Fleiri fréttir

Vilja efla kynningu á iðn- og starfsnámi fyrir börn og unglinga

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í dag tillögu borgarfulltrúa F-lista og Sjálfstæðisflokks um að Reykjavíkurborg geri áætlun sem miði að því að höfuðborgin verði í fremstu röð sveitarfélaga varðandi kynningu á iðn- og starfsnámi fyrir börn og unglinga.

Fær ekki að deyja

Dómari í Dijon í Frakklandi hafnaði í gær kröfu frönsku kennslukonunnar Chantal Sebire um að fá að deyja með aðstoð lækna. Sebire, sem er 52 ára og 3 barna móðir, þjáist af ólæknandi krabbameini í nefholi og hefur æxli afmyndað andlit hennar.

Ferðaskrifstofur uggandi yfir gengissveiflum

Ferðaskrifstofur hafa þegar hækkað verð á utanlandsferðum vegna gengislækkunar krónunnar. Kostnaður Íslendinga á ferðum þeirra erlendis hefur snarhækkað frá því um áramót.

Kröfu RÚV í launaleyndarmálinu hafnað

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hafnaði í dag kröfu Ríkisútvarpsins þess efnis að gildistöku úrskurðar nefndarinnar frá 11. mars síðastliðnum yrði frestað. Þar var úrskurðað að RÚV ætti að veita Vísi aðgang að ráðningarsamningum Þórhalls Gunnarssonar og Sigrúnar Stefánsdóttur dagskrárstjóra.

Borgarstjóri dregur ummælin um Óskar til baka

Í upphafi borgarstjórnarfundar í dag kvað Ólafur F. Magnússon borgarstjóri sér hljóðs og dró til baka fyrri ummæli sín um Óskar Bergsson borgarfulltrúa Framsóknarflokksins frá síðasta fundi borgarstjórnar Reykjavíkur.

Segir hundrað mótmælendur hafa gefið sig fram

Varahéraðsstjóri kínverskra stjórnvalda í Tíbet greindi frá því í dag að um hundrað manns hefðu gefið sig fram við stjórnvöld og viðurkennt að hafa tekið þátt í mótmælum undanfarna dag.

„Fulltrúi sýslumanns ætti að kynna sér lögin“

„Til að byrja með ætti þessi fulltrúi sýslumanns að kynna sér lögin áður en hann fer að gaspra í fjölmiðlum,“ segir Erlendur Þór Gunnarsson, lögmaður Helga Rafns Brynjarssonar. Helgi hefur kært hundrað manns fyrir ummæli sem féllu á Netinu í kjölfar Lúkasarmálsins svokallaða. Eyþór Þorbergsson, lögfræðingur hjá Sýslumanninum á Akureyri sagði í samtali við Vísi í dag að stór hluti kærunnar varðaði ærumeiðingar, sem ekkert erindi ættu á borð sýslumanns.

Fimm slagsmálahundar handteknir um helgina

Fimm slagsmálahundar sem lögregla hafði afskipti af í miðborg Reykjavíkur um helgina, brutu gegn lögreglusamþykkt að því er segir í frétt lögreglunnar.

Máttu kalla Franklín fíkniefnasala

Sigurjón M. Egilsson fyrrum ritstjóri Blaðsins og Trausti Hafsteinsson blaðamaður voru sýknaðir í héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Franklín Stiner, betur þekktur sem Franklín Steiner, stefndi þeim fyrir ummæli sem féllu um hann í Blaðinu árið 2006. Þar var hann meðal annars sagður mesti fíkniefnasali landsins og að allt hefði verið vaðandi í fíkniefnum á heimili hans.

Þjónar brátt liðin tíð á veitingastöðum

TEL AVIV (Reuters) Veitingastaðir í Evrópu, Bandaríkjunum og Japan gera nú tilraunir með nýja tækni sem gerir gestum kleift að panta mat og drykk með aðstoð skjás sem komið er fyrir á borðinu hjá þeim.

Kona á sjötugsaldri tekin fyrir lyfjaakstur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók ellefu ökumenn úr umferð fyrir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi. Sjö voru stöðvaðir á laugardag og fjórir á sunnudag en þetta voru tíu karlar á aldrinum 19-51 árs og ein kona, 18 ára.

Gagnrýna aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar

Fulltrúar Vinstri - grænna og Framsóknarflokksins í efnahags- og skattanefnd gagnrýna að ríkisstjórnin hyggist ekkert aðhafast til þess að takast á við það ástand sem skapast hefur í efnahagslífinu. Þeir benda á að auka þurfi gjaldeyrisforða Seðlabankans.

Stimpilgjöld fyrstu fasteignakaupa af í árslok

Búast má við að frumvarp til laga, sem fjalla um afnám stimpilgjalda af lánum vegna fyrstu húsnæðiskaupa, verði lagt fyrir Alþingi á vormánuðum en frumvarpið er nú á undirbúningsstigi.

Lúkasarmálið látið mæta afgangi

Lúkasarmálið svokallaða er enn til rannsóknar á hjá Sýslumanninum á Akureyri. Lögmaður Helga Rafns Brynjarssonar, sem varð fyrir aðkasti á Netinu í kjölfarið á því að hann var grunaður um að hafa drepið hundinn Lúkas á Akureyri, lagði fram kæru gegn hundrað manns. Fulltrúi sýslumanns á Akureyri segir að málið sé ekki í forgangi . Að stórum hluta er um að ræða ærumeiðingar sem ekkert erindi eiga inn á borð til sýslumanns að hans sögn. Lögmaður Helga sagðist í samtali við Vísi vera undrandi á því hve langan tíma málið hafi tekið.

16 mánaða fangelsisdómur Malakauskas staðfestur

Hæstiréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms yfir Litháanum Tomasi Malakauskas. Hann var dæmdur í 16 mánaða fangelsi fyrir að rjúfa endurkomubann með því að koma hingað til lands.

Rússar brugga fyrsta kvennavodkann

MOSKVA (Reuters) Rússneski vodkaframleiðandinn Igor Volodin er fyrstur áfengisframleiðenda heimsins til að markaðssetja vodka sérstaklega ætlað konum en drykkurinn mun bruggaður með það fyrir augum að henta vel með salatinu eftir líkamsrækt.

Þrír teknir á dag fyrir fíkniefnaakstur

Níutíu og sex manns voru gripnir fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna í febrúar síðastliðnum og hafa ekki verið fleiri frá því í ágúst í fyrra.

Beðið eftir tillögum frá eldsneytisnefnd ráðherra

Bensínlítrinn er kominn upp í tæpar 148 krónur í sjálfsafgreislu hjá stóru olíufélögunum eftir enn eina hækkunina í gær. Fjármálaráðherra hefur ekki enn gert grein fyrir tillögum nefndar um tímabundna lækkun opinberra gjalda á olíu og bensín.

Ráðuneytið segir Gunnstein vanhæfan

Samgönguráðuneytið hefur úrskurðað fyrrverandi formann Íþrótta – og tómstundaráðs í Kópavogi, Gunnstein Sigurðsson, vanhæfan til að fjalla um ráðningu í stöðu verkefnisstjóra æskulýðs- og tómstundarmála í Kópavogi. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar kærðu ákvörðun ÍTK til ráðuneytisins á sínum tíma því þau töldu óeðlilegt að Gunnsteinn tæki þátt í ráðningaferlinu vegna tengsla sinna við einn umsækjandann.

Lögregla stöðvaði bílþjóf við Kringluna

Eftirför lögreglu sem elti mann á stolnum bíl lauk á göngustíg við Kringluna. Talið er að tveir hafi verið í bílnum og náðist annar en hins er leitað. Bílnum var stolið fyrir nokkru síðan og hófst eftirförin fyrir stundu þegar sást til hans. Ekki er vitað á þessari stundu hvort tjón hafi hlotist af á bílnum eða tækjum lögreglu.

Geir svarar spurningum blaðamanna

Geir H. Haarde forsætisráðherra mun ræða við blaðamenn að loknum ríkisstjórnarfundi sem nú stendur stendur yfir í Stjórnarráðinu.

Vélsleðamenn hvattir til að fara varlega um páskana

Það sem af er þessu ári hafa 35 vélsleðaslys orðið hér á landi og eru þau alls 385 síðustu tíu ár. Þetta kemur fram í samantekt Sjóvar Forvarnahúss sem hvetur ökumenn vélsleða til þess að fara varlega nú um páskana.

Yfir 4500 börn fæddust hér á landi í fyrra

4560 börn fæddust hér á landi í fyrra samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birtir í dag. Þar kemur fram að um hafi verið að ræða tæplega 2360 drengi og um 2200 stúlkur. Börnunum fjölgaði eilítið frá árinu áður þegar þau reyndust 4415.

Foreldrafærni til að fyrirbyggja líkamlegar refsingar

Það er tímabært að marka nýja stefnu í velferðarmálum barna með því að efla hæfni foreldra í stað þess að einblína á börn og vanda þeirra, að sögn Braga Guðbrandssonar, forstöðumanns Barnaverndarstofu.

Hillary segir ekki hægt að vinna Íraksstríðið

Hillary Clinton segir nú að ekki sé hægt að vinna stríðið í Írak og þegar upp sé staðið geti það kostað bandaríska skattgreiðendur allt að sjötíu þúsund milljarða króna.

Sjá næstu 50 fréttir