Fleiri fréttir

Loðna við Snæfellsnes

Allur loðnuveiðiflotinn var ræstur út í dag vegna loðnu sem fannst við Snæfellsnes. Talið er að um sé að ræða hrygnur sem búnar séu að hrygna og hafrannsóknarmönnum hafi yfirsést. Þetta þykir tíðindum sæta því að loðnuveiðimenn töldu í gær að veiðitímabilið væri úti.

Laganemar aðstoða nýbúa við gerð skattframtala

Næsta miðvikudag verður „skattadagur" í Alþjóðahúsinu. Þá munu laganemar Háskólans í Reykjavík ásamt sérfræðingum frá Deloitte aðstoða við gerð skattframtala á efstu hæð Alþjóðahússins frá klukkan níu að morgni til níu um kvöld.

Lamdi mann eftir tap í sjómann

Tíu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina en nær allar voru þær minniháttar.

Al Gore kemur til Íslands í apríl

Al Gore, handhafi friðarverðlauna Nóbels og fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, hefur þegið boð forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar um að koma í heimsókn til Íslands dagana 7.-8. apríl næstkomandi.

Umdeilt buxnafrumvarp í Florida

Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur nú til afgreiðslu lagafrumvarp þingmannsins Gary Siplin frá Orlando sem mun, verði það að lögum, banna nemendum í almenningsskólum Florida-ríkis að ganga um með buxurnar hálfa leið niður um sig sem þótt hefur tíska.

Fimm mánaða fangelsi fyrir að stela Magga mörgæs og Mikka mús

Karlmaður var í héraðsdómi Reykjaness dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir innbrot í hús í Höfnum í Reykjanesbæ. Stal hann meðal annars fartölvu, myndavélum og tveimur sparibaukum, þeim Magga mörgæs og Mikka mús. Maðurinn var á skilorði en hann hefur hlotið fjölmarga refsidóma frá árinu 1979.

Dyravörður sýknaður af líkamsárás

Dyravörður á skemmtistaðnum Casino í Keflavík var í Héraðsdómi Reykjaness í dag sýknaður af ákærum um að hann hefði kýlt einn gest skemmtistaðarins með þeim afleiðingum að hann rotaðist og marðist víða um líkamann.

Leigjandi fær ekki að flytja aftur inn í brunaíbúð

Forsvarsmenn Félagsbústaða hafa ekki tekið ákvörðun um það hvort íbúð í fjölbýlishúsi að Hrafnhólum 6-8 þar sem eldur kom upp í gær verði seld. Formaður húsfélagsins hefur hins vegar fengið þau skilaboð frá félagsmálayfirvöldum borgarinnar að konan sem bjó í íbúðinni flytji ekki þangað aftur.

Spurt hvort hið opinbera eigi að ábyrgðartryggja börn í skólastarfi

Stjórn Heimilis og skóla hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna hins svokallaða Mýrarhúsaskólamáls, þar sem móðir var dæmd til að greiða kennara tæpar tíu milljónir króna í bætur vegna örorku sem hlaust af þegar dóttir hennar skellti hurð á kennarann. Í yfirlýsingunni segir að stjórn samtakanna hafi almennt ekki tjáð sig efnislega um einstök mál og að haldið verði í þá reglu í þessu máli. Öll umræða sé hins vegar af hinu góða og segir í yfirlýsingunni að áleitnar spurningar hafi vaknað í kjölfar dómsins.

Atlanta hreinsuð eftir byl á föstudag

Lífið er hægt og bítandi að komast í eðlilegar skorður í Atlanta í Georgia-ríki í Bandaríkjunum eftir að fellibylur olli nokkru tjóni í miðborginni á föstudag. Margar götur í og við miðbæ Atlanta eru enn lokaðar á meðan hreinsun stendur yfir og beinir lögregla þeim tilmælum til fólks að vera helst ekki á ferð nálægt miðbænum eigi það ekki þeim mun brýnna erindi.

Sakar fjölmiðla um að draga upp svarta mynd af fasteignamarkaðnum

Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala, telur umfjöllun fjölmiðla um ástandið á fasteignamarkaði undanfarið ekki forsvaranlega. Verið sé að draga upp óeðlilega svarta mynd af ástandinu og tína til dæmi sem séu algjörar undantekningar, t.d. þegar greint var frá því að verð eigna væri í sumum tilfellum komið niður fyrir upphæð áhvílandi lána.

Mýrarhúsaskólamáli líklega áfrýjað

Konan sem í síðustu viku var dæmd til að greiða kennara við Mýrarhúsaskóla tæpar tíu milljónir króna í bætur ætlar líklega að áfrýja málinu til Hæstaréttar. Lögfræðingur konunnar segir að hvernig sem málið fari muni tryggingafélag konunnar greiða bæturnar. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi konuna til að greiða bæturnar í kjölfar þess að ellefu ára gömul dóttir hennar skellti hurð á kennarann.

Afleysingamenn í umdeildri handtöku

„Við áttum fund um þetta mál í morgun og erum að safna gögnum til þess að glöggva okkur betur á öllum hliðum þess,“ segir Jóhann R. Benediktsson lögreglustjóri á suðurnesjum. Ungur drengur var handtekinn þegar umsátursástand ríkti á heimili í Keflavík á fimmtudagskvöldið en þar hafði karlmaður læst sig inni á klósetti með haglabyssu.

Dick Cheney í óvæntri heimsókn til Íraks

Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, birtist í óvæntri heimsókn til Íraks í morgun og átti þar fund með David Petraeus hershöfðingja og Ryan Crocker, sendiherra Bandaríkjanna í Írak. Á fundadagskrá varaforsetans er einnig að finna fundi með forsætisráðherra Íraks, Nuri al-Maliki, og Jalal Talabani forseta.

Bensínlítrinn aldrei hærri hér á landi

N1 hækkaði bensínið hjá sér rétt fyrir hádegi í dag. Nam hækkunin 3,60 kr og er lítrinn í sjálfsafgreiðslu kominn í 147,90 krónur. Eldsneystisverð hefur aldrei verið hærra hér á landi.

Ögmundur vill að RÚV greini frá launakostnaði

Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður VG segir að sú staðreynd að Ríkisútvarpið neiti að láta Vísi í té upplýsingar um laun æðstu stjórnenda sé dæmi um það sem flokkur hans hafi varað við þegar stofnunin var gerð að opinberu hlutafélagi. Hann segist þeirrar skoðunar að launamál RÚV vera aðgengileg almenningi, enda sé stofnunin rekin fyrir skattfé.

ESB hvetur til stillingar í Kosovo

Framkvæmdastjórn Evrópusambandið hvatti til stillingar í norðurhluta Kosovo þar sem ráðist var gegn hermönnum NATO og lögreglumönnum Sameinuðu þjóðanna sem þar eiga að gæta öryggis.

Segjast ekki hafa myrt saklausa mótmælendur

Stjórnvöld í Kína segja alrangt að saklausir mótmælendur hafi verið myrtir í uppþotum í höfuðborginni Lasa síðustu daga líkt og leiðtogar útlagastjórnar Tíbeta hafa fullyrt. Kínverjar hafa gefið skipuleggjendum mótmælanna frest til dagsins í dag að gefa sig fram.

Jöklar á Íslandi hopa sem aldrei fyrr

Jöklar á Íslandi hopa sem aldrei fyrr og hefur þróunin í þá átt verið sérstaklega ör á undanförnum áratug. Sem dæmi má nefna að á þeim tíma hefur Vatnajökull rýrnað um þrjú prósent og Langjökull um átta prósent.

Aflaverðmæti um 80 milljarðar í fyrra

Aflaverðmæti íslenskra skipa var fimm prósentum meira í fyrra en árið 2006 samkvæmt samantekt Hagstofunnar. Alls nam aflaverðmætið 80 milljörðum í fyrra en var rúmir 76 milljarðar árið á undan.

67 milljarða króna afgangur hjá hinu opinbera

Tekjuafkoma hins opinbera reyndist jákvæð um 67 milljarða króna í fyrra samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Þetta svarar til rúmlega fimm prósenta af landsframleiðslu og tæplega ellefu prósenta af tekjum hins opinbera. Til samanburðar var tekjuafkoman jákvæð um 6,3 prósent af landsframleiðslu árið 2006 og tæp fimm prósent árið 2005.

Jöklar heimsins gætu horfið á áratug

Jöklar heimsins hopa nú sem aldrei fyrr og gætu einhverjir þeirra verið horfnir eftir áratug ef þessi þróun heldur áfram á sama hraða og verið hefur.

Loðnuvertíðinni að ljúka

Síðustu loðnuskipin eru farin í land, fyrir utan eitt, sem liggur austan við Vestmannaeyjar á meðan verið er að frysta um borð, síðustu loðnuna sem fékkst við Eyjar í gær.

Tugir manna frá NATO og SÞ sárir eftir átök í Kosovo

Skotið var á hermenn á vegum NATO og lögreglumenn frá Sameinuðu þjóðunum í óeirðum sem urðu í borginni Mitrovica í norðurhluta Kosovo í morgun. Að minnsta kosti 22 lögreglumenn og tveir hermenn eru slasaðir eftir átökin og hafa hinar alþjóðlegu sveitir hörfað frá svæðum sem lúta stjórn Serba í borginni.

Ekki ólíklegt að Sjálfstæðisflokkur klofnaði vegna ESB

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir ekki ólíklegt að Sjálfstæðisflokkurinn myndi klofna ef kæmi til umræðu um aðild að Evrópusambandinu. Málið gangi þvert á alla flokka og þjóðin myndi skiptast í fylkingar. Þetta sagði ráðherra í viðtali við Sigmund Erni Rúnarsson í Mannamáli í kvöld. Björn segir gallann á umræðunni um ESB vera þann að vegvísi vanti eins og notast sé við þegar leysa eigi alþjóðadeilur.

Grunur um íkveikju í fjölbýlishúsi í Breiðholtinu

Grunur leikur að kveikt hafi verið í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti í morgun þar sem hátt í tvö hundruð manns búa. Engum varð meint af en íbúar í húsinu hafa farið fram á að íbúðin verði seld þar sem óregla sé á leigjendum þar.

Stúlkan frá Bitrufirði ekki alvarlega slösuð

Átta ára gömul stúlka sem flutt var á með þyrlu á slysadeild Landspítalans í Fossvogi frá Bitrufirði eftir slys í dag reyndist ekki alvarlega slösuð. Stúlkan og maður skullu saman þar sem þau voru að renna sér á plastpokum. Manninn sakaði ekki en grunur lék á áverkum á hálsi, höfði og brjóstkassa stúlkunnar samkvæmt upplýsingum sjúkraflutningamanna á Hólmavík.

Sjá næstu 50 fréttir