið sjö meðlimi kúrdíska uppreisnahópsins PKK í átökum í Sirnak í suðausturhluta landsins. Þá er tala uppreisnarmanna PKK sem Tyrkir hafa fellt komin upp í 16 frá því á mánudag. Átökin hafa átt sér stað við landamæri Írak en þrír tyrkneskir hermenn hafa einnig látist í átökunum. 2.4.2008 14:22
Geir og Ingibjörg hluti af þotuliðinu Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna, gagnrýndi Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra fyrir að nýta sér einkaþotur til þess að fara á fund NATO í Búkarest í dag. 2.4.2008 14:12
Tjón í miðbæjarbruna um 132 milljónir Tjónið í brunanum í miðbæ Reykjavíkur í fyrravor nam rúmum 132 milljónum króna samkvæmt því sem fram kemur í nýrri skýrslu Brunamálastofnunar um brunann. 2.4.2008 13:43
Nokkrar líkur á að eldur hafi komið upp í lofti yfir Fröken Reykjavík Nokkrar líkur eru á því að eldurinn sem eyðilagði húsin að Austurstræti 2 og Lækjargötu 22 í miðborg Reykjavíkur í fyrravor hafi komið upp í loftinu yfir söluturninum Fröken Reykjavík. 2.4.2008 13:30
Lögreglu hafa borist ábendingar um úraþjóf Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu birti í gær mynd af meintum úraþjófi í verslun Hermanns Jónssonar úrsmiðs við Ingólfstorg í síðustu viku. Tveir menn voru að verki og birti lögregla mynd af öðrum þeirra. 2.4.2008 13:12
Eldur í eldhúsinnréttingu í húsi við Grettisgötu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kvatt að Gettisgötu 86 nú í hádeginu en þar logaði eldur í eldhúsinnréttingu í íbúð í húsinu. Snorrabraut hefur verið lokað til suðurs til þess að slökkviliðsmenn geti athafnað sig. 2.4.2008 13:07
Fjöldi manna féll fyrir aprílgabbi Stöðvar 2 Fjöldi landsmanna hljóp apríl eftir að fréttastofa Stöðvar tvö sagði frá því í gær að Vodafone hefði landað samningi við Apple um sölu á iPhone símanum. Það var aprílgabb. Enginn iPhone sími er til sölu í verslunum Vodafone. 2.4.2008 13:01
Leggur fram framkvæmdaáætlun um barnavernd Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingmálaráðherra leggur fram á Alþingi í dag tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun ríkisins í barnavernd. Þetta er í fyrsta sinn sem slík áætlun er lögð fram eftir því sem segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. 2.4.2008 12:53
Geir ræðir við Sarkozy um loftrýmiseftirlit Geir H. Haarde, forsætisráðherra, mun eiga fund með Nicholas Sarkozy Frakklandsforseta í tengslum við leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem hófst í Búkarest í dag. Þar munu þeir ræða loftrýmiseftirlit við Ísland eins og segir í tilkynningu á vef forsætisráðuneytisins. 2.4.2008 12:44
Ábyrgir foreldrar á Akureyri gagnrýna seinagang Félag ábyrgra foreldra á Akureyri gagnrýnir seinagang sýslumannsembættisins á Akureyri á úrskurðum í umgengnismálum foreldra við börn þeirra , og telur óhæft að foreldrar þurfi að bíða mánuðum saman eftir niðurstöðu sýslumanns í þessum málaflokki. 2.4.2008 12:43
Búið að lækka bensínið hjá öllum nema Skeljungi Öll olíufélögin að Skeljungi undanskildum eru búin að lækka hjá sér bensínverð í dag. Verð á bensíni er komið í 129,40 krónur og dísel olían í 138,40. 2.4.2008 12:34
Gríðarlega öryggisgæsla í Búkarest vegna NATO-fundar Gífurlegar öryggisráðstafanir hafa verið gerðar í Búkarest fyrir fund Atlantshafsbandalagsins sem þar hefst í dag. Bush Bandaríkjaforseti undirstrikaði í morgun áherslu sína á að Úkraínu og Georgíu verði boðin aðild að bandalaginu. 2.4.2008 12:29
Tafir á brottför flugvéla vegna mótmæla Tafir urðu á brottför nokkurra flugvéla frá Keflavíkurflugvelli í morgun vegna þess að tugir vörubíla lokuðu Reykjanesbraut í Kúagerði upp úr klukkan fimm í morgun. Enginn missti þó af flugi því áhafnirnar töfðust líka. 2.4.2008 12:23
Líklegast kosið á ný í Zimbabwe Dagblað í eigu ríkisins í Zimbabve segir allar líkur á því að efna verði á ný til forsetakosninga í landinu þar sem hvorugur frambjóðendanna fékk meira en helming atkvæða. Stjórnarandstæðingar hafa lýst yfir sigri. 2.4.2008 12:07
Kviðdómur Díönurannsóknar íhugar niðurstöðu Kviðdómur í réttarrannsókninni á dauða Díönu prinsessu hefur dregið sig í hlé til að íhuga úrskurð sinn. Síðustu tvo daga hefur Scott Baker lávarður og dánardómstjóri dregið saman helstu sönnunargögn áður en hann sendi kviðdóminn úr dómsalnum. 2.4.2008 12:07